Dagur - 18.07.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 18. júlí 1989 — DAGUR - 7
Staðan
1. deild
Valur 9 5-2-2 10: 4 17
Fram 9 5-1-3 12: 8 16
KA 9 4-3-2 13: 9 15
FH 9 4-3-2 13: 9 15
KR 9 4-3-2 15:12 15
ÍA 9 4-1-4 11:12 13
Þór 9 2-3-4 9:13 9
ÍBK 9 2-3-4 9:15 9
Víkingur 9 2-2-5 13:11 8
Fylkir 9 2-1-6 7:18 7
2. deild
Stjarnan 8 6-1-1 22:10 19
Víðir 8 5-2-1 12: 7 17
ÍBV 7 5-0-2 18:11 15
Breiðablik 8 4-1-3 18:12 13
Selfoss 8 4-0-4 8:12 12
Leiftur 8 2-3-3 6: 9 9
Völsungur 8 2-2-4 14:18 8
ÍR 8 2-1-5 7:12 7
Einherji 7 2-1-4 9:18 7
Tindastóll 8 1-1-6 8:14 4
3. deild
KS 9 8-1-0 34: 2 25
Þróttur N . 9 7-1-128:10 22
Reynir Á, . 9 4-2-3 22:15 14
Dalvík 9 4-2-3 16:12 14
Huginn 8 4-1-3 15:14 13
Magni 8 3-1-4 12:17 10
Kormákur 9 2-2-5 18:33 8
Austri 8 0-2-6 4:21 2
Valur Rf. 9 0-2-7 3:30 2
4. deild
TBA 9 5-4-0 23:10 19
Hvöt 9 4-4-1 15: 7 16
HSÞ-b 9 5-0-4 23:17 15
SM 8 3-3-2 14:14 12
Æskan 8 2-4-2 19:15 10
Efling 7 2-2-3 15:21 8
UMSE-b 9 2-2-5 10:20 8
Neisti 9 1-1-7 6:21 4
Þríþrautarkeppni á Akureyri:
Ágúst sigraði aftur
- Guðfmna Aðalgeirsdóttir frá Akureyri
fyrsti kvennameistarinn
Aðsókn í 1. deild:
Þríþrautarkeppni UFA og
Sundfélagsins Óðins var haldin
á Akureyri í annað skipti á
sunnudaginn. Það var stór-
hlauparinn Ágúst Þorsteinsson
úr Borgarfirði sem sigraði í
keppninni en hann varð einnig
fyrstur í keppninni í fyrra. Nú
voru stúlkur með í fyrsta skipti
og sigurvegari í kvennaflokki
varð Guðfinna Aðalgeirsdóttir
frá Akureyri.
Veðrið lék við Norðlendinga
um helgina og voru þau ófá kíló-
in sem fengu að fjúka af kepp-
endum í þríþrautarkeppninni en
þetta þykir með erfiðari íþrótta-
greinum sem keppt er í.
Keppendur voru að þessu sinni
rúmlega tuttugu, þar af tvær
konur. í þríþraut er fyrst synt,
svo var hjólað og að lokum
hlaupið og luku flestir þátttak-
endur keppninni á mjög góðum
tíma. Er það mál manna að stytt-
ast fari í það að þríþraut verði
viðurkennd sem lögleg keppnis-
grein, bæði hérlendis og erlendis.
En lítum þá að niðurstöðuna í
hverjum flokki fyrir sig:
- í 1. deildinni
KA er þriðja vinsælasta lið á
íslandi ef mark er takandi á
tölum frá KSI hvað varðar
aðsóknarmet á leiki 11. deild-
inni í knattspyrnu. Á fyrstu
fimm heimaleiki KA mættu
3070 manns sem gerir 768 að
meðaltali á leik. I fyrsta sæti er
Fram með 1109 áhorfendur á
leik og síðan koma KR-ingar
með 1.042 manneskjur að
meðaltali á leik.
Heldur færri sækja Þórsleikina
en í fyrra en taka verður tillit til
þess að spádómar fyrir tímabilið
voru ekki mjög góðir og þar að
auki voru vallaraðstæður ekki upp
á það besta í fyrstu heimaleikjun-
um.
Það vekur athygli að efsta liðið
í deildinni, Valur, er einungis
með 738 áhorfendur að meðaltali
á leik og eru í 5. sæti hvað varðar
aðsókn.
Það eru einungis Fram og KR
sem bæta sig frá því í fyrra en
FH-ingar eru með mun betri
aðsókn nú en 1987 er þeir voru
síðast í 1. deildinni. Reyndar
hafa þeir aldrei fengið mjög
mikla aðsókn á völlinn miðað við
önnur 1. deildarlið.
En lítum á stöðuna og geta þá
menn velt tölunum fyrir sér sjálfir
og dregið þær ályktanir sem þeir
vilja. í sviga á eftir eru aðsóknar-
Flokkur 16-29 ára:
1. Ólafur Björnsson
Ólafsfirði 1:18:08
2. Svavar Þ. Guðmundsson.
Akureyri 1:18.49
3. Óskar D. Ólafsson
Siglufirði 1:20.06
Flokkur 30-39 ára:
1. Ágúst Þorsteinsson
Borgarfirði 1:14.38
2. Jakob B. Hannesson
Hellu 1:24.28
3. Halldór Matthíasson
Reykjavík 1:25.68
Flokkur 40 ára og eldri:
1. Sigurður Bjarklind
Akureyri 1:22.22
2. Sigurður Aðalsteinsson.
Akureyri 1:28.49
Kvennaflokkur:
1. Guðfinna Aðalgeirsdóttir
Akureyri 1:43.11
2. Elín Harðardóttir
Bolungarvík 1:46.09
Guðfinna Aðalgeirsdóttir varð fyrsti
kvensigurvegarinn í þríþraut.
Opinn flokkur:
1. Ágúst Þorsteinsson
Borgarfirði 1:14.38
2. Ólafur Björnsson
Ólafsfirði 1:18.08
3. Svavar Þ. Guðmundsson.
Akureyri 1:18.49
í knattspymu
tölur frá síðasta keppnistímabili
eftir fimm leiki:
1. Fram
2. KR
3. KA
4. FH
5. Valur
6. ÍA
7. Þór
8. ÍBK
9. Víkingur
10. Fylkir
1.109 (1100)
1.042 (917)
768 (803)
755 (506) ’87
730 (673)
717 (673)
618 (713)
516 (679)
497 (589)
488
Ágúst Þorsteinsson á efri myndinni sigraði annað árið í röð. í keppninni er
keppt í sundi, hlaupi og á reiðhjóli og það gildir að vera snöggur að skipta.
Knattspyrna/Bikarkeppni kvenna:
Þór fór létt með FH
- sigraði 6:0 og mætir KA í undanúrslitum
Þórsarar lögðu FH 6:0 í Bikar-
keppni kvenna á föstudags-
kvöldið. Þór mætir KA í 4-liða
úrslitum 2. ágúst og það er því
Ijóst að Akureyrarlið mun
keppa til úrslita í Bikarkeppn-
inni.
Þórsurum gekk illa að finna
leiðina að nrarkinu gegn FH og
var staðan í leikhléi 0:0. Reyndar
áttu FH-stelpurnar ekki eitt ein-
asta færi í leiknum en vörnin var
dugleg í fyrri hálfleik.
I síðari hálfleik skoraði Þór
fljótlega eitt mark og þá hrundi
leikur Hafnarfjarðarstúlknanna
og Þórsstelpurnar bættu fimm
mörkum við fyrir leikslok.
Ellen Óskarsdóttir var
atkvæðamest af Þórsurum og
setti hún þrjú mörk í leiknum.
Þær Steinunn Jónsdóttir, Ingi-
björg Júlíusdóttir og Lára Ey-
mundsdóttir gerðu síðan sitt
markið hver.
Þór keppir því við KA í undan-
úrslitum Bikarsins og er sá leikur
settur á 2. ágúst. Það er því ljóst
hvernig svo sem fer í þeim leik að
það verður Akureyrarlið sem
keppir til úrslita í Bikarkeppni
kvenna árið 1989.
í hinum undanúrslitaleiknum
mætast stórliðin ÍA og Valur og
verður því róðurinn þungur í úr-
slitunum, sama hvort liðið sigrar
í þeim leik.
KA með þriðju
bestu aðsóknina