Dagur - 18.07.1989, Blaðsíða 14
14 - BöQOB - Mtr&IudflgöY 18' ‘/0111989
Viðskiptavinir Dags og Dagsprents hf. athugið!
Fyrirtækin verða
lokuð í dag,
þriðjudag, frá kl. 13.00 til 17.00 vegna jarðar-
farar.
Bridgefélag Akureyrar
Bridge
í Dynheimum
Opið verður í Dynheimum næstu
þriðjudaga til spilamennsku sem
hefst kl. 19.30.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Tilvalið að grípa í spil eitt og eitt kvöld.
«t
Litlu dætur okkar og systur,
HULDA OG MARGRÉT HAUKSDÆTUR,
verða jarðsungnar frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 18. júlí
kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast þeirra er bent á björgunarsveitirnar.
Ólöf Tryggvadóttir, Haukur ívarsson,
og systkini hinna látnu.
Eiginkona mln og dóttir - dóttir okkar og dótturdóttir,
ÁSTA JÓNA RAGNARSDÓTTIR
OG HANNA MARÍA ÁSGEIRSDÓTTIR,
verða jarðsungnar frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 18. júlí
kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast þeirra er bent á björgunarsveitirnar.
Ásgeir Vilhelm Bragason,
Erla ívarsdóttir, Ragnar Elinórsson.
Þökkum af alhug, auðsýnda samúð, vináttu og ómælda hjálp
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa.
ÞÓRODDARINGVARSJÓHANNSSONAR,
Eikarlundi 22, Akureyri,
sem lést 2. júlí sl.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Magnúsdóttir,
Ingvar Þóroddsson, Sigríður Vilhjálmsdóttir,
Svandís Þóroddsdóttir, Gretar Örlygsson,
Berghildur Þóroddsdóttir, Vignir Már Þormóðsson,
Eydís Ingvarsdóttir, Birkir Örn Gretarsson.
Fædd 24. maí 1963 - Dáin 9. júlí 1989
Vinarkveðja
„Mamma, það varð slys uppi á
Sprengisandi og Ásta Jóna og
dóttir hennar dóu.“
Með þessum orðum var tekið á
móti mér þegar ég kom heim í
hádeginu þriðjudaginn 11. júlí
sl. Mín fyrstu viðbrögð voru
vantrú. Þetta gat ekki verið satt.
Ásta og Ásgeir alvön fjallaferð-
um, á vel útbúnum bíl og einstak-
lega gætin. En því miður, sann-
leikurinn er bitur og söknuðurinn
sár.
Það er erfitt að sjá á eftir vini
og félaga sem maður hefur átt í
fjölda ára. Ásta var bara fimm
ára þegar ég sá hana fyrst, lítill
fjörkálfur sem aldrei var til friðs.
En á bak við grallaraspóann var
heilsteyptur persónuleiki, sem
öllum vildi vel.
Þeim eiginleika Ástu verður
best lýst með smádæmi. Síðast-
liðinn vetur lést móðir mín eftir
erfið veikindi. Um kvöldið var
bankað hjá mér. Þar var Ásta
komin með konfekt og kók til að
reyna að hressa mig upp.
Söknuður vinanna er sár en
sorg ættingjanna, sem sjá á eftir
ástvinum sínum, óbærileg. Þó að
nú syrti að, vil ég tileinka þeim
orðin sem voru á síðasta jóla-
kortinu mínu frá Ástu Jónu:
Snúðu augliti þínu alltaf að sólar-
bjarmanum, þá munu skuggarnir
falla að baki þér.
Megi algóður Guð veita ykkur
öllum styrk og sálarþrek.
Áslaug Magnúsdóttir
Fyrir hönd starfsfólks Dags og
Dagsprents langar mig að minn-
ast vinkonu okkar og vinnufé-
laga, Ástu Jónu Ragnarsdóttur, í
örfáum orðum. Fyrir mér megna
orð ekki að tjá allar þær tilfinn-
ingar sem bærst hafa eftir að Ijóst
var hvaða harmleikur hafði átt
sér stað. Þetta er sárt, óbærilega
sárt fyrir alla þá sem kynntust
þessari indælu stúlku.
Ég kynntist Ástu Jónu er ég
hóf störf á Degi haustið 1986 og
rifjaðist þá fljótlega upp að hún
var frænka mín. Höfðum við síð-
an lúmskt gaman af því að stríða
hvort öðru með þessum skyld-
leika við ýmsar aðstæður sem
komu upp í vinnunni. Gaman-
semin var einkennandi fyrir Ástu
Jónu og ég efast um að ég hafi
kynnst skapbetri og geðþekkari
stúlku. Hún brosti, hló, söng og
trallaði í vinnunni, tók erfiðum
verkefnum með einstöku jafnað-
argeði og lét ekki streitu eftir-
miðdagsins hafa áhrif á sig. Hún
smitaði út frá sér og það var
ómetanlegt að vinna við hlið
Ástu Jónu þegar streitan og hrað-
inn voru þrúgandi. Hún veitti
manni styrk, feykti burt áhyggj-
um og fyrir það vil ég þakka. Fyr-
ir hennar hlýja viðmót viljum við
öll þakka.
Ásta Jóna er okkur öllum
minnisstæð í leik og starfi fyrir
góða skapið og geislandi kátín-
una. f huga mér eru ofarlega þær
stundir sem við áttum saman í
kaffitímunum. Hún hafði fengið
mikinn áhuga á skák og síðustu
vikurnar tefldum við oft snarpar
skákir, okkur til óblandinnar
ánægju, enda taflmennskan
fjörleg. Hún beið lægri hlut en
litlu munaði á stundum. Því mið-
ur er skák lífsins óvægnari leikur
og í slíku manntafli getur enginn
séð úrslitin fyrir.
Ásta Jóna er dáin. Dóttir
hennar er dáin. Stórt skarð hefur
verið höggvið í hamingjusama
fjölskyldu. Elsku Ásgeir, Guð
veiti þér styrk. Af öllu hjarta
biðjum við Guð að veita for-
eldrum og öðrum ættingjum
styrk á þessari sorgarstundu. Það I
er erfitt að sætta sig við það sem
maður fær ekki breytt. Vanmátt-
urinn er gífurlegur. Þakka þér
fyrir allt, elsku Ásta Jóna.
F.h. starfsfólks Dags og
Dagsprents;
Stefán Sæmundsson
Minningarorð
um kæra vinkonu
„Dauðinn er sólarupprás,
uppstigning geislandi sólar
úr djúpi Iífsins“
(Ragnhildur Ófeigsdóttir)
Margt kemur upp í hugann þegar
við minnumst með fátæklegum
orðum elskulegrar og ljúfrar
manneskju sem Ástu Jónu.
Ánægjustundir með henni
voru margar en dauðinn sem
grípur óvænt í taumana verður
okkur lifendum illskiljanleg gáta.
Ásta Jóna var mikill persónu-
leiki og hugur hennar beindist að
tilgangi lífsins, ódauðleika sálar-
innar og að leitun þekkingar á
kjarna sinnar eigin tilveru.
Trú hennar var einlæg og
hennar leiðarljós.
Lítil stúlka, Hanna María fylg-
ir nú móður sinni til hins eilífa
Ijóss, þar sem friður Guðs og
kærleikur umvefur þær.
„Sál barnsins var lítið blátt blóm
sem bærðist fyrir blænum
á íslenskri heiði
miðnætursólin kyssti dögg þess
sál þess rós
sem óx í garði móður sinnar
hvítar hendur hlúðu að henni
tár móðurinnar
vökvuðu hana
bros móðurinnar
var sólin. “
(Ragnhildur Ófeigsdóttir)
Að leiðarlokum kveðjum við
Ástu Jónu og litlu dóttur hennar
með söknuði og biðjum algóðan
Guð að veita ástvinum hennar,
sem misst hafa svo mikið, styrk
til að horfa fram á við.
Elsku Ásgeir, góði vinur,
„Snúðu augliti þínu alltaf
að sólarbjarmanum,
þá munu skuggamir falla
að baki þér. “
(Indverskt orðtak)
Freyja, Baldur,
Unnur Huld og Þórður.
t
Minning:
Hanna María Asgeirsdóttir
Fædd 30. maí 1984 - Dáin 9. júlí 1989
Það er sárt að frétta andlát svo
ungra manneskja sem eiga svo
margt ógert, en þeim mæðgum
Hönnu Maríu og Astu kynntumst
við er Hanna María kom til okk-
ar á Iðavöll aðeins 2ja ára gömul
og kvaddi okkur síðast föstudag-
inn sem við fórum í sumarfrí,
þann 7. júlí sl.
Hún skilpr eftir sig góðar
minningar um rólega stelpu,
sjálfstæða og örugga, sem lét
umhverfi ekki hafa truflandi áhrif
á sig.
Hanna María hafði alltaf nóg
fyrir stafni, átti ætíð nóga félaga
og eignaðist mjög góðar vinkon-
ur sem við vitum að ásamt okkur
sakna hennar mikið.
Hún mun áfram eiga sitt sæti í
hugum okkar, við erum þakklát-
ar fyrir þær stundir sem við áttum
með henni.
Kæri Ásgeir, við vottum þér og
öðrum aðstandendum dýpstu
samúð okkar.
Starfsfólk á
leikskólanum Iðavelli.
Birting afmælis- og
minn ingargreina
Dagur tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjalds-
laust. Tekið er við greinunum á ritstjórn blaðsins að Strandgötu 31,
Akureyri svo og á skrifstofum blaðsins á Blönduósi, Húsavík,
Reykjavík og Sauðárkróki.
Athygli skal vakin á því að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í fimmtudagsblaði, að
berast síðdegis á þriðjudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Þá eru minningargreinar ekki birtar í laugardagsblaði.
Meginreglan er sú að minningargreinar birtist undir fullu nafni
höfundar.