Dagur - 09.05.1989, Page 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 9. maí 1989
myndasögur dags
i-
ARLAND
Eg skal spyrja af-
greiöslustúlkuna hvort
hún eigi þær í yfir-
stæröum.
Þú mein-
ar fitu-
stærð-
um!
... Margrét! Éigum við þessar í
stæröum sem passa á litla fitu-
hlunkinn hérna?!!
ANDRÉS ÖND
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
rflTT Tí T TTT?
Si ifflU U JSS. 1 S JÚ_
# Er ekki keppt
í spjótkasti?
UMSE hélt frjálsíþróttamót í
Íþróttahöllinní síðastliðið
föstudagskvöld. Það eitt er í
sjálfu sér ekki ( frásögur
fœrandi, nema hvað þegar
mótið var hafið og Gunnar
Níelsson starfsmaður íþrótt-
hallarinnar búinn að koma
sér þægilega fyrir i
afgreiðslunni hringir
síminn. Gunnar svarar og
þar er karlmannsrödd sem
spyr hvort ekki sé frjáls-
iþróttamót i gangi. Gunnar
jánkar því og þá spyr mað-
urinn hvort spjótkastið sé
búið! Það komu smá vöflur
á Gunnar, hann hugsaði sig
um í smá tíma og taldi full-
vist að einhver af kunningj-
um hans væri að plata sig.
„Nei, veistu að það er búið
að fresta spjótkastinu,"
svaraði hann því alvarlegri
röddu.
„Nú, af hvaða ástæðu,“
svarar þá maðurinn í síman-
um og virðist vera hálf-reið-
ur yfir þessu svari. Nú fóru
að renna tvær grímur á
Gunnar þvi hann kannaðist
ekkert við röddina. „Þú hlýt-
ur að vera grínast," svaraði
hann því á léttari nótunum.
Maðurinn brást hinn versti
við þessu svari. „Af hverju
ætti ég að vera að því?“
sagði hann. Nú var aðeins
farið að síga í Gunnar og
hann spurði símamanninn
hvort hann gerði sér grein
fyrir því hvað Höllin væri
löng. Maðurinn viðurkenndi
að hann væri ekki alveg viss
og Gunnar tjáði honum
að vegalengdin væri um 48
metrar. „Ja, það er alveg
nóg þvi við höfum ekki náð
góðum tökum á þessu nýja
spjóti!“ Það er ekki oft sem
menn hafa séð Gunnar orð-
lausan en það eina sem
hann gat sagt þarna var
hvort ekki væri í lagi með
manninn. Þá fékk hann yfir
sig flaum af fúkyrðum um
dónaskap og óliðlegheit
opinberra starfsmanna og
kvöddust því Gunnar og
þessi símnotandi með litl-
um elskulegheitum en ekki
er enn vitað hvar þessi mað-
ur fékk þá flugu í höfuðið að
keppa ætti i spjótkasti á
innanhússmóti UMSE.
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Þriðjudagur 9. maí
17.50 Veistu hver Nadia er?
Þriðji þáttur.
18.15 Freddi og félagar (10).
18.45 Táknmálsfréttir.
18.55 Fagri Blakkur (3).
19.20 Leðurblökumaðurinn.
19.54 Ævintýri Tinna.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagbók fuglanna.
(Birds for all Seasons.)
Þriðji hluti.
Bresk fræðslumynd í þremur hlutum um
fuglalíf á jörðunni.
21.25 Stefnumót við dauðann.
(Shake Hands Forever.)
Annar þáttur.
Bresk sakamálamynd í þremur þáttum
gerð eftir sögu Ruth Rendell.
Wexford lögregluforingi er nokkuð viss
um hver myrti Angelu Hathall, en hann á
erfitt með að færa sönnur á það.
22.20 Lifandi dauð.
Þáttur um sifjaspell í umsjón Kolbrúnar
Halldórsdóttur.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok.
Sjónvarp Akureyri
Þriðjudagur 9. maí
16.45 Santa Barbara.
17.30 Dægradvöl.
(ABC’s World Sportsman)
Þáttaröð um frægt fólk með spennandi
áhugamál.
18.45 Elsku Hobo.
19.19 19:19.
20.00 Alf á Melmac.
Bráðfyndin teiknimynd með geimálfinum
Alf og fjölskyldu hans heima á Melmac.
20.30 íþróttir á þriðjudegi.
21.25 Indlandsferð Leikfélags Hafnar-
fjarðar.
Seinni hluti.
22.00 í klóm drekans.#
Karate-myndir eru fremur fátíðar á skjá
áskrifenda Stöðvar 2 og líklega sárt sakn*
að af karate-áhugafólki. Myndin sem hér
greinir frá er með karate-goðinu Bruce
Lee í aðalhlutverki en hún er talin síðasta
og jafnframt besta stórmyndin sem hinn
frækni kappi lék í. Hér lætur Bruce til sín
taka í hörðum eltingaleik við ópíum-
smyglara og það er óhætt að treysta því
að áhorfendur verða ekki fyrir vonbrigð-
um með fimar og glæsilegar hreyfingar
karate-kóngsins þegar hann bregður fyrir
sig sjálfsvamaríþróttinni.
Aðalhlutverk: Bmce Lee, John Saxon og
Ahna Capri.
Alls ekki við hæfi barna.
23.40 Opnustúlkurnar.
Mjúkir og bogadregnir kvenkroppar úr
Playboy-blöðunum, hnittinn einkaspæj-
ari, spenna og óvænt endalok einkenna
þessa fjömgu mynd
Alls ekki við hæfi barna.
01.15 Dagskrárlok.
Rás 1
Þriðjudagur 9. maí
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Randveri Þorlákssyni.
Fréttayfiriit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forystu-
greinum dagblaðanna að loknu fréttayfir-
liti kl. 8.30.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
- „Sumar í sveit" eftir Jennu og Hreiðar
Stefánsson.
Þórunn Hjartardóttir les (8).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 í garðinum
með Hafsteini Hafliðasyni.
9.40 Landpósturinn - Frá Suðurnesjum.
Umsjón: Magnús Gíslason.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Florence Nightin-
gale.
13.35 Miðdegissagan: „Brotið úr töfra-
speglinum" eftir Sigrid Undset.
Þómnn Magnea Magnúsdóttir les (10).
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Eftirlætislögin.
15.00 Fróttir.
15.03 Glott framan í gleymskuna.
Friðrik Rafnsson fjallar um mið-evrópskar
bókmenntir.
16.00 Fróttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fróttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Stravinsky og
Prokofiev.
18.00 Fréttir.
18.03 Á vettvangi.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá - „Söngvar Svantes*'.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Kirkjutónlist.
21.00 Kveðja að austan.
Úrval svæðisútvarpsins á Austurlandi í
liðinni viku.
Umsjón: Haraldur Bjamason. (Frá Egils-
stöðum.)
21.30 Útvarpssagan: „Löng er dauðans
leið" eftir Elsu Fischer.
Erla B. Skúladóttir les (7).
22.00 Fréttir ■ Dagskrá morgundagsins -
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Leikrit vikunnar: „Draumaströnd-
in" eftir Andrés Indriðason.
23.10 Tónskáldatími.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Þriðjudagur 9. maí
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun,
Áslaug Dóra kl. 9.
Morgunsyrpa Áslaugar Dóm Eyjólfsdótt-
ur.
11.03 Stefnumót.
Jóhanna Harðardóttir.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu
með Gesti Einari Jónassyni.
14.05 Milli mála.
- Óskar Páll Sveinsson.
16.03 Dagskrá.
18.03 Þjóðarsálin.
Þjóðfundur í beinni útsendingu.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.00 Hátt og snjallt.
20.30 Útvarp unga fólksins.
21.30 Hátt og snjallt.
Enskukennsla á vegum Fjarkennslu-
nefndar og Málaskólans Mímis.
Ellefti þáttur.
22.07 Bláar nótur.
Pétur Grétarsson kynnir djass og blús.
01.10 Vökulögin.
Fréttir eru sagðar kl. 2, 4, 7, 7.30, 8, 8.30,
9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19,
22 og 24.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Þriðjudagur 9. maí
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Þriðjudagur 9. maí
07.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson
með morgunþátt fullan af fróðleik, frétt-
um og ýmsum gagnlegum upplýsingum
fyrir hlustendur, í bland við góða morgun-
tónlist.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Valdís er með hlutina á hreinu og leikur
góða blöndu af þægilegri og skemmtilegri
tónlist eins og henni einni er lagið.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Óskalögin, kveðjurnar, nýjustu lögin,
gömlu góðu lögin - allt á sínum stað.
Bjarni Ólafur stendur alltaf fyrir sínu.
18.10 Reykjavík síðdegis - Hvað finnst
þér?
Hvað er efst á baugi? Þú getur tekið þátt
í umræðunni og lagt þitt til málanna í
síma 611111. Þáttur sem dregur ekkert
undan og menn koma til dyranna eins og
þeir eru klæddir þá stundina.
Steingrímur Ólafsson stýrir umræðunum.
Fróttir kl. 8, 10, 12, 14, 16 og 18.
Fréttayfirlit kl. 9, 11, 13, 15 og 17.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Meiri tónlist - minna mas.
20.00 Sigursteinn Másson.
Ný - og góð tónlist, kveðjur og óskalög.
24.00 Næturdagskrá.
Þáttur um sifjaspell
Kl. 22.20 í kvöld verður á dagskrá Ríkissjónvarpsins þáttur sem
fréttastofan hefur látið gera um sifjaspell. Umsjón með þættinum hef-
ur Kolbrún Halldórsdóttir og mun hún þar ræða við konur sem sjálfar
voru þolendur sifjaspella í æsku og mæður þolenda sifjaspella, auk
þess sem rætt verður við menntamálaráðherra um það hvort eitthvað
sé verið að gera í hans ráðuneyti til þess að uppræta þennan glæp.
Þá verður rætt við Gunnar Sandholt yfirmann fjölskyldudeildar Fé-
lagsmálastofnunar, Boga Nilsson rannsóknarlögreglustjóra ríkisins,
Guðrúnu Jónsdóttur félagsráðgjafa, sem stýrt hefur starfi Vinnuhóps
gegn sifjaspellum og Erlu Kristjánsdóttur kennara í siðfræði við
Kennaraháskóla Islands. Meðan á útsendingu þáttarins stendur
verður opinn sími á vegum vinnuhóps gegn sifjaspellum. Símanúm-
erið er 21260 og er hann opinn þolendum sifjaspella og aðstandend-
um þeirra sem hafa hug á að leita sér aðstoðar.