Dagur - 18.07.1989, Blaðsíða 11
hér & þar
Stjóm félags skólastjóra og yfirkennara:
Mótmælir því að ákveðinn skuii vera
flatur niðurskurður á öll ríkisútgjöld
Og
Á stjórnarfundi í Félagi skóia-
stjóra og yfirkennara var fjallað
um þann niðurskurð sem Alþingi
samþykkti við gerð síðustu fjár-
laga. Stjórnin mótmælir því að
ákveðinn skuli vera flatur niður-
skurður á öll ríkisútgjöld og ekki
tekið tillit til þess hver þróunin
hefur verið í aukningu útgjalda
undanfarin ár. Stjórnin bendir á
að síðastliðna tvo áratugi hefur
hlutfall menntamála í ríkisút-
ekki tekið tillit til þess hver þróunin hefur
í aukningu útgjalda undanfarin ár
gjöldum haldist óbreytt, verið
milli 14 og 15 af hundraði. Aukin
útgjöld sem nema aukningu
þjóðartekna hafa öíl farið í upp-
byggingu framhaldsskóla og
háskóla.
Það er því næsta ósanngjarnt
að skera niður útgjöld til mennta-
mála í sama mæli og til annarra
þátta í ríkiskerfinu sem þanist
hafa út síðustu ár. Sérstaklega er
það ósanngjarnt gagnvart grunn-
skólanum.
Stjórnin lýsir því fullri ábyrgð
á hendur alþingismönnum vegna
þeirra afleiðinga sem þessi niður-
skurður kann að hafa í för með
sér.
Niðurskurður þessi er í algerri
mótsögn við boðaða stefnu
núverandi menntamálaráðherra í
þróun í skólamálum og vandséð
hvernig hægt er að nálgast hana
þegar svona er staðið að málum.
verið
Reynslan hefur sýnt að skerð-
ing sem einu sinni hefur verið
framfylgt verður viðvarandi í
kerfinu. Hún getur því haft lang-
varandi áhrif á þróun skólamála.
Framtíð smáþjóðar byggir á
því að hægt sé að framleiða há-
gæðavöru sem aftur krefst góðrar
almennrar menntunar. Því er
skerðing á skólatíma hættuleg og
í hrópandi mótsögn við þróun
samfélagsins.
Sjónvarpsforcldrarnir standa með honum.
Átján ára töffari í sjálfstæðisbaráttu.
íiimui
n»
Heildarupphæð vinninga
15.07 var 7.257.787.-
Einn hafði 5 rétta og fær
hann kr. 4.329.560.-
Bónusvinninginn fengu 4
og fær hver kr. 108.477.-
Fyrir 4 tölur réttar fær
hver kr. 7.484.- og fyrir 3
réttar tölur fær hver um
sig kr. 441.-
Sölustaöir loka 15 mínútum
fyrir útdrátt i Sjónvarpinu.
Rriðjgdágöf 18gþúdi)jt»88-EU«&WK-'11
Kirk Cameron sem leikur í þátt-
unum Vaxtaverkir stendur nú í
sjálfstæðisbaráttu við foreldra
sína. Sjónvarpsforeldrar hans,
þ.e.a.s. Alan Thicke og Joanna
Kerns eru líka komin í deilurnar
og standa með stráknum.
Kirk sem eru 18 ára vill flytja
að heiman en því eru foreldrar
hans á móti. „Þetta er fáránlegt -
ég hef $25.000 á viku og bý samt
í sama litla herberginu og þegar
ég var lítill,“ sagði Kirk við náinn
Kirk og mamma.
vin sinn. „Ég þarf meira að segja
að nota sama baðherbergi og
systir mín. Ég þarf að fá mína
eigin íbúð. Ég get hreinlega ekki
búið við svona aðstæður."
Stríðið hófst í október sl. um
svipað leyti og Kirk varð 18 ára.
Kirk sagði móður sinni að hann
ætlaði að flytja í sína eigin íbúð.
Hann sagðist hafa rætt málin við
vini sína og fólkið sem væri með
honum í þáttunum og þau teldu
öll að honum væri fyrir bestu að
búa einum.
Móðir Kirks var ekki eins hrif-
in því hún taldi þetta geta leitt til
þess að fjölskyldan splundraðist.
Hjónaband foreldra Kirks hafði
hangið á bláþræði skömmu áður
en núna var allt að komast í fyrra
horf. Kirk lét undan þrýstingi
foreldra sinna en sagði þö vini
sínum að það væri bara vegna
þess að hann hefði fengið sam-
viskubit vegna kvartana móður
sinnar.
Allt var síðan rólegt í nokkra
mánuði en þá byrjaði ballið
aftur. Kirk ræddi málin við Alan
vaxtaverkjapabba og varð
ákveðnari en nokkru sinni fyrr í
að fara að heiman, hvað svo sem
móðir hans segði. Kirk getur þó
ekkert gert fyrr en hann er orð-
inn 21 því móðir hans sér um
fjármálin fyrir hann. Hann gæti
þó reynt að fá peningana dæmda
sér eða taka bankalán en að sögn
vinar hans er ekki líklegt að hann
geri það.
Þrátt fyrir baráttuna við for-
eldra sína er Kirk tryggur og trú-
aður drengur sem elskar mömmu
og pabba. Það er þó bara tíma-
spursmál hvenær hann slær hnef-
anum i borðið og fær sér íbúð
eða eins og hann sagði við vin
sinn: „Þetta er ekki spurning um
HVORT ég flyt út, heldur
HVENÆR.“
OKUM EINS OG MENN'
Aktu
eins oa þú vilt
að aorir aki!
uæ
IFERÐAR
Vaxtaverkjastrákur
í sjálfstæðisbaráttu
- Kirk Cameron vill flytja að heiman