Dagur - 25.08.1989, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 25. ágúst 1989
spurning vikunnar
Lætur þú vont veður fara
í taugarnar á þér?
Umdæmisþing Kiwanis-
hreyfingariimar
haldið á Akureyri
- fulltrúar úr 42 klúbbum á landinu koma saman í bænum
um helgina og Sinawikkonur einnig
Leifur Tómasson:
„Nei, svo sannarlega ekki. Mér
er alveg sama hvernig veðriö
er.“
Rafn Magnússon:
„Nei, ég læt nú veðrið yfirleitt
ekki fara í taugarnar á mér en
þó var þetta að verða nokkuð
þreytandi seinni partinn í vetur.
Ég tel alveg öruggt að flestum
líði betur þegar veðrið er gott
en það borgar sig ekki að láta
vont veöur fara í taugarnar á
sér.“
Stefán Pálsson:
„Stundum gerir maður það en
þó yfirleitt ekki. Maður verður
að reyna að vera í góðu skapi
en þetta veltur líka svolítið á því
hvað maður er að gera. Skap-
inu verður maður að stjórna
sjálfur en ekki láta veður né
annað taka völdin."
Sigfríður Þorsteinsdóttir:
„Nei, það geri ég ekki. Er nokk-
urt veður vont? Veðrið skiptir
mig ekki svo miklu máli en eru
ekki allir ánægðir ef veðrið er
gott.“
Haraldur Sigurðsson:
„Hvort ég láti vont veður fara í
taugarnar á mér? Já, ég verð
að viðurkenna það að það fer í
taugarnar á mér þegar er ergi-
legt veður og mér líður verr í
þannig tíðarfari."
Dagana 26.-27. ágúst heldur
Kiwanishreyfíngin á íslandi 19.
umdæmisþing sitt á Akureyri.
Þingið verður sett í Akureyrar-
kirkju föstudaginn 25. ágúst
klukkan 21. AIIs mæta 42
klúbbar af landinu á þetta þing
og er allt gistirými á Akureyri
fullbókað þessa helgi. Þá mun
landssamband Sinawikkvenna
halda þing í Borgarbíói kl. 9.30
á laugardaginn.
Þinghald Kiwanismanna verð-
ur í Borgarbíói á laugardeginum
og lýkur því með heilmiklu
hófi í Iþróttahöllinni sama kvöld
og hefst það kl. 19. Veislustjóri
er Eiríkur Rósberg en þingfull-
trúar og gestir munu flytja ávörp,
boðið verður upp á skemmti-
atriði og dansinn stiginn fram til
kl. 3 um nóttina.
I tengslum við umdæmisþingið
yerður sett upp myndasýning í
íþróttahöllinni sem sýnir þver-
skurð af starfsemi Kiwanisklúbb-
anna. Þessi sýning var opnuð í
Kiwanishúsinu í Reykjavík í
febrúar á þessu ári í tilefni af 25
ára afmæli hreyfingárinnar á ís-
landi, 14. janúar 1989.
Frá 25 ára afmælissýningu Kiwanis í Kiwanishúsinu í Reykjavík, en þessi sýning verður sett upp í íþróttahöllinni á
Akureyri. Ljósm. Ásgeir B. Guölaugsson.
Greifarnir með tvenna tónleika á Húsavík um helgina:
„Flestum Reykvíkingum finnst norð-
lenskan faUegri en sunnlenskan''
- spjallað við Kristján Viðar hljómborðsleikara
Greifarnir frá Húsavík verða á
Húsavík um helgina og leika
fyrir alla aldursflokka bæjar-
búa, á laugardagskvöld verður
dansleikur í Félagsheimilinu
og á sunnudag kl. 15 verða
haldnir tónleikar fyrir börnin.
Greifarnir eru; Kristján Viðar
Haraldsson, Jón Ingi Valdi-
marsson, Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Sveinbjörn
Grétarsson. Þeir eru allir frá
Húsavík og hafa haldið hópinn
og leikið saman í mörg ár, þó
nám og störf kölluðu þá til
höfuðborgarinnar fyrir nokkr-
um árum. Kristján Viðar kom
við á skrifstofu Dags nú í vik-
unni og lenti þá í spurninga-
flóði. Viljum við ekki vita
ýmislegt um unga fólkið að
norðan sem hefur gert það gott
fyrir sunnan?
- Er ekki væntanleg ný plata á
næstunni?
„Við eigum fullt af lögum og
vorum búnir að vinna töluvert af
þeim og ætluðum að gefa út plötu
fyrir jólin. En þegar við fórum að
skoða þessi lög nánar með útgef-
andanum og fleirum fannst okkur
þau ekki nógu góð, ákváðum að
fresta plötunni um einhverja
mánuði og semja enn þá betri lög
þannig að platan yrði betri. Við
lentum í því þegar við gáfum út
hina stóru plötuna að það var
mjög erfitt að vekja athygli á
henni á jólamarkaðinum. Ætli
nýja platan komi ekki út næsta
vor.“
- Semja betri lög segir þú,
eruð þið að verða kröfuharðari
með árunum?
„Ég býst við að tónlistin hafi
eitthvað breyst, minna sé um
húllum-hæ og meiri alvara inn á
milli. Þetta sést kannski best á
lögunum sem hafa verið að koma
í sumar, þau eru heldur þyngri en
lögin undanfarin sumur. Þó rná
þetta létta ekki alveg gleymast.“
- Hvað hafa Greifarnir verið
að gera í sumar?
„Við höfum spilað allar helgar
og erum búnir að vera alls staðar;
á Vestfjörðum, Austfjörðum,
Norðurlandi og Suðurlandi og
hefur gengið þokkalega. Við
erum mikið búnir að keyra og
settum persónulegt met eina
helgina þegar við keyrðum 1750
km. Það var hringurinn með
útúrdúrum. Við erum komnir á
nýja rútu, æðislega fína með öll-
um græjum, video og ísskáp."
- Fyrrverandi söngvari ykkar
Felix Bergsson stundar nú nám í
Skotlandi. Þið spjarið ykkur vel
án hans, hvað eruð þið búnir að
spila lengi saman?
„Já, okkur virðist ekkert ganga
verr þó Felix sé hættur. Það var
1984 sem við fengum Gunnar
Hrafn að láni hjá annarri hljóm-
sveit hér á Húsavík og við höfum
ekki skilað honum enn. Þá hét
hljómsveitin Spesial Treatment
en fyrir þrem árum breyttum við
um nafn.“
- Umræða um ríg milli lands-
hluta hefur verið talsverð að
undanförnu. Hvernig er að vera
þekktur Húsvíkingur fyrir,
sunnan?
„Það skiptir kannski engu máli
hvaðan maður er. Mér finnst
persónulega skuggalegt hvað allt
er á mikilli niðurleið úti á landi
meðan allt virðist geta blómstrað
í Reykjavík. Við höfum haldið
okkur utan við pólitík þó ef til
vill hafi mátt lesa eitthvað út úr
sumum textunum okkar. Strax í
byrjun vorum við stimplaðir sem
svo léttir að fullt af fólki hélt því
fram að það væri enginn boð-
skapur í okkar textum, en þegar
við fórum að tala við þetta fólk
kom í Ijós að það hafði aldrei
hlustað á neina texta frá okkur,
þekkti ekki til þeirra og vissi ekk-
ert um hvað það var að tala. Það
er mjög algengt að fólk í Reykja-
vík þekki ekkert landsbyggðina.
Ég hef oft lent í rökræðum við
fólk í Reykjavík sem er að tala
um landsbyggðina, það veit
greinilega ekkert um það sem
það er að segja en hefur oft meiri
völd og áhrif heldur en fólk utan
af landi, því peningarnir og fjöl-
miðlarnir eru í Reykjavík. Þegar