Dagur - 22.08.1989, Side 10
1Q - DAGUR'- Þriðjudagur 22. ágúst 1989.
---------------------------------'IBiniíf rrmlMp-
Meistararnir fengu burst
- Man. Utd. fór létt með Arsenal - Newcastle rassskelti milljónalið Leeds Utd.
Brian McClair skoraði fyrir Man. Utd., en brenndi einnig af vítaspyrnu er
liftið burstaði Arsenal.
Enska knattspyrnan hófst á lau’g-
ardaginn með miklurn látum, en
baráttan um stigin mun standa
óslitið allt til næsta vors. Það er
því ekki ástæða til að örvænta
fyrir þá sem urðu að þola slæm
úrslit á laugardaginn, nægur tími
er til stefnu að rétta sinn hlut.
Áhorfendur flykktust á vellina
eftir hvíldina í sumar og það
þurfti að fresta leikjum á nokkr-
um völlum um fáeinar mínútur
meðan fólkið var að koma sér
fyrir. En þá skulum við líta nánar
á leikina.
Aðalleikur dagsins var viður-
eign Englandsmeistara Arsenal á
útivelli gegn Manchester Utd.
fyrir fullum áhorfendastæðum á
Old Trafford. Steve Bruce mið-
vörður Utd. skallaði inn horn-
spyrnu Lee Sharpe strax eftir
tæpar 2 mín. og var því fyrstur
til að skora mark í 1. deild á
leiktímabilinu. David Rocastlc
jafnaði fyrir Arsenal með marki
eflir hornspyrnu Brian Marwood
og þannig var staðan í hálfleik,
en Brian McClair misnotaði þó
vítaspyrnu fyrir Utd. sem dæmd
var á Tony Adams miðvörð
Arsenal. Leikmenn Utd. sýndu í
síðari hálfleiknum að liðið ætlar
sér meistaratitilinn í vor og skor-
aði þrívegis án þess að meistur-
um Arsenal tækist að svara fyrir
sig. Mark Hughes kom liðinu yfir
með fallegu skoti á 18. mín., Neil
Webb bætti þriðja markinu við
með viðstöðulausu skoti og Brian
McClair bætti fyrir vítaspyrnuna
með fjórða og síðasta marki Utd.
í leiknum. Nýr eigandi Man.
Utd. sem keypti meirihluta
hlutabréfa í félaginu fyrr í vik-
unni ætlar sér stóra hluti og hon-
um var vel fagnaö er hann kom
inn á með leikmönnum sínum í
upphitunina. Hann var í æfinga-
galla og skoraði úr þrem skotum
sem hann tók, sennilega til að
gefa mönnum sínum uppskrift að
Paul Gascoigne og félagar hjá
Tottenhani sigruðu Luton.
því hve sigurinn ætti að verða
stór. Sigurður Jónsson lék ekki
með Arsenal að þessu sinni.
Liverpool mætti nýliðum Man.
City á Anfield og tók forystu
strax á 8. mín. Skot Peter Beards-
ley fór í hendi Neil McNab og
John Barnes skoraði af öryggi úr
vítaspyrnunni. Leikmenn City
gáfust ekki upp, en börðust af
krafti og náðu að jafna leikinn.
Brotið var á lan Bishop rétt utan
vítateigs og Andy Hinchcliffe
skoraði úr aukaspyrnunni með
föstu skoti gegnum varnarvegg
Liverpool sem Bruce Grobbelaar
í inarki Liverpool réði ekki við.
Leikmcnn Liverpool juku hrað-
ann eftir þetta og Beardsley náði
forystunni að nýju eftir góðan
samleik við Steve Nicol. Liver-
pool tók nú öll völd í leiknum og
Barnes lék mjög vel. Rétt fyrir
leikslok braust Barnes fram
kantinn, gaf góða sendingu fyrir
markið þar sem Nicol afgreiddi
hana í netið og öruggur sigur
Liverpool í liöfn. Hið unga lið
City sýndi þó að það á eftir að
standa fyrir sínu í vetur, þrátt
fyrir 1:3 tap gegn Liverpool í sín-
um fyrsta leik.
Tottenham lék gegn Luton á
heimavelli sínum og sigraði 2:1 í
fremur daufum leik þar sem leik-
menn Tottenham virkuðu kæru-
lausir. Gary Lineker lék sinn
fyrsta leik með Tottenham og
stóð fyrir sínu. Tottenham tók
forystu á 30. mín. eftir auka-
spyrnu Paul Gascoigne sem Paul
Stewart skallaði í netið. Falleg-
asta mark leiksins var þó jöfnun-
armark Luton á fyrstu mín. síðari
hálfleiks, glæsilegt skot af löngu
færi frá Roy Wegerle. Sigurmark
Tottenham skoraði Paul Allen 10
inín. fyrir leikslok af stuttu færi
eftir að varið hafði verið frá
Lineker. Wegerle var nærri að
skora sitt annað mark fyrir Luton
og Allen hefði hæglega getað
skorað annað fyrir Tottenham.
Sigur Tottenham sanngjarn, en
Gascoigne olli vonbrigðum,
bókaður og síðan skipt útaf í
leiknum.
Everton var óheppið að tapa
leik sínum á útivelli gegn Coven-
try. Leikmenn Coventry voru
daufir, aðeins David Speedie
sýndi baráttu. Everton lék vel í
síðari hálfleik og markið virtist
liggja í loftinu eftir markalausan
fyrri hálfleik. Og markið kom, en
það var ekki Everton sem skor-
aði. Gary Bannister slapp í gegn
um vörn Everton og skoraði.
Örvænting greip um sig í liði
Everton sem missti tökin á leikn-
um og undir lokin bætti Speedie
við öðru marki Coventry með
skalla.
Nottingham For. átti 90% af
leik sínum gegn Aston Villa,
fékk mörg tækifæri en tókst þó
ekki að sigra. Villa skoraði úr
nánast eina færi sínu í leiknum
strax á 10. mín. Paul McGrath
skallaði inn í teiginn eftir horn-
spyrnu og David Platt skoraði af
öryggi, en vörn Forest horfði
aðeins á. Forest jafnaði á 12.
mín. síðari hálfleiks, Gary
Parker skoraði með góðu skoti,
en fleiri urðu mörkin ekki. Steve
Hodge, Lee Chapman og Nigel
Clough misnotuðu allir dauða-
færi fyrir Forest.
Q.P.R. tók á móti nágrönnum
sínum og nýliðum Crystal Palace.
Trevor Francis stjóri Q.P.R. get-
ur verið ánægður með nýju leik-
mennina sína sem hann keypti í
sumar, Kenny Sanson bjargaði
tvívegis á línu á sömu mínútunni
Mick Quinn skorafti 4 mörk fyrir
Neucastlc í sínum fyrsta lcik fyrir
liftift.
og Paul Wright skoraði bæði
mörk liðsins. Fyrst með skalla
eftir hornspyrnu Andy Sinton á
47. mín. og síðan úr vítaspyrnu á
78. mín. eftir brot á Martin
Allen. Peter Reid lék mjög vel
hjá Q.P.R. sem hafði nokkra
yfirburði yfir Palace, en Mark
Bright var þó nærri og skoraði
fyrir Palace sem á erfiðan vetur
fyrir höndum.
Chelsea var eina liðið sem kom
upp úr 2. deild sem náði að sigra
á laugardaginn er liðið lagði
Wimbledon á útivelli. Nokkur
heppnisstimpill var á sigrinum.
Kerry Dixon skoraði eina mark
leiksins 8 mín. fyrir leikslok með
fastri fyrirgjöf sem hafnaði í net-
inu. Lið Wimbledon sýndi ekki
hörku undanfarinna ára, Vinny
Jones farinn til Leeds Utd. og
John Fashanu lék ekki með
vegna meiðsla.
Ron Atkinson hefur gert mikl-
ar breytingar á liði Sheffield
Wed., en liðið tapaði þó á heima-
velli gegn Norwich. Dave Phillips
sem Norwich keypti frá Coventry
í sumar og Robert Fleck skoruðu
mörk Norwich í 2:0 sigri.
Charlton og Derby gerðu
markalaust jafntefli í leik sem
ekki hafði upp á mikið að bjóða.
Southampton tapaði á heima-
velli gegn Millwall 1:2. Les Briley
skoraði fyrst fyrir Millwall, en
Neil Ruddock jafnaði fyrir Sout-
hampton. Það var síðan Tony
Cascarino sem tryggði Millwall
sigurinn með marki undir lok
leiksins.
2. deild
• Leeds Utd. mætti með marga
nýja leikmenn til Newcastle, en
þó vantaði Vinny Jones sem var
meiddur. Liðið fór þó heldur bet-
ur á rassinn og tapaði 5:2 eftir að
hafa verið 2:1 yfir í hálfleik.
Bobby Davison og Ian Baird
skoruðu mörk Leeds Utd. Það
var hins vegar nýr leikmaður
Newcastle Mick Quinn sem
keyptur var frá Portsmouth sem
stal senunni og skoraði 4 mörk,
þar af eitt úr víti sem dæmt var á
Jim Beglin.
• Brian Deane 2 og Tony Agana
skoruðu mörk Sheff. Utd. í
óvæntum sigri gegn W.B.A.
• Simon Garner skoraði sigur-
mark Blackburn gegn Oldham.
• Wayne Clarke jafnaði fyrir
Leicester gegn Hull City eftir að
Andy Payton hafði skorað fyrir
Hull City.
• Mark Stewart skoraði bæði
mörk Plymouth gegn Oxford.
• Paul Wilkinson gerði sigur-
mark Watford gegn Portsmouth.
• Kevin Keen skoraði fyrir West
Ham gegn Stoke City, en West
Ham varð síðan að sættast á jafn-
tefli.
• Ossie Ardiles byrjar illa sem
framkvæmdastjóri og leikmaður
hjá Swindori. Liðið tapaði heima
gegn Sundcrland 2:0, Eric Gates
sú gamla kempa gerði annað
markið.
• Steve Lowndes skoraði fyrir
Barnsley í fyrri hálfleik gegn
Ipswich, en þrjú mörk Ipswich í
þeim síðari tryggðu liðinu sigur.
• Wolves tapaði á útivellj gegn
Middlesbrough 4:2, Bernie Slaven
skoraði tvö og þeir mark Proctor
og Peter Davenport sitt markið
hvor. Þ.L.A.
Úrslit
1. deild
Carlton-Derby 0:0
Coventry-Evcrton 2:0
Liverpool-Manchester City 3:1
Manchestcr Utd.-Arsenal 4:1
Nottingham For.-Aston Villa 1:1
Q.P.R.-Crysta! Palace 2:0
Sheifield Wed.-Norwich 0:2
Southampton-Millwall 1:2
Tottenham-Luton 2:1
Wimbledon-Chelsea 0:1
2. deild
Blackburn-Oldham 1:0
Bradford-Port Vale 2:2
Brighton-Bournemouth 2:1
Hull City-Leicester 1:1
Ipswich-Barnsley 3:1
Middlesbrough-Wolves 4:2
Newcastle-Leeds Utd. 5:2
Plymouth-Oxford 2:0
Stoke City-West Ham 1:1
Swindon-Sunderland 0:2
Watford-Portsmouth 1:0
W.B.A.-Sheffield Utd. 0:3
3. deild
Birmingham-Crewc 3:0
Blackpool-Wigan 0:0
Bristol Rovers-Brentford 1:0
Bury-Bristol City 1:1
Cardiff Citv-Bolton 0:2
Chester-Mansfield 0:2
Fulham-Tranmere 1:2
Huddersfield-Swansea 1:0
Leyton Orient-Notts County 0:1
Reading-Shrewsbury 3:3
Rotherham-Preston 3:1
Walsall-Northampton 1:0
4. deild
Chesterfield-Colchester 1:1
Exeter-Doncaster 1:0
Gillingham-Aldershot 0:0
Grimsby-Cambridge 0:0
Halifax-Hartlepool 4:0
Hereford-Carlisle 2:2
Lincoln-Scunthorpc 1:0
Peterborough-Maidstone 1:0
Rochdale-Burnley 2:1
Scarborough-Wrexham 2:1
Southend-York City 2:0
Stockport-Torquay 1:1