Dagur - 22.08.1989, Blaðsíða 11
hér & þor
-í
Undrahunduriiin
Mutley
Besti vinur mannsins, hundurinn,
er oft skemmtilegasta skepna að
leika sér við en þó er ekki víst að
margir jafnist á við Mutley sem
að sjálfsögðu er amerískur. Mut-
ley er 10 ára gömul tík og henni
er margt til lista lagt, hún hjólar á
þríhjóli, rennir sér á skíðum,
venjulegum og sjóskíðum, stekk-
ur í fallhlíf, siglir á seglbretti,
kafar og síðast en ekki síst leikur
hún í sjónvarpsþáttum, auðvitað.
Eigandinn er Gene Alba og að
vonum er hann mjög hrifinn að
hundinum sínum. „Mutley er
undraverður hundur og gerir
bókstaflega allt sem ég geri.“
Gene segist ekki hafa ætlað að
þjálfa hundinn til að verða sýn-
ingardýr heldur hafi þetta allt
byrjað þegar Mutley elti hann í
sjóinn þar sem hann var að kenna
köfun og síðan þróuðust hlutirnir'
og Mutley fór að taka þátt í fleiri
áhugamálum eiganda síns.
Heildarupphæð vinninga
19.08 var 3.892.054.-
1 hafði 5 rétta og fær hann
kr. 1.793.241.-
Bónusvinninginn fengu 2
og fær hvor kr. 155.556.-
Fyrir 4 tölur réttar fær
hver kr. 3.833.- og fyrir 3
réttar tölur fær hver um
sig kr. 289.-
Sölustaðir loka 15 minútum
fyrir útdrátt i Sjónvarpinu.
Sími685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002