Dagur - 18.07.1989, Síða 9
eali'ðiMfiaflurulfedýjéíWas nJ&fóJB - 9
. Enginn má við margnum og urðu Sauðkræk-
Mynd: -bjb
1T Guðmundsson frá Laugarvatni varð í 1. sæti á
i-seglbrettamótinu á Pollinum um helgina.
Mynd: AP
Guðmundssyni HSÞ-b í leik liðanna í 4. deild.
a sæti D-riðils.
Opna Sauðárkróksmótið í golfi:
Akureyringar sigursælir
ttaka var á opna Sauð- Næstur holu á 3. braut fyrri Karlaflokkur með forgjöf högg 2. Halla Berglind GA
imntinu í pnlfi. Esso- keppnisdag var Eiríkur Haraíds- 1. Hjörtur Geirmundss. GSS 133 3. Hjördís Ingvarsd. GR
Metþátttaka var á opna Sauð-
árkróksmótinu í golfi, Esso-
Volvo mótinu, um síðustu helgi
á Hlíðarendavelli Golfklúbbs
Sauðárkróks. AUs mættu 75
kylfingar til leiks frá 10
klúbbum, víðs vegar að, og
luku 73 keppni. Rjómablíða
var báða keppnisdagana og
náðist ágætis árangur. Akur-
eyringar voru sigursælir á mót-
inu, enda fjölmennir, og náðu
14 verðlaunum af þeim 23 sem
í boði voru. Framkvæmd móts-
ins tókst með ágætum og voru
kyifingar ánægðir með Hlíðar-
endavöllinn, sem þykir einn
besti 9 holu völlur á landinu í
dag.
Keppt var í karla-, kvenna- og
unglingaflokki og spilaðar 36
holur, með og án forgjafar. í
karlaflokki hófu 56 kylfingar
keppni og 55 kláruðu, 12 kepp-
endur voru í unglingaflokki og
datt einn út, og 7 konur háðu
hildi sín á milli. Glæsileg verð-
laun voru í boði, jafnt aðal- sem
aukaverðlaun.
Næstur holu á 3. braut fyrri
keppnisdag var Eiríkur Haraíds-
son GA, eða 0,92 m frá holu.
Seinni daginn var Ásgrímur
Hilmisson GA 2,55 m frá því að
setja niður á 3. braut. Á 6. braut
var Halla Berglind GA 3,05 m frá
holu fyrri daginn og seinni daginn
var Steinar Skarphéðinsson GSS
næst því á 6. braut, eða 0,92 m.
Þá voru veitt verðlaun fyrir fæst
pútt báða dagana og fæst pútt
notaði Ómar Kristjánsson GR.
Hann púttaði 55 sinnum.
Keppni í karlaflokki var hörð
og jöfn og þurfti umspil um þrjú
efstu sætin. Um fyrsta sætið léku
félagarnir Örn Arnarson GA og
Þórleifur Karlsson GA og hafði
Örn betur. Bræðrabylta var uni
bronsið, en þar léku Kristján og
Ólafur Gylfasynir GA. Kristján
lék betur á þeim þrem brautum
sem spilaðar voru í umspilinu.
Úrslit urðu þessi:
Karlaflokkur án forgjafar högg
1. Örn Arnarson GA 155
2. Þórleifur Karlsson GA 155
3. Kristján Gylfason GA 157
Karlaflokkur með forgjöf högg
1. Hjörtur Geirmundss. GSS 133
2. Þórleifur Karlsson GA 135
3. Sigurður Hreinsson GH 136
Kvennaflokkur án forgjafar
högg
1. Andrea Ásgrímsd. GA 184
2. Halla Berglind GA 211
3. Bjarnhildur Sigurðard. GSk
218
Bjarnhildur vann Hjördísi
Ingvarsd. GR í bráðabana um
bronsið.
Kvennaflokkur með forgjöf
högg
1. Andrea Ásgrímsd. GA 144
155
162
Unglingar án forgjafar högg
1. Egill Hólmsteinsson GA 162
2. Áki Harðarson GA 171
3. Halldór Halldórsson GSS 180
Unglingar með forgjöf högg
1. Halldór Halldórsson GSS 126
2. Egill Hólmsteinsson GA 138
3. Sveinn Bjarnason GH 139
Þess má geta að fyrir að fara
holu í höggi var glæsilegt Ping
golfsett í boði en enginn kylfing-
ur náði draumahögginu á opna
Sauðárkróksmótinu. Mótstjóri
var Sverrir Valgarðsson. -bjb
Seglbretti:
Valtýr bestur
- andvaraleysi hrjáði keppendur
Sterkt seglbrettamót á vegum
Siglingaklúbbsins Nökkva og
Seglbrettasambands íslands
var haldiö á Pollinum við
Akureyri um helgina. Kepp-
endur voru 12 og varð Valtýr
Guðmundsson frá Laugarvatni
hlutskarpastur á mótinu.
Keppnin þótti takast vel og
voru keppendur ánægðir með all-
ar aðstæður á Akureyri. Þó lét
vindurinn stundum bíða eftir sér
og var t.d. að mestu lygnt allan
laugardaginn og er það ekki gott
í þessari íþróttagrein.
Keppt var í tveimur flokkum
og síðan var veittur bikar fyrir
besta samanlagða árangur. Það
var Valtýr sem bæði sigraði í 1.
flokki og fékk bikarinn góða. í 2.
flokki sigraði síðan Einar Bjarna-
son frá Reykjavík. En lítum þá á
efstu menn í hvorum flokki:
1. flokkur:
1. Valtýr Guðmundsson, Laug-
arvatni
2. Jóhannes Ævarsson, Reykja-
vík
3. Valdimar Kristinsson, Reykja-
vík
4. Finnur Birgisson, Akureyri
2. flokkur:
1. Einar Bjarnason, Reykjavík
2. Ágúst Björnsson, Reykjavík
3. Guðmundur Guðjónsson,
Reykjavík
4. Heimir Bergsson, Selfossi
Knattspyrna/4. deild:
TBA á toppnum
- lagði HSÞ-b 2:0 - Hvöt tapaði stigum gegn UMSE-b
TBA styrkti stöðu sína á toppi
D-riðils 4. deildar með því að
leggja HSÞ-b að velli 2:0 á
Krossmúlavelli í Mývatnssveit.
Á sama tíma gerði Hvöt
markalaust jafntefli við
UMSE-b á Laugalandi. SM
heldur áfram að koma á óvart
og nú um helgina lögðu þeir
SM-drengir Eflingu 4:3 í
hörkuleik. Æskan vann síðan
öruggan sigur á Neista 3:0.
Það var beðið eftir leik TBA
og HSÞ-b með nokkurri eftir-
væntingu því þarna áttust við tvö
af toppliðunum. Leikurinn var
jafn og spennandi og strax á
fyrstu mínútu átti Sigurkarl
Áðalsteinsson skot í slá HSÞ-b
en varnarmönnum liðsins tókst
að bjarga á síðustu stundu er
boltinn skall niður í vítateignum.
Viðar Sigurjónsson fékk síðar í
hálfleiknum guliið tækifæri til að
koma HSÞ-b yfir er hann fékk
boltann einn og óvaldaður inn
fyrir vörn TBA. En góður mark-
vörður TBA, Einar Kristjánsson,
sá við Viðari og varði örugglega
frekar laust skot hans. Það var
ekki síðan fyrr en þremur mínút-
um fyrir leikslok að vítaspyrna
var dæmd á Viðar fyrir að hand-
leika knöttinn innan vítateigs og
úr spyrnunni skoraði Sigurpáll
Árni Aðalsteinsson örugglega
fyrirTBA. Bragi Sigurðsson inn-
siglaði síðan sigur gestanna með
hörkuskoti rúmlega mínútu síðar
og lokatölur því 2:0 TBA í vil.
Hvöt tapaði stigum
Hvöt tapaði dýrmætum stigum
í toppbaráttunni með því að gera
markalaust jafntefli við UMSE-b
á Laugalandsvelli. Hvatarmenn
voru mun meira með boltann og
áttu mörg ágæt tækifæri til að gera
út um leikinn en Atli Rúnarsson
markvörður UMSE-b var í miklu
stuði og varði eins og berserkur.
Eyjafjarðardrengirnir áttu hættu-
legar skyndisóknir inn á milli í
leiknum en inn vildi knötturinn
ekki og lokatölur því 0:0.
Enn sigrar SM
SM-liðið heldur áfram að
koma á óvart og nú um helgina
Verðlaunahafar og fulltrúar þeirra, að loknu Jónsincssumóti. Frá vinstri:
Kðri Valgarðsson, sem tók við verðlaunum Lindu Káradóttur, Málfríður
Haraldsdóttir, Karlotta Sigurðardóttir, Haraldur Friðriksson, sem tók verð-
laun Stefáns Pedersen (sem síðar urðu verðlaun Guðmundar Sverrissonar!),
Birgir Guðjónsson, Guðjón Gunnarsson, Sólrún Steindórsdóttir, sem tók
við verðlaunum Gunnars A. Gunnarssonar, og bræðurnir Halldór og Örn
Sölvi Halldórssynir. Mynd: -bjb
Golf:
Fjör á Króknum
- á Jónsmessumóti í golfi
nýlega. Mótið hófst kl. 19.30
og 31 kylfíngur sló linnulaust
fram yflr miðnættið, en leiknar
voru 18 holur í karla- og
kvcnnaflokki og unglingar fóru
9 holur. Veðurskilyrði voru
hin ágætustu og náðist ágætt
skor hjá keppendum, sem létu
Jónsmessudöggina fara vei í
sig á Hlíðarendavelli.
Vegleg verðlaun voru í boði og
sem fyrr voru þau veitt fyrir
árangur með forgjöf. Úrslit urðu
þessi:
Líkt og margir aðrir golfklúbb-
ar var Golfklúbbur Sauðár-
króks með Jónsmessumót
lagði liðið Eflingu 4:3 í hörku-
leik. Örn Örlygsson var í miklum
ham og skoraði þrennu fyrir SM.
Reyndar voru gestirnir yfir 3:2
þegar lítið var eftir af leiknum en
Sigurjón Magnússon þjálfari SM
jafnaði leikinn með góðu skoti og
rétt fyrir leikslok skoraði Örn
sigurmarkið við gífurleg fagnað-
arlæti áhorfenda og leikmanna.
Þórarinn Jónsson skoraði tvö
mörk fyrir Eflingu og Hermann
Geirsson eitt en að vonum voru
þeir svekktir með úrslitin því
sigurinn blasti við þeim í leiknum
Öruggt hjá Æskunni
Á föstudagskvöldið léku Æsk-
an og Neisti á Svalbarðseyri.
Yfirburðir heimamanna voru
umtalsverðir en þeim tókst þó
einungis þrisvar sinnum að koma
knettinum í net Hofsósinga. Þeir
Arnar Kristinsson, Ásgrímur
Reisenhus og Baldvin Hallgríms-
son skiptu mörkunum bróðurlega
á milli sín og Neistinn situr því
enn einn og yfirgefinn á botni rið-
ilsins en Æskan siglir lygnan sjó
um miðja deild.
Unglingaflokkur högg
1. Gunnar A. Gunnarsson 34
2. Halldór Halldórsson 36
3. Guðjón Gunnarsson 36
Kvennaflokkur högg
1. Málfríður Haraldsdóttir 70
2. Linda Káradóttir 71
3. Karlotta Sigurðardóttir 73
Karlaflokkur högg
1. Örn Sölvi Halldórsson 65
2. Birgir Guðjónsson 66
3. Guðmundur Sverrisson 67
-bjb
Staðan
1 . deild kvenna
Valur 6 6-0-0 23: 3 18
ÍA 6 4-1-1 15: 3 13
KR 5 3-1-113: 4 10
UBK 5 3-0-2 10:12 9
Stjarnan 7 1-2-4 9:20 5
KA 7 1-2-4 7:19 5
Þór 5 0-0-5 4:22 0