Dagur - 25.08.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 25. ágúst 1989
fréffir
Hvammstangahreppur:
Hafiiargerðin er
forgangsverkeftii
Hafnarframkvæmdir eru efst á
framkvæmdalista Hvamms-
tangahrepps í sumar. Unnið er
að uppsteypu viðlegukants á
gamla hafnargarðinn. Qert er
ráð fyrir að vinna fyrir um 10
milljónir króna og kemur 75%
kostnaðar í hlut ríkisins og
25% á sveitarfélagið.
Að sögn Þórðar Skúlasonar,
sveitarstjóra, ganga þessar fram-
kvæmdir mjög vel og samkvæmt
áætlun. „Um er að ræða fyrsta
áfanga í endurnýjun á hafnar-
garðinum sem orðinn er mjög illa
t'arinn. Þetta verkefni var orðið
mjög brýnt,“ sagði Þórður.
Af öðrum stórum verkefnum
sveitarfélagsins nú má nefna við-
byggingu grunnskólans, sem lok-
ið verður við í haust. Þessi fram-
kvæmd hefur verið í gangi
undanfarin ár en nú er loks að sjá
fyrir endann á henni. Kennslu-
rými mun aukast með þessari við-
byggingu og því verður rýntra um
nemendur og kénnara næsta vet-
ur en undanfarin ár. Með þeim
áfanga sem lokið verður við í
haust er einungis eftir að byggja
yfir félagsstarf skólans og auk
þess eru ógerðar breytingar á
gamla skólahúsinu.
Gatnagerð skipar veglegan sess
á framkvæmdalista Hvamms-
tangahrepps í sumar. Átak hefur
Bæjarstjórn Egilsstaða:
Samþykkir að leggja
hlutafé í Loðmund
Bæjarstjórn Egilsstaða hefur
samþykkt að leggja allt að 250
þúsund krónur sem hlutafé í
Loðmund hf, fóðurstöð fyrir
loðdýr sem staðsett er á Egils-
stöðum. Að sögn bæjarstjóra,
Sigurðar Símonarsonar, má líta
á hlutafjárkaupin sem viljayfir-
lýsingu bæjarstjórnar um að
reynt verði að halda uppi loð-
dýrarækt á Héraði. Skilyrði
fyrir hlutafjárkaupunum er að
rekstrargrundvöllur stöðvar-
innar verði tryggður.
Loðmundur hf. hefur lent í erf-
iðleikum, eins og fleiri fyrirtæki
aem tengd eru loðdýraræktinni,
og hefur fóðurstöðin fengið
greiðslustöðvun. Bréf frá lög-
fræðingi Loðmundar barst Egils-
staðabæ og er þar óskað eftir að
bærinn leggi fram hlutafé.
Byggðastofnun hefur samþykkt
að leggja fram hlutafé og veita
þeim aðilum lán sem kaupa vilja
hlut í Loðmundi. Fjallað hefur
verið um málið í nokkrum sveit-
arfélaganna fyrir austan og eru
flest samþykk hlutafjárkaupum,
með því skilyrði að komið verði á
raunhæfum rekstargrundvelli fyr-
ir fóðurstöðina. IM
Álafoss Akureyri:
verið gert í lagningu gangstétta
og þá er búið að ganga frá hol-
ræsaútrás, en hún var færð lengra
út í sjóinn og með því móti leitast
við að koma í veg fyrir mengun.
Síðast en ekki síst skal það
nefnt að á dögunum var hafist
handa við byggingu fjögurra
kaupleiguíbúða, sem komu í hlut
Hvammstangahrepps við úthlut-
un Húsnæðisstofnunar árið 1988.
Byggt verður fjögurra íbúða hús
og er stefnt að því. að því verði
lokið að ári liðnu. Þórður segir
að íbúðum verði ekki úthlutað
á næstunni en víst sé að mikil
eftirspurn verði eftir. þeim. óþh
Sjórinn er lífæð Hvammstangabúa, og áhersla því lögð á að bæta hafnar-
mannvirki.
Þórður Skúlason, sveitarstjóri.
NI55AIM
Bílasýning
Verður laugardaginn 26. ágúst
og sunnudaginn 27. ágúst frá kl. 2-5
báða dagana í sýningarsal okkar.
Einnicf verda bílarnir til sýnis
alla daga næstu \riku.
Hef náð frábærum samningum við
ITlftfJ.'l
NI55AN
umboðið
Býð nýja bíla árg. 989
með 3 ára ábyrgð
á stórkostlegu verði
Dæmi um greiðslukjör:
25% út og eftirstöðvar á 3 árum á
vezijulegfum bankakjörum.
AHT! Þetta eru aðeins örfáir bílar
— því er best að koma sem fyrst.
Tökum flesta notaða bíla uppí nýja.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
J
Verið að vinna upp
í Sovétsamninga
Ullardeild Sambandsverk-
smiðjanna á Akureyri eða Ála-
löss eins og hún kallast nú hef-
ur átt langt og gott samstarf við
Sovétmenn. Samningar eru
gerðir álega og er nú verið að
Sveit vaskra knattspyrnu-
manna úr Leiftri í Ólafsfirði
hófst handa um hádegi í gær
við að leggja hitalagnir í vænt-
anlegan grasvöll Ólafsfirðinga
og ætla knattspyrnumennirnir
að ljúka verkinu fyrir helgi.
Að sögn Þorsteins Björnsson-
ar, bæjartæknifræðings í Ólafs-
firði, er gert ráð fyrir að í fram-
framleiða upp í þriðja skanimt
á þessu ári.
Kolbeinn Sigurbjörnsson hjá
markaðsdeild Alafoss sagði verk-
smiðjurnar hafa framleitt fyrir
Sovétmenn í um 30 ár og vonandi
haldinu verði hafist handa við að
setja moldarlag yfir rörin og því
næst verði völlurinn þökulagður.
Samkvæmt áætlun um verkið á
þökulögninni að verða lokið um
miðjan septembermánuð og
sagðist Þorsteinn vonast til að
það tækist, þ.e. setji margfrægir
veðurguðir ekki strik í reikning-
inn. JÓH
væri ekkert lát á því. Nýir samn-
ingar væru gerðir á hverju ári
sem væri skipt niður í fjórðunga
og framleiðslunni dreift í tilteknu
magni á hvern ársfjórðung í
samráði við Sovétmenn.
Það sem verið er að vinna hjá
Álafossi núna er upp í samninga
við sovéska samvinnusambandið
og Raznov fyrir þriðja ársfjórð-
ung og sagði Kolbeinn þá fram-
leiðslu ganga vel og vera á réttu
róli. ________KR
Strandflutningar:
Samningur
í höfii í gær
í gær var undirritaður í Reykja-
vík samningur um aukna sam-
vinnu Eimskipafélags íslands
hf., Skipadeildar Sambandsins
og Skipaútgerðar ríkisins í
strandflutningum en undanfar-
ið liafa staðið viðræður milli
þessara aðila um þetta mál.
Samkomulagið var undirritað
af Steingrími J. Sigfússyni,
Guðjóni B. Ólafssyni og Herði
Sigurgestssyni.
I samkomulaginu felst að unn-
ið verði að gerð samnings milli
þessara aðila til allt að 5 ára um
samvinu í strandflutningum, með
það að markmiði að auka hag-
kvæmni þessara flutninga og
draga úr kostnaði við þá. Jafn-
framt er stefnt að því að þjónusta
við staði utan Reykjavíkur verði
ekki minni en verið hefur.
Siglingakerfi verður tekið upp
um næstu áramót og verður jafn-
framt unnið að endurskipulagn-
ingu á þjónustu í landi. JOH
Hjá Álal'ossi er nú unnið að kappi við framleiðslu ullarvara fyrir kaupendur
í Sovét.
Grasvöllur í Ólafsfirði:
Leifturslið í röralögn