Dagur - 18.07.1989, Blaðsíða 6
6 - BRGJBIB - t8#úib*a89
Nýtt - Nýtt
Leðurhreinsiefni og leðurlitir.
Haldið leðurhúsgögnum vel við.
Bólstrun Björns Sveinssonar
Geislagötu 1 • Akureyri • Sími 25322.
Barnavörur
Burðarrúm ★ Göngugrindur ★ Baðborð
★ Barnarúm og kerrur.
Úrval af leikföngum og fatnaði.
Fallegar og vandaðar vörur.
Vaggan Sunnuhlíð sími 27586.
Opið kl. 9-18,
laugardaga kl. 10-12.
★ Cóö bílastæði ★
VISA
3E
Ullarmóttakan á Akureyri verður lokuð frá og
með 20. júlí til og með 23. ágúst.
/
Álafoss M., Akureyri.
FLUGMÁLASTJÓRN
Námskeið í
flugumferðarstjórn
Ákveðið hefur verið að velja nemendur til náms í
flugumferðarstjórn, sem væntanlega hefst í byrj-
un nóvember 1989.
Stöðupróf í íslensku, ensku, stærðfræði og eðlis-
fræði verða haldin í september n.k.
Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20-30 ára,
tala skýrt mál, rita greinilega hönd, standast til-
skyldar heilbrigðiskröfur og hafa lokið stúdents-
prófi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Flugmála-
stjórn á fyrstu hæð flugturnsbyggingar á Reykja-
víkurflugvelli og ber að skila umsóknum þangað
fyrir 1. september, ásamt staðfestu afriti af stúd-
entsprófskírteini og sakavottorði.
Flugmálastjóri.
Auglýsing
frá sjávarútvegsráðuneytinu
um lausar stöður
veiðieftirlitsmanna
Sjávarútvegsráðuneytið óskar eftir að ráða tvo veiði-
eftirlitsmenn. Annar veiðieftirlitsmaðurinn verður
staðsettur á Akureyri. Gert er ráð fyrir að hinn eftir-
litsmaðurinn fái þjálfun við að síga um borð í veiði-
skip úr þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Umsækjendur sem til greina koma þurfa að uppfylla
eftirfarandi skilyrði:
1. Hafa lokið prófi frá Stýrimannaskólanum, Tækni-
skóla íslands (Útgerðartækni) eða hafa sam-
bærilega menntun.
2. Hafa þekkingu á öllum algengustu veiðum og
veiðarfærum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf berist ráðuneytinu fyrir 1. ágúst nk.
Sjávarútvegsráðuneytið, 5. júlí 1989.
kvikmyndarýni
' Umsjón: Jón Hjaltason
William Hurt og örlagavaldurinn í lífi hans.
Potað í brynjuna
Borgarbíó sýnir: Á faraldsfæti (The Acc-
idental Tourist).
Leikstjóri: Lawrence Kasdan.
Helstu leikendur: William Hurt, Geena
Davis og Kathleen Turner.
Warner Bros 1989.
Á faraldsfæti segir frá manni
(William Hurt) sem hefur það
fyrir starfa að skrifa ferðahand-
bækur fyrir ferðaþreytta með-
bræður er neyðast til að leggja
land undir fót vegna vinnu
sinnar, án þess þó að hafa af því
nokkra gleði. Hurt hefur það
hlutverk að dulbúa ferðalögin
fyrir þessa menn svo þeim finnist
þeir aldrei hafa yfirgefið stofuna
heima hjá sér, jafnvel þó farið sé
heimsálfa á milli.
En skriftirnar eru orðnar meira
en meint athvarf kaupsýslu-
manna, Hurt sjálfur hefur flúið á
náðir þeirra og notar þær til að
halda sársauka veraldarinnar í
burtu frá sér. Fyrir vikið slitnarr
upp úr hjónabandi hans og kon-
unnar, sem Kathleen Turner
leikur. Dauði 12 ára sonar þeirra
hefur komið þungri undiröldu af
stað og hvorugt þeirra kann eða
hefur burði til að standa ölduna.
Á faraldsfæti birtir okkur
mann sem hægt og bítandi er að
hverfa inn í sjálfan sig á flótta frá
veruleikanum. Eiginkonan neitar
að fylgja sökkvandi skipinu og
yfirgefur mann sinn. Þá birtist
annar kvenmaður á sjónarsviðinu
(Geena Davis), hundatemjari og
mannþekkjari. Hún lætur hrífast
af Hurt og byrjar að pota í brynj-
una sem hann hefur íklæðst.
Þeir sem vilja spennu, morð og
fjör ættu ekki að sjá Á faralds-
fæti. Hún er engin spennumynd
og raunar viðburðalítil hið ytra.
Hins vegar á sér stað mikil bar-
átta í myndinni en hún er öll í sál-
inni. Á faraldsfæti sýnir okkur
betur en aðrar myndir að dauð-
inn er ekkert grín.
Tvíburarnir
Borgarbíó sýnir: Tvíburana (Twins).
Leikstjóri:
Helstu leikcndur: Arnold Schwarzen-
egger og Dannv DeVito.
1989.
Þær eru nokkrar tvíbura- og
bræðramyndirnar sem að undan-
förnu hafa komið frá Hollywood.
Sú nýjasta á Akureyri heitir ein-
faldlega Tvíburarnir og er um til-
raun sem vísindamenn gera til að
skapa hina fullkomnu mannveru.
Sæði úr völdum vísinda- og
íþróttamönnum er hrist saman og
notað til að frjóvga egg í stæltum
kvénmanni. Afleiðingarnar
verða að helmingi til óvæntar.
Konan fæðir nefnilega ekki eitt
sveinbarn heldur tvö. En varla er
fæðingin afstaðin þegar drengirn-
ir eru teknir í burtu, öðrum er
komið fyrir á heimili fyrir mun-
aðarlausa (Danny DeVito) en
hinn (Arnold Schwarzenegger)
er alinn upp á afskekktri eyju á
Kyrrahafinu. Móðurinni er sagt
það eitt að barnið hafi fæðst
andvana.
Ósýnilegir þræðir tengja
bræðurna saman og fullvaxta fer
sá af eyjunni að leita hins. Eyjar-
skegginn á ekki í miklum erfið-
leikum með að finna borgar-
bróðurinn en sýnu meiri við að
sannfæra hann um blóðböndin,
enda engin furða því að leitun er
að ólíkari mönnum en Schwarz-
enegger og DeVito. Eftir sam-
fundi þeirra bræðra segir frá bar-
áttu þeirra við vonda menn og
leit að feðrum og móður.
Tvíburarnir er bandarísk gam-
anmynd en þrátt fyrir það er hún
fyndin og raunar bráðsniðug á
köflum. DeVito er aldrei hléypt í
vitleysis-ærsl sem hann er þó lík-
lega þekktastur fyrir, og
Schwarzenegger er saklausi
bróðirinn sem ekki kann á refil-
í ársskýrslu Jafnréttisráðs fyrir
árið 1988 kemur fram að ráðið
hafí fylgt eftir könnun sem Dr.
Sigrún Stefánsdóttir fjöl-
miðlafræðingur birti árið 1987.
Hlutur kvenna sem viðmæl-
enda í fréttatímum ríkissjón-
varpsins var tekinn fyrir og í
Ijós kom að hann var mjög rýr.
Könnun Dr. Sigrúnar náði yfir
árin 1966 til 1986. Hlutur kvenna
sem viðmælenda var hæstur síð-
ustu tvö ár tímabilsins og var þá
um 13%.
Niðurstaða könnunarinnar
varð tilefni mikilla umræðna og
ákvað Jafnréttisráð að fylgja mál-
inu eftir með stuttum athugunum
og var sú fyrsta gerð í janúar
1988. Tilgangurinn var m.a. að
stigu stórborgarinnar. Og Sviss-
lendingurinn sýnir það og sannar
í þessari mynd að hann ræður vel
við að segja meira en einsatkvæð-
isorð og að hann þarf hreint ekki
alltaf, sligaður af handsprengj-
um, að styðjast við hríðskota-
byssur.
athuga hvort umræða sú sem
könnunin vakti hefði leitt til þess
að hlutur kvenna ykist.
í ljós kom að hlutur kvenna
var um 20% janúarvikuna. Sams
konar athugun var gerð í lok árs-
ins og bæði fréttatímar ríkissjón-
varpsins og Stöðvar 2 athugaðir.
Hlutur kvenna var svipaður hjá
báðum stöðvunum eða um 13%.
Formaður og framkvæmda-
stjóri Jafnréttisráðs áttu fund
með útvarpsstjóra vegna athug-
ananna. Sú hugmynd kom fram
um að vinna sérstakan nafna- eða
upplýsingabanka um konur með
menntun og/eða fagþekkingu á
ýmsum sviðum þjóðlífsins. Fáist
fé á fjárlögum til að vinna slíkan
banka á vegum Jafnréttisráðs
verður það gert á næsta ári. KR
lllulur kvenna í
Qölmiðlum rýr