Dagur - 26.09.1989, Blaðsíða 10
10- DÁGÚR
- Þriðjudagur 26. september 1989
myndosögur dogs
ÁRLAND
ANDRÉS ÖND
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
r
■
'
llBiiSWi’
# Vetur kemur,
vetur fer!
Það var óneitantega hrá-
slagalegt að vakna i gær-
morgun og líta út um glugg-
ann. Allt hvítt! Og bara sept-
ember! Æ, hvað það hefði
verið gott að geta bara farið
uppí aftur og breitt yfir
haus. En því var ekki að
skipta, skyldan kallaði og
best að sýna hugrekki hins
vinnandi manns og drífa sig
á lappir. Tilhugsunin um að
þurfa að skafa af bílnum var
óbærileg. „Hvar eru vettl-
ingarnir aftur? Eða trefill-
inn? Úff, svo er örugglega
hálka líka og bíllinn á slitn-
um sumardekkjum! Nei,
þetta er ekki bjóðandi
nokkrum manni!“
• Húrra, snjór!
En það voru ekki allir jafn
óánægðir með snjókomuna,
sem betur fer. Yngsta kyn-
slóðin bókstaflega ærðist af
kæti þegar litið var út um
gluggann og það er langt síö-
an eins auðvelt hefur verið
að draga hana fram úr rúm-
inu svona árla morguns.
„Komum út, komum út!
Hvar eru snjóbuxurnar
mínar? Það er kominn
snjór, gaman, gaman!“
Óneitanlega reikar hugurinn
aftur í tímann. Vorum við
svona líka? Jú, líklega. Þær
eru góðar endurminning-
arnar þegar komið var inn
blautur og kaldur og mamma
hitaði kakó á meðan tærnar
voru hitaðar milli rimlanna á
ofninum. En, nú eru mömm-
urnar úti að vinna og ekkert
heitt kakó sem bíður. Hvar
eru gömlu góðu dagarnir?
# Upp með
góða skapið
En við skulum ekki örvænta
strax. Um hádegi í gær þeg-
ar sólin hafði vermt okkur
um stund, var snjór a.m.k. í
byggð farinn. Veðurglöggir
menn sem spáðu fyrir
vetrarveðrinu seint í sumar
töluðu ekki um hart haust
og þeirra orðum skulum við
treysta. Auðvitað biðjum við
um jólasnjó þegar að því
kemur og skíðasnjó í meira
magni og fyrr en á síðasta
ári. Svo erum við hörku fólk
ekki satt og látum ekki
snjóföl eyðileggja fyrir okk-
ur góða skapið. Nú ef svo
ólíklega vill til að veturinn
komi snemma með frost og
snjó, þá klæðum við okkur
bara betur, setjum snjó-
dekkin undir bílinn og bros-
um í umferðinni.
dogskrá fjölmiðlo
Sjónvarpið
Þridjudagur 26. september
17.50 Múmíndalurinn.
18.05 Kalli kanína.
18.15 Ferdir Róberts frænda.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Fagri Blakkur.
19.20 Bardi Hamar.
19.50 Tommi og Jenni.
20.00 Fréttir og vedur.
20.30 í daudans greipum.
(A Taste for Death)
Fyrsti þáttur.
Breskur sakamálamyndaflokkur í sex
þáttum eftir P.D. James. Breskur ráðherra
biður vin sinn Adam Dalgliesh lögreglu-
foringja að rannsaka hótunarbréf sem1'
honum hafði borist. Þegar tvö lík finnast í
kirkju ekki skammt frá sér Adam að
tengsl eru þarna á milli.
Aðalhlutverk Roy Marsden, Wendy
Hiller, Simon Ward og Penny Downie.
21.25 Stefna til styrjaldar.
(The Road to War)
Fjórði þáttur - Ítalía
22.15 Umræðuþáttur Fréttastofu.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok.
Stöð 2
Þriðjudagur 26. september
15.15 Svindlararnir.
(Let's Do It Again.)
Tveir félagar reyna að hagnast á vini sín-
um sem þeir dáleiða og etja út í hnefa-
leikakeppni eftir að hafa veðjað við mót-
herjann.
Aðalhlutverk: Sidney Poitier, Bill Cosby,
Jimmy Walker, John Amos og Ossie
Davis.
17.05 Santa Barbara.
17.55 Elsku Hobo.
(The Littlest Hobo.)
18.20 Veröld - Sagan í sjónvarpi.
18.50 Klemens og Klementína.
19.19 19:19.
20.30 Visa-sport.
21.30 Undir regnboganum.
(Chasing Rainbows.)
Annar hluti.
23.15 Fiskeldi.
(Seafarmers.)
Fiskeldi færist víðar í vöxt en á íslandi. í
þessum þætti verður greint frá framförum
sem hafa átt sér stað í fiskeldi í Skotlandi
og í Noregi. Þar er ekki einungis þróun
laxeldis komin á hátt stig, heldur hafa
merkilegar rannsóknir á útsjávarfiski átt
sér stað.
00.10 Hamslaus heift.
(The Fury.)
Myndin fjallar um föður í leit að syni
sínum. Stráknum hefur verið rænt í þeim
tilgangi að virkja dulræna hæfileika hans.
Faðirinn fær til liðs við sig unga stúlku
sem einnig er gædd dulrænum hæfileik-
um.
Aðalhlutverk: Kirk Douglas, John Cassa-
vetes, Carrie Snodgress, Charles Durning
og Amy Irving.
Stranglega bönnud börnum.
02.05 Dagskrárlok.
Rás 1
Þridjudagur 26. september
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Randveri Þorlákssyni.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku.
að loknu fréttayfirliti kl. 7.30. Lesið úr for-
ystugreinum dagblaðanna að loknu frétta-
yfirliti kl. 8.30.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
„Júlíus Blom veit sínu viti“ eftir Bo
Carpelan.
Gunnar Stefánsson les þýðingu sína (21).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn - Frá Vestfjörðum.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir Tilkynningar
Tónlist.
13.05 í dagsins önn - Alexanderstækni.
13.35 Miðdegissagan: „Myndir af Fidel-
mann" eftir Bernard Malamud.
Ingunn Ásdísardóttir les þýðingu sína
(6).
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Eftirlætislögin.
15.00 Fréttir.
15.03 Með múrskeið að vopni.
Fylgst með fornleifauppgreftri á Grana-
stöðum í Eyjafirði.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Á vettvangi.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Söngur og pianó.
21.00 Tarot.
21.30 Útvarpssagan: „Vörnin" eftir Vladi-
mir Nabokov.
Illugi Jökulsson les þýðingu sína (18).
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Leikrit vikunnar: „Aldrei að víkja"
framhaldsleikrit eftir Andrés Indriðason.
Annar þáttur af fjórum.
23.15 Tónskáldatími.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás2
Þriðjudagur 26. september
7.03 Morgunútvarpið: Vaknið til lífsins!
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
9.03 Morgunsyrpa
Eva Ásrún Albertsdóttir.
- Neytendahorn kl. 10.05.
- Afmæliskveðjur kl. 10.30.
- Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur
kl. 11.03.
- Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu
með Gesti Einari Jónassyni.
14.03 Milli mála.
Árni Magnússon á útkíkki og leikur nýju
lögin.
Hagyrðingur dagsins rétt fyrir þrjú og
Veiðihornið rétt fyrir fjögur.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Sigurður Þór Salvars-
son, Guðrún Gunnarsdóttir, Þorsteinn J.
Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómasson.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Auður Haralds talar frá Róm.
- Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins.
Við hljóðnemann eru Sigrún Sigurðar-
dóttir og Oddný Eir Ævarsdóttir.
22.07 Bláar nótur.
Pétur Grétarsson kynnir djass og blús.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,
10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22
og 24.
Næturútvarpið
01.00 „Blítt og létt..."
02.00 Fréttir.
02.05 Ljúflingslög.
03.00 Næturnótur.
04.00 Fréttir.
04.05 Glefsur.
04.30 Veðurfregnir.
04.40 Á vettvangi.
05.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
05.01 Áfram ísland.
06.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
06.01 „Blítt og létt..."
Ríkisútvarpið á Akureyri
Þriðjudagur 26. september
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Þriðjudagur 26. september
07.00 Páll Þorsteinsson.
Morgunþáttur athafnafólks sem vill hafa
fréttirnar á hreinu áður en það fer í vinn-
una.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Gömlu góðu lögin sem þú varst búinn að
gleyma, heyrirðu hjá Valdísi.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Hér er ailt á sínum stað, óskalögin og
afmæliskveðjur allan daginn.
17.00 Hallgrímur Thorsteinsson. - Reykja-
vík síðdegis.
Fréttir og fréttatengd málefni.
í þessum þætti nær þjóðmálaumræðan
hámarki með hjálp hlustenda. Síminn í
Reykjavík síðdegis er 611111.
19.00 Snjólfur Teitsson.
Þægileg ókynnt tónlist í klukkustund.
20.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
Strákurinn er kominn í stuttbuxur og er í
stöðugu sambandi við íþróttadeildina
þegar við á.
24.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Fréttir kl. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16,
17 og 18.
Hljóðbylgjan
Þriðjudagur 26. september
17.00-19.00 M.a. er létt umræða um lífið og
tílveruna.
Stjórnandi er Pálmi Guðmundsson.
Fréttir kl. 18.00.