Dagur - 20.09.1989, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 20. september 1989 - DAGUR - 3
fréttir
Nokkrir kaupmenn í Reykjavík veita 5% staðgreiðsluafslátt:
Þetta eru verslanir í erfið-
leikum og með hærri álagningu
- segir Ragnar Sverrisson kaupmaður í JMJ
og formaður Kaupmannasamtaka Akureyrar
Nokkrir kaupmenn í Reykja-
vík, veita viðskiptavinum sín-
um 5% staðgreiðsluafslátt og
auglýsa það oft rækilega í
verslun sinni. Það munar sjálf-
sagt miklu fyrir kaupmenn að
fá beinharða peninga, frekar
en t.d. greiðslukort.
En hvernig er þessum málum
háttað á Akureyri, er veittur
staðgreiðsluafsláttur í verslunum
hér. Dagur bar þetta undir Ragn-
ar Sverrisson kaupmann í Herra-
deild JMJ og formann Kaup-
mannasamtaka Akureyrar.
„Eftir því sem ég best veit, er
ekki um slíkan afslátt að ræða
hér á Akureyri. Þetta hefur verið
rætt innan kaupmannasamtakanna
en mönnum hefur ekki þótt
ástæða til þess að fara út í slíkt.
Sannleikurinn er hins vegar sá að
þær verslanir sem gefa þennan
staðgreiðsluafslátt fyrir sunnan,
eiga flestar ef ekki aílar í miklum
rekstrarerfiðleikum og verða því
að fá peningana strax. Eins eru
þetta verslanir sem eru með hærri
álagningu en t.d. við hér fyrir
norðan.“
Ragnar sagði ennfremur að í
haust yrði lagt fyrir Alþingi frum-
varp þess efnis að þeir viðskipta-
vinir sem nota greiðslukort við
innkaup, borgi helming þess
kostnaðar sem því fylgir. Hann
taldi víst að þetta frumvarp yrði
samþykkt og þá minnkaði um
leið þessi greiðslukortanotkun
eitthvað. -KK
Aðalfundur Bflgreinasambandsins:
Rætt um stöðu og horfur í bifreiða-
innflutningi og verkefiium verkstæða
- Gísli Guðmundsson endurkjörinn formaður sambandsins
Aðalfundur Bílgreinasam-
bandsins 1989 var haldinn í
Hótel Borgamesi fyrir skömmu.
Mættir vom um 110 þátttakend-
ur, félagsmenn, makar þeirra
og gestir. Formaður Bflgreina-
sambandsins, Gísli Guðmunds-
son, setti fundinn og síðan hóf-
ust sérgreinafundir bflamálara
og bifreiðasmiða, bifreiðainn-
flytjenda og varahlutasala og
almennra verkstæða.
Á þessum fundum fjölluðu
hóparnir um sín sérmál. Rætt var
sérstaklega um stöðu og horfur í
dag, bæði í bifreiðainnflutningi
og verkefnum verkstæða. Sér-
staklega var fjallað um stöðu bíl-
greinarinnar og líklega þróun á
næstu árum. Veltu menn fyrir sér
ýmsum spurningum í þvf sam-
bandi.
Magnús B. Jónsson, Hvann-
eyri, flutti mjög fróðlegt erindi
um byggðamál og byggðaþróun.
Erindi hans var mjög ítarlegt og
vakti athygli á mörgum atriðum í
þróun undanfarinna ára og benti
hann á ýmis atriði sem leggja
þyrfti áherslu á á næstu árum svo
hægt sé að halda jafnvægi í
byggðum landsins.
Gísli Guðmundsson var endur-
kjörinn formaður Bílgreinasam-
bandsins en aðrir í stjórn voru
kosnir, Björn Ómar Jónsson,
Sigfús Sigfússon, Hallgrímur
Gunnarsson, Ragnar Ragnars-
son, Sigurður H. Óskarsson,
Svanlaugur Ólafsson, Júh'us Vífill
Ingvarsson og Ólafur Óskarsson.
Hinir tveir síðastnefndu eru nýir
í stjórninni. Endurskoðendur
voru kjörnir Ágúst Hafberg og
Jónas Jónasson og til vara Sverrir
Sigfússon.
Á fundinum var samþykkt
reglugerð fyrir menntunar- og
uppbyggingarsjóð bílgreinarinn-
ar. Tilgangur sjóðsins er m.a. að
stuðla að aukinni verkmenntun í
bílgreinum, styrkja efnilega
nemendur og veita verðlaun
þeim sem skara fram úr í námi á
sviði bílgreina og styrkja og veita
verðlaun sem stuðla að bættu
umferðaröryggi og umferðar-
menningu.
Dr. Hook tíl Akureyrar
á fóstudagixm
Föstudaginn 22. september nk.
mun heimsfræg hljómsveit
sækja Akureyringa heim. Hér
verða á ferðinni spéfuglarnir í
Dr. Hook og ætla þeir að
skemmta gestum Sjallans sama
kvöld.
Meðlimir hljómsveitarinnar
Dr. Hook eru spéspeglar popp-
tónlistarinnar sem kemur vel
fram í lögum eins og „Silvia’s
mother" og „The cover of the
Rolling Stone“ sem er hárbeitt
ádeila á hégómleika poppmúsík-
anta í vinsældarleit.
Þessi lög ásamt „Only sixteen,
Sharing the night together" og
„When yore in love with ai
beautyful women“ hafa öll vermt
efstu sæti vinsældarlistanna um
heim allan. Búast má við að
margir vilji berja þessa hljóm-
sveit augum og eyrum á Akur-
eyri, sérstaklega þeir sem telja
sig til „týndu kynslóðarinnar“.
VG
Félagar úr Lionsklúbbi Sauðárkróks létu hendur sannarlega standa fram úr ermum um síðustu helgi. Þeir hellulögðu
gangstétt fyrir utan stjórnsýsluhúsið og Bókabúð Brynjars og mun ágóðinn renna óskiptur til menningar- og líkn-
armála þar í bæ.
Bátur til sölu!
Til sölu er ca. 4 tonna bátur, Díana
EA 104.
Báturínn er mjög vel útbúinn og honum fylgir 60
tonna kvóti.
Fasteignasalan ==
Brekkugötu 4 • Sími 21744 'I’’
Gunnar Sólnes hrl., Jón Kr. Sólnes hrl. og Árni Pálsson hdl.
Sölust. Sævar Jónatansson
Laus staða
Hagþjónusta landbúnaðarins, sem stofnuð var með
lögum nr. 63/1989, auglýsir stöðu forstöðumanns
lausa til umsóknar. Staðan verður veitt til 5 ára.
Um er að ræða nýtt starf, sem í fyrstu mun einkum
felast í uppbyggingu Hagþjónustunnar. Háskóla-
menntun í búnaðarhagfræði, hagfræði eða við-
skiptafræði nauðsynleg. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins.
Stofnunin hefur aðsetur að Hvanneyri í Borgarfirði.
Nánari upplýsingar veitir stjórnarformaður, Magnús
B. Jónsson, Hvanneyri, sími 93-70000.
Umsóknir er greini námsferil og fyrri störf sendist
landbúnaðarráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, 150
Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 10. október 1989.
Landbúnaðarráðuneytið,
.15. september 1989.
Á AKUREYRI
Kaupvangsstræti 16
Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri
2. október til 20. janúar.
Barna- og unglinganámskeið.
Teiknun og málun fyrir börn.
1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku.
2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku.
3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku.
4. fl. 10-11 ára. Einu sinni í viku.
5. fl. 12-13 ára. Einu sinni í viku.
Málun og litameðferð fyrir unglinga.
Byrjendanámskeið. 14-15 ára. Einu sinni í viku.
Framhaldsnámskeið. 15-16 ára. Einu sinni í viku.
Skrift og leturgerð.
Byrjendanámskeið. 13-15 ára. Einu sinni í viku.
Kvöldnámskeið fyrir fullorðna.
Teiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Módelteiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Málun og litameðferð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeiö. Tvisvar í viku.
Auglýsingagerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Byggingaiist.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Skrift og leturgerö.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Allar nánari upplýsingar og innritun
í síma 24958.
Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00 virka daga.
Skólastjóri.