Dagur - 09.05.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 9. maí 1989 - DAGUR - 7
Klæðist landsliðsmaðurinn Páll Ólafsson KA-skyrtunni næsta vetur?
Skíðaganga:
Akureyringar unnu
- þrefalt í íslandsgöngunni
Þá er lokið keppnistímabili
skíðagöngumanna á þessu ári.
Síðustu göngumótin voru hald-
in á Isafirði um síðustu helgi en
það voru Fossavatnsgangan og
Islandsmót öldunga. Þá réðust
úrslitin í Islandsgöngunni og
áttu Akureyringar þrjá sigur-
vegara af fjórum. Þetta voru
þeir Arni Freyr Antonsson,
Sigurður Aðalsteinsson og
Rúnar Sigmundsson sem sigr-
uðu í karlaflokkunum.
Lokastaðan í íslandsgöngunni:
Karlar 17-34 ára stig
1. Árni Freyr Antonsson A. 50
2.-3. Rögnvaldur Ingþórsson I. 35
2.-3. Sigurgeir Svavarsson Ó. 35
4. Haukur Eiríksson A. 25
Karlar 35-49 ára
1. Sigurður Aðalsteinsson A. 75
2. Ingþór Bjarnason í. 60
3. Sigurður Bjarklind A. 55
Karlar 50 ára og eldri
1. Rúnar Sigmundsson A. 70
2. Matthías Sveinsson R. 40
3. -4. Þorlákur Sigurðsson A. 20
3.-4. Viggó Benediktsson R. 20
Konur 17-34 ára
1. Ragna Finnsdóttir í. 40
| 2. Stella Hjaltadóttir í. 25
Sigurvegararnir frá Akureyri: Árni Freyr Antonsson, Sigurður Aðalsteins-
son og Rúnar Sigmundsson.
Nú eru nokkrar líkur á því að
Páll Ólafsson KR, landsliðs-
maður í handknattleik, gangi
til liðs við KA næsta vetur.
Páll hefur sótt um stöðu dreif-
ingarstjóra Vífilfells h.f. á
Norðurlandi og ef hann fær þá
vinnu, flytur hann til Akureyr-
ar og leikur með KA næsta
vetur.
KA-menn eru nú á fullu að
leita að þjálfara fyrir næsta vetur
og hafa þegar rætt við marga
íslenska þjálfara. Peir voru í við-
ræðum við Þorbjörn Jensson en
hann hefur nú tekið að sér Vals-
liðið. Einnig var Guðmundur
Þórðarson, fyrrverandi þjálfari
ÍR-inga, inni í myndinni en hann
hefur nú ákveðið að gerast
aðstoðarþjálfari hjá Eyjólfi
Bragasyni með ÍR-ingunum og
einnig leika með liðinu.
Einnig hefur heyrst að KA hafi
áhuga á því að endurráða Ljubo
Handknattleikur:
PáU í KA?
ef hann fær starfið fyrir norðan
hinn júgóslavneska sem þjálfaði
liðið á undan Brynjari Kvaran.
Hann starfar nú í Frakklandi og
hefur gert það síðan hann hætti
með KA-liðið.
KA hefur þar að auki látið
kanna fyrir sig með þjálfaramál í
V-Þýskalandi og' skýrist þetta
sjálfsagt allt saman mjög fljótlega
því flest hin 1. deildarfélögin
hafa þegar gengið frá sínum
þjálfaramálum.
Vel heppnað
ftmleikamót
- hjá Fimleikafélagi Akureyrar
Fimleikafélag Akureyrar hélt
veglega sýningu í íþróttahöll-
inni á Akureyri á sunnudag-
inn. Þar sýndu tæplega hundr-
aö fimleikakrakkar listir sínar
og var þeim vel tekið af fjöl-
mörgum áhorfendum sem leið
sína lögðu í Höllina.
Þó nokkur gróska hefur verið í
fimleikaíþróttinni á Akureyri í
vetur og hafa rúmlega 300 krakk-
ar æft reglulega í Glerárskóla.
Það sem háir viðgangi íþróttar-
innar er þó vöntun á fimleika-
gryfju og öðru því sem þarf til
þess að hægt sé að æfa þessa
íþrótt við bestu aðstæður.
Þessar stúlkur voru meðal þeirra fjölmörgu fimleikakrakka sem sýndu listir sínar á sýningu Fimleikafélags Akurcyr-
ar í Iþróttahöllinni á Akureyri á sunnudaginn. Mynd: ap
Blak:
KA í Evrópukeppnina
íslandsmeistarar KA í blaki
munu að öllum líkindum taka
þátt í Evrópukcppni meistara-
Iiði á næsta keppnistímabili.
KA mun þá, ef að líkum lætur,
lenda á móti liði frá hinum
Norðurlöndunum, Bretlandi
eða Luxemborg.
á næsta keppnistímabili?
Að sögn Stefáns Magnússonar
formanns blakdeildar KA er í
ráði að skrá félagið til þátttöku í
þessari keppni og spila báða leik-
ina á Akureyri ef samkomulag
næst við hitt liðið. Þetta er þó
enn í athugun og þá sérstaklega
kostnaðarhliðin og mun ákvörð-
un verða tekin mjög fljótlega.
Síðast tók íslenskt lið þátt í
slíkri keppni árið 1984 er Þróttar-
ar kepptu tvo leiki í Noregi við
þarlent lið. Þróttur tók einnig
þátt í keppninni árið þar áður og
eru það einu skiptin sem íslenskt
félagslið hefur tekið þátt í slíkri
keppni.