Dagur - 09.06.1989, Blaðsíða 20

Dagur - 09.06.1989, Blaðsíða 20
Akureyri, föstudagur 9. júní 1989 Lagfæringar á bakkavörnum í Svarfaðardalsá: Eruin að fyrirbyggja skemmdir á vatnsveitunni - segir Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri Þessa dagana er verið að vinna við bakkavarnirnar í Svarfað- ardalsá en að sögn Sveins Runólfsonar, landgræðslu- stjóra, er ekki um að ræða breytingar á varnargörðunum heldur viðhald og fyrirbyggj- andi aðgerðir. Búist má við að áin verði straumhörð þegar líð- ur á mánuðinn og segir Sveinn að ætlunin sé að fyrirbyggja að skemmdir verði á borholum Vatnsveitu Dalvíkur sem eru á áreyrunum. „Þetta er eingöngu til að fyrir- byggja hugsanlegar skemmdir af völdum flóða. Við þurfum að lægfæra garða fyrir ofan vatns- veituna enda er von á því að ef leysingar verða miklar þá verður mikið vatnsmagn í ánni,“ segir Sveinn Runólfsson. Borið hefur við að Svarfaðar- dalsá hafi flætt upp á svæði veit- unnar en Sveinn segir að hingað til hafi litlar skemmdir orðið. Lagfæringarnar nú eru á vegum Landgræðslu ríkisins og kostaðar af fyrirhleðslufé. JÓH Sjávarútvegssýning í Bella Center í Kaupmannahöfn: Þetta gengur ágætlega en erfitt að meta árangur - segir Valdimar Kristjánsson „Þetta hefur gengið ágætlega. Þetta er geysilega stór sýning og hér eru sjávarútvegsmenn hvaðanæva úr heiminum. En maður finnur fyrir því að nú er ekki eins mikill hugur í mönn- um og fyrir þremur árum síðan. Fiskiðnaðurinn er í lægð út um allan heim,“ segir Valdi- mar Kristjánsson, en hann er nú staddur á sjávarútvegssýn- ingu í Bella Center í Kaup- mannahöfn og er þar að kynna framleiðslu Sæplasts hf. og Plasteinangrunar. Sýningin í Bella Center hófst s.l. þriðjudag og lýkur nú um helgina. Hún er haldin á þriggja ára fresti og er ein af stærstu sjáv- arútvegssýningum í heiminum. Sýnd eru veiðarfæri og ýmiss búnaður til vinnslu og veiða, en ekki eru kynntar sjávarafurðir. „Sem dæmi eru hér aðilar frá Kanada, Bandaríkjunum, Nýja Sjálandi, Hollandi, Frakklandi og auðvitað Norðurlöndunum," segir Valdimar. I kringum 20 íslensk fyrirtæki sýna í Bella Center og af norð- lenskum fyrirtækjum má nefna Sæplast, Plasteinangrun (sem reyndar eru nú komin í eina sæng), Vélsmiðjuna Odda, Fisk- miðlun Norðurlands og Slipp- stöðina. Þá sýna nokkur stór þjónustufyrirtæki fyrir sjávar- útveg úr Reykjavík. Valdimar segir erfitt að meta árangur af þátttöku í slíkri sjáv- arútvegssýningu. Hann segir að þarna hittist framleiðendur og beri saman bækur og kynni sína framleiðslu fyrir nýjum kaupend- um. Þá segir Valdimar að á þess- um sýningum hitti seljendur þá sem þegar hafa keypt vöruna og slíkt viðhald sambanda sé einnig mjög mikilvægt. óþh Haldið veisluna eða fundinn í elsta húsi bæjarins Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★ ★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★ Fundi og hvers konar móttökur. Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818. Þessa dagana er unnið af fullum krafti við endurbætur utan á Hóladóm- kirkju í Hjaltadal. Múrhúð hefur verið brotin af og rauður steinninn kominn í Ijós. Líklega verður kirkjan múruð á ný til að koma í veg fyrir vatns- skemmdir. Mynd: VG Akureyri: Mótorhjóli ekið á bifreið Umferðarslys varð á mótum Glerárgötu og Tryggvabrautar á Akureyri um miðjan daginn í gær. Mótorhjóli var ekið aftan á bifreið og leikur grunur á að ökumaður hjólsins hafi verið á nokkuð mikilli ferð. Ökumaður mótorhjólsins var fluttur á sjúkrahús til að kanna meiðsl hans, en hann mun þó ekki talinn alvarlega slasaður því hann stóð upp eftir byltuna. Ökumann bílsins sakaði ekki en bæði farartækin eru mikið skemmd. KR Helgarveðrid Sólin mun ekki koma til með að angra Norðlendinga mikið um helgina samkvæmt upplýsingum veðurstofunnar. Norðanlands og austan munu austlægar áttir ríkja og súldarvottur af og til. Hitastigið verður svipað og undanfarna daga sem sagt ekkert rjómaveður á Norður og Austur- landi um helgina. Mjólkursalan í gær: Samdrátturinn í söluimi mestur á Akureyri Mjólkursala á Akureyri var í gær allt að helmingi minni en venja er til á fimmtudögum. í þeim verslunum scm haft var samband við var afgreiðslufólk sammála um að lítið sem ekk- ert hafi dregið úr sölu á öðrum mjólkurvörum en nýmjólk- inni. Seinni hluta gærdagsins leit út fyrir að í stórmarkaði KEA í Hrísalundi yrði salan nálægt 60% af því sem venju- lega er á fimmtudögum og samdrátturinn yrði því eitt- hvað minni en var á miðviku- Þórður Jónasson EA-35U kom sl. laugardag frá Yestmannaeyjum, þar sem skipið hefur verið síðan 18. apríl i sand- blæstri. Sandblásnar voru lestar skipsins, millidekk og spilhús ásamt tilheyrandi húðunar og málningarmeðferð, samtals 2000 fermetrar. Verkið var unnið í Skipalyftunni í Vestmannaeyjum og virðist vera vel af hendi leyst að sögn Hreiðars Valtýssonar útgerðarmanns, en það voru Pólverjar sem unnu verkið. Skipið heldur í dag til togveiða með rækjuvörpu. Mynd: KL daginn. A öðrum stöðum á Norður- landi hefur eitthvað dregið úr mjólkursölunni en þó mjög mis- mikið. Þannig var ekkert vart við breytingu á þriðjudaginn hjá Kaupfélagi Langnesinga á Þórs- höfn en á miðvikudaginn var samdrátturinn 10-15%. „Hjá okkur hefur farið að minnsta kosti 30% minna út en á venjulegum fimmtudegi. Það má segja að þetta sé næst stærsti dag- ur vikunnar hvað sölu á mjólk varðar þannig að þetta munar töluverðu,“ sagði Þórarinn Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri Mjólkursamlags KEA í gær. Þór- arinn sagði að þetta þýddi að meira væri nú framleitt af osti og smjörva og það ætti eftir að koma í bakið á mönnum þegar komi að því að selja þessar vörur. Sala virðist mest hafa dregist saman á mjólk en nánast engin breyting hefði orðið á öðrum vörum. „Ég hlakka til að sjá verkalýðs- hreyfinguna eyða sama fjármagni í að hvetja menn til að drekka mjólk aftur, nú þegar þetta tákn- ræna verkfall er búið. Ég er ekki farinn að sjá verkalýðshreyfing- una eyða jafn miklum peningum í að hvetja rnenn til að drekka mjólk á ný eins og að hvetja menn til að drekka ekki mjólk,“ sagði Þórarinn. JÓH Kærkomnir suðlægir vindar: Dagamunur á gróðri - segir Ólafur G. Vagnsson „Jú, þetta lítur betur út með hverjum hiýjum deginum sem líður. Maður sér mun á gróðri frá degi til dags,“ segir Olafur G. Vagnsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarð- ar. Ólafur segir að gróður sé kom- inn mjög misjafnlega vel á veg á Eyjafjarðarsvæðinu. Eins og jafnan áður er ástandið best í hreppunum fyrir framan Akur- eyri og þar eru bændur komnir vel á veg eða búnir að bera á tún. Út með Eyjafirði er gróður seinna á ferðinni og þar er vitað að hafa orðið einhverjar kal- skemmdir. Það verður þó ekki ljóst fyrr en að nokkrum dögum liðnum hversu miklar skemmd- irnar eru. Hjá Gylfa Pálssyni, í Fóður- vörudeild KEA, fengust þær upplýsingar að nokkuð meira hafi verið um pantanir á grænfóð- urfræi en í meðalári. Einkum hafi bændur í Árskógshreppi bætt við sig frá fyrra ári. Gylfi segir að bændur hafi trassað að vitja pant- ana og vill hann beina því til þeirra að fræið verði sótt hið fyrsta. Miðað við fræpantanir má ætla að á Eyjafjarðarsvæðinu verði sáð höfrum og byggi í 200 hektara og rýrgresi í 150 hektara. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.