Dagur - 23.05.1989, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 23. maí 1989
fréffir
Góðri grásleppuvertíð á austan-
verðu Norðurlandi nær lokið
- svæðið frá Húsavík til VopnaQarðar með um 70% af heildarveiðinni þann 8. maí sl.
Þann 8. maí sl. var heildar-
veiðin á grásleppuvertíðinni
komin í um 6 þúsund tunnur.
Besta veiðin hefur verið á
norðausturhorni landsins þar
sem veiðst hafa um 70% af
heildarveiðinni en sjómenn
þar hafa nú almennt dregið
upp enda er útlit ekki gott með
grásleppuhrognasölu og þeir
því hvattir til að veiða ekki
nema örugg sala á hrognunum
sé í sjónmáli.
Heildarveiðin á vertíðinni í
fyrra var 10.200 tunnur en Örn
Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda
segist reikna með að nú sé veiðin
komin í um 7000 tunnur. Sjó-
menn á norðaustanverðu landinu
dragi nú upp net sín í góðri veiði
en þeir hafi almennt orðið við til-
mælum um að veiða ekki upp í
ógerða samninga.
„Slíkt gæti haft í för með sér
verðfall og að menn færu að
bjóða hrognin á lægra verði til að
losna við þau. Slíkt má bara ekki
gerast,“ segir Örn.
Grásleppuvertíðin hófst fyrr á
Norðurlandi en á öðrum svæðum
landsins. Örn segir að þrátt fyrir
það hafi veiðin verið best á þessu
svæði. Grásleppuvertíðin stendur
fram til 20. júní nk. JÓH
Steinullarverksmiðjan:
Drög að sanmingi gerður
við japanskt stórfyrirtæki
- um prufubræðslu á hráefni Japananna
í raíbræðsluofni verksmiðjunnar
Þrátt fyrir ýmis Ijón á veginum
í rekstri Steinullarverksmiöj-
unnar, fjárhagslega, er margt
Átaksverkeftiið á Hvammstanga:
Kynmngarftmduriim
var flölsóttur
- skipuð undirbúningsneínd íyrir leitarráðstefiiu
Kynningarfundur um átaks-
verkefni á Hvammstanga fór
fram í Félagsheimilinu sl.
föstudagskvöld. Fundurinn var
fjölsóttur og tóku fundarmenn
vel undir þær hugmyndir sem
voru kynntar fyrir þeim. Flutt
voru framsöguerindi og að
þeim loknum uröu almennar
umræður. Þá var skipuð undir-
búningsnefnd fyrir leitarráð-
stefnu, sem halda á í lok júní á
Hvammstanga.
Framsöguerindi fluttu Þórður
Skúlason, sveitarstjóri, Gunnar
Sæmundsson, Hrútatungu, Pór-
arinn Þorvaldsson, Þóroddstöð-
um, Herbjört Pétursdóttir,
Melstað, og Kristófer Oliversson
frá Byggðastofnun. Heimamenn
töluðu um atvinnuþróun og stöðu
mála á Hvammstanga og í nær-
sveitum. Kristófer kynnti m.a.
átaksverkefni Austfirðinga og
hvernig að málum hefur verið
staðið þar. Þá flutti Helgi S.
Ólafsson stutta lýsingu á aðdrag-
anda verkefnisins á Hvamms-
tanga og stöðu þess í dag og
framhald, en Helgi er formaður
verkefnisstjórnar, sem kjörin var
til bráðabirgða.
Þeir sem kosnir voru í 10
manna undirbúningsnefndina
fyrir leitarráðstefnuna eru: Ólaf-
ur Stefánsson, Reykjum, Gunnar
Þórarinsson, Þóroddsstöðum,
Björn Einarsson, Bessastöðum,
Eggert Pálsson, Bjargshóli,
Kristín Guðjónsdóttir, Þorgríms-
stöðum, Björn Pétursson Stóru-
Borg, Elín R. Líndal, Lækjar-
móti, Jón H. Kristjánsson,
Hvammstanga, Elín Þormóðs-
dóttir, Hvammstanga, og Agnes
Magnúsdóttir, Hvammstanga.
Humarvertíð:
Fqáls verðlagning
Á fundi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins, sem haldinn var í gær,
var rætt um verð á humri. Sú
ákvörðun var tekin að verðlagn-
ing á humri yrði frjáls á humar-
vertíðinni sumarið 1989.
Þess má geta að áðurnefnd
verkefnisstjórn hefur haft svo-
kallaða ráðgjafanefnd sér til
halds og trausts við undirbúning
átaksverkefnisins á Hvamms-
tanga og ráðgjafarnir eru Gunnar
V. Sigurðsson, kaupfélagsstjóri,
Ingólfur Guðnason, sparisjóðs-
stjóri og Ólafur B. Óskarsson,
bóndi í Víðidalstungu og formað-
ur héraðsnefndar V-Húnavatns-
sýslu. -bjb
að gerast í markaðsmálum og
öll spjót úti um að afla nýrra
markaða á erlcndum vett-
vangi, sem innlendum. Fjöl-
margar kynningar voru haldn-
ar á síðasta ári á framleiðslu
verksmiðjunnar, gefln út
vönduð vöruskrá, unnir bækl-
ingar um hljóðeinangrun og
notkun steinullar undir múr, >
o.m.fl. Þá hefur verið gengið
frá drögum að samstarfssamn-
ingi við japanskt stórfyrirtæki
um að það prufubræði hráefni
sitt í sumar í rafbræðsluofni
Steinullarverksmiðjunnar, sem
er talinn einstæður á meðal
steinullarframleiðenda.
Sem kunnugt er tókst Steinull-
arverksmiðjunni að fá einangrun
á aðveituæð Hitaveitu Reykja-
víkur frá Nesjavöllum og er um
stórverkefni að ræða. AIls fara
um 900 tonn af steinull í þessa
einangrun, sem koma til afgreiðslu
á tveim árum, 1989 og 1990.
Þá má geta þess að nýlega náð-
ust samningar um sölu á um 60
tonnum af ull til Varnarliðsins og
telja steinullarmenn það mikil-
vægan áfangasigur í baráttu við
skriffinnsku og einokunarkerfi
hersins. Þá væntir verksmiðjan
nokkurs af samstarfi hennar við
Sérsteypuna á Akranesi, varð-
andi þróun íslensks utanhúss-
múrkerfis, en notkun slíkra
múrefna færist nú mjög í vöxt,
bæði við einangrun nýrri húsa og
í baráttunni við steypuskemmdir
á eldri byggingum.
„Nýir markaðir eru seinunnir
og margs að gæta í þeim efnum,
en sé litið til þeirra sambanda
sem komin eru á og í ljósi þróun-
ar liðinna ára, leyfi ég mér að
vera hóflega bjartsýnn í þessum
efnum,“ sagði Einar Einarsson,
framkvæmdastjóri Steinullar-
verksmiðjunnar, m.a. á aðal-
fundi fyrirtækisins sl. þriðjudag.
-bjb
Gúmmívinnslan hf.:
Stöðugt unnið að þróirn
nýrra framleiðsluvara
-100 tonn af vörum losar þjóðfélagið við 85 tonn af sorpi
- þokkaleg afkoma fyrirtækisins á síðasta ári
Aðalfundur Gúmmívinnslunn-
ar hf. á Akureyri var haldinn
fyrir skömmu og voru stjórnar-
menn þokkalega ánægðir með
afkomuna á siðasta ári. Rekst-
ur fyrirtækisins liefur gengið
vel frá upphafi og sagðist Þór-
arinn Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri vera bjartsýnn á
að sala á framleiðsluvörum
þess myndi aukast á næstunni.
Gúmmívinnslan hefur tekið í
notkun viðbyggingu við núver-
andi húsnæði á Rangárvöllum og
þá munu nýjar framleiðsluvörur
vera að líta dagsins ljós. Þar má
nefna svokallaða hálfkúlubobb-
inga, en áður hafði fyrirtækið
framleitt millibobbinga og tvær
tegundir af bobbingahjólum fyrir
sjávarútveginn. Þá er Gúmmí-
vinnslan að þróa nýjar vörur í
samráði við Vegagerð ríkisins.
Af öðrum vörum má nefna
gúmmímottur og gangstéttarhell-
ur úr gúmmíi. Þórarinn sagði að
hellurnar væru nú fullþróaðar og
hann taldi víst að þær fengju góð-
ar viðtökur. Hellurnar hafa þegar
vakið athygli suðvestanlands og
þykja ákjósanlegar á leikvöllum,
Gúmmívinnslan hf. rekur eigið hjól-
barðaverkstæði og fær þaðan
gúmmí til endurvinnslu. Mynd: KL
en einnig má nota þær við íbúð-
arhús.
„Við erum tilbúnir til að mark-
aðssetja gúmmíhellurnar af full-
um krafti. Það skýtur hins vegar
dálítið skökku við að þegar menn
koma að sunnan til að skoða
framleiðsluna þá getum við ekki
bent þeim á neinn stað á Akur-
eyri þar sem hellurnar hafa verið
lagðar. Ég þarf að vísa þeim til
Reykjavíkur eða Garðabæjar því
Akureyrarbær hefur ekki viljað
kaupa gúmmíhellur ennþá,“
sagði Þórarinn.
Það sem er sérstakt við fram-
leiðslu Gúmntívinnslunnar er
endurvinnsla á gúmmíafgöngum
og slitnum hjólbörðum. Þórarinn
sagði að með hverjum 100 tonn-
um af seldum framleiðsluvörum
losnaði þjóðfélagið við 85 tonn af
sorpi. Samt hefði fyrirtækið ekki
fengið fjármagn frá hinu opin-
bera þótt nú væri hvers kyns
endurvinnsla og endurnýting yfir-
leitt kostuð af skattborgurum.
SS
Skákfélag Akureyrar:
Uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð Skákfélags
Akureyrar, nánar tiltekið upp-
skeruhátíð fullorðinna félaga,
verður haldin í kvöld, þriðju-
daginn 23. maí, kl. 20.30 í fé-
lagsheimili Skákfélags Akur-
eyrar.
Á uppskeruhátíðinni verða
afhent verðlaun og viðurkenning-
ar og veitingar verða á boðstól-
um. SS
Húsavík:
Bæjarmála-
punktar
■ Á fundi skólanefndar
nýlega, kom fram að 5 kennar-
ar láta af störfum við Frant-
haldsskólann í vor, Óskar
Jóhannsson, Þorgeir Tryggva-
son, Stefán Ásgrímsson, Pétur
Snæbjörnsson og Ásta K. ÓI-
afsdóttir.
■ Skólanefnd mælir einróma
með því að Guðmundur Birkir
Þorkelsson verði skipaður í
starf skóiaritara við Fram-
haldsskólann.
■ Á fundi atvinnumálanefnd-
ar nýlega, las formaður nefnd-
arinnar bréf til bæjarstjóra, frá
Ásgeiri Leifssyni iðnráðgjafa,
þar sem hann gerir grein fyrir
ýmsum nýjum iðnaðarkostum.
Ásgeir mætti á fundinn og
sagði nánar frá þessum upplýs-
ingum sem hann hefur fengið
frá fyrirtæki í Þýskalandi. Er
þar um að ræða ýmsar verk-
smiðjur sem koma til álita.
Atvinnumálancfnd er sam-
mála um að snúa sér til
Byggðastofnunar með umsókn
um styrk til rannsókna á þess-
um kostum og erindi um þátt-
töku í fjárntögnun á nýsköpun
í iðnaði, sem staðsett yrði á
Húsavík.
■ Bygginganefnd hcfur borist
erindi frá Raftækjavinnustofu
Gríms og Árna, þar sem fyrir-
tækið leitar eftir umsögn
nefndarinnar um hugmynd að
útlitsbreytingu á gömlu Fjal-
arshúsunum. Bygginganefnd
tekur jákvætt í hugmyndina,
með þeirri athugasemd að
póstar í gluggunt verði sam-
ræmdir.
■ Bygginganefnd hefur borist
umsóknir urn lóðirnar við
Langholt 6 og 8, til að byggja á
einbýlishús. Hilmar Þór Ivars-
son sækir um lóðina Langholt
8 og Hallgríntur J. Sigurðsson
um lóðina Langholt 6. Bygg-
inganefnd samþykkti bæði
erindin.
■ Byggingafulltrúi hefur
kynnt á fundi bygginganefnd-
ar, tillögu að trjárækt í ná-
grenni bæjarins. Bygginga-
nefnd lýsir ánægju sinni með
tillögurnar og felur bygginga-
fulltrúa að úthluta svæöunt í
samráði við skipulagsmenn
bæjarins.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að verða við erindi frá Sinfón-
íuhijómsveit fslands og halda
matarboð fyrir hljómsveitar-
meðlimi en Sinfóníuhljóm-
sveitin heldur tónleika á Húsa-
vík 9 júní n.k.
■ Bæjarráð hefur einnig sam-
þykkt að verða við ósk frá
leikklúbbnum Sögu á Akur-
eyri, varðandi matarboð fyrir
leikhópa frá öllum Norður-
löndunum, (100 manns) sem
hyggjast sýna á Húsavík í júlí
n.k. Um er að ræða unglinga.
Einnig samþykkti bæjarráð að
veita hópunum gistingu í
Barnaskólanum.