Dagur - 09.05.1989, Blaðsíða 1

Dagur - 09.05.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, þriðjudagur 9. maí 1989 85. tölublað Peysur • Bolir HERRADEILD JOggÍnggallar Gránufélagsgötu 4 ^ Akureyri • Sími 23599 Þrotabú Sæbliks á Kópaskeri: Bústjóri heldur fund í dag með Geflumönnum I dag hefur verið boðaður formlegur fundur bústjóra í þrotabúi Sæbliks hf. á Kópa- skeri með forsvarsmönnum Geflu hf. á Kópaskeri um kaup ístess hf.: NógafbætiefQum fyrir framleiðslu þessarar viku „Við höfum nægilegt magn á lager fyrir framleiðslu þessarar viku. En ef verkfallið leysist ekki á allra næstu dögum stöðvast öll starfsemi hér,“ sagði Einar Sveinn Ólafsson, verksmiðjustjóri hjá ístess hf., en vegna verkfalls BHMR hefur verksmiðjan ekki fengið af- greidd innflutt bætiefni og víta- mín til framleiðslu fiskifóðurs svo og það erlenda fóður sem verk- smiðjan flytur inn. Rannsóknastofnun landbúnað- arins sér um útgáfu innflutnings- vottorða fyrir nefndar vörur. Starfsmenn þar eru í Félagi íslenskra nátturufræðinga, sem er eitt þeirra aðildarfélaga í BHMR sem hefur verið í verk- falli í rúman mánuð. óþh hennar á eignum þrotabúsins á Kópaskeri. Gefla hf. var stofnuð sunnu- daginn 23. apríl sl. í því skyni að kaupa og reka rækjuvinnslu á Kópaskeri. Hugmyndin er að hlutafélagið kaupi rækjuvinnslu og verbúð þrotabúsins á Kópa- skeri og komi hjólum rækju- vinnslunnar af stað á nýjan leik. Á haustdögum starfrækti Jökull hf. á Raufarhöfn rækjuvinnsluna í þrjá mánuði, en um skeið hefur hún legið niðri. Ef samningar takast fljótlega um kaup Geflu hf. á eignum þrotabús Sæbliks vonast heima- menn til að koma vinnslunni af stað sem fyrst. Pað er þó vita- skuld háð því að hráefni fáist. Að undanförnu hefur verið unnið ötullega að því að fá skip til að leggja upp í sumar hjá væntan- legri rækjuvinnslu Geflu hf. á Kópaskeri og samkvæmt upplýs- ingum Dags eru góðar horfur á því að náist samningar um að skip leggi þar upp rækju upp úr mánaðamótum maí-júní. Ekki hefur enn tekist að selja skip þrotabús Sæbliks hf., Árna á Bakka ÞH-380. Skipið hefur ver- ið auglýst í tvígang í dagblöðum að undanförnu og þar kemur frant að frestur til að skila tilboð- um í skipið renni út 17. maí nk. óþh llaraldur Bessason rektor Háskólans á Akureyri, tekur fyrstu skóflustunguna að stúdentagarði við Skarðshlíð, við liátíðlega athöfn á sunnudaginn. Myiul m>n Akureyri: Fyrsta skóflustungan að stúdentagarði við Skarðshlíð A sunnudaginn tók Haraldur Bessason rektor Háskólans á Akureyri, fyrstu skóflustung- Fimm kaupfélög á Norðausturlandi ræða um samstarf um slátrun: 40 milljónir sparast í föstum kostnaði Að undanförnu hafa farið fram viðræður fimm kaupfélaga á Norðausturlandi, frá Eyjafirði til Vopnafjarðar um hugsan- legt samstarf um slátrun á þessu svæði. Markmiðið með þessum viðræðum er að kanna hvort unnt sé að ná fram hag- kvæmni og sparnaði fyrir svæðið í heild. „Við leggjum áherslu á að enn hefur engin ákvörðun verið tekin um framtíðarskipan þessara mála. Við höfum verið að skoða þau frá flestum hliðum og þegar séð möguleika á sparnaði í föst- um kostnaði við sauðfjárslátrun á svæðinu upp á allt að 40 milljónir króna á ári ef sláturhúsum yrði fækkað,“ segir Jóhannes G. Sig- urgeirsson. Hann segir ljóst að með helmingsfækkun sláturhúsa á svæðinu, frá sex í þrjú, myndi nást fram mikil hagkvæmni. Rætt hefur verið um rekstur sláturhúsa á Pórshöfn, Húsavík og Akureyri en jafnframt yrðu húsin á Dalvík, Vopnafirði, og Kópaskeri úrelt. Um þetta liggja þó engar niður- stöður fyrir og á þessu stigi er örðugt að spá fyrir hvernig háttað yrði viðræðum við ríkisvaldið um úreldingu. Fyrir liggur umsókn um úreldingu á sláturhúsinu á Dalvík en hún hefur ekki enn fengist afgreidd. Jóhannes segir ekki ljóst hve- nær niðurstöður fást úr þessum viðræðum kaupfélaganna en búast megi við að línur skýrist um næstu mánaðamót. óþh una aö stúdentagarði viö Skaröshlíö á Akureyri. Félags- stofnun stúdenta undirritaði samning þann 5. maí sl. við SS Byggi hf. og Möl og Sand hf., um að sjá um byggingu stúdentagarðsins. Samningurinn hljóðar upp á kr. 69.958.470,- og skal verktaki skila íbúðunum fullfrágengnum 1. okt. n.k. en sameign á 1. hæð og frágangi lóðar eigi síðar en 1. nóv. n.k. Að meðtöldum gjöld- um og kostnaði við útboð, ráðgjöf, byggingareftirlit o.fl., mun heildarkostnaður nema um 74 niilljónum króna. Húsið verður á þremur hæðum, samtals 1533 ferm. í hús- inu verða 14 einstaklingsher- bergi, 4 paraíbúðir, 4 tveggja herb. íbúðir og 2 þriggja herb. íbúðir. Gert er ráð fyrir vistar- verurn fyrir samtals 34 fullorðna íbúa. Bygginganefnd F.S. var skipuð í byrjun mars sl. en í henni eiga sæti þeir Jón Þórðarson brautar- stjóri við Háskólann á Akureyri, formaður, Erlingur Aðalsteins- son framkvæmdastjóri Verka- mannabústaða og Sigurður P. Sigmundsson framkvæmdastjóri I.F.E. og formaður F.S. Ráðgjafi F.S. er Pétur Torfason hjá Verk- fræðiskrifstofu Sigurðar Thor- oddsen. -KK Aðalfundur Kaupfélags V-Húnvetninga: Rekstrarhagnaður tæpar 150 þúsund krónur á síðasta ári - þegar búið er að afskrifa skuldir, færa niður viðskiptakröfur og Aðalfundur Kaupfélags V.- Húnvetninga fór fram í síðustu viku á Hvammstanga. Þar kom fram að hagnaður varð á rekstri félagsins á síðasta ári upp á rúmar 149 þúsund krónur. Það kom út er búið var að afskrifa skuldir, færa niður viðskiptakröfur og taka aukafyrningar upp á samtals 12,1 milljón. Mun þessi niður- staða vera svipuð og árið áður, heldur verri ef eitthvað er. Heildarvelta Kaupfélags V.- Húnvetninga á síðasta ári var 737,3 milljónir og jókst um taka aukafyrningar upp á samtals 12,1 milljón 36% á milli ára. Niðurstöðutala efnahagsreikn- ings var 742 milljónir, þar af var eigið fé 171 milljón, eða um 23%. Hlutfallið minnkaði örlítið frá ’87, en þá var eigið fé 25,6% af niðurstöðutölu efnahagsreikn- ings. Skuldir félagsins eru um 571 milljón króna, og eru afurðalán þar að stærstum hluta. Félags- menn í K.V.H. eru 538 og fastir starfsmenn um 50. Launagreiðsl- ur til þeirra á síðasta ári námu um 68 milljónum króna. „Við flutum að þessu sinni. Forsagan vegur þungt í því, við höfum ekki verið með hallarekst- ur um fjölda ára. Lausafjárstað- an hefur verið góð, þannig að við höfum hvergi lent í vanskilum. Við höfum ekki lent í verulegum samdrætti og höfum ekki tapað á afurðavinnslu, hvorki í mjólkur- stöð né sláturhúsi," sagði Gunnar V. Sigurðsson, kaupfélagsstjóri V.-Húnvetninga, í samtali við Dag, aðspurður um ástæðu fyrir rekstrarhagnaði, á meðan flest önnur kaupfélög skila tapi. Gunnar var spurður um horfur þessa árs í rekstrinum. „Okkur líst þunglega á þær. Hér eru erf- iðleikar í atvinnulífinu á Hvammstanga og í héraðinu, þannig að það má birta verulega til ef það á að ganga vel,“ sagði Gunnar, og hélt áfram: „Þetta hérað er á niðurleið, eins og landsbyggðin öll. Þeir sem stjórna landinu þurfa eitthvað að fara að hugsa, hvort þeir ætla að hafa það í byggð nema bara Reykjavík og Reykjanes. Það er orðið tímabært að stjórnmála- menn hugi vel að því hvernig þeir ætla að haga búsetu í þessu landi. Eigið fé kaupfélagsins verður einskis virði þegar fólkið verður farið úr héraðinu." -bjb

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.