Dagur - 22.08.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 22.08.1989, Blaðsíða 3
fréttir - Sundlaug Sauðárkróks: Gíftirleg aukning á aðsókn - með tilkomu heitu pottanna Heitu nuddpottarnir nýju við Sundlaug Sauðárkróks hafa laðað til sín fjölda manns i sumar og aðsókn í laugina hef- ur aldrei nokkurn tímann verið meiri. Á fundi íþróttaráðs Sauðárkróks fyrir skömmu var lagt fram yfirlit um aðsókn í sundlaugina fyrir þrjá mánuði, maí, júní og júlí sl. Þar kemur m.a. fram að í maímánuði var aukning sundlaugargesta 139%, miðað við sama mánuð 1988. Maímánuður sker sig alveg úr, því aukningin er minni í júní, en samt mjög mikil. Þá var hún 77%, miðað viö júní ’88. Svipuð aukning varð í næsta mánuði, eða 71%. Búast má við að aukn- ingin verði á þessum nótum út sumarið. „Ég átti von á að pottarnir yrðu vinsælir, en að aðsóknin myndi aukast svona gífurlega, því átti ég ekki von á. Þessar töl- ur gleðja mann mjög mikið og sanna þörfina sem orðin var fyrir þessa þjónustu,“ sagði Snorri Björn Sigurðsson, bæjarstjóri á Sauðárkróki, í samtali við blaðið. -bjb Stéttarsamband bænda: Boðar til aðal- fimdar á Hvanneyri Aðalfundur Stéttarsambands bænda verður haldinn í húsa- kynnum Bændaskólans á Hvanneyri dagana 31. ágúst til 2. september nk. Fundurinn hefst kl. 13.30 fimmtudaginn 31. ágúst og gert er ráð fyrir að honum Ijúki kl. 18.00 laugar- daginn 2. september. Á fyrsta fundardegi flytur Haukur Halldórsson skýrslu for- manns Stéttarsambandsins og Steingrímur J. Sigfússon, land- búnaðarráðherra, og fleiri gestir flytja ávörp. Þá verða kynntir reikningar Stéttarsambandsins og Bændahallarinnar. Annar dagur þingsins fer að inestu í nefndarstörf en um kvöldið hefst afgreiðsla mála. Þeim lið verður síðan fram haldið laugardaginn 2. september og fundarslit eru áætluð kl. 18.30 eins og áður segir. óþh Iðnþróunarfélagið: Steinþór ráðinn tækni- legur ráðgjafi Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf. hefur ráðið Steinþór Ólafs- son, rekstrartæknifræðing, í starf tæknilegs ráðgjafa hjá félaginu frá og með 1. nóvember nk. Steinþór Ólafsson er 29 ára Akureyringur giftur Elínu Gauta- dóttur. Starfsmenn Iðnþróunarfélags- ins verða þar með þrír auk ritara í hálfu starfi. 30. þing S.U.S. á Sauðárkróki: Davíð Stefánsson kjörinn nýr formaður Samband ungra sjálfstæðis- manna hélt sitt 30. þing á Sauðárkróki um helgina undir yfirskriftinni „Aftur til fram- tíðar“. Um 150 manns sóttu þingið, sem haldið er á tveggja ára fresti. Nýr formaður SUS var kjörinn á þinginu Davíð Stefánsson frá Akureyri. Davíð tekur sæti Árna Sigfús- sonar, borgarfulltrúa í Reykja- vík. Davíð, sem er 25 ára, er yngsti forinaöur SUS til þessa. Það sem einkenndi þingið öðru fremur var sú harða gagnrýni sem kom fram á núverandi ríkisstjórn og gaf varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, Friðrik Sophusson, tóninn með ræðu sinni við þing- setningu sl. föstudag í Bifröst. Friðrik sagði að ríkisstjórnin væri sú óvinsælasta frá því mælingar hófust og væri búin að færa ís- lendinga til fortíðar með aðgerð- um sínum. Friðrik vék einnig að málefnum Sjálfstæðisflokksins og sagði m.a. að vaxandi fylgi flokksins stafaði af óvinsældum ríkisstjórnarinnar, fremur en vin- sældum flokksins. Friðrik sagði að flokkurinn hefði tapað áróð- ursstríðinu fyrir síðustu kosning- ar og yrði umbúðalaust að viður- kenna að ekki hafi tekist að marka skýra stefnu í ntikilvægum málaflokkum, s.s. í landbúnaði og sjávarútvegi. -bjb Þriðjudagur 22. ágúst 1989 - DAGUR - 3 Dæmi um verð: Lausfryst ýsufíök með roði í 5 kg. pakkningum 255.. Mataitrauð frosin 80 stykkið Samlokuskinka 940. Sanitas maltöl Pepsi Smjöriíki 78 stykkið 38 'A Itr. Sanitas pilsner 46 'h Itr. m 86 Pepsi 75 5 85 pr. kg Prif Lambahamborg■ arahiyggui 575 132 Opið virka daga frá kl. 13.00 til 18.30 Opið á laugardögum frá kl. 10.00 til 14.00 KEA NETTÓ Höfðah/íð 1 mn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.