Dagur - 18.07.1989, Blaðsíða 8
8 S^ÉÖ^SffjR e8Prtð)ydáöuH^pf»ré89
íþróttir
Knattspyrna/2. deild:
Enn tapar Tindastóll
nú fyrir Selfossi 2:1
Lánið leikur ekki við lið
Tindastóls um þessar mundir í
2. deildinni. Liðið lék sl. föstu-
dagskvöld á Selfossi gegn
heimamönnum og tapaði 2:1.
Öll mörkin voru skoruð í fyrri
hálfleik. Þrátt fyrir mörg
marktækifæri tókst Tindastóli
ekki að skora lleiri mörk, en
liðið var mun betri aðilinn í
seinni hálfleik og lék heima-
menn sundur og saman. Það
eru mörkin sem telja og því
báru Selfyssingar sigur úr
býtum.
Selfyssingar hófu leikinn mun
betur og voru grimmari en hálf
sofandi iið Tindastóls. Það gat
ekki endað nema með einu, að
Selfoss skoraði fyrsta mark leiks-
ins. Á 14. mínútu komst þing-
maðurinn Ingi Björn Albertsson
í gegnum vörn Tindastóls og
sendi knöttinn í netið. Að vísu
var nokkur rangstöðulykt af
þessu marki, en dómarinn dæmdi
það gott og gilt. Eftir markið
komst Tindastóll aðeins meira
inn í leikinn og á 22. mínútu átti
Guðbrandur Guðbrandsson skot
rétt framhjá ntarkinu, eftir góða
sendingu frá Eyjólfi Sverrissyni.
En aðeins tveim mínútum síðar
skoruðu Selfyssingar sitt annað
mark. Þar var að verki Hilmar
Gunnlaugsson sem skaut þrumu-
skoti frá vítateignum í markið,
gjörsamlega óverjandi fyrir Gísla
Sigurðsson markmann.
í fyrstu sókn eftir mark heima-
Jafnt
KA-stelpum
hjá
- gegn Stjörnunni 1:1
KA gerði jafntefli 1:1 við
Stjörnuna í 1. deild kvenna í
Garðabænum á laugardaginn.
Leikurinn var jafn en ekki
mjög spennandi og jafntefli
sanngjörn úrslit.
Guðný Guðnadóttir skoraði
fyrir Stjörnuna í fyrri hálfleik er
hún fékk góða sendingu inn fyrir
vörn norðanstúlknanna. Stjörnu-
stelpurnar sáu einnig um að
skora hitt markið því það var
sjálfsmark eftir að KA-stúlkurn-
ar höfðu sent boltann í átt að
Stjörnumarkinu í leit að þeim
írisi Thorleifsdóttur og Ingu
Birnu Hákonardóttur.
Einhver misskilingur virðist
vera í sambandi við leik Þórs og
UBK sem vera átti í kvöld. Þórs-
arar fóru suður á sunnudaginn en
enginn var leikurinn og ekki er
enn búið að setja hann á aftur.
manna minnkaði Tindastóll
muninn. Sverrir Sverrisson tók
vel útfærða aukaspyrnu, rétt fyrir
utan vítateig Selfyssinga, og
sendi fyrir markið. Þar kom Mar-
teinn Guðgeirsson svífandi og
skallaði knöttinn glæsilega í
netið. Við mark Tindastóls fór að
færast fjör í leikinn og marktæki-
færi komu á báða bóga. Á 28.
mínútu átti Eyjólfur skot yfir
markið úr góðu færi og á 37. mín-
útu átti Hilmar þrumuskot í
stöng fyrir heimamenn. En fleiri
urðu mörkin ekki í fyrri hálf-
leiknum.
í stuttu máli sagt, þá átti
Tindastóll seinni hálfleikinn og
óð í færum. En það var eins og
net væri fyrir marki Selfyssinga,
því inn vildi tuðran ekki. Á 65.
mínútu átti Hólmar Ástvaldsson
bananaskot yfir markvörð Sel-
foss og í þverslána og niður á
marklínu. Viidu margir meina að
knötturinn hafi verið innan við
línuna, en hvorki línuvörður né
dómari voru í aðstöðu til að
dænta um það. Undir lok leiksins
björguðu heimamenn af línu, en
þá vantaði leikmann frá Tinda-
stóli fyrir framan markið.
Hólmar Ástvaldsson lék að
nýju með Tindastóli eftir nokkurra
vikna fjarveru vegna meiðsla og
átti hann ágætan leik. Þá var
Ólafur Adolfsson góður í vörn-
inni, svo og Björn Björnsson.
Atkvæðamestir heimamanna
voru Gylfi Sigurjónsson og Hilm-
ar Gunnlaugsson.
Dómari var Ágúst Guðmunds-
son og virtist stundum hreinlega
ekki vera í sambandi, blessaður.
-bjb
Tindastólsmaðurinn Guðbjartur Haraldsson er hér í harðri baráttu við tvo Selfyssinga
ingar að lúta í iægra haldi 2:1 og eru nú neðstir í 2. deildinni.
Knattspyraa/3. deild:
KS í basli með Dalvík
- stórsigur Reynis - Magni skríður upp töfluna
KS vann nauman sigur á Dal-
víkingum 1:0 í 3. deildinni á
föstudagskvöldiö og heldur
forystunni í B-riðli deildarinn-
ar. Reynir vann Kormák með
handboltatölum 9:4 á Árskógs-
strönd og Magni skríður upp
töfluna með 3:1 sigri á Austra
á Eskifirði.
Mesta athygli vekur stórsigur
Reynismanna á Kormáki frá
Hvammstanga. Þetta var leikur
hinna marksæknu framherja og
hugsuðu menn lítið um vörnina
að þessu sinni. Framherjar Reyn-
is voru heldur betur á skotskón-
unt og var þar Ágúst Sigurðsson
fremstur í flokki og skoraði hann
fjögur ntörk í leiknum.
Staðan í leikhléi var 4:1 fyrir
heimamenn og hefðu hæglega
getað verið skoruð mun fleiri
mörk í hálfleiknum. En í síðari
hálfleik opnuðust varnir beggja
liða eins og vængjahurðir og
sveimuðu framherjar beggja liða
inn og út úr vítateignum eins og
býflugur.
Páll Leó Jónsson skoraði fyrsta
mark Kormáks úr vítaspyrnu en
Garðar Níelsson bætti tveimur
mörkum við fyrir Reyni og var þá
staðan orðin 6:1. Þá fór að bera á
kæruleysi í liði heimamanna og
Grétar Eggertsson skoraði tvö
niörk fyrir gestina. Þá komu
mörk frá Ágústi og Heimi Braga-
syni fyrir Reyni en Albert Jóns-
son svaraði með fjórða marki
Kormáks. Það var síðan fyrirlið-
Þorvaldur Þorvaldsson sem
inn
innsiglaði sigur Reynis með
ágætu marki eftir hornspyrnu.
Sem sagt 9:4 fyrir Reyni.
KS í basli
KS lenti óvænt í erfiðleikum
með Dalvíkinga um helgina á
Siglufirði en náði þó að sigra 1:0.
Dalvíkingar komu mjög grimmir
til leiks og staðráðnir í að hefna
fyrir stórt tap fyrr í sumar. KS
var þó sterkari aðilinn í fyrri hálf-
leik og skoraði þá Baldur Benón-
ýsson eina mark leiksins.
Dalvíkingar komu hins vegar
ákveðnir til leiks í síðari hálfleik
og áttu heimamenn oft í erfið-
leikum með fríska Dalvíkinga.
En KS átti síðan hættulegar
Knattspyrna/2. deild:
Leiftur lá í þokuleik
Stjarnan trónir nú á toppnum
Stjarnan skaust á toppinn í 2.
deildinni um helgina með því
að leggja Leiftur að velli 2:1 á
Stjörnuvellinum á föstudags-
kvöldið. Leikurinn var fjörug-
ur og vel leikinn en sigur
heimamanna var fyllilega verð-
skuldaður.
Valdimar Kristófersson er hér boðinn velkominn af varnarmönnum Leift-
urs. Eins og sést var þykk þoka á vellinum þannig að varla sá milli marka.
Mikil þoka hvíldí yfir höfuð-
borgarsvæðinu á föstudaginn og
áttu áhorfendur stundum fullt í
fangi með að fylgjast með leikn-
um á Stjörnuvellinum í Garða-
bæ. Jafnræði var með liðunum
tveimur í fyrri hálfleik og skiptust
liðin á að sækja.
A 15. mínútu átti Sigurbjörn
Jakobsson hörkuskot að marki
sem markvörður Stjörnunnar
varði vel. Hann átti hins vegar
ekkert svar við við marki Hall-
dórs Guðmundssonar fimm
mínútum síðar. Þá átti Sigur-
björn langá sendingu fram kant-
inn og þar snéri Garðar Jónsson
varnarmenn Stjörnunnar
skemmtilega af sér og sendi
knöttinn á Halldór sem var á
auðum sjó og gat ekki annað en
skorað.
Sókn Stjörnunnar þyngdist eft-
ir þetta en vörn Leifturs var
örugg og gaf ekkert færi á sér
fram að leikhléi.
í síðari hálfleik snérist dæmið
hins vegar upp í algera einstefnu
á mark gestanna. Stjörnudreng-
irnir léku við hvern sinn fingur og
áttu Ólafsfirðingarnir ekkert svar
við frískum leik Garðbæinganna.
Valdiniar Kristófersson skoraði
fyrra mark þeirra eftir mistök í
skömmu eftir
vörn Leifturs
leikhlé.
Áfram hélt þung sókn heima-
manna og átti m.a. Árni Sveins-
son þrumuskot í stöng eftir að
hafa dansað í gegnum vörn Leift-
urs. Eina færi Leifturs í síðari
hálfleik kom þó skömmu áður en
þá skaut Hafsteinn Jakobsson í
slá Stjörnunnar eftir þóf í víta-
teignum.
En sigurmark þeirra bláklæddu
setti Heimir Erlingsson með gull-
fallegu skoti í vinkilinn langt utan
af velli án þess að Þorvaldur í
markinu ætti nokkurn möguleika
á því að verja.
Bestu menn Leifturs voru þeir
Hafsteinn Jakobsson sem stjórn-
aði spilinu á miðjunni og einnig
átti Þorvaldur góðan leik í mark-
inu og verður ekki sakaður um
mörkin tvö. Reyndar lék allt
Leiftursliðið vel í fyrri hálfleik en
dalaði mjög í þeim síðari.
Þetta er fjórði leikur Stjörn-
unnar þar sem liðið er undir í
leikhléi en nær að rífa sig upp í
síðari hálfleik. Leikmennirnir
virka í góðu pústi og gefast ekki
upp fyrr en í fulla hnefana. í
þessum leik bar mest á þeim
Valdimar Kristóferssyni og
Heimi Erlingssyni. RH/AP
sóknir og úr einni þeirra var
dæmd vítaspyrna á Dalvík. En
Sigurvin Jónsson markvörður
gerði sér þá lítið fyrir og varði
spyrnuna frá Hafþóri Kolbeins-
syni. Þar við sat þrátt fyrir ágæta
tilburði beggja liða það sem eftir
lifði leiksins. Lokatölur því 1:0
fyrir KS og Siglfirðingar eru því
enn í efsta sæti B-riðils deildar-
innar.
Öruggur Magnasigur
Magni vírðíst vera að ná sér á
strik eftirslaka byrjun. Um helg-
lögðu Grenvíkingarnir
ina
Eskfirðinga að velli 3:1 í leik sem
gestirnir hefðu átt að skora mun
fleiri mörk.
Magnús Helgason skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Magna
með hörkuskoti í fyrri hálfleik og
þrátt fyrir mörg góð tækifæri
tókst gestunum ekki að auka við
forskotið þann hálfleikinn.
í síðari hálfleik bætti Jónas
Baldursson við öðru marki en
Bjarni Kristjánsson minnkaði
muninn fyrir Áustra í 2:1 úr víta-
spyrnu. En lokaorðið átti Jón
Stefán Ingólfsson úr vítaspyrnu
fyrir Magna er leiktíminn var að
renna út.
Á Reyðarfirði sigraði Þrótt-
ur Val örugglega 5:0.
Pétur Bjarnason TBA sækir hér að Stefáni
TBA sigraði á laugardaginn 2:0 og er í efst;