Dagur - 20.09.1989, Page 9
Hlutavelta til styrktar félagsheimilisbyggingu Þórs
Fyrir skömmu héldu þeir Gerald Aðalsteinsson, Róbert Aðalsteinsson og Rúnar Friðriksson, hlutaveltu,
til styrktar félagsheimilisbyggingu Þórsara í Þorpinu. Alls söfnuðu Þeir kr. 3.500.-, sem þeir afhentu á rit-
stjórn Dags. Á myndinni sést hluti varningsins á hlutaveltunni en með drengjunum á myndinni eru tvíbura-
systur Rúnars, þær Harpa og Hildur Friðriksdætur.
Kynningarrit á ensku
um íslenskar bókmenntir
Menntamálaráðuneytið hefur
gefið út Listkynningarrit á ensku
um íslenskar bókmenntir. Rit
þetta er hið fyrsta í ritröð um
helstu þætti íslensks menningar-
starfs sem ráðuneytið hyggst gefa
út.
Ritið er ætlað til kynningar er-
lendis og handa erlendum aðilum
sem hingað koma. í því á að
koma fram það helsta sem er að
gerast í listsköpun hér á landi
ásamt stuttu yfirliti um fortíðina.
í þetta fyrsta rit ritraðarinnar
skrifa: Örnólfur Thorsson um
fornbókmenntir, Árni Sigurjóns-
Matsmannafræðsla:
Þijú námskeið á
haustmisseri 1989
Fyrir frumkvæði Matsmanna-
félags íslands, í samvinnu við
Endurmenntunarnefnd Há-
skóla íslands og Yfirfasteigna-
matsnefnd ríkisins, hófst á sl.
vetri nám í matsfræðum.
Fyrstu greinarnar sem kenndar
voru voru Frumatriði í rekstr-
arhagfræði og viðskiptareikn-
ingi og Grunnnámskeið í mats-
fræði. Þau námskeið eru ekki
skilyrði fyrir þátttöku í nám-
skeiðunum nú í haust. Námið
mun í heild samsvara eins árs
námi og er einkum ætlað þeim
sem ekki hafa lokið tækni-
skólanámi eða aflað sér svip-
aðrar menntunar. Áætlað er
að náminu Ijúki vorið 1991.
Á haustmisseri verða haldin
þrjú námskeið:
1. Námskeið í lögfræði sem
verður í umsjón Þorgeirs Örlygs-
sonar prófessors.
2. Námskeið um Matsfræði II;
a) Arðsemismat fasteigna, sem
Guðmundur Gylfi Guðmundsson
hagfræðingur hjá Fasteignamati
ríkisins kennir.
3. Tvö námskeið um Matsfræði
II; b) Tölvunotkun og matsstörf
og c) Ákvörðun fasteigna, Þórð-
ur Búason verkfræðingur hjá
Fasteignamati ríkisins mun
kenna þau.
Námskeiðin hefjast 19. októ-
ber og verða kennslutímar tvisv-
ar í viku á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 16.00-19.00.
Námskeiðunum lýkur 13. janúar
með prófverkefnum fyrir þá sem
þess æskja.
Þeir sem ljúka þessu námi eiga
að hafa öðlast færni í almennum
störfum á sviði fasteignamats og
munu fá sérstaka viðurkenningu
frá Matsmannafélagi íslands.
Auk þess er verið að kanna
möguleika á að þátttakendur er
starfa hjá ríkinu fái launahækkun
að námi loknu.
Framkvæmd verður áfram í
höndum endurmenntunarstjóra
Háskólans. Faglega umsjón með
námskeiðunum hafa þeir Gutt-
ormur Sigurbjörnsson formaður
Matsmannafélags íslands og
Guðmundur Magnússon prófess-
or, viðskiptadeild H.í.
Allar nánari upplýsingar og
skráning fer fram á skrifstofu
endurmenntunarstjóra í símum
91-694923, 694924 og 694925.
son um Halldór Laxness og bók-
menntir eftir 1970, Halldór
Guðmundsson um bókmenntir
frá millistríðsárunum og fram til
1970 og Silja Aðalsteinsdóttir um
barnabækur. Svavar Gestsson
menntamálaráðherra ritar for-
mála. Aftast í ritinu er yfirlit yfir
helstu stefnu í íslenskum bók-
menntum og þar er einnig að
finna skrá yfir útgefendur á ís-
landi, samtök rithöfunda og bóka-
útgefenda, bækur um íslenskar
bókmenntir og ýmsar tölulegar
upplýsingar um bókaútgáfu, dag-
blaðaútgáfu og notkun bóka-
safna. Ennfremur er sagt frá Bók-
menntakynningarsjóði mennta-
málaráðuneytisins.
Ritstjórn skipa Árni Sigurjóns-
son, Bera Nordal og Guðrún
Ágústsdóttir, hönnun annaðist
ErlingurPáll Ingvarsson. Þýðing-
ar á ensku Bernard Scudder og
Sigurður A. Magnússon. Prent-
un: Prentsmiðjan Oddi hf. Kápu-
mynd í lit er „Flugþrá" eftir
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Myndin er í eigu Listasafns
íslands.
Verið er að vinna að útgáfu
næstu rita sem munu fjalla um
myndlist, tónlist, leiklist, dans,
kvikmyndagerðarlist og húsa-
gerðarlist. Ætlunin er ennfremur
að þýða ritin yfir á önnur tungu-
mál.
iti
Bróðir minn,
NÍELS VALDIMAR FRIÐRIKSSON,
sem lést 12. september verður jarðsunginn frá Saurbæjar-
kirkju föstud. 22. sept. kl. 13.30.
Guðlaug Friðriksdóttir.
Maðurinn minn,
GÍSLI JÓHANNSSON,
garðyrkjumaður,
Friðrikshúsi, Hjalteyri,
verður jarðsunginn að Möðruvöllum, Hörgárdal föstudaginn
22. september kl. 2 e.h.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans láti
Krabbameinsfélagið njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda.
Gyða Antoníusardóttir.
(Mér -sðdfÁsíqeé M itjQBbutilvðiM
jí)ag - e
Miðvikudagur 20. september 1989 - DAGUR - 9
Óskum eftir að ráða
verkamenn til starfa
★ Framtíðarstarf.
njSriAÐALGEIR FINNSSON HF
híwr! BYGGINGAVERKTAKI & TRÉSMIÐJA
IH \\| FURUVÖLLUM 5 • P.O. BOX 209 • 602 AKUREYRl
I---—-—I SlMAR: 21332 & 215S2 ■
Hjúkrunarfræð-
ingar athugið!
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka, Ól-
afsfirði, auglýsir eftir hjúkrunarforstjóra.
Upplýsingar um starfið og starfskjör (húsnæði og
fríðindi), veita forstöðumaður í síma 96-62480 og
formaður stjórnar í síma 96-62151.
tlRAR,K
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK-89005 33 kV Switchgear Cubicles „RIMA-
KOT“
Opnunardagur: Þriðjudagur 31. október 1989 kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun-
artíma og verða þau opnuð á sama stað að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
þriðjudegi 19. september 1989 og kosta kr. 300,00
hvert eintak.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118 105 Reykjavík.
Hafið þið opið
á laugardögum eða
sunnudögum?
Ef svo er, viljmn við minna á
að Dagur, helgarblað
kemur út snemma á laugardögum.
(Fyrlr kl. 8.00 til áskrifenda á Alarreyri.)
Hafið samband við
auglýsingadeild Dags
fyrir Id. 11 á fimmtudag,
og auglýsingin birtist á laugardag.
Strandgötu 31 • Sími 24:2,22.
Dagblaðid á landsbyggðinni