Dagur - 23.09.1989, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 23. september 1989
Hvað táknar þessi draumur?
Hallfreður
Örgumleiðason:
Góðan daginn, vinir mínir
allir. íslendingar eru þjóða
hrifnastir af draumum og dul-
rænum fyrirbærum og ég verð
að játa að ég er dálítið spennt-
ur fyrir hinu óþekkta líka.
Hvorki hef ég rekist á aftur-
göngur né náð greinilegu
sambandi við framliðna, enda
raunsær og jarðbundinn maður
með afbrigðum. Þeir eiginleik-
ar ná þó ekki til drauma minna
sem oft eru hinir furðulegustu
og langt fyrir ofan allt raunsæi.
Sem betur fer gleymi ég þeim
yfirleitt skömmu eftir að ég
vakna og læt engan heyra hví-
lík ósköp hafa gengið á í sálar-
tetri mínu um nóttina. Fólk
gæti misst allt álit á mér!
Einn draum get ég þó ekki
losnað við. Hann hefur angrað
mig undanfarna mánuði, hald-
ið fyrir mér vöku og valdið mér
slíkum heilabrotum að ég er
kominn í þrot. Hvað táknar
þessi draumur eiginlega?
Kannski geta draumspakir
menn hjálpað mér, en það
óvenjulegasta við þennan
draum er aragrúi mannsnafna
sem þar bar á góma. Mig
dreymirgjarnan einhverja sem
ég þekki, kunnugleg andlit,
stundum liti, stundum hljóð,
en stundum bölvað rugl, sam-
hengislaust með öllu. Órsjald-
an dreymir mig nöfn eða spak-
legar setningar, þetta eru frek-
ar stuttar og myndrænar sögur
eða kvikmyndir. En ég ætla að
segja ykkur aðeins frá þessum
draumi í von um að geta losað
um streituna sem hann veldur
mér.
Umhverfið var framandi,
fólkið bæði hvítt og svart og
loftslagið heitara en ég á að
venjast. Ég gekk rennandi
sveittur um í mannmergðinni
en af og til sótti að mér skjálfti
eigi alllítill. Skyndilega vék
ungur negri sér að mér og
kynnti sig: Ég er Guðmundur
Þorsteinsson, Jónssonar,
Klængssonar, Skjálgssonar frá
Skeggjastaðakoti, kominn af
Sigmundi frá Saurum í móð-
urætt. Negrinn hvarf sjónum
mér og næst birtist hvítur öld-
ungur sem mælti á ensku: How
do you do, I’m Simmi the shit,
how do you do, I’m Simmi the
shit, alveg eins og rispuð plata.
Síðan hvarf hann sjónum mér.
Ég þurfti hins vegar að kasta
UPP °g gerði það ótæpilega en
það var eins og enginn tæki eft-
ir mér. Ég var ekki til. Meðan
ég kúgaðist glumdu manna-
nöfn í eyrum mér: Rutherford,
Freydís, Cousins, Þorbjörg,
Wolstenholme, Gróa; ég man
ekki fleiri. Eins og hendi væri
veifað var ég allt í einu orðinn
nakinn. Ég leit niður og sá þá
að ég var svartur. Mér leið
skelfilega en sem fyrr tók eng-
inn eftir mér. Óp braust úr
barka mínum en þetta var ekki
mín eigin rödd. I sömu andrá
kúrði ég í kuldalegum klefa og
það var minn eigin líkami sem
skalf. Samt fann ég brennandi
augnaráð hvíla á mér. Ég sá
augu sem horfðu biðjandi á
mig í gegnum þykk gleraugu.
Ég sá ekkert meira en reis á
fætur til að leita að eiganda
þessara augna en þá gekk ég á
vegg og vaknaði.
í Ijós kom að ég hafði gengið
á vegg í svefnherberginu og
því ekki furða að ég skyldi
vakna. En ég get ómögulega
skilið þennan draum, þetta er
allt svo framandi. Pess vegna
bið ég lesendur um hjálp. Ég
vil endilega fá skýringar á öllu.
Það er rétt að taka það fram
að þetta er ekkert grín. Ég get
verið alvörugefinn ef svo ber
undir. Ég vil því biðja ykkur
um að skrifa niður ráðningu
ykkar á þessum draumi, setja í
umslag merkt „Hallfreður“ og
senda það í höfuðstöðvar Dags
við Strandgötu. Ég get lofað
ykkur því að bestu drauma-
ráðningarnar að mínu mati
verða verðlaunaðar með
bókargjöf. Munið því eftir að
skrifa nafn og heimilisfang
ykkar á ráðningarseðilinn.
Fyrir utan þessi heilabrot er
allt gott af mér að segja, þótt
konan fullyrði að vísu annað.
Hún hélt að ég væri endanlega
orðinn vitlaus á miðvikudaginn
þegar ég stakk upp á því að við
tækjum slátur.
„Heldurðu að ég kæri mig
um að hafa heimilið löðrandi í
blóði og gallblöðrum?“ æpti
hún og hryllti sig.
„Þetta heita vambir,“ skaut
ég rólega inn í.
„Mér er alveg sama hvað
þetta ógeð heitir en það skal
ekki koma inn fyrir dyr á þessu
heimili. Hér étum við manna-
mat og ég er búin að panta
naut hjá frænku minni fyrir
austan.“
„Hvað verður þá um næstu
afborgun af láninu?“ spurði ég
háðslega. „Slátur er ódýr herra-
mannsmatur, kjörin fæða á
disk íbúðarkaupenda."
„Þú getur þá farið til ömmu
þinnar og étið slátur þar,
afdaladurgurinn þinn. Ég ætla
að borða mitt naut og drekka
rauðvín með,“ sagði hún hvöss
og smjattaði.
„Möööö,“ baulaði ég
hryglukennt og þar með var
samræðum lokið þetta kvöld
og deilunum frestað til betri
tíma. Bless.
Ekki vantar Upkilærin!
Heilsupósturinn
Umsjón: Siguröur Gestsson og Einar Guömann
Það þarf ekki unnað en að glugga
rétt sem snöggvast í dagblöðin
þessa dagana til þess að sjá að
það er farið að hausta í hcilbrigð-
is- og líkámsræktarmálum. Allir
sem hafa upp á eitthvað að bjóða
í þeim málum auglýsa nú hver í
kapp við annan og básúna það
sem boðið er uppá. Haustið er sá
tími sem allir byrja aftur að
stunda líkamsrækt eftir að hafa
slappað vel af eftir sumarið og
kannski helst til of mikið ef
marka má verðbólgustigið á ýstr-
um og lærapokum þessa dagana.
Það er eitt og annað sem er í
boði. Líkamsræktarstöðvarnar á
Akureyri bjóða upp á hinar
margvíslegustu æfíngar og æfinga-
áætlanir hvort sem þær flokkast
undir maga, rass og Íæri, leikfimi
og megrun, erobikk, tækjaæfing-
ar, jazz og Guð má vita hvað
fleira. Allt er þetta nú gott og
blessað en það er ekki einungis
blómatíð í líkamsræktinni því
þetta er einmitt sá tími sem
megrunarkúra sölumenn sjá sér
leik á borði. Þetta er sá tími sem
þér er hættast við að falla í þá
gryfju og hella þér út í einhverja
megrunarvitleysu þar sem sumar-
ið og afslöppunin sem því fylgir
er senn að taka enda. í boði cru
hinir ýmsu megrunarkúrar sem
eiga að virka á örskömmum tíma
og leysa vandamál þín að öllu
leyti sem snúa að óþyrmilega feit-
um maga, lærum, rassi eða
hnakkaspiki. En nei takk. Það er
kominn tími til þess að átta sig á
því að þó að þessir skyndi megr-
unarkúrar geti sýnt cinhvern
árangur að því er virðist til að
byrja með, þá eru þeir ekki sú
langtímalausn sem fólk vill að
þeir verði. Þess vegna er eins gott
að sparka í rassgatið á sjálfum sér
og gera sér grein fyrir því að það
er líkamsrækt og hollt og næring-
arríkt fæði til frambúðar sem ger-
ir gæfumuninn. Þá er ekki um að
ræða að gera einhverja stórbylt-
ingu í mataræði og lifnaðarhátt-
um á einum degi. Nei aldeilis
ekki. Það eru litlu skrefin sem
koma manni á áfangastað í þess-
um málum. Byrjaðu til dæmis á
að skrifa niður lista yfir alla þá
helstu galla sem þú vildir helst
venja sjálfan þig af hvort sem það
er í mataræðinu eða lifnaðarhátt-
um og taktu síðan einn og einn
þátt fyrir í einu. Þannig mætti til
dæmis númer eitt byrja á því að
hætta að borða majones og þær
fæðutegundir sem innihalda það.
Síðan mætti taka fyrir franskar
kartöflur og þannig vinna sig
smám saman áfram þar til niður-
staðan er orðin nokkuð heil-
steypt og hollt fæði. Þetta gera
nrenn auðvitað ekki á einum
degi, en þetta virkar þó betur en
fimm daga banana- eða þurrkex-
megrun gerir og hefur nrun betri
áhrif á veskið.
Já, það er ekki alltaf tekið út
með sældinni að ætla sér að halda
í heilsuna eða líta vel út. En það
er ótrúlegt hve gaman það getur
verið að hóa saman nokkrum vin-
um og skella sér í einhverja
líkamsræktarstöðina eða þó ekki
væri nú annað en að skella sér í
Ijós með makanum og fara í
nuddpott á eftir. Það er það sem
kallast að njóta lífsins. Kynnast
nýju fólki og púla í einhverju
sportinu með vinum eða kunn-
ingjum sem halda hvor öðrum
við efnið. Þú gætir orðið undr-
andi á hve gaman það er að koma
innan um nýtt fólk nokkrum
sinnum í viku og púla hressilega.
Nú er rétti tíminn til þess að hafa
sig af stað, ekki vantar tækifærin.
Það getur verið gott fyrir hjón að stunda sportið sainan til þess að veita hvort
öðru aðhald.