Dagur - 25.08.1989, Side 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKNR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
- sendir fógeta skýrslu um málið
í fyrradag voru tvö silunganet í
Ólafsfjaröarvatni gerö upptæk
af eftirlitsmanni Yeiöimálastofn-
unar. Áður hafði þess verið
óskað við netaeigendur að þeir
bættu úr ákveðnum smáatrið-
um en einn aðili sinnti því ekki
Kröfluvirkjun:
PCBá
bak og burt
í gær
I gær og fyrrakvöld voru fjórir
gámar með fjórum spennum
og 24 tunnum af olíu fluttir frá
Kröfluvirkjun.' Eiturefnið
PCB er að finna í olíunni og
undanfarna daga hafa sérfræð-
ingar unnið við að tappa olí-
unni af spennunum og ganga
tryggilega frá spennunum og
tunnunum í gáma sem síðan
verða fluttir til Skotlands þar
sem eiturefninu verður eytt.
með þessum afleiðingum
Sigurður Árnason veiðieftir-
litsmaður segist hafa verið á ferð
í Ólafsfirði fyrir um tíu dögum og
þá hafi net bænda og svokallaðra
„blettaeigenda“ við vatnið verið
á þurru landi. Sigurður gerði
nokkrar athugasemdir við netin
og bað menn að bæta úr.
í fyrradag var hann svo aftur á
ferðinni og þá höfðu allir farið að
óskum hans nema einn. Netin tvö
voru gerð upptæk og lögð inn til
lögreglunnar til geymslu. „Þau
voru kolólögleg," sagði Sigurður
en vildi ekki gera nánari grein
fyrir málinu fyrr en hann hefði
sent fógeta skýrslu. ET
Pessir tveir laxar, 13 og 14 punda þungir, veiddust í Laxá fyrir síðustu helgi. Eins og sést á inyndinni eru fiskarnir
hroðalega leiknir og líklegasta skýringin er að þeir liafi flækst í netum.
Laxá í Aðaldal:
Þriðji hver stóriax er
með hroðalega áverka
ÓlafsQarðarvatn:
Eftirlitsmaður tók
tvö „kolólögleg“ net
- net talinn vera skaðvaldurinn, en hvar þau eru hyggjast menn komast að
Gámarnir með eiturefninu
voru fluttir frá virkjuninni í fylgd
lögreglunnar á Húsavík. Voru
þrír gámanna fluttir í fyrrakvöld
á hafnarbakkann á Húsavík þar
sem þeir bíða skipsferðar til
Skotlands en einn gámanna var
fluttur á bíl að Sigölduvirkjun í
gær, en þar mun vera til staðar
meira af eiturefninu sem á að
verða samferða utan til eyðingar.
Kröfluvirkjun hefur ekki verið
í gangi síðan í maí, en verið er að
ljúka við að tengja nýja spenna og
verður virkjunin væntanlega
gangsett á ný um mánaðamót.
Fjármálaráðuneytið hefur
fyrir hönd ríkissjóðs fest kaup
á fimmtu hæð húseignar
Kaupfélags Eyflröinga við
Hafnarstræti 93 og 95 auk
sjöttu hæðar Hafnarstrætis 95
á Akureyri. Samtals eru
hæðirnar 1108 fermetrar.
Kaupsamningur hefur ekki
verið undirritaður en sam-
kvæmt heimildum Dags mun
ríkið greiða KEA 28 milljónir
króna fyrir húseignirnar.
I sumar hefur borið meira á því
en nokkru sinni fyrr að úr Laxá
í Aðaldal veiðast Iaxar sem
bera slæma áverka. Fiskarnir
eru sumir hverjir hroðalega illa
útleiknir og hafa forráðamenn
veiðifélags Laxár sent nokkra
flska til rannsókna hjá rann-
sóknadeild fisksjúkdóma á
Keldum. Nær öruggt er talið
að áverkana megi rekja til þess
að flskarnir lendi í netum en
hvort það á sér stað við
Islandsstrendur eða annars
staðar í heiminum vita menn
ekki. Til þess að reyna að fá úr
Samningurinn á eftir að
hljóta staðfestingu Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, fjármáiaráð-
herra, f.h. ríkissjóðs, en sam-
kvæmt upplýsingum Dags er
öruggt að hann staðfesti kaup-
samninginn. Almenn ánægja
ríkir í herbúðuin ráðuneytis-
manna með kaupin og telja að
ríkið hafi dottið í lukkupottinn
með húsnæði. Magnús Gauti
Gautason, kaupfélagsstjóri
KEA, orðaði það svo í gær að
því skorið er verið að kanna
möguleika á því að setja ein-
hvers konar senditæki í fiska
og fylgjast með ferðum þeirra.
Að sögn Þórðar Péturssonar
veiðivarðar við Laxá hefur borið
meira á stórsköðuðum löxum úr
ánni í sumar en nokkru sinni fyrr.
Dæmi eru um það að fjórir af sex
löxum sem „holl“ veiðir séu með
meiri eða minni áverka. Nær ein-
göngu er um það að ræða að fisk-
ar stærri en 10-12 pund veiðist illa
særðir og nefnir Þórður nýlegt
dæmi um „hol!“ sem veiddi fimm
fyrir lægi tilboð frá fjármála-
ráðuneytinu og viðræður væru í
gangi um þaö milli Kaupfélags-
ins og fulltrúa ráðuneytis.
í framtíðinni er stefnt að því
að umræddar hæðir rúmi Skatt-
stofu Norðurlandsumdæmis
eystra, útibú Vinnueftirlits
ríkisins, Fasteignamats ríkisins,
Siglingamálastofnunar og Verð-
lagsstofnunar.
Skattstofan er nú til húsa á
fjórðu hæð húss við Hafnar-
smáa laxa og tvo stóra sem voru
báðir illa særðir. Ekki er fjarri
lagi að þriðji hver, eða jafnvel
annar hver lax sem kemur úr ánni
af þcssari stærð sé skaðaður.
Þetta „stærðarval“ tclja menn
að bendi eindregið til aö skað-
valdurinn sé net með þá möskva-
stærð að minni fiskar sleppi í
gegn. Með þessu þykir sumum að
böndin berist að ýsunetum en
Þórður segist hafa aðra skoðun.
„Ég held að það sé urn það að
ræða að einhverjar erlendar
þjóðir séu farnar að veiða laxinn
stræti 95 og að hluta til á l'immtu
hæðinni. Núverandi húsnæði er
og hefur lengi verið alltof lítið
fyrir starfsemi Skattstofunnar
og því hefur ríkið verið að svip-
ast um eftir rýmra húsnæði fyrir
hana. Innkaupa- og dreifingar-
fyrirtækið Samland er nú til
húsa á fimmtu og sjöttu hæö við
Hafnarstræti 95. Eftir því sem
Dagur kemst næst er ekki frá-
gcngið hvert Samland flyst.
óþh
okkar í stórum stíl," segir hann.
Það sem þó mælir gegn þessu
cr sú staöreynd að á undanförn-
um vikunt hefur talsvert veiðst af
löxum með nýleg flakandi sár.
Þar hefur mönnum dottið í hug
að skaðvaldurinn kunni að vera
svokölluð drauganet í Flóanum,
og til þess að kanna þann mögu-
leika hyggjast þeir Laxármenn
láta slæða sjóinn með ströndum
og í grennd við árósinn.
Til þess að fá úr því skorið
hvers konar sár þarna er um að
ræða, hversu gömul þau eru,
livort sýking sé hluti af orsökinni
og fleira, hafa forsvarsmenn Lax-
árfélagsins sent þrjá illa útleikna
fiska til rannsókna hjá rann-
sóknadeild fisksjúkdóma í til-
raunastöðinni á Keldum. Með
þessu vonast menn til að hægt
verði að áætla hvar í heiminum
skaðinn skeður. Sigurður Helga-
son deildarstjóri segir að rann-
sóknum sé ekki að fullu lokið.
„Það er allt sem bcndir til þess að
þarna sé um áverka að ræða
fremur en að frumorsök sé
sýking,“ segir Sigurður.
Þrátt fyrir öll þau hundruð
milljóna sem iiggja í hafbeit og
ræktun laxveiðiáa á íslandi, þá er
að sögn Hólmsteins Hólmsteins-
sonar gjaldkera Laxárfélagsins
ótrúlega lítið vitað um ferðir
íslenskra laxa. Til þess að bæta úr
þessu eru forráðamenn félagsins
að kanna möguleika á því að
koma fyrir einhvers konar sendi-
tækjum í nokkrum fiskum til
þesss að fylgjast með ferðum
þeirra, í þeirri von að hægt verði
að varpa frekara ljósi á þetta
sívaxandi vandamál. ET
IM
Nær frágenginn samningur um kaup ríkisins á 1108 fm húsnæði KEA við Hafnarstræti:
OÍafur Ragnar Qárfestir í
húsnæði fyrir 28 milljónir
- húsnæðið ætlað fyrir Skattstofuna og útibú Qögurra ríkisstofnana