Dagur - 22.08.1989, Blaðsíða 16
Akureyri, þriðjudagur 22. ágúst 1989
„Óvenju mikið af
ófleygum imgum“
- segir Hermann Brynjarsson gæsaskytta
Gæsaveiðitímabilið hófst sl.
sunnudag og eins og kom fram
í Degi fyrir helgi er ástand gæs-
anna fremur slæmt, mikið um
ófleyga unga og gæs í sárum.
Nokkrir héldu þó á veiðar á
fyrsta degi til að kanna ástand-
ið og var einn þeirra Hermann
Brynjarsson.
Hermann fór á veiðar í ná-
grenni Akureyrar og sagðist hafa
séð óvenju mikið af ófleygum
ungurn en ekki hefði hann þó
orðið var við gæs í sárum. „Eins
og sannur sportveiðimaður lét
maður ungana auðvitað eiga sig
en við tókum nokkrarar gæsir
sem voru vel á sig kornnar," sagði
hann.
Hermann sagði algengt að
menn færu á veiðar fyrsta daginn
til að „ná úr sér hrollinum" en
þegar komið væri fram í sept-
ember færu menn meira á stjá.
„Ástandið er fljótt að lagast og
þegar kemur fram í september
ætti þaö að vera orðið gott. Gæs-
in er líka miklu feitari seinna á
haustin og laus við blóðfjaðrir."
„Pað er líka verið að reyna að
bæta veiöimenninguna og ég hef
tekið eftir að menn hafa minnkað
mikið að nota stóra riffla við
veiðarnar og nota frekar hagla-
byssur og skjóta gæsirnar á lofti
sent er mesta sportið og eina
rétta veiðiaðferðin," sagði
Herntann. KR
Þorvaldur hjá
Nottingham Forest
- var búinn að pakka
þegar landsliðsnefndarmenn hringdu
Þorvaldur Örlygsson knatt-
spyrnumaður úr KA dvelur nú
hjá enska stórliðinu Notting-
ham Forest. Þorvaldur stund-
ar æfingar hjá félaginu.
Akureyri:
Datt af biflijóli
Nýliðin helgi var nánast slysa-
laus á Akureyri, jafnt í umferð-
inni sem annars staðar. Öku-
maður bifhjóls meiddist lítil-
lega þegar hann datt af hjóli
sínu á sunnudaginn.
Ökumaðurinn var að prófa
hjólið á Óseyri þegar hann rann
til og datt. Hjólið var óskráð og
ótryggt og ökumaðurinn hjálm-
laus. Hann slapp þó með minni-
háttar meiðsl.
í gær varð allharður árekstur á
mótum Glerárgötu og Gránu-
félagsgötu, þegar bíll ók í veg
fyrir annan. Annar bíllinn kast-
aðist á Ijósastaur og báðir
skemmdust þeir talsvert. Engin
meiðsli urðu á fólki. ET
Eins og fram hefur komið í
fréttum voru þeir Halldór
Áskelsson og Þorvaldur Örlygs-
son ekki valdir til þess að fara
með landsliðinu í leikinn gegn
Austuríkismönnum á morgun.
Síðar kom fram að Þorvaldur
hefði ekki gefið kost á sér þegar
leitað var til hans en það er ekki
nema hálfur sannleikur. Hið
rétta er að þegar Þorvaldur var
ekki með í þeim hópi sem fyrst
var tilkynntur, ákvað hann að
þiggja heimboð sem hann átti hjá
enska fyrstudeildarfélaginu Nott-
ingham Forest. Það var svo ekki
fyrr en Þorvaldur var í þann
ntund að leggja í þessa ferð að
forráðamenn landsliðsins höfðu
samband við hann og báðu hann
um að fara með landsliðinu.
Þessu hafnaði Þorvaldur enda
vart við öðru að búast þegar
landsliðsnefnd viðhefur slík
vinnubrögð.
Þorvaldur mun vera við æfing-
ar hjá Forest fram á laugardag.
Með honum í för er Stefán
Gunnlaugsson formaður knatt-
spyrnudeildar KA. ET
Sauðárkrókur Húsavík
95-5960 96-41585
Að þekkja ekki sín takmörk
Mynd: KL
Því viröast engin takmörk
sett hvað menn láta sér detta
í hug þegar þeir þurfa að sýna
og sanna sig og sinn bíl fyrir
sjálfum sér eða öðrum. Þetta
má með sanni segja um öku-
manninn sem lögreglan hafði
afskipti af í Leirutjörn á laug-
ardagskvöldið.
Um kvöldmatarleytið á laug-
ardag barst lögreglunni tilkynn-
ing um bíl sem væri í þann
mund að aka yfir Leirutjörnina,
frá Aðalstræti og austur að
Drottningarbraut. Þegar lög-
reglan kom á staðinn var
bíllinn, jeppi með palli pi.kk-
fastur við austurbakka tjarnar-
innar og þurfti aðstoð til að
komast upp.
Svæði þetta virðist vera vin-
sæll leikvöllur þeirra sem ekki
þekkja sín takmörk því fyrir
tveimur vikum sat pallbíll fastur
á svipuðum stað. Sá var á leið
vestur yfir en en náði ekki einu
sinni að komast út í tjörnina
áður en hann sat fastur. ^
Dýpkunarfélagið hf. á Siglufirði:
Hefiir fest kaup á flóabátnum
Baldri fyrír 8 milljónir króna
- tilboð í Árvakur hefur verið ítrekað
Dýpkunarfélagið hf. á Siglu-
firði hefur fest kaup á
flóabátnum Baldri og er ætlun-
in að nota hann fyrst og fremst
til að draga dýpkunarpramma
fyrirtækisins milli staða. Dýpk-
unarfélagið átti hæsta tilboðið
í Baldur, um 8 milljónir króna.
Að sögn Jóhannesar Lárusson-
ar, framkvæmdastjóra, mun
skipið verða til afhendingar
ttjótlega upp úr áramótum en
smíði nýrrar ferju fyrir strand-
ferðir milli Stykkishólms, Flat-
eyjar og Brjánslækjar, hefur
seinkað nokkuð og því verður
gamli Baldur áfram í ferðum
a.m.k. fram að áramótum.
Dýpkunarfélagið hefur lengi
leitað að hentugu skipi til að
draga dýpkunarpramma fyrir-
tækisins. Á sínum tíma bauð það
i Árvakur, sem er í eigu ríkis-
sjóðs, og átti hæsta tilboðið í
skipið, 7,2 milljónir króna. Áður
Húkkarar á ferð í Hörgá með ljótt veiðarfæri:
„Svona menn ættu hvergi að fá veiðileyfT
LJm helgina dró Halldór
Kristjánsson frá Akureyri
svokallaðan pilk úr Bægisár-
hyl í Hörgá. Pilkur er þrí-
krækja sem notuð er á hand-
færum hjá trillusjómönnum
en vitað er að þeir veiðimenn
sem stunda „húkkveiðar“ eru
farnir að nota þetta veiðar-
færi.
„Þeir sent þetta nota ættu
ekki að t'á veiðileyfi í nokkurri
á. Þctta er hrein glæpa-
mennska,“ sagði Halldór f sam-
tali við blaðið. Halldór segir að
8. ágúst hafi komið mjög særð
bleikja úr Bægisárhyl og þetta
geti skýrt hvers vegna hún var
þannig útlcikin.
Krækjur svipaðar þessari
hafa fundist víðar en í Hörgá.
Full ástæða er því til að benda
fólki á að sjáist veiðimenn með
slíkt ber skilyrðislaust að lil-
kynna það veiðivörðum.
Á myndinni hér til hliðar sést
pilkurinn og við hlið hans fluga
nr. 10. Nærri má geta að veiö-
arfæri sent þetta getur gert mik-
inn óskunda í góðum hyl á borð
við Bægisárhyl.
Halldór sagðist vilja beina
því til eiganda pilksins að hans
mætti vitja í Teppaverslun Hall-
dórs í Strandgötu. JÓH
en taka átti afstöðu til tilboðsins
hætti ríkissjóður við að selja.
Jóhannes segir að þeir Dýpkun-
arfélagsmenn hafi nýlega ítrekað
tilboð í Árvakur og það standi
þrátt fyrir að nú hafi verið fest
kaup á flóabátnum Baldri.
Sent fyrr segir er ætlunin að
nota Baldur til að draga dýpkun-
arpramma. Einnig segir Jóhannes
koma til greina að nýta það sem
fljótandi íbúðir fyrir starfsmenn,
„Það á eftir að koma í ljós hvern-
ig við nýtum það best. Við erunt
með starfsmannaíbúðir um borð
í öðru dýpkunarskipinu okkar en
aftur á móti vantar okkur íbúðir
fyrir starfsmenn á dæluprömm-
um." Hann sagði skipið vera um
margt hentugt fyrir Dýpkunarfé-
lagið, stærð þess, 200 tonn, væri
heppileg.
Til stóð að afhenda skipið í júlí
en því var frestað fram í sept-
ember eða október og nú er sýnt
að af því getur ekki orðið fyrr en
um eða eftir áramót.
Dýpkunarfélagið hefur staðið í
ströngu að undanförnu. Dalvík-
urhöfn var dýpkuð í sumar og
síðan voru tól og tæki flutt í höfn-
ina á L.-Árskógssandi. Þaðan lá
leiðin til Akureyrar þar sem
„krafsað" var upp úr nýju
Fiskihöfninni. Nú eru dýpkunar-
menn staddir á Siglufirði en það-
an liggur leiðin vestur á Skaga-
strönd og Bolungarvík. óþh