Dagur - 04.05.1989, Side 5
Fimmtudagur 4. maí 1989 - DAGUR - 5
kvikmyndarýrii
Faðirínn (Seymour Cassel) fylgir syninum (Ariiss Howard) í skólann. Þeir ætla að veiða morðingja.
Táningur í annað sinn
Borgarbíó sýnir: í dulargervi.
Leikstjóri: Martha Coolidgc.
Helstu leikendur: Arliss Howard,
Scymour Cassel, George Wendt
og Suzy Amis.
Paramount Pictures 1988.
Enda þótt ég hafi jafnan orðabók
við skriftarhöndina, og raunar
sitthvað fleira úr leyniorðavopna-
búri mínu, þá fer ég ósjaldan
flatt í glímu minni við íslensk-
una. Hún er erfið viðureignar
ylhýra móðurtungan okkar.
Hvort á til dæmis að skrifa ævi-
sögu með vaffi eða æfisögu með
effi? Eða í dulargervi með effi
eða vaffi? Björninn er ekki unn-
inn þýðendur góðir þótt þið skrif-
ið hví í staðinn fyrir því. Þið
megið svo sem eiga þetta pjatt-
hví í friði fyrir mér en flettið
endilega upp í orðabók Menning-
arsjóðs ef þið eruð ekki vissir á
rithætti. Nú er það alls ekki svo
að í dulargervi sé illa þýdd síður
en svo. Það er bara að gervi er
skrifað á svolítið vafasaman hátt
í titli myndarinnar. Og svo hitt að
hér rétt um daginn sá ég afspyrnu
illa þýdda bíómynd, (Fyrirheitna
landið eða Promised Land) og er
fyrst núna að fá svolitla útrás fyr-
ir skapvonskuna. Ég á víst í nógu
miklu basli eins og er við að
skrifa svo falli í kram réttritunar-
kennara og má ekki við neinu
rugli í þeim efnum á opinberum
vettfangi.
Ekki orð um þetta meira að
sinni. Snúum okkur þess í stað að
sjálfri bíómyndinni, í dulargervi
(Plain Clothes). Þetta er létt-
geggjuð löggugamanmynd.
Arliss Howard (hinn geðugi)
leikur rannsóknarlögreglumann-
inn Nick. Bróðir hans, sem er
menntaskólanemi, lendir í vondu
máli og er legið á hálsi fyrir að
hafa myrt heldur ógeðfelldan
kennara. Nick er ekki á þeim
buxunum að láta bróður sinn
morkna í fangelsi eða jafnvel
steikjast í rafmagnsstólnum fyrir
illvikri annars manns. Hann
bregður því á það ráð að dulbú-
ast í gervi bráðgers 18 ára
menntaskólanema sem honum
finnst þrátt fyrir allt mun verri
kostur en að vera strákslegur
löggumaður á tuttugasta og
fimmta aldursári. En blóð er
þykkara en vatn.
Félagi Nicks í lögreglunni, Ed
Malmburg, sem Seymour Cassel
leikur, tekur að sér að vera for-
eldri „drengsins“ og fylgja hon-
um í skólann. Eftir þetta verður /
dulargervi dulbúin táningamynd.
Hún gerist öll innan veggja skól-
ans eða á skólalóðinni. „Gamal-
mennið“ Nick röltir á milli tán-
inganna, spyr spurninga og gerist
vinsælli en sjálfur Mikael Jakobs-
son, einkum fyrir sakir rothöggs
er hann greiðir skólastjóranum.
Og það fer ekki framhjá neinum
að hormónalíf mannskepnunnar
er aldrei fjörugra en á táningsár-
um hennar.
Umsögnina um þessa mynd
Coolidge má draga saman í eina
setningu. Hún er lauflétt,
skemmtileg og ágætis afþreying
fyrir snjólúna mörlanda sem
húka norður í Dumbshafi í stað-
inn fyrir að flykkjast til Florida.
Samkomuhúsið á Akureyri:
Stórsveitin heldur
tónleika í kvöld
Frá vinabæjamótinu ■ Randers. Finnur Eydal með saxófóninn sinn í for-
grunni.
Stórsveit eða Big-band Tón-
listarskólans á Akureyri heldur
tónleika í Samkomuhúsinu í
kvöld, fimmtudaginn 4. maí,
kl. 20.30. Stjórnandi er Robert
C. Thomas kennari við Tón-
listarskólann, en sveitina skipa
nemendur og kennarar skólans
og eru nemendur í meirihluta.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt, gamalt efni sem nýtt. Má
þar nefna Satin Doll eftir Duke
Ellington og fleiri, Days of wine
and roses eftir Henry Mancini,
Star Dust eftir Hoagy Carmichael,
Chameleon eftir Herbie
Hancock, lög eftir Lennie
Niehaus og fleiri.
Þá flytur sveitin lagið Stakkels
gamle Jazz eftir Nils Jörgen
Steen, en hann stjórnaði Stór-
sveitinni á vinabæjamótinu í
Randers sl. sumar. Þar vakti
sveitin mikla athygli og að sögn
Finns Eydal var aðeins Lahti-
sveitin frá Finnlandi talin betri,
en fyrirfram höfðu Akureyringar
ekki búist við að hafa neitt í hinar
sveitirnar að gera.
Finnur sagði að Stórsveitin
væri nú í mjög góðu formi og
reyndar sú besta síðan hann hóf
að leika með henni, enda sagði
hann eðlilegt að nemendur sýndu
framfarir. Sveitin hefur komið
fram á 12 tónleikum frá því í
júníbyrjun á síðasta ári.
Einleikarar fá mikið að spreyta
sig á tónleikunum í kvöld og
meðal þeirra má nefna Finn Eydal
- bariton sax, Höllu Jónsdóttur -
tenór sax, Atla Örvarsson -
hljómborð, Helenu Bjarnadóttur
- píanó, Inga R. Ingvason -
trommur og Eirík Rósberg -
trompet. SS
íbúð óskast!
Lítil íbúð (2ja til 3ja herbergja) óskast til leigu
sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Kristján Kristjánsson í sím-
um 96-24222 og 96-26367.
Vorgleði
í Glerárskóla
Hin árlega vorgleði Glerárskóla verður haldin
fimmtudaginn 4. maí, uppstigningardag.
M.a. verður hlutavelta, flóamarkaður, kökusala
og m.fl.
Foreldrafélagið verður með vöfflukaffi, leiki í
íþróttahúsinu, spákonur og fimleikasýningu.
Komið og gerið ykkur glaðan dag.
Ath. nemendasýning
veröur sama dag
Stjórn foreldrafélagsins og félagsráð.
Frá og með 2. maí
verðnr afgreiðsla Dags
opin í hádeginu.
auglýsingadeild, Strandgötu 31, sími 24222
KongoROOS
Sporthú^id
Hafnarstræti 94 Sími 24350