Dagur - 23.09.1989, Blaðsíða 4
c - RUOAa - 686 r "leclmöJqöe .KS: TugRbiBgiJB J
4 - DAGUR - Laugardagur 23. september 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VÍLBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
----/-----------------------------------
Ogn eiturlyfja
Eiturlyfjaneysla er ein mesta ógn sem steðjar að
samfélagi nútímans. Umfang eiturlyfjaneyslu er
gífurlegt í flestum löndum heims og fer vaxandi.
Besta dæmið um stærð vandans er sú staðreynd
að forseti Bandaríkjanna, George Bush, fjallaði
nær eingöngu um eiturlyf og aðgerðir gegn
dreifingu, sölu og neyslu þeirra, í sinni fyrstu
sjónvarpsræðu á dögunum. Eiturlyf eru enda tal-
in mesta þjóðfélagsmein líðandi stundar þar
vestra og Bandaríkjamenn standa ráðþrota
gagnvart þessum vágesti.
íslenskt samfélag hefur ekki farið varhluta af
þessum skuggahliðum samfélagshátta nútím-
ans. Eiturlyfjaneysla er vaxandi vandamál hér á
landi og þarf engum að koma á óvart. Reynslan
hefur sýnt að við tileinkum okkur siði jafnt sem
ósiði annarra þjóða, þótt við séum að jafnaði
nokkur ár á eftir þeim í þróuninni. Eiturlyfja-
vandinn á því örugglega eftir að magnast hér á
landi á komandi árum og verða enn stærra þjóð-
félagsmein. Ógn eiturlyfja er þegar orðin það
mikil hér á landi að heilbrigðisráðherra sá
ástæðu til að beita sér fyrir því innan ríkisstjórn-
arinnar að sett yrði á stofn sérstakt meðferðar-
heimili fyrir fíkniefnaneytendur, sem enn eru á
unglingsárum og sumir jafnvel innan við ferm-
ingu. Það er hörmulegt að ríkisstjórn íslands
þurfi að láta mál af þessu tagi til sín taka en seg-
ir allt sem segja þarf um það að neysla fíkniefna
breiðist út til sífellt yngri aldurshópa. Þeir sem
selja þennan ófögnuð hafa engar áhyggjur af
aldri kaupenda, svo framarlega sem þeir borga.
Fyrir skömmu lauk rannsókn á umfangsmesta
fíkniefnamáli sem upp hefur komið hér á landi.
Við rannsóknina kom fram að einu kílói af
kókaíni var smyglað til landsins. Lögreglan
reiknar með að um 20 manns verði kærðir vegna
þessa máls, sem er aðeins eitt af fjölmörgum.
Enginn veit hins vegar hversu margir smygla
inn eiturlyfjum án þess að upp um þá komist, né
heldur hversu mikið magn er um að ræða. Eitur-
lyfjaógnin er komin til að vera, hér sem annars
staðar.
Stjórnvöld verða að halda vöku sinni. Einskis
má láta ófreistað til að halda vágestinum í
skefjum. Á undanförnum árum hefur verið lögð
mest áhersla á að efla fíkniefnalögregluna í
Reykjavík en betur má ef duga skal. Efling þess-
ara mála úti á landi hefur á sama tíma setið á
hakanum. Þótt tómahljóð sé í ríkiskassanum
verða stjórnvöld að stórauka fjárveitingar til
fíkniefnavarna, því við hljótum að gera allt sem
við getum til að berjast gegn þessari skelfilegu
ógn. í því sambandi er tvímælalaust ástæða til
að hvetja stjórnvöld til þess að þyngja dóma fyrir
sölu og dreifingu eiturlyfja til mikilla muna frá
því sem nú er. Hert refsilöggjöf er eitt besta
vopn sem völ er á í baráttunni við bölvaldinn. BB.
Suzzanne Douglas leikur Ainy, konuna sem Max fellur fyrir.
Sá besti
Borgarbíó sýnir: Steppdansarann (TAP).
Leikstjóri og handritshöfundur:
Nick Castle.
Hclstu hlutverk: Gregory Hines og
Suzzanne Douglas.
Tri-Star Pictures 1988.
Ótrúlega margar bandarískar
bíómyndir fjalla um ofurmennið,
þann besta á þessu eða hinu svið-
inu. Steppdansarinn fyllir þennan
flokk mynda. Max Washington,
sem Gregory Hines leikur, er í
flestu eins og smákrimmar göt-
unnar. Hann stelur, lifir hátt og
er síðan settur í tugthús. Eitt tck-
ur hann þó út úr fjöldanum,
nefnilega danshæfileikar hans.
Hann er steppari af guðs náð,
taktur götunnar og götuhljóð-
anna er sem dáindis rnúsík í eyr-
um afbrotamannsins með vold-
uga nafnið og hann dansar til að
halda sönsum í fangelsinu.
Max hefur tekið steppdansinn í
arf eftir föður sinn sem var sá
besti í sínu fagi en er nú látinn.
Eitthvað hefur þó komið upp á
því að sonurinn neitar, þrátt fyrir
ótvíræða hæfileika sína, að halda
merkinu á lofti. Hann vill ekki
dansa og deyja fátækur. En fyrir
ómenntaðan svertingjadreng er
ekki um margar ábatasamar
starfsgreinar að ræða.
Steppdansarinn er fyrst og
fremst um baráttu Max við sjálf-
an sig, á hann að hlýða kalli
þeirrar náttúru sem hann fékk í
vöggugjöf eða á hann að leggja
eyrun við freistingarorðum
Mammons? Að auki er Max ást-
fanginn en það er athyglisvert að
þegar sannleikurinn rennur upp
fyrir honum og valið fer fram þá
er það fyrst og fremst dansinn
sem ræður valinu, ekki ástin.
Steppdansarinn er vafalaust
besta myndin um það efni sem ég
hef séð. Hún er vel gerð, leikar-
arnir góðir, framvindan þægileg
og endirinn huggulegur.
BMulestranámskeið í Akureyrarkirkju
Undanfarna vetur hefur Björgvin
Jörgensson leitt biblíulestra sem
verið hafa í umsjá Bræðrafélags
Akureyrarkirkju. Enn ætlar
Björgvin að halda áfram með
þetta starf og eru allir velkomnir
að fylgjst með sem aðstööu hafa
til, en biblíulestrarnir verða í
kapellunni á mánudagskvöldum
kl. 20.30. í fyrstu samverustund-
unum mun Björgvin ljúka yfir-
ferð yfir Jóhannesarguðspjall en
síðan taka til við skýringar á
Mat theusarguðspj alli.
Þátttaka er öllum að kostnað-
arlausu og án nokkurra skuld-
bindinga en fyrirlestrarnir munu
liggja framnii fjölfaldaðir við
upphaf hverrar samveru. Eftir
hvern fyrirlestur verða fyrir-
spurnir og umræður en síðan
verður endað með helgistund.
Eins og þeir vita sem áður hafa
fylgst með þessu starfi, hefur
Björgvin lagt mikla vinnu í undir-
búninginn, og hafa lestrarnir
bæði þótt fróðlegir og uppbyggi-
legir. Pað er því von þeirra sem
að þessu standa að sem flestir
noti einstakt tækifæri og fylgist
með, og helst frá byrjun, enda
trúa þeir því að þeim tíma sé vel
varið sern á þennan hátt er helg-
aður Guðs orði.