Dagur - 23.05.1989, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 23. maí 1989
Sumar-
bridge
Bridgefélag Akureyrar minnir á að í sumar verð-
ur „Opið hús" á þriðjudögum til spilamennsku.
Fyrsta spilakvöldið verður þriðjudaginn 23. maí
og hefst spilamennskan kl. 19.30.
Spilað í Oddeyrarskóla (gengið inn að norðan).
Næstu þriðjudaga verður síðan spilað í Dynheimum.
Allt spilafólk velkomið og athygli er vakin á því að
þessi spilakvöld eru ókeypis og tilvalið tækifæri að
grípa í spil eitt og eitt skipti.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Við Verkmenntaskóla Austurlands eru lausar til
umsóknar kennarastöður í íslensku, dönsku, stærðfræði,
rafiðngreinum, málmiðngreinum og tréiðngreinum.
Við Framhaldsskólann á Laugum er laus til umsóknar
staða dönskukennara.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík fyrir 17. júní nk.
Þá er umsóknarfrestur um eftirtaldar kennarastöður við
Framhaldsskóla A-Skaftafellssýslu framlengdur til 31.
maí: Dönsku, þýsku, ensku, stærðfræði, raungreinar, við-
skiptagreinar, samfélagsgreinar, tölvufræði, íþróttir og
bókavörslu (hálfa stöðu).
Menntamálaráðuneytið.
roiV Skátafélagið
Klakkur
óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra tii eins
árs.
Um er að ræða félags- og fjármálalega framkvæmda-
stjórn ásamt umsjón með húseignum félagsins.
Umsóknir sendist í pósthólf 135, 602 Akureyri fyrir
25. maí.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Staða YFIRLÆKNIS VIÐ RANNSÓKNADEILD
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er laus til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí 1989.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins, Halldóri
Jónssyni.
Nánari upplýsingar veitir Þorkell Guðbrandsson yfir-
læknir í síma 96-22100.
Staða SÉRFRÆÐINGS í RÖNTGENGREIN-
INGU við Röntgendeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. janúar 1990.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
ómskoðunum (sonar) og CT-tækni.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí 1989.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins, Halldóri
Jónssyni.
Nánari upplýsingar veitir Pedró Ólafsson Riba, yfir-
læknir í síma 96-22100.
Staða REYNDS AÐSTOÐARLÆKNIS VIÐ
GEÐDEILD Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er
laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. ágúst 1989.
Umsóknarfrestur er til 20. júní 1989.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
sendist yfirlækni deildarinnar, Sigmundi Sigfússyni,
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Fangar mánaðarins
Mannréttindasamtökin Amnesty
International vilja vekja athygli
almennings á máli eftirfarandi
samviskufanga. Jafnframt vonast
samtökin til, að fólk sjái sér fært
að skrifa bréf til að hjálpa þess-
um föngum, og sýna þannig í
verki andstöðu sína gegn því, að
slík mannréttindabrot séu
framin.
íslandsdeild Amnesty gefur
einnig út póstkort til stuðnings
föngum mánaðarins. Hægt er að
gerast áskrifandi að þessum kort-
um með því að hringja til skrif-
stofunnar, Hafnarstræti 15, virka
daga kl. 14-16 í síma 16940.
Marokkó: Mohamed Srifi er 37
ára gamall stúdent frá Tangier og
lagði stund á bókmenntir. Hann
afplánar nú 30 ára fangelsisdóm,
dæmdur fyrir að vera talsmaður
þess að Marokkó gerðist sósíal-
ískt lýðveldi. Mohamed var
handtekinn 1974 en mál hans var
ekki dómtekið fyrr en 1977 en þá
voru teknar fyrir 138 kærur er
vörðuðu ólöglega félagastarfsemi
og ógnun við yfirvöld landsins.
Hinir ákærðu voru allir félagar
eða fyrrverandi félagar í hópum
Marxista. Hundrað tuttugu og
níu sakborningar, þar af voru 39
fjarstaddir, voru dæmdir í refsi-
vist frá 5 og upp í 30 ár.
Fulltrúi Amnesty Internation-
al, sem var við réttarhöldin sagði
að alþjóðareglur hefðu ekki verið
virtar; sakborningum leyfðist
ekki að hafa samband við verj-
anda meðan yfirheyrslur stóðu
yfir, og þeim leyfðist ekki að lýsa
yfir fyrir réttinum, að þeir hefðu
verið pyntaðir og mátt sæta illri
meðferð í varðhaldi áður en
réttarhöldin hófust.
Saksóknari lýsti því hvernig
sakborningar hefðu lagt á ráðin
um að bylta konungdæminu með
ofbeldi, en bar ekkert fram til
vitnis um að þeir hefðu nokkru
sinni hvatt til ofbeldis eða beitt
því.
Fréttir herma að sakborningar
hafi verið í einangrun í meira en
ár áður en réttarhöldin hófust, og
er það mun lengra en heimilt er
samkvæmt maróskum lögum.
Enn fremur munu margir þeirra
hafa þolað raflost, barsmíðar og
verið hengdir upp á höndum eða
fótum.
Mohamed Srifi er í haldi í
Kenitra fangelsinu og er sagður
geta stundað nám sitt þar.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og biðjið þess að Mohamed
Srifi verði látinn laus:
His Majesty King Hassan II
Palais Royal
Rabat
Morocco
og til
Moulay Mustapha Belarbi
Alaoui
Minister Of Justice
Palais De La Mamounia
Rabat
Morocco.
Indónesía: Wahyudi er 18 ára
háskólanemi, sem var dæmdur í
apríl 1987 til 7 ára fangavistar
fyrir undirróður. Hann var hand-
tekinn um mitt árið 1986 í borg-
inni Brebes á miðri Jövu ásamt
sjö öðrum trúræknum múslim-
um. Hann var sakaður um að
hafa tekið þátt í trúarathöfnum
og aðstoðað við skipulagningu
námshópa sem kallast usroh í
þorpum í nágrenni Brebes. Hóp-
arnir beita sér fyrir aukinni sam-
heldni meðal múslima og að lög-
um kóransins sé betur fylgt.
Kennarar þessara hópa eru taldir
gagnrýna hina opinberu hug-
myndafræði sem nefnist Panca-
sila. í ákæru segir, að með því að
gagnrýna Pancasila, hafi Wahy-
udi og félagar grafið undan ríkis-
stjórninni.
í apríl 1987 voru átta félagar
fundnir sekir um undirróður.
Wahyudi var dæmdur til sjö ára
fangavistar en hinir fengu 7 til 15
ára dóma.
Amnesty International hefur
grun um að réttarhöldin hafi ekki
verið lögmæt. Bæði sakborningar
og vitni halda því fram að yfirlýs-
ingar, sem gefnar voru út eftir
yfirheyrslur og lesnar í réttinum,
hafi verið þvingaðar fram með
harðræði. Sakborningar vitnuðu
um harðræði við yfirheyrslur og
að yfirvöld hefðu haft í hótunum
við þá.
Wahyudi var sóttur til saka á
grundvelli laga gegn undirróðri
frá 1963. Orðalag þessara laga er
mjög óljóst og nú fer í vöxt að
þeim sé beitt gegn fólki, sem læt-
ur í ljósi pólitískar og trúarlegar
skoðanir sínar.
Frá árslokum 1985 hafa 45 fé-
lagar í usroh á Mið-Jövu verið
handteknir og sóttir til saka fyrir
að grafa undan ríkisstjórninni og
að vinna að því að stofna ríki
múslima. Amensty telur 40
þeirra vera samviskufanga.
Wahyudi er talinn vera í fang-
elsi í Brebes.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og biðjið um að Wahyudi og
félagar verði látnir lausir:
President Suharto
Bina Graha
Jalan Veteran
Jakarta
Indonesia.
Júgóslavía: Branimir Trbojevic
er tvítugur og hefur verið dæmd-
ur til tveggja og hálfs árs fanga-
vistar fyrir trúarskoðanir sínar en
hann er Vottur Jehóva. Branimir
neitar að gegna herskyldu þar
sem það samræmist ekki trú
hans. Hann var handtekinn 18.
maí 1988 vegna þess að hann
hafði ekki látið skrá sig til her-
þjónustu á eyjunni Mali Losinj.
Branimir Trbojevic var dæmd-
ur á grundvelli 202. greinar hegn-
ingarlaga fyrir að „neita að bera
vopn eða grípa til vopna“. Þann
28. júní var hann dæmdur til
þriggja ára refsivistar af her-
dómstóli í Split. Hann afplánaði
dóminn í Split meðan hann beið
úrskurðar hæstaréttar þar eð
hann áfrýjaði dóminum. í des-
ember barst Amnesty Internat-
ional sú frétt að dómur hans
hefði verið styttur um hálft ár.
í Júgóslavíu eru allir heilbrigð-
ir karlmenn 18 ára og eldri
skyldaðir til að gegna herskyldu í
tóíf mánuði. Frá þessu er engin
undanþága gefin og engum leyfist
að gegna þessari þegnskyldu með
öðrum hætti.
Hópur Votta Jehóva skutu máli
sínu til Hæstaréttar Júgóslavíu.
Peir fóru fram á það að Hæsti-
réttur úrskurðaði að lög þau, sem
skylduðu menn í herþjónustu
brytu gegn stjórnarskránni, en
rétturinn hafnaði þessu í
nóvember 1987.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og biðjið um að Branimir
verði látinn laus:
His Excellency Rai Dizdarevic
President og the SRFJ
Presiency
Bulevar Lenjina 2
Belgrade
Yugoslavia.
íslandsdeild
Amnesty International:
Nýr formaður
Á aðalfundi íslandsdeildar Amn-
esty International þann 22. apríl
síðastliðinn, var Jóhanna K.
Eyjólfsdóttir, mannfræðingur, •
kosin formaður deildarinnar.
Meðstjórnendur voru kosnir þeir
Helgi E. Helgason, fréttamaður;
Steingrímur Gautur Kristjáns-
son, borgardómari; Sverrir
Albertsson, ritstjóri; og Jóhann-
es Ágústsson, kennari. í vara-
stjórn sitja þeir Ævar Kjartans-
son, dagskrárgerðarmaður og
Eyjólfur Kjalar Emilsson, kenn-
ari við Háskóla íslands. Endur-
skoðendur eru þeir Garðar
Gíslason, borgardómari og Jón
Magnússon, hrl.
Eimskip stomar fyrirtæki erlendis
til skipareksturs á alþjóðamarkaði
Eimskip hefur stofnað fyrirtæki
erlendis með rekstur á alþjóða-
markaði í huga. Fyrirtækinu hef-
ur verið gefið nafnið „Coast Line
Shipping Company Limited".
Eimskip hefur undanfarna
mánuði rekið tvö skip erlendis.
Ekjuskipin Álafoss og Eyrarfoss
hafa verið í leiguverkefnum í
flutningum milli hafna í Evrópu
og Miðjarðarhafslanda.
Fyrirhugað var í kjölfar kaupa
á ekjuskipunum Brúarfossi og
Laxfossi á síðasta ári að selja
Álafoss og Eyrarfoss. Vegna
hækkunar á leiguverði skipa að
undanförnu og hækkandi sölu-
verðs skipa, þótti rétt að bíða
með sölu skipanna og kanna
möguleika á rekstri skipanna er-
lendis. Hefur rekstur skipanna
gengið nokkuð vel og vill félagið
kanna hvort unnt er að halda
honum áfram. Samkeppnisað-
staða félagsins er aftur á móti
óviðunandi miðað við að skipin
séu skráð hér á landi og rekin
með íslenskum áhöfnum. Félagið
er í samkeppni við flutningafyrir-
tæki, sem búa við mun lægri
launakostnað en þekkist á
íslenskum skipum. Því hefur ver-
ið ákveðið að stofna sjálfstætt
félag í eigu Eimskips um rekstur-
inn og verður Eyrarfoss seldur til
þess fyrirtækis. Skipinu verður
gefið nafnið „South Coast".
Margar nágrannaþjóðir okkar,
svo sem Danir og Norðmenn,
hafa miklar gjaldeyristekjur af
því að stunda alþjóðasigíingar.
Þær skrá skip sín annað hvort er-
lendis eða hjá skipaskrám í
heimalandi, sem hafa sérstaklega
verið stofnaðar til að auðvelda
útgerðum í þessum löndum að
keppa á alþjóðamarkaði. Vill
Eimskip með þessu kanna mögu-
leikana á þessum markaði, í stað
þess að selja skipin strax til ein-
hverra óskyldra, erlendra aðila.