Dagur - 08.04.1989, Side 4

Dagur - 08.04.1989, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 8. apríl 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 80 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÓRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÚRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Þjóðhættuleg byggðaþróun Langvarandi röskun byggðar hér á landi er mikið áhyggjuefni og reyndar eitt alvarleg- asta vandamálið sem þjóðin stendur frammi fyrir þegar til lengri tíma er litið. Á minnisblaði, sem Byggðastofnun sendi Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra fyrr í vetur, kemur fram að íbúum höfuð- borgarsvæðisins hefur fjölgað um 22 þús- und á síðustu 10 árum, þar af um 4 þúsund á síðasta ári. Á sama tíma fjölgaði íbúum á landsbyggðinni einungis um 5 þúsund manns en þar af er fjölgun íbúa á Suður- nesjum rúmlega 2 þúsund. íbúum á suð- vesturhorni landsins hefur því fjölgað um 24 þúsund manns síðustu 10 árin á sama tíma og íbúum utan þess fjölgaði einungis um 3 þúsund manns. Á minnisblaði Byggðastofnunar kemur berlega í ljós hversu þungur straumur fólks er af landsbyggðinni til höfuðborgar- svæðisins. Á hverju ári hafa mun fleiri flust frá landsbyggðinni til Reykjavíkur en frá Reykjavík út á land og munurinn eykst ár frá ári. Þessi þróun hefur í för með sér gíf- urlega þenslu á höfuðborgarsvæðinu en samdrátt í öðrum landshlutum. Þessi gífur- lega byggðaröskun er þjóðarbúinu beinlín- is hættuleg og hefur Byggðastofnun oftar en einu sinni vakið athygli á því. Stjórnmálamenn hafa lengi rætt um nauðsyn þess að breyta áherslum í aðgerð- um hins opinbera til að hafa áhrif á þróun byggðar. En þeir hafa ekki enn komist af umræðustiginu yfir á framkvæmdastigið og byggðaaðgerðir hins opinbera hafa fram til þessa verið handahófskenndar og máttlitlar. Kerfið í heild stendur t.d. þvers- um gegn því að stjórnsýslustofnanir í eigu ríkisins verði fluttar út á land eins og dæm- in sanna. Það virðist vanta pólitískan kjark og samstöðu til að taka af skarið og grípa til raunhæfra aðgerða til að stöðva byggða- röskunina. Samt er ljóst að mikill meirihluti þjóðarinnar vill að það verði gert, ekki síð- ur íbúar höfuðborgarsvæðisins en aðrir landsmenn. Þessi þróun er engum til góðs. Vaxtarhraði höfuðborgarsvæðisins á sér helst hliðstæðu í þróunarlöndunum. Sú staðreynd ber stjórnmálamönnum þjóðar- innar ekki fagurt vitni. BB. myndbandarýni ~Jl Steinar hf.: Nýleg myndbönd Steinar hf. gáfu út nokkra mynd- bandatitla í mars sem vert er að líta á. Fyrst má nefna stórmynd- irnar Empire of the Sun og Broadcast News sem nýverið voru sýndar í kvikmyndahúsum í Reykjavík. Empire of the Sun (Veldi sólarinnar) er eitt af meistaraverkum Steven Spiel- bergs. Myndin fjallar um lífs- reynslu ungs drengs sem Japanir hneppa í fangabúðir skömmu eft- ir innrás þeirra í Kína. Broadcast News var tilnefnd til 7 Óskarsverðlauna og hefur hún hlotið mikið lof gagnrýnenda. Myndin þykir hrífandi og skemmtileg gamanmynd um ást- arþríhyrning á fjörugri frétta- stofu. William Hurt, Holly Hunt- er og Albert Brooks fara með aðalhlutverkin í myndinni. Hostage fjallar um unga stúlku sem setið hefur í fangelsi í fimm ár fyrir morðtilraun á föður sínum, en hann bíður hennar fyr- ir utan rimlana og því grípur hún til örþrifaráða. Run till You Fall er tilfinninga- leg baráttusaga en með gaman- sömu yfirbragði. Myndin fjallar um einkaspæjara sem dreymir Tvær þrumugóðar - Barfly og Fatal Attraction Mig langar að mæla með tveimur myndum sem ég sá í Borgarbíói í vetur og eru nú komnar á myndbönd. Þetta eru myndirnar Barfly sem Myndbox gefur út og Fatal Attraction sem Háskólabíó gefur út. Þær voru báðar meðal tíu vinsælustu myndbandanna samkvæmt síðasta lista Samtaka íslenskra myndbandaleiga og er það vel skiljanlegt. Barfly gerist í óvenjulegu umhverfi, nefnilega á sóðalegum krám og viðlíka stöðum. Aðal- söguhetjan er drykkfelldur (væg- ast sagt) rithöfundur sem leikinn er af Mickey Rourke. Þessi náungi kynnist annars vegar konu sem er í svipuðum sporum hvað drykkjuna varðar (Fay Dunaway) og hins vegar glæsipíu sem þykir spennandi að lenda í ævintýrum. Óvenjulegur ástar- þríhyrningur. Þessi annars drungalega þjóð- félagslýsing er hlaðin húmor og leikur Mickey Rourke og Fay Dunawey er stórkostlegur. Vissulega má gagnrýna túlkun þeirra á rónum en sjálfseyðingar- hvöt rithöfundarins er sannfær- andi og í heild skapa þessir ágætu leikarar heilsteyptar persónur sem gaman er að fylgjast með. Annan óvenjulegan ástarþrí- hyrning er að finna í Fatal Attraction, einni umtöluðustu spennumynd síðustu ára. Þar leikur Michael Ðouglas ósköp venjulegan eiginmann sem á ósköp indæla eiginkonu. Hann lendir hins vegar í þeirri raun að halda framhjá og það er sannar- lega raun í þessu tilfelli því konan, sem leikin er af Glen Close, er stórvarasöm. Leikur Michael Douglas og sérstaklega Glen Close er magn- aður í þessari æsilegu rnynd. Eftir að þið hafið séð Fatal Attraction getið þið vel skilið af hverju Glen Close var hötuð vel og lengi eftir þetta hlutverk enda þarf maður aðeins að heyra á hana minnst til þess að fá skelfingarhroll. Báðar þessar myndir ættu allir að sjá sem hafaaldurogaðstöðutil. SS The Lift fjallar um afar óvenjulegan morðingja, nefnilega lyftu um að hefja lögfræðinám. Hann er fráskilinn og á bæklaðan son. The Lift fékk mjög jákvæða gagnrýni hjá Variety en myndin er spennandi og fjallar um óvenjulegan morðingja, þ.e. lyftu. I Ought to be in Pictures er eldri mynd og smellin, með þeim Walter Matthau og Ann Margret í aðalhlutverki. Last Embrace er líka eldri mynd sem nú hefur verið gefin út. Þetta er æsispennandi hroll- vekja með Roy Scheider í aðal- hlutverki. Loks má nefna þrjár myndir sem gefnar voru út 30. mars; The Littlest Victims, Once upon a Texas Train og Severance. SS Glæpir í skjóli Víetnamstríðsins Vidcoland: Saigon Útgcfandi: Steinar hf. Leikstjóri: Christoplicr Crowe Aðalhlutverk: Willem Dafoe, Gregory Hines Sýningartími: 97 mínútur Bönnuð yngri en 16 ára Hér er á ferðinni gamla sagan um spiilingu á toppnum. Háttsettir og valdamiklir menn fremja glæpi í skjóli stöðu sinnar. Saigon fjallar hins vegar ekki eingöngu um þetta því hún er býsna slung- in spennumynd í umhverfi sem ekki hefur oft verið notað í kvik- myndum. Willem Dafoe og Gregory Hines leika herlögreglumenn í Saigon. Þeir reyna að hafa uppi á morðingja sem hefur myrt 6 vændiskonur á hrottafenginn hátt, vændiskonur sem voru góð- ir viðskiptavinir hinna baráttu- glöðu bandarísku hermanna í Saigon. Auk þess þurfa þeir að kljást við vietnamska glæpa- flokka og skæruliða frá Viet Kong. Hvað morðingjann varðar er greinilegt að um háttsettan bandarískan yfirmann er að ræða. En hvern? Söguþráðurinn er slungin að mörgu leyti og Saigon er spennu- mynd sem heldur manni við efnið. Willem Dafoe og Gregory Hines eru þó ekki skemmtileg- asta lögguparið sem maður hefur rekist á en þeir standa þokkalega fyrir sínu. Sögusvið myndarinnar er raun- sætt og er Saigon óvenjuleg að því leyti að hún fjallar öðrum þræði um Vieatnamstríðið án þess þó að fjalla sérstaklega um stríðið sjálft. Atburðirnir gerast í borginni Saigon en Vietnamstríð- ið myndar umgjörð um borgina og myndina sjálfa. Christopher Crowe er bæði handritshöfundur og leikstjóri. Hugmynd hans er góð og útfærsl- an yfirleitt einnig. Meiri rækt hefði þó mátt ieggja við persónu- sköpunina en þar er sökina líka að finna hjá aðalleikurunum. SS Samtök íslenskra myndbandaleiga: Vinsælustu myndböndin - vikuna 15/3-30/3 1989 Sæti Áður Mynd (Útgefandi) 1. (-) Crocodile Dundee - 2 ......................... (Háskólabíó) 2. (1) Saigon ........................................... (Steinar) 3. (-) Little Nikita ..................................... (Skífan) 4. (8) Fatal Beauty ............................... (J.B. Heildsala) 5. (-) Broadcast News ......................... (Steinar) 6. (6) Plains, Trains and Automobiles ................ (Háskólabíó) 7. (13) Barfly ........................................... (Myndbox) 8. (2) Frantic .......................................... (Steinar) 9. (5) Police Academy - 5 ............................ (Steinar) 10. (9) Fatal Attraction .............................. (Háskólabíó) 11. (3) Vice Versa ....................................... (Skífan) 12. (-) Can’t Buy My Love ............................. (Bergvík) 13. (4) Wall Street ..................................... (Steinar) 14. (11) Baby Boom ....................................... (Steinar) 15. (26) Biloxi Blues ................................ (Laugarásbíó) 16. (10) Colors ....................................... (Háskólabíó) 17. (-) Buster ........................................ (Arnarborg) 18. (7) Hero and the Terror ............................ (Myndbox) 19. (-) A Prayer For The Dying .................... (J.B. Heildsala) 20. (-) Cop ............................................. (Myndbox) (-) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er nýtt á listanum. (*) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er að koma inn á listann á nýjan leik.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.