Dagur - 25.08.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. ágúst 1989 - DAGUR - 3
fréttir
Möl og Sandur:
Steypusala 25% mímii
aukning í flestum öðrum þáttum rekstursins
Vegna þess hve seint ýmsar
umfangsmiklar byggingarfram-
kvæmdir á Akureyri hafa farið
af stað, hefur verið minna að
gera í steypusölu hjá Möl og
Sandi í júlímánuði og það sem
af er ágúst. Mjög mikið hefur
hins vegar verið að gera í fram-
leiðslu röra og hellna svo og
jarðvegsvinnu ýmis konar, auk
þess sem sala á steyptum gólf-
bitum er meiri en nokkru
sinni.
Að sögn Hólmsteins Hólm-
steinssonar framkvæmdastjóra
hefur það komið á óvart hve
rólegt hefur verið yfir steypusölu
síðari hluta sumars. Salan var
svipuð og í fyrra alveg út júní en
síðan er um að ræða samdrátt
miðað við fyrra ár, meiri en búist
var við. Heildarsalan það sem af
er árinu er 25-30% minni en á
sama tíma í fyrra. Um síðustu
mánaðamót var sálan rúmlega
4000 rúmmetrar á móti 5500 rúm-
metrum á sama tíma í fyrra.
Skýringuna á þessum sam-
drætti segist Hólmsteinn telja að
liggi í því að ýmis stór verkefni
fara seint af stað og nefnir hann
þar Verkmenntaskólann og fyrir-
hugað stórhýsi að Hafnarstræti
97. Hólmsteinn segist hins vegar
sjá fram á þokkalega mikla
steypusölu eitthvað fram á haust-
ið, án þess að takist að vinna upp
muninn miðað við árið í fyrra.
Mjög mikil sala hefur verið í
hellum og rörum og er um tals-
verða aukningu að ræða á báð-
um sviðum miðað við árið í fyrra.
Sömuleiðis hefur verið meira að
gera í jarðvegsvinnu ýmis konar
en í fyrra. Loks hefur verið gífur-
lega mikið að gera í framleiðslu
steyptra gólfbita og mikil verk-
efni fyrirliggjandi. Aðallega er
um að ræða framleiðslu fyrir
bændur sem eru að byggja eða
endurnýja fjós.
Hólmsteinn segist vera þokka-
lega bjartsýnn með veturinn, það
sé að vísu rólegt framundan í ein-
ingaframleiðslunni en aðal
áherslan verði lögð á framleiðslu
hellna og röra á lager. ET
Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn mikið notuð:
„Ég hef þijár vikur -
hvað get ég gert?“
Aö sögn Þórunnar Harðardótt-
ur starfsmanns Upplýsinga-
miðstöðvar fyrir ferðamenn á
Akureyri hefur verið gífurlega
mikið að gera í sumar. Þórunn
segist helst hafa orðið vör við
þá breytingu í samsetningu
ferðamanna að fleiri Norður-
landabúar séu á ferð en áður.
Upplýsingamiðstöðin er starf-
rækt í húsnæði Umferðarmið-
stöðvarinnar í Hafnarstræti.
Mest er að gera þegar áætlanabíl-
ar og aðrir langferðabílar eru á
hlaðinu og að sögn Þórunnar er
þjónusta þessi langmest notuð af
erlendum ferðamönnum. Þó fær-
ist það í vöxt að Islendingar leiti
þar upplýsinga.
„Það var alveg brjálað að gera
hjá okkur í júlí,“ segir Þórunn en
eins^og margoft liefur komið
fram var fjöldi ferðamanna þá
meiri en nokkru sinni.
Að sögn Þórunnar er spurt um
allt milli himins og jarðar á ís-
landi, mikið um veðrið og gisti-
staði, og í sumar hafi einnig verið
óvenjulega mikið spurt um
ástand fjallvega. í mörgum tilfell-
um þarf nánast að gera ferðaáætl-
un fyrir útlendingana og þá er
kannski spurt: „Ég hef þrjár
vikur, hvað get ég gert?“
Magnús Gauti Gautason:
Kemur til greina
að setja upp fleiri
KEA-NETTÓ-verslanir
Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri KEA, segir að
vel komi til greina að setja upp
einhverskonar NETTO-mat-
vöruverslun víðar á félags-
svæði Kaupfélagsins en á
Akureyri. Hann segir að
ákvörðun um það verði ekki
tekin á næstunni, hún muni
byggjast á reynslu af KEA-
NETTÓ í Höfðahlíð 1 á Akur-
eyri, sem opnuð var í vikunni.
„Það hefur verið rætt að setja
upp slíka verslun víðar en á
Akureyri. Við höfum t.d. rætt
um hvort þetta gæti verið hugsan-
leg leið til að tókka vöruverð í
smærri útibúum KEA út með
firði, t.d. á Hauganesi og í
Grímsey,“ sagði Magnús Gauti.
Hann kvað NETTÓ-verslun hins
vegar ekki mögulega í Svarfdæla-
búð á Dalvík, enda væri hún al-
hliða verslun með matvöru,
byggingarvörur og búsáhöld.
„Þetta er allt á athugunarstigi.
Við munum fylgjast vel með
Magnús Gauti Gautason kaup-
félagsstjóri KEA.
útkomu KEA-NETTÓ í Höfða-
hlíðinni og taka ákvörðun síðar,“
sagði hann ennfremur. óþh
Þórunn segist helst hafa orðið
vör við þá breytingu á samsetn-
ingu ferðamannastraumsins að
meira sé um Norðurlandabúa en
áður og einnig séu Frakkar meira
áberandi. ET
íbúðir aldraðra
við Víðilund:
Ellefu Mðir
óseldar
Enn eru ellefu íbúðir óseldar
hjá Framkvæmdanefnd íbúða-
bygginga fyrir aldraða við
Víðilund. Seldar hafa verið 18
af 27 íbúðum í fjölbýlishúsi
sem skilað verður fullfrágengn-
um um miðjan júlí á næsta ári
og tvær af fjórum íbúðuni í
raðhúsi sem skilað verður í iok
þessa árs eru sömuleiðis
seldar. Lítil hreyfing hefur ver-
ið í sölunni að undanförnu.
Að sögn Magnúsar Garðars-
sonar hefur sala verið hæg að
undanförnu enda er mjög dýrt að
kaupa nýtt húsnæði í dag. Tals-
vert hefur verið rætt um það að
íbúðirnar við Víðilund séu mun
dýrari en sambærilegar íbúðir í
Reykjavík en Magnús segist ekki
geta fallist á það. Hann segist
hafa skoðað tölur fyrir sex hús
með íbúðum fyrir aldraða á
Reykjavíkursvæðinu, og þar
komi byggingarnar hér ágætlega
út. Um er að ræða ársgamlar töl-
ur um verð á fermetra og segir
Magnús að fjölbýlishúsið við
Víðilund sé með meðalverð.
Mikið hefur verið talað um íbúð-
ir við Sunnuhlíð í Reykjavík í
þessum samanburði en þau hús
segir Magnús ekki vera sambæri-
leg húsunum hér.
Níu íbúðir eru óseldar í fjöl-
býlishúsinu nýja, af 27 sem til
sölu eru. Verið er að steypa veggi
á þriðju hæð en áætlað er að skila
íbúðunum fullfrágengnum um
miðjan júlí á næsta ári. Af fjór-
um íbúðum í nýju raðhúsi eru
tvær óseldar. Þær verða afhentar
fokheldar í lok desember. ET
Steypusala ininkar en rörasala eykst.
HOTEL KEA
Dansleikur
laugardagskvöld 26. ágúst
— ★ —
HLJÓMSVEITIN
GAUTAR
heldur uppi stanslausu fjöri
frá kl. 23.00-03.00.
— ★ —
Munið hinn sívinsæla
kvöldverðarseðil.
Hótel KEA
Borðapantanir í síma 22200
J