Dagur - 21.09.1989, Page 5
Fimmtudagur 21. september 1989 - DAGUR - 5
Iðunn sýnir í Vín
Iðunn Ágústsdóttir myndlista-
kona opnar máiverkasýningu í
Blómaskálanum Vín í Eyja-
firði á morgun, föstudaginn 22.
september kl. 20.00. Hér er um
einkasýningu Iðunnar að ræða
og sýnir hún nú 30 pastel-
myndir.
Sýning Iðunnar er sölusýning
og verður hún opin daglega frá
kl. 13.00 til 22.00 til sunnudags-
ins 1. október nk.
Iðunn hefur áður haldið fjölda
málverkasýninga, bæði einka- og
samsýningar, síðast í Austurríki í
sumar. Þar var um að ræða tvær
samsýningar sem gengu mjög vel.
Tilefnið var för hennar til Graz í
Austurríki til þess að taka þátt í
náms- og vinnudögum, en Iðunn
fékk boð um að taka þar þátt í
hópvinnu með öðrum listamönn-
um frá Austurríki og Noregi.
VG
Iðunn hefur haldið fjölda sýninga, bæði einka- og samsýningar.
Skemmtiklúbburinn „Líf og fjör“:
Eina skilyrðið að
vera hress og kátur
Stofnaður hefur verið skemmti-
klúbbur á Akureyri sem hlotið
hefur nafnið „Líf og fjör.“ í
lögum klúbbsins segir að til-
gangurinn sé að halda dans-
skemmtanir fyrir hresst fólk á
öllum aldri á Akreyri og í ná-
grannabyggðum og verður fyrsti
dansleikur klúbbsins um næstu
helgi á 4. hæð í Alþýðuhúsinu
við Skipagötu.
Stjórn klúbbsins leit við á rit-
stjórn Dags á dögunum og sögðu
þau að hugmyndin að stofnun
hans hafi vaknað í fyrravetur.
Umræðan hefur síðan verið í
gangi og var drifið í formlegri
stofnun 10. september sl. „Við
höfum fengið mjög góðar undir-
tektir og þegar hafa 70 manns
gerst félagar. Hugmyndin er að
reyna að koma saman einu sinni í
mánuði til þess að dansa og
skemmta sér saman. Þá ætlum
SKEMMTIKLUBBURINN
LÍF OG FJÖR
FELAGSSKIRTEINI
NAFN .
NR.
AR 19
KR.
við að vera með ýmsar uppákom-
ur í pásum hjá hljómsveitinni
sem ekki eru gefnar upp,“ sögðu
þau og hlógu mikið.
Þau sögðu það enga spurningu
að þörf væri fyrir klúbb sem
þennan. „Margir hafa sagt að
þetta væri einmitt það sem vant-
aði.“ „Líf og fjör“ ér ekki hjóna-
klúbbur heldur getur hver sem er
á öllum aldri gerst félagi. „Þetta
er bara fjörklúbbur og ckkert
skilyrði annað en að vera hress
og kátur númer eitt, tvö og þrjú.“
Fyrsta skemmtunin verður sem
fyrr segir á laugardaginn kemur,
en þegat hefur verið ákveðið
hvenær þær næstu verða, þ.e.
laugardaginn 4. nóvember og
jólaball föstudaginn 29. desem-
ber. Klúbburinn hefur leigt
hljómsveit til að halda uppi fjöri
á böllunum, hljómsveit Bigga
Mar. Allar skemmtanirnar verða
í Alþýðuhúsinu við Skipagötu.
„Það eru allir velkomnir til okkar
þó þeir ætli ekki að gerast með-
limir í klúbbnum. Hins vegar er
hægt að skrá sig í klúbbinn á
böllunum og félagar koma til
með að borga lægri aðgangseyri
inn.“ Ekki vildu þau félagarnir
gefa upp hvað ætti að gera á
fyrsta ballinu og skemmtu þau
sér greinilega við tilhugsunina.
Þau sögðu að auk skemmtana
einu sinni í mánuði væri í bígerð
að halda árshátíð eða þorrablót
eftir áramót og tóku fram að allar
hugmyndir um frekari dagskrá
væru vel þegnar. Þeir sem ekki
komast á ballið á laugardag en
vilja gerast félagar, geta hringt í
Hönnu s: 21178, Margréti s:
23286 eða Þórodd s: 21620. VG
Ólund-blað:
Nýtt blað í formi
Út er komið nýtt blað í formi
tímarits og heitir það ÓLUND-
BLAÐ. Olundarblaðið er gefið
út af félagsskapnum Ólund sem
er starfræktur á Akureyri. Blaðið
er 56 síður og efni þess mjög fjöl-
breytt en um leið frumlegt. Með-
al efnis má nefna grein um útvarp
Ólund sem starfrækt var norðan
heiða í þrjá mánuði. Einnig er að
finna greinar um kjöt, plötupant-
anir, 40 ára veru íslands í NATÓ
skrifaðar af gagnstæðum fylking-
um þ.e. Varðbergi og Herstöðv-
arandstæðingum. Fjallað er um
Leikklúbbinn Sögu og FENRIS
og Menningarsamtök Norðlend-
inga. Fjöldi smásagna, ljóða,
teikninga og ljósmynda prýða
blaðið. Aðalviðtal Ólundarblaðs-
ins er við Öllu fyrrverandi fyrir-
sætu. Saga á ensku og grein um
neðanjarðartónlist f Reykjavík
eftir Arna Matthíasson eru einn-
tímarits
ig í blaðinu svo eitthvað sé nefnt.
OLUND-BLAÐ er gefið út í
1000 eintökum og fæst í öllum
helstu bókabúðum í Reykjavík,
Bókasölu stúdenta, Gramminu
og í öllum bókabúðum á Akur-
eyri auk nokkurra söluturna.
Blaðinu er ekki ætlað að auka
verðbólgu í landinu og kostar því
aðeins 250 krónur. Regnbogi
prýðir forsíðu blaðsins.
AKUREYRARB/4IR
Vegna Blkarkeppni S.S.Í., 3. deild verður
sundlauginni lokað
á föstudaginn 22. sept. kl. 18.00, á laugardag-
inn 23. sept. kl. 16.00 og á sunnudaginn 24.
sept. verður opið frá kl. 8-10 árdegis.
íþróttaráð.
Ólafsf jörður - Dalvík - Akureyri - Dalvík
Sérleyfishafi: Ævar Klemenzson Símar: 61124-61597-61654
Vetraráætlun
S M Þ M F F
Frá Ólafsfirði Til Akureyrar 19.30 8.30 8.30 8.30
Frá Akureyri Til Ólafsfjarðar 12.30 12.30 17.00
Frá Dalvík 9.00
Til Akureyrar 20.00 9.00 9.00 9.00 9.00 15.00
Frá Akureyri 12.30
Til Dalvíkur 21.00 12.30 12.30 12.30 12.30 17.00
Frá Hrísey Til Akureyrar 20,15 9.15 9.15 9.15
Frá Akureyri 12.30
Til Hríseyjar 12.30 12.30 12.30 12.30 17.00
Ástarsögurnar frá
Snorrahúsi njóta
sívaxandi vinsælda.
Nú konia út tvær
bækur mánaðarlega
Tilboð tilnýrra áskrifenda!
Útgáfan hcfur ákveðið að bjóða nýjum áskrifendum
eina bók ókcypis um leið og þcir gerast áskrifcndur.
Þeir geta valið úr eftirtöldum bókum.
Spcnnusöguflukkurínn:
Morðið í Tauerngöngunum, Þeir dauðu drekka ekki
Síðasta bónin, Líkið stjórnar leiknum.
Ástarsöguflnkkurinn:
Hrakfallabálkur, Ómótstæðilegur karlmaður
Sjúkrahúsið í frumskóginum, Indíánaprinsessan,
SNORRAHUS
Pósthólf 58 • 602 Akureyri ■ isr 96-24222
Á
í myrkri gildir
að sjást.
Notaðu endurskinsmerki!
yUMFERÐAR
RÁÐ