Dagur - 26.09.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 26.09.1989, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 26. september 1989 - DAGUR - 3 fréftir Símaklefmn í göngugötunni á Akureyri: Óvirkur enn einu sinni eftir skenundarvarga Það hefur ekki gengið áfalla- laust fyrir Póst og síma á Akureyri, að halda símaklef- anuin í göngugötunni á Akur- eyri gangandi. Með nokkuð reglulegu millibili hafa ein- hverjir skemmdarverkamenn látið til sín taka og skemmt síman og sjálfan símaklefann. Ekki er gott að geta til um hvaða hvatir liggja þarna að baki en að sögn Ársæls Magnússonar umdæmisstjóra Pósts og síma, er það orðið umhugsunarefni fyrir stofnunina, hvort í raun sé hægt að halda rekstri símaklefans áfram öllu lengur. Blaðamaður Dags hitti þá Ársæl og Gísla Eyland stöðvar- stjóra Pósts og síma á Akureyri, við símaklefann í göngugötunni í gær en þá var aðkoman að hon- um heldur nöturleg. Búið var að brjóta rúður í símaklefanum, slíta símtólið af símanum, síma- skráin rifin í burtu og tilraun gerð til að brjótast í peningabox símans. Að sögn Ársæls hefur ástandið verið mjög slærnt í sumar og fariö versnandi. „Ég held að það sé orðið spurning fyrir stofnunina hvort raunhæft er að halda þess- um símaklefa úti lengur og eins mætti bæjarstjórnin fjalla unt þetta vandamál og kanna hvað sé til ráða. Þessi sími er ntikið not- aður þegar hann er í lagi, bæði af feröamönnum og bæjarbúum og er auk þess ntikið öryggistæki. Ég tel að okkur setti niður í þjónustu ef hann yrði tekinn úr umferð," sagði Ársæll ennfremur. Símaklefi eins og staðsettur er í göngugötunni kostar um hálfa milljón króna og símiækið um 200 þúsund, þannig að hér um mikla fjármuni að ræða og það kemur í hlut símnotenda að borga viðhald hans. En eins og allir vita er síminn mikið öryggis- tæki og því hlýtur það að vera vilji bæjarbúa að hann sé áfram til staðar í göngugötunni. -KK Lögreglan: Annasöm helgi á Sauðárkróki Nýliðin helgi var mjög anna- söm hjá lögreglunni á Sauðár- króki. Að sögn Björns Mika- elssonar yfirlögreguþjóns hafa ungir ökumenn í bænum verið kærðir nokkuð að undanförnu fyrir vítaverðan akstur, eins og sagt er. Lögreglan fór á stúf- ana á föstudaginn og mældi hraðann á götum bæjarins. Var hraðinn heldur mikill mið- að við 50 km hámarkshraða eða um 80 km á klst. Einn bensínþjófnaður var kærður í liðinni viku og sömu- leiðis nokkrir þjófnaðir á útvarpstækjum úrbílum. Þá voru tveir teknir grunaðir um ölvun við akstur. Mikil ölvun var í bænum á föstudagskvöldið í kjölfar Busa- ballsins og nokkrar rúður brotn- ar. Laust eftir kl. 20 á sunnudags- kvöldið var tilkynnt um slys við bæinn Torfgarð við Sauðár- króksbraut. Þar hafði bíll ekið á hóp hrossa sem verið var að reka þar framhjá. Tvö hross drápust samstundis, en eitt varð að aflífa. Drengur sent sat einn hestinn í hópnum slapp naumlega. Þrír farþegar voru í bílnum auk öku- manns og skarst einn þeirra nokkuð á höfði og var farið með hann á Sjúkrahús Skagfirðinga þar sem gert var að sárum hans. Skömntu eftir að tilkynnt var um þetta slys, var tilkynnt um annað skammt hjá bænum Brekku við Vatnsskarð. Þar hafði einnig verið ekið á hross af’ bíl sem leið átti niður af Vatns- skarðinu. Einn maður var í bíln- unt og skarst hann á hendi er framrúðan brotnaði. Hrossið drapst samstundis Báðir bílarnir sem hlut áttu að máli eru mikið skentmdir eða jafnvel ónýtir. Hrossahópinn, sem lenti í fyrra slysinu, var verið að rcka úr Stafnsrétt í Svartárdal. Beðið var um lögreglufylgd með hópinn yfir Vatnsskarðið og var ferðinni heitið í Grófargilsrétt, skammt norðan við Varmahlíð. Er þang- að var komið var skollið á kol- niðantyrkur. Lögreglubíllinn ók nú áleiðis til Sauðárkróks, enda ferðinni lokið. En einhverjir héldu samt áfram með hross norður eftir Sauðárkróksbraut- inni og höfðu á undan sér bíl nteð blikkandi viðvörunarljós. Bfllinn ók nokkurn spöl á undan hópn- um og einmitt til móts við bæinn Torfgarð ók ökumaður bílsins sem lenti í slysinu, fram á þennan bíl. Hann ók hægt framhjá bíln- urn cn herti svo ferðina er fram- hjá var komið. Þá ók hann á hóp- inn með fyrrgreindum afleiðing- um. Er hér um vítavert kæruleysi að ræða hjá stjórnendum þessa reksturs. Hrossin eða knapar þcirra voru ekki með nein glit- augu þannig að ökumaður bílsins sá ekkert nema bílinn með blikk- andi ljós, sem kominn var full- langt frá hópnum. Þetta slys kallar enn á umræðu unt lausagöngu og rekstur búpen- Hefðbundinn búskapur í kreppu: Karlsstaðir bætast nú í hóp eyðibýla í Ólafsfírði Býlum í ábúð í Ólafsfirði heftir fækkað ár frá ári og nú er svo komið að hefðbundinn búskap- ur sem eitthvað kveður að er aðeins stundaður á tveim bæjum, Kvíabekk og Bakka. Nú á haustdögum fer enn einn bærinn í Ólafsfirði, Karlsstað- ir, í eyði. Það er af sem áður var þegar stundaður var öflugur hefðbund- inn búskapur á flestum bæjum í Ólafsfirði. Fljótlega eftir að mjólkurvinnslu var hætt í Ólafs- firði lagðist mjólkurframleiðsla þar af og bændur snéru sér alfarið að sauðkindinni. Á síðari árum hefur sauðfé síðan fækkað ört og nú er svo komið að einungis er hægt að tala um tvö sauðfjárbú í Ólafsfirði, á Bakka og Kvíabekk. Menn spyrja sig þeirrar spurn- ingar hver sé skýring á þessari þróun. Engin einhlít skýring virðist vera á þessu en bent er m.a. á þá staðreynd að sveitin í Ólafsfirði er afskekkt, þó svo ekki sé um miklar vegalengdir að ræða. Bróðurpart úr ári er Lág- heiði lokuð og það gerir það að verkum að bæirnir fram í sveit- inni eru einskonar endastöð í Ólafsfirði. óþh ings a vegum landsins. Bændur eru mjög kærulausir Itvað þetta varðar, því þeir vita að ef ckið er á hross eða kind, fá þeir alltaf bætur fyrir það tjón sem þeir veröa fyrir. Lögreglan hefur á hverju ári reynt að koma í veg fyrir þctta m.a. með því að senda hreppstjórum bréf þar sem þeir eru beðnir um að koma í veg fyrir lausagöngu búfjár meðfram vegum. Allmörg slys hafa hlotist vegna þessa undanfarin ár og er með öllu óskiljanlegt að bændur skuli ekki láta sér segjast. kj ■ o: ö Ef bæjarbúar vilja hafa almenningssíma í miöbænum er Ijóst að ganga verð- ur bctur um hann. Mynd: kl ALLA FIMMTUDAGA! ■■ Vikulega að sunnan. ** Vörumóttaka í Reykjavík til kl. 16:00 á mánudögum. “ Vörumóttaka á Akureyri til kl. 12:00 á fimmtudögum. ■!■ Allar nánari upplýsingar hjá EIMSKIPAkureyri, sími 24131. EIMSKIP *

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.