Dagur - 20.09.1989, Síða 4

Dagur - 20.09.1989, Síða 4
5 -- fJUöAQ - ÖBSt TOdmoíqse .02 ’.u(jabu)íivðiM <^iwiaMBKilwwwHiiwtwwMraBBtnncOT>twray4raTiraM»Ti'TO«^^*v0gwoppp»^'vwiwgwvCTpfc 4 - DAGUR - Miðvikudagur 20. september 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI' EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÓGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Stórborgarbragur Höfuðborg landsins þenst mun hraðar út en æskilegt getur talist. Stórfelldir fólksflutningar úr dreifbýlinu til höfuðborgarsvæðisins skapa fjölmörg vandamál. Auk þess eru þeir mjög kostnaðarsamir. Mannvirki standa vannýtt á landsbyggðinni á sama tíma og byggja þarf ný í höfuð borginni. Þá skapar byggða- röskunin fjölmörg vandamál í atvinnulífi um land allt. Það er útbreiddur misskilningur að byggðaröskunin sé fyrst og fremst vandamál þeirra sem á lands- byggðinni búa. Þvert á móti er linnulaus byggðarösk- un ekki síður alvarlegt vandamál fyrir þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur komið berlega í ljós á undanförnum árum að höfuðborgarsvæðið er alls ekki í stakk búið til að taka við þeim fjölda sem þangað flyst. Gatnakerfi Reykjavíkurborgar er löngu sprungið, enda alls ekki hannað fyrir þá bílamergð sem þar er. Það er bita- munur en ekki fjár að keyra bíl á götum Reykjavíkur ellegar í ýmsum stórborgum Evrópu. Umferðaröng- þveitið er svipað og jafnvel öllu meira í Reykjavík, því sífelldur akstur á vinstri akrein, þar sem tvær akreinar eru í sömu akstursstefnu, allt of lítil stefnuljósanotk- un og síðast en ekki síst almennt tillitsleysi öku- manna, auka hættuna á slysum til mikilla muna. Útlendingar sem hingað koma taka fljótt eftir þessu háttalagi þorra íslenskra ökumanna. Þegar við bætist að vegakerfið á höfuðborgarsvæðinu annar engan veginn umferðarþunganum er ekki við góðu að búast. Fjöldi óhappa og slysa í umferðinni þar dag hvern, segir allt sem segja þarf um stöðu þessara mála. En fylgikvillar örrar fólksfjölgunar á höfuð- borgarsvæðinu eru mun fleiri en umferðaröngþveitið. í síðustu viku sendi lögreglan í Reykjavík frá sér skýrslu um afbrot í Reykjavík á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Þar kemur fram að afbrotum fjölgar jafnt og þétt og voru rúmlega 2.200 afbrot kærð til Reykja- víkurlögreglunnar fyrstu sex mánuði þessa árs. Þar af voru um 190 líkamsárásir og rúmlega 600 innbrot. Nú er sem sagt svo komið að líkamsárásir eru dagleg- ir viðburðir í höfuðborginni og ekki lengur með öllu óhætt að vera á ferli í sumum hverfum borgarinnar eftir að skyggja tekur. í síðustu viku sprungu síðan tvær öflugar sprengjur í íbúðahverfi í Reykjavík og mesta mildi að ekki hlaust stórslys af. Vaxandi umferðaröngþveiti, fjölgun hverskyns ofbeldisafbrota og nú síðast hálfgildings hryðjuverkastarfsemi. Allt ber þetta að sama brunni: Reykjavík er að breytast í stórborg, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þetta er enn ein afleiðing langvarandi byggðaröskunar. Landsbyggðarfólk hefur ekki síður áhyggjur af vax- andi stórborgarbrag Reykjavíkur en höfuðborgarbúar sjálfir. Reykjavík er jú höfuðborg landsins alls og ætti að vera stolt okkar allra. BB. lesendahornið Blöð og blaðamennska „Ég keypti Tímann og kaupi enn kannski undrast það sumir menn, Tíminn var nú besta blað bera margir vitni um það. Tíminn var kærkominn gestur, hann kom ekki á hverjum degi, þó fagnaði maður komu hans. Að vísu voru fréttirnar ekki fjöl- skrúðugar, það var ekki getið um það hversu margir voru drepnir úti í hinni stóru veröld en meira um hinar innlendu fréttir, þó að þær bærust heldur seint. Hann sagði okkur framhaldssögur og maður beið í ofvæni eftir fram- haldinu. En nú er Tíminn ekki lengur gestur er maður hlakkar til að taka á móti, heldur er hann nútíma-Tími, sem kemur út fintm daga vikunnar auk þess helgarblaðs er flytur að vísu ýmiss konar fróðleik, en í hverju helgarblaði birtást hinar hrylli- legu glæpasögur um nauðganir og morð. Myrkravöldin eru heldur en ekki búin að ná tangarhaldi á þeim Tímamönnum. Þau létu þá kafa 50 ár aftur í tímann til að ná einum uppvakningi, má nú ætla að hann hafi verið alldasaður þegar upp kom, af þeim sökum hafa þeir orðið að sleikja hann til að hleypa í hann lífi. Það var gert í gamla daga til að hleypa fjöri í þá uppvakninga er dasaðir voru. Tíminn sendir lesendum sínum þessa uppvakninga, sem hafa mismunandi áhrif á menn. Flestir sleppa með hrollinn en til eru þeir sem verða fyrir verri áhrif- um, er verka á þá sem eiturlyf og myrkravöldin ná á þeim tangar- haldi. Dagblöðin eru öll gefin út í Reykjavík utan eitt, Dagur á Akureyri, er lætur heldur lítið yfir sér. Nú á allt að spara og allt að sameina til þess að auðvelda reksturinn. Því skyldu dagblöðin ekki koma inn í myndina? Dag- blöðin eru oft ráðalaus að fylla út í síðurnar, hafa þau þann hátt á að láta eina mynd ná yfir blaðsíð- urnar. Svo eru það fréttirnar, sem taka mikið pláss í blöðunum. Spara mætti birtingu þeirra að mestu leyti þar sem hljóðvarpið endurtekur fréttirnar nærri þvf á klukkutíma fresti á daginn. Ef vel ætti að vera ætti að gefa út sérstakt auglýsingablað; með því skiluðu auglýsingarnar sér mun betur til landsmanna. Ef af slíku yrði myndu Mogginn og DV verða ansi mjóslegin. Ættu þau því að kúra í einni sæng, það hef- ur löngum verið mikið ástarsam- band á milli þeirra. Tímann á að senda norður fyrir fjöll og sam- einast Degi. En besta lausnin væri bara að gefa út eitt dagblað á íslandi, er stjórnmálaflokkarnir deildu sín á milli. Með því fengju menn besta yfirsýn yfir skoðanir rnanna." Tryggvi Jónatansson Dagur er „týpískf dreiíbýlisblað - svona blöð eiga að hætta að koma út Guðmundur Magnússon skrifar: Ég er alveg hundóánægður með þennan morgunlestur úr dag- blöðunum á Rás 2 hjá Ríkisút- varpinu. Það eru gefin út 5 dag- blöð í Reykjavík, en það er bara lesið úr 4 þeirra. Þeir nenna sennilega ekki að lesa fréttirnar úr Dagblaðinu frá deginum áður. Og svo leyfa þessir menn sér að lesa fréttir úr Degi - eina dag- blaðinu á landsbyggðinni. Það finnst mér nú bara fyrir neðan allar hellur og ætti að leggja það blað niður strax. Það hlýtur að Þakkir til skóla- bflstjóra í Þorpinu - ekur börnunum heim undir hús Faðir í Þorpinu, hafði samband við Lesenda- hornið og sagðist vilja benda á það sem vel er gert til tilbreyting- ar. „Fyrir um tveimur árum var verið að rífast og skammast vegna skólaaksturs í bænum, en þá voru börnin sett af bílnum við hættulega umferðargötu. Nú er því hins vegar svo farið að bíl- stjórinn sem ekur skólabílnum með yngstu börnin er sérstaklega liðlegur og umhyggjusamur við börnin. Hann ekur þeim næst- um því heim undir hús og við sem eigum þessi börn erum mjög ánægð með þetta og viljum lýsa yfir þakklæti okkar til hans, því honum ber engin skylda til þess að gera þetta.“ vera nóg fyrir „dreifbýlispakkið" að Dagur komi út einu sinni í viku. Það er heldur ekkert mark- vert í Degi. Þar eru engar erlend- ar fréttir, en mest fréttir frá Akureyri og „omegn“. Þessi morgunlestur úr Degi fer alveg hræðilega í mínar „fínu taugar“, því hann er alveg „týpískt“ dreif- býlisblað. Auðvitað eiga svona blöð að hætta að koma út. Þessar „lokal“-fréttir frá Akureyri eiga ekki og mega ekki heyrast í Ríkisútvarpinu. Þær eru mann- skemmandi. Hvernig í fjáranum skyldi annars standa á því að Dagblaðið er með fréttamann og á skrifstofuhúsnæði á Akureyri? Við hvetjum lesendur til að koma úr felum og láta skoðanir sínar í Ijós hér í lesendahorninu. Síniinn er 24222 i

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.