Dagur - 08.04.1989, Side 11

Dagur - 08.04.1989, Side 11
Laugardagur-8. apríí >1989 r-. DAGUR - 1,1 Jón Hjaltason Adrían Lyne Leikstjóri Fatal Attraction, Nine Vi Weeks og Flashdance ræðir um lífið á bak við kvikmyndatökuvélina. Jcnnifer Beals í Flashdance. Michacl Douglas róar Glenn Close í Fatal Attraction. Á undanförnum árum hafa fáar bíómyndir valdið jafn miklum taugatitringi meðal ungmenna og Flashdance (1983). Hún sló í gegn og leikstjóri hennar, Bret- inn Adrian Lyne, varð frægur á einni nóttu. Hann var þó langt frá því að vera hrifinn af verkefn- inu þegar það bauðst. „Mér fannst sagan óskapleg della.“ Þetta var önnur kvikmynd Lyne’s því árið 1980 hafði hann gert Foxes en ekki uppskorið neina heimsfrægð fyrir. Lyne þekkti þó ágætlega vel til kvik- myndatöku áður en hann byrjaði að leggja bíómyndagerð fyrir sig því að lifibrauð hans hafði þá lengi verið gerð auglýsinga- mynda. Og enn þann dag í dag hefur Lyne ekki snúið baki við auglýsingamyndunum. „Til að gera bíómynd þarf maður að kljást við pólitík, sitja helling af fundum og standa í stöðugum viðræðum. En auglýsingamynd- unum fylgir eintóm ánægja. Og þess vegna vinn ég ennþá við gerð þeirra.“ Þremur árum eftir Flashdance (1986) gerði Lyne Nine 'A Weeks, ákaflega umdeilda mynd, mest vegna þess að sómakærir borgarar sáu í henni klám. Kvik- myndagagnrýnendur urðu sumir hverjir til þess að afneita kláminu í myndinni og gefa því annað nafn en tilraunin varð álíka hjá- kátleg og þegar ritstjóri Þjóðvilj- ans og Thor Vilhjálmsson sátu hlið við hlið, andagtugir, og störðu í listrænt klof japanska dansarans er heimsótti Islendinga fyrir nokkrum árum og sýndi alls- bera list á listahátíð. Til að ég verði ekki vændur um ósannsögli er rétt að taka fram að Japaninn hafði vafið einhverju torkenni- legu efni, áþekktustu sárabind- um, utan um leyndarliminn. Auðvitað var klám í Nine !á Weeks en hún var hvorki verri eða betri fyrir vikið. En það er segin saga að sérhvað það er lýtur að kynþörfum og kynnautnum mannskepnunnar er mun hættu- legra að sýna á hvíta tjaldinu en hversdagsleg áflog og morð. Hættulegra fyrir hvern veit ég þó ekki. í næstu mynd sinni, Fatal Attraction (1987) smeinaði Lyne kynlífið ofbeldinu og var fyrir vikið tilnefndur til Oskarsverð- launa sem besti leikstjórinn. Ekki alls fyrir löngu átti banda- ríska tímaritið American Film viðtal við Bretann sem við skul- um gægjast í. Sp.: Langaði þig alltaf til að verða leikstjóri? Lyne: Nei því fer fjarri. Ég dundaði mér við að taka ljós- myndir og naut þess. Og ég greip hvert tækifæri sem gafst til að sjá myndir Godards og Bergmans. Ég var ákaflega spenntur fyrir bíóinu en hafði enga ástæðu til að ætla að ég hefði sjálfur einhverja hæfileika sem gætu komið að not- um á því sviði. Sp.: Hvernig byrjaðir þú á þessari braut? Lyne: í langan tíma var ég heimaalningur á skrifstofum umboðsmanna og kvikmyndafyr- Adrian Lyne. irtækja. Ég fylgdist með mönnum eins og John Schlesinger gera sígarettuauglýsingar. Já þeir eru margir frægu leikstjórarnir sem hafa gert auglýsingamyndir. í Bandaríkjunum þykir það ákaf- lega mikil óvirðing fyrir leik- stjórnendur að fást við auglýs- ingamyndir en í raun og veru eru þær frábær aðferð til að læra fag- ið og verða góður leikstjóri. Svo kom þar að ég hnýtti leikstjóratitlinum aftan við nafn- ið mitt og starfsemin hófst. Við settumst niður í litlu herbergi í London og gerðum ekkert í 18 mánuði. Eg lærði að vélrita. Að lokum fékk ég verkefni. Launin voru 600 pund. Sp.: Og hvernig gekk? Lyne: Ég skrifaði nákvæmlega niður hvernig taka ætti myndina og þegar eitthvað fór ekki nákvæmlega eins og ég hafði skrifað varð ég steinhissa. Snilld- aráætlunin var þá ekki pottþétt eftir allt saman. Ég skildi ekki þátt klippingarinnar, að ég gat klippt hvar sem ég vildi og svindl- að og logið með klippingunni einni. Þegar eitt skot mistókst í keðjunni var sem himinn og jörð ætluðu að koma í hausinn á mér. Ég byrjaði að falla saman í vinnslustofunni og gráta. Þarna sat ég með filmuna í höndunum, myndskeið tekin hér og þar, og hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera næst. Þetta var stund sannleikans. Og ennþá er það líkast martröð að skoða skotin en óneitanlega fylgir því góð tilfinn- ing þegar þau takast. Það eru mín einkunnarorð að ekkert sé betra en góð skot, jafnvel kynlíf stenst ekki samjöfnuð, þau taka einfaldlega öllu fram. Sp.: Nú hefur þú unnið með tveimur mjög ákveðnum fram- leiðendapörum - Don Simpson og Jerry Bruckheimer að Flash- dance og Stanley Jaffe og Sherry Lansing að Fatal Attraction. Hvernig var þessi samvinna? Lyne: Ég verð að segja það eins og er að þegar Flashdance var á lokastigi var ég orðinn ansi einmana. Vinnan hafði gengið mjög vel en seinustu vikuna áður en myndin kom út seldi kvik- myndafyrirtækið 25 eða 30% af eignarhluta sínum í henni. Menn voru orðnir hræddir. Mýsnar tóku að flýja skipið og dularfull fundahöld voru á bak við tjöldin. Framkvæmdastjórnin heimtaði að sjá skotin og líkaði þau ekki. Þeir gátu ómögulega skilið að maður notaði aðeins þau góðu og að kannski 50% þeirra höfðu mistekist. Svo byrjaði maður allt í einu að fá boð að ofan um það hvernig hlutirnir áttu að vera eða ekki að vera. Þegar svona er staðið að málum verður ekki hjá því komist að beita blekkingum til að fá sitt fram. Reynsla mín í sambandi við Fatal Attraction var hins vegar öll önnur og betri. Sp.: Hvað gerist ef þú og fram- leiðandinn verða ósammála? Lyne: Ég held að árekstrar séu nauðsynlegir upp að vissu marki. Ég skelfist samfélag eintómra jábræðra. Fjöldinn allur af leik- stjórum heldur að þeir séu heil- agt guðslamb sem ekkert má segja á móti og ekki andmæia í neinu. Þessir menn eru á stór- kostlegum villigötum og vand- ræði þeirra eru yfirþyrmandi. Skiptar skoðanir eru mikilvægar vegna þess að þá þarftu að rétt- læta þínar skoðanir, það sem þú vilt gera, og framleiðandinn þarf að verja sínar. Og ákaflega oft er til þriðja útleiðin sem er betri en báðar hinar. En hún finnst ekki nema árekstrar verði. Sp.: Fatal Attraction er í öllu ólík fyrri mypdum þínum. Var það viljandi vits að svo varð? Lyne: Ég var að sumu leyti sammála þeim gagnrýnendum er sögðu að Nine Jé Weeks hefði verið heldur mikið eins og könn- un á möguleikum kvikmynda- tökutækninnar og því orðið fyrir bragðið svolítið eins og óraun- veruleg glansmynd. í Fatal Attraction reyni ég að hafa augnhrifin fremur í bakgrunni. Ég neitaði mér um öll bakljós og alla filtera. Með öðrum orðum, ég vildi að leikurinn bæri mynd- ina uppi og augnhrifin styddu við bakið á honum en kæfðu hann ekki. Sp.: Komu ekki fleiri en ein sögulok til greina í Fatal Attract- ion? Lyne: Fyrst þegar ég las hand- ritið endaði það þannig að Michael Douglas fór í grjótið vegna þess að fingraför hans fundust á hnífnum sem Glenn Close notaði til að bana sjálfri sér með. Ég las þetta og hugsaði: „Þetta er stórkostlegt. Hún kem- ur höggi á hann úr gröfinni.“ En ef þú eyðir tveimur klukkustund- um í að gera fjölskyldu sem geð- felldasta í augum áhorfenda þá er erfitt að gera þeim annað eins og þetta. Við byrjuðum því tökurn- ar vitandi að ekki var fullákveðið hver endirinn ætti að vera. Ég held að þau málalok sem urðu ofan á að lokum, jafnvel þó þau séu svolítið í barokstíl og óttaleg, hafi betur hæft söguþræðinum. En ég er jafnframt viss um að til er betri endir en sá sem við fundum. Ég hef aldrei skilið allt þetta veður sem gert var út af því að við kvikmynduðum endinn aftur og þá breyttan. Woody Allen myndar upp aftur að minnsta kosti 50% af öllum kvikmyndum er hann gerir. Enginn segir orð við því, að minnsta kosti hef ég ekki orðið var við það. Þegar þú sýnir áhorfendum grófklippta mynd í fyrsta skiptið og gerir síð- an breytingar á henni er það svip- að og að sýna leikrit á litlu sviði og breyta því síðan áður en það er sett upp á Broadway. Sp.: Geturðu úrskýrt fyrir okk- ur hvernig þú gekkst til verks að mynda samræðið í Fatal Attract- ion? Lyne: Með mikilli skelfingu. Vandræðagangurinn var mestur áður en tökurnar hófust. Maður hugsaði of mikið um þetta, talaði of mikið: Nú eru fimm dagar þangað til, sagði ég við Michael og sá um leið eftir orðunum. Það er mjög mikilvægt að flétta inn í ástaratriði einhverju spaugilegu svo áhorfendur fái ástæðu til að hlægja svolítið, - þannig var brókaratriðið með Michael Douglas hugsað. Ef þetta gleym- ist munu áhorfendur engu að síð- ur hlægja en þá verður það vand- ræðahlátur þess sem fer hjá sér við að sjá fólk hafa samfarir. Það er nefnilega vandræðalegt að sitja í bíói með standpínu. Hvað snertir leikarana þá reyni ég að vera léttur í viðmóti og hress því þetta er ákaflega ein- manaleg staða fyrir leikara að vera í. Það hjálpar að ég vinn alltaf með fámennu starfsliði og •hef engan viðbúnað við að koma kyikmyndatökuvélunum fyrir. Tökumenn mínir halda einfald- lega á þeim. Sp.: Hvert er mest kynæsandi atriðið sem þú hefur séð í bíó- mynd? Lyne: Mér fannst atriðið í Witness, þega Harrison Ford og Kelly McGillis horfast í augu fyr- ir utan bílinn og vita um leið að þau eiga eftir að elskast, sérstak- lega rafmagnað. Þarna skapaðist mikill tilfinningahiti og þó snert- ust þau ekki einu sinni. Annars finnst mér að enginn hafi enn náð að kvikmynda virkilega kynæs- andi atriði. Sp.: Þú hefur sagt að þér falli illa að kvikmynda eftir ákveðn- um reglum, eða ákveðinni fyrir- fram gerðri áætlun. Hvað ræður þá staðsetningu tökuvélanna? Lyne: Mér finnst að sagan eigi að ráða á hvern hátt þú myndar atriðin. Þegar þú hefur ákveðið hvaða tilfinningar eru mikilvæg- astar í hverju myndatriði þá áttu að láta stjórnast af því. Þetta á að ráðast á staðnum en ekki löngu áður því þá er boðið heim þeirri hættu að þú hafir ekki nauðsyn- lega tilfinningu fyrir atriðinu og takan getur orðið bæði þvinguð og heimskuleg. Sp.: Hvernig var að vinna með Jennifer Beals í Flashdance? Lyne: Við erum hreinar and- stæður en hún er ákaflega aðlað- andi en ekki mjög kraftmikil. Annars er það mjög athyglisvert hvernig sumir verða stjörnur og aðrir ekki. Tökum Kim Basinger sem dæmi. Hún er ekki tæknísk á borð við Glenn Close en samt hefur hún ríkari eðlisávísun og er fyrir vikið flinkari að færa sér aðstæðurnar í nyt hverju sinni. Þess vegna gæti ég alveg eins trúað þvf að Basinger væri stjarna. Þeir eru margir afbragðs leik- ararnir sem ekki eru stjömur vegna þess eins að þeir krefjast ekki athygli. Þú getur ekki tekið augun af stjörnu. Ég man eftir því að Billy Wilder sagði eitt sinn um Marilyn Monroe að hún væri hræðileg leikkona. Henni gengi illa að læra rulluna og væri langt frá því að sýna einhverja takta við kvikmyndunina. Þeir þyrftu að klippa hluta úr þessari töku og annan úr hinni og þannig skeyta saman skotum úr 15 tökum af sama atriðinu til að fá eitthvað sem bjóðandi væri áhorfendum. En þrátt fyrir þetta væri útkoman sem töfrar og Monroe hrifi bíó- fara upp úr skónum. Sp.: Er mikilvægt fyrir leik- stjóra að vera í senn rithöfundur? Lyne: Ég skrifaði nokkrar af fyrstu stuttu myndunum sem ég gerði og árangurinn var slíkur að ég hef ekkert föndrað við skriftir síðan. Það sem gerist þegar leik- stjóri skrifar er að hann setur á blað það sem hann langar til að mynda. Og áður en við verður lit- ið ertu byrjaður að endurtaka sjálfan þig. Útkoman verða klisjur. Tilbreytingarleysi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.