Dagur - 20.09.1989, Blaðsíða 11

Dagur - 20.09.1989, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 20. september 1989 - DAGUR - 11 íþróffir Skíði: Æfingar að heíjast - hjá SRA - æfmgaferð til Austurríkis og Júgóslavíu Nú er vetrarstarfið hjá SRA að hefjast. Skíðafólk í öllum flokkum alpagreina og í göngu er byrjað að æfa en það er allt- af pláss fyrir fleiri þátttakend- ur. Veturinn verður á margan hátt mjög skemmtilegur; vetrarhátíð ISÍ verður á Akur- eyri, alþjóðamót í karla- og kvennaflokki verða haldin í Hlíðarfjalli, landskeppni í skíðagöngu og svo 15. Andrés- ar Andar leikarnir. Hjá SRA er í ráði að fara í æf- inga- og keppnisferð til Austur- ríkis og Júgóslavíu í desember. Þangað mun fara úrvaíslið SRA og einnig þeir bestu í 15-18 ára hópnum. Þar að auki verður þetta æfingaferð fyrir skíða- göngufólk. Mílan áfram með Þór - „mjög líklegt" segir formaðurinn Þórsarar hafa áhuga á því að endurráða Milan Duricic sem þjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu fyrir næsta keppn- istímabil. Milan hélt til Júgóslavíu í gær, en þá hafði ekki verið gengið endanlega frá samningi við hann. Að sögn Sigurðar Arnórssonar formanns knattspyrnudeildar Þórs eru þó sterkar líkur á því að Milan verði endurráðinn. „Það er gagnkvæmur áhugi á því að endurnýja samninginn og ætti þetta að skýrast fljótlega,“ sagði formaðurinn. Ef að samningum verður kemur Milan Duricic aftur í febrúar, en landar hans Kostic og Tanevski, sem léku með Þórsliðinu í sumar, verða hins vegar búsettir á Akur- eyri í vetur. Líklegt er að Milan Duricic þjálfi Þór áfram á næsta ári. En þá skulum við líta á hvenær æfingar eru hjá einstökum flokkum: flokkar 6-9 ára og 10-12 ára eru á laugardagsmorgnum í íþróttahúsi Glerárskóla og einnig er boðið upp á eina útiæfingu fyr- ir eldri flokkinn. Alpagreinafólk í flokki 13-14 ára er með fasta æfingatíma á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum íd. 17.30 við Iþrótta- höllina. Alpagreinafólk 16 ára og eldri er með æfingar á mánudög- um kl. 17.00 í íþróttahúsinu við Laugargötu og við íþróttahöllina á miðvikudögum og föstudögum kl. 18.30. Þjálfarar SRA fram að áramót- um eru Guðrún Frímannsdóttir, Gunnar Reynisson og Kári Ellertsson í flokki 12 ára og yngri. Ingólfur Gíslason og Flori- an Jacodic þjálfa alpagreinafólk í flokki 13-14 ára og Gunnar Reynisson, Valþór Þorgeirsson og Florian Jacodic sjá um þá 16 ára og eldri. Haukur Eiríksson og Jóhannes Kárason þjálfa síð- an göngufólkið. Valur Ingimundarson skoraði grimmt fyrir Tindastól í Reykjanesmótinu. Reykjanesmótið í körfuknattleik: Tindastóll vann þijá síðustu leikina Reykjanesmótið í körfuknatt- leik hélt áfram um síðustu helgi. Ranghermt var í blaðinu sl. þriðjudag að mótinu lyki um helgina, en því lýkur á morgum miðvikudag. Gestalið mótsins, Tindastóll, sigraði alla sína andstæðinga nú um helgina fyrst íslandsmeistar- ana í ÍBK, þá voru Njarðvík- ingar lagðir að velli og síðan Reynir Sandgerði. Leikurinn gegn ÍBK var jafn og spennandi nær allan tímann, jafnt á flestum tölum þar til um 10 mínútur voru eftir þá sigldu Tindastólsmenn fram úr og sigr- uðu nokkuð örugglega 99:85. Stigahæstur í liði Tindastóls var Bo Heiden með 36 stig. Leikurinn gegn Njarðvík var slakur af beggja hálfu, þó sér- staklega hjá Njarðvíkingum. Hann spilaðist svipað og gegn ÍBK, mjög jafn og spennandi. Þegar 10 sek. voru til leiksloka höfðu Njarðvíkingar yfir 75:77 en þá skoraði besti maður Tinda- stóls í þessum leik, Valur Ingi- Landsmót UMFÍ: / / UMSE o g UIO áfram - í knattspyrnukeppninni UMSE og UÍÓ eru komin í úrslit í knattspyrnukeppni UMFÍ sem er hluti af Lands- móti Ungmennafélags Islands sem haldið verður í Mosfells- bæ á næsta ári. Það voru Dal- víkingar og Reynir sem kepptu undir nafni UMSE og Leiftursmenn sáu að sjálf- sögðu um hlut UÍÓ. Þessi lið kepptu í Norður/ AusUirlandsriðli en aulc UMSE og UfÓ léku lið frá UÍ A (Þróttur N.) og HSÞ (Magni og HSÞ-b) í þessum undanriðli. Úrslit leikja urðu þannig: UMSE-UÍÓ UMSE-UÍA HSÞ-UMSE UÍÓ-UÍA HSÞ-UÍÓ HSÞ-UÍA Lokastaðan: UMSE UÍÓ HSÞ UÍA 2:2 2:2 2:4 6:2 3:2 2:3 3 1-2-0 8: 6 4 3 1-1-1 10: 7 3 3 1-1-1 7: 9 3 3 1-1-1 6:11 3 mundarson þriggja stiga körfu og tryggði þar með sínum mönnum sigur. Valur skoraði mest Tinda- stólsmanna eða 31 stig. Aldrei var spurning um sigur í síðasta leiknum gegn Reyni frá Sandgerði, þó að munurinn væri aðeins 10 stig í lokin. Lokatöl- urnar urðu 71:61. Stigahæstur í leiknum var Bo Heiden sem gerði 42 stig. Maríssonar var hann með leik Að sögn Kára þjálfara Tindastóls nokkuð ánægður liðsins. Annað hefði verið að sjá til þeirra núna heldur en um síð- ustu helgi er liðið tapaði fyrir UMFG og Haukum. Næstu æfingaleikir Tindastóls verða að öllum líkindum heima- leikir en ekki er útséð um hverjir andstæðingarnir verða. Knattspyrna: ísland og Tjrkland í dag íslendingar Ieika gegn Tyrkj- um á Laugardalsvellinum i dag kl. 17.30. Leikurinn er liður í 3. riðli HM í knattspyrnu en íslendingar hafa ekki neina möguleika á því að komast áfram í keppninni. Hins vegar eigum við möguleika á því að færast upp um styrkleikaflokk næst þegar dregið verður í riðla í Heimsmeistarakeppn- inni þannig að mikilvægt er að vinna sigur í leiknum í dag. Þorvaldur Örlygsson er að nýju í íslenska landsliðshópnum og er hópurinn nokkuð breyttur frá leiknum gegn A-Þjóðverjum fyrr í mánuðinum. Erlingi Krist- jánssyni var boðið sæti í hópnum en hann hafnaði því þar sem KA- liðið í handknattleik er á leið til Færeyja í dag. Athygli vekur að bæði Arnór og Ásgeir spila með að þessu sinni og ættum við að geta veitt Tyrkjum verðuga keppni með þessa leikreyndu spilara innan- borðs. Sigurður Jónsson leikur ekki með þar sem hann var í liðinu hjá Arsenal sem lék f deildarbikar- keppninni í gærkvöld. En lítum þá á landsliðshópinn: Markverðir: Bjarni Sigurðsson Val Ólafur Gottskálksson ÍA Aðrir leikmenn: Þorvaldur Örlygsson KA Guðni Bergsson Tottenham Gunnar Gíslason Hacken Ólafur Þórðarson Brann Arnór Guðjohnsen Anderlecht Ásgeir Sigurvinsson Stuttgart Sigurður Grétarsson Luzern Ragnar Margeirsson Fram Rúnar Kristinsson KR Pétur Pétursson KR Gunnar Oddsson KR Haraldur Ingólfsson ÍA Einar PáU Tómasson Val Kristinn R. Jónsson Fram Minningarmótið í golíi: Sverrir sigraði í flokki án forgjafar - Inga vann í kvennaflokki Minningarmótið í golfi hjá GA fór fram að Jaðri um helgina. Inga Magnúsdóttir og Sverrir Þorvaldsson sigruðu án for- gjafar en Halla B. Arnardóttir Sverrir Þorvaldsson sigraði í karla- ' flokki án forgjafar. og Aðalsteinn P. Eiríksson með forgjöf. Það var frekar leiðinlegt veður á Akureyri um helgina en kylf- ingarnir létu það ekki á sig fá og léku af fullum krafti. En við skul- um líta á úrslit í einstökum flokkum: Konur án forgjafar: högg 1. Inga Magnúsdóttir 189 2. Jónfna Pálsdóttir 196 3. Andrea Ásgrímsdóttir 197, Konur með forgjöf: 1. Halla B. Arnardóttir 161 2. Inga Magnúsdóttir 161 3. Andrea Ásgrímsdóttir 165 Karlar án forgjafar: 1. Sverrir Þorvaldsson 157 2. Þórhallur Pálsson 162 3. Ólafur A. Gylfason 164 Karlar með forgjöf: 1. Aðalsteinn P. Eiríks. 145 2. Sverrir Þorvaldsson 145 3. Sigurður H. Ringsted 147 Handknattleikur: KA út í dag - til Færeyja KA-liðið í handknattleik fer til Færeyja í keppnisferð í dag. Þar mun liðið taka þátt í móti í Þórshöfn með fjórum þarlend- um liðum. KA kernur aftur til Akureyrar á sunnudaginn. Erlingur Kristjánsson þjálfari KA var valinn í íslenska landslið- ið í knattspyrnu sem leikur gegn Tyrkjum í kvöld en hafnaði því vegna þessarar ferðar. Þessi ferð er liður í undirbún- ingi liðsins undir íslandsmótið í handknattleik sem hefst í byrjun október og leikur KA við Stjörn- una í fyrsta leik.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.