Dagur - 23.05.1989, Qupperneq 11
f/ hér & þor /i
Steve Jones, þungarokkari: Kemur
úr innsta hóp heróínneytenda.
Katie Wagner hefur í hótunum við föður sinn.
Leikarinn Robert Wagner í basli með flölskylduna:
Dóttírin í vafasömu
sambandí viö rokkara
Leikarinn Robert Wagner á ekki
sjö dagana sæla um þessar mund-
ir. Dóttir hans, Katie, er og
sambandi við meðlim í þunga-
rokkshljómsveit sem kemur úr
innsta hópi heróínneytenda. Það
skapraunar leikaranum að dóttir-
in hefur hótað því að hætti hann
ekki afskiptum af hennar málum
þá láti hún sig hverfa að heiman
og sjáist helst sem sjaldnast þar
aftur. Þrátt fyrir þetta stöðuga
samband við rokkarann Steve
Jones virðist hann ekki um of
upptekinn af stúlkunni því þá
sjaldan sem hún lætur sjá sig
heima hjá Wagner er hún tilfinn-
ingalegt brak, útgrátin og illa
útlítandi eftir slagtogið með
rokkaranum. En þrátt fyrir ráð-
leggingar leikarans lætur hún
ekki segjast og snýr alltaf aftur.
Opinberlega hefur rokkarinn
sést fara illa með stúlkuna og
þegar hann var spurður hvers
konar háttalag þetta væri svar-
aði hann um hæí: „Hvað skiptir
þetta máli. Konur eru allar leik-
föng, þar með talin Katie,“ segir
rokkarinn Steve Jones, sem sjálf-
sagt er einhverjum kunnugur fyr-
ir að hafa leikið í hljómsveitinni
Sex Pistols. „Mig varðar ekkert
um hvað gamli maðurinn, faðir
hennar, segir um samband mitt
við hana. Svo lengi sem hún sýnir
mér einhvern áhuga er mér
sama.“
Þessi ummæli rokkarans hafa
gert Robert Wagner óðan. „Ég
verð stundum svo reiður að ég
legg af stað að leita að þessum
manni til að kenna honum í eitt
skipli fyrir öll almennilega
mannasiði. En alltaf stöðvar Katie
mig. Hún sér ekki að hann er
einn af lægri stigum þjóðfélags-
ins. En það er sama hvernig ég
reyni, ég næ ekki eyrum hennar,“
segir Robert Wagner.
„Mér hefur ekki einu sinni tek-
ist að ræða þessi mál við Katie
vegna þess að í hvert skipti sem á
þetta er minnst missir hún stjórn
á skapi sínu og hótar mér að fara
að heiman og tala aldrei við mig
aftur. Um leið og ég opna munn-
inn æpir hún á mig. Þá æpi ég á
móti og allt fer í háaloft sem end-
ar með því að hún stormar út.
Hún er á leið niður í móti, niður
veg sent leiðir liana til eyðilegg-
ingar. Hún er gjörsamlega stjórn-
laus og ég get ekkert gert nema
kannski í mesta lagi að tína upp
brotin þegar hún áttar sig. Ég
vona bara að það verði ekki of
seint,“ segir niðurbrotinn leikar-
inn Robert Wagner.
Þriðjudagur 23. maí 1989 - DAGUR - 11
¥"] Firmakeppni
v Léttis '89
verður haldin laugardaginn 27. maí kl. 14.00 á
velli félagsins í Breiðholti.
Nánar auglýst á fimmtudaginn.
Firmakeppnisnefnd Léttis.
< --------------------------->
„Sýning ársins"
'89ijílar
í íþróttahöllinni á Akureyri
sýna helstu bílaumboð landsins
besta úrval nýrra bíla
laugardaginn 27. maí kl. 13.00-18.00 og
sunnudaginn 28. maí kl. 13.00-17.00.
Bílasýning
og
sumarvörusýning
Ýmis fyrirtæki á Akureyri
sýna einstakar vörur s.s.
Reiðhjól af öllum stærðum og gerðum.
Úrval af húsgögnum í garðinn,
borðstofusett og sófasett.
Garðyrkjuáhöld og blóm.
Hlutavelta með 2.000 vinningum.
Foreldraféiag KA er með veitingasölu báða dagana.
Lúðrasveit Tónlistarskólans
leikur kl. 13.15 á laugardag,
Harmonikufélagið kl. 14.00 á
laugardag og sunnudag.
Lúðrasveit Akureyrar leikur kl. 15.15 báðadagana.
Knattspyrnufélag Akureyrar.
V_____________________________/
Dómaranám-
skeið 1989
Dómaranámskeið hefst miðvikudaginn 24. maí 1989
kl. 20.00 í Lundarskóla.
Leiðbeinandi: Rafn Hjaltalín.
Aðildarfélög eru minnt á að þeim ber að senda
a.m.k. 4 menn á hvert námskeið.
Þátttöku skal tilkynna til Sveins Björnssonar fyrir 23.
maí í síma 26091 fyrir 23. maí.
K.R.A.
Barnfóstrur
á Húsavík
Húsavíkurdeild R.K.Í. heldur barnfóstrunám-
skeið frá 29. maí til 1. júní.
Kennt verður í Barnaskólanum frá kl. 19.30 til 22.00.
Leiðbeinendur: Björg Karlsdóttir fóstra og Elín Hartmanns-
dóttir hjúkrunarfræðingur.
Þátttökugjald kr. 2.000, námsgjöld innifalin.
Skráningar þurfa að hafa borist fyrir föstudag 26. maí til
Regínu Sigurðardóttur, vinnusíma 41333 eða heimasíma
41743.
11989 ulgájan o{ mest lesnu bóh
landsins er homin út
Nú getur þú fengið símaskrána
innbundna íyrir aðeins 150 kr. aukagjald.
Tryggðu þér eintak á meðan upplag endist.
Símaskráin er afhent á póst- og símstöðvum
um land allt gegn afhendingarseðlum, sem
póstlagðir hafa verið til símnotenda.
5 Öll símanúmer á svæði 95 breytast í tengslum
S við útgáfú skrárinnar og verða þær auglýstar
s nánar þegar að þeim kemur.
Að öðru leyti tekur símaskráin gildi 28.
maí næstkomandi.
POSTUR OG SÍMI
Við spörutn þér sporin