Dagur - 26.09.1989, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 26. september 1989 - DAGUR - 15
Uppskeruhátíð
knattspymumanna
kr., ÍA 160 þúsund kr., Þór og
Víkingur 135 þúsund kr. hvort
félag og Fylkir og ÍBK sín 100
þúsundin hvort. Alls rúmar tvær
milljónir króna. Þá afhentu for-
ráðamenn Hörpu 40 viðurkenn-
ingarskjöl til leikmanna 6. flokks
fyrir skotkeppni í leikhléi leikja
sumarsins í Hörpudeildinni.
Þessu næst sté Stefán Gunn-
laugsson, formaður knattspyrn-
udeildar KA, í pontu. Hann
gagnrýndi blaðamenn nokkuð
fyrir það að vera tregir til að geta
þess í skrifum sínum, þegar fyrir-
tæki styddu svo dyggilega við
bakið á knattspyrnunni, eins og
Harpa hefði gert í suniar. Þarna
hefði fyrirtækið afhent um tvær
milljónir króna í beinhörðum
peningum og gera mætti ráð fyrir
að annað eins hefði farið í auglýs-
ingar vegna íslandsmótsins. Þess
vegna hefðu fjölmiðlamenn að
ósekju mátt virða það samnings-
atriði betur að 1. deildin hét
Hörpudeild á nýafstöðnu keppn-
istímabili. Stefán þakkaði Olíu-
félaginu h.f., Esso, sérstaklega
fyrir frábæran stuðning, en Esso
var aðalstyrktaraðili KA á
keppnistímabilinu. Esso bauð
m.a. KA-mönnum til hófs í aðal-
stöðvum félagsins tveimur tímum
áður en uppskeruhátíðin hófst og
síðan öllum hinum liðunum á
eftir. Stefán þakkaði einnig starfs-
mönnum KSÍ, dómurum og vall-
arstarfsmönnum fyrir þeirra störf
á sumrinu. Þá gagnrýndi Stefán
afhendingu íslandsbikarsins og
taldi að ekki hefði verið nægilega
vel að henni staðið.
Samtök 1. deildar ieikmanna í
knattspyrnu héidu árlega upp-
skeruhátíð sína í Hótel íslandi
á föstudagskvöldið.
Hátíðin hófst um kl. 19.30 með
því að fegurðardísir, íklæddar
keppnisbúningum 1. deildarlið-
anna, tóku á móti gestum og
færðu þeim fordrykk. Fremst fór
fegurðardrottning íslands 1989,
Hugrún Linda, og var hún að
sjálfsögðu íklædd búningi
íslandsmeistaranna í meistara-
flokki karla, Knattspyrnufélags
Akureyrar. Síðan tók veislustjór-
inn, Þorgeir Ástvaldsson útvarps-
maður og stór-Framari, við
veislustjórninni. Matseðillinn
samanstóð af villibráðarsúpu og
lambafillé og var ekki annað að
sjá en að gestum líkaði maturinn
hið besta.
Aðalræðumaður kvöldsins var
herra Ólafur Skúlason biskup og
fór hann á kostum í stórskemmti-
legri ræðu. Að lokinni ræðu
Ólafs, voru markakóngar Hörpu-
deildar íslandsmótsins heiðraðir.
Guðmundur Steinsson. Fram og
Kjartan Einarsson, ÍBK fengu
hvor um sig bronsskó Adidas,
fyrir 9 mörk; Pétur Pétursson,
KR, fékk silfurskó Adidas, einn-
i fyrir 9 mörk, en Pétur lék færri
Itiki en þeir Guðmundur og
Kjartan. Hörður Magnússon
hlaut gullskó Adidas en Hörður
skoraði 12 mörk í Hörpudeild-
inni í sumar.
Þessu næst stigu KA-menn á
svið og kyrjuðu sigurlagið sitt,
undir stjórn Guðjóns Þórðarson-
ar þjálfara, sem stjórnaði strák-
unum með borðhníf - og fórst
það vel úr hendi. Markaðsstjóri
málningarverksmiðjunnar Hörpu,
Ólafur Már, afhenti síðan for-
svarsmönnum I. deildar félag-
anna ávísanir frá Hörpu, í sam-
ræmi við árangur liðanna í
sumar, en Harpa var aðalstuðn-
ingsaðili Islandsmótsins. KA
fékk mest eða 425 þúsund
krónur, FH fékk 325 þúsund kr.,
Fram 240 þúsund kr., KR 200
þúsund kr., Valur 180 þúsund
Kátir KA-leikmenn á góðri stundu;
Bjarni Jónsson, Árni Hermannsson
og Steingrímur Birgisson.
íslandsmeistarar Vals í
kvennatlokki fluttu stuttan leik-
þátt og tóku síðan lagið við góðar
undirtektir. Ellert B. Schram,
formaður KSÍ, afhenti Gunnari
Oddssyni, KR, nýliðamerki KSÍ
en Gunnar lék sinn 1. landsleik
fyrir skemmstu. Pétur Arnþórs-
son og Viðar Þorkelsson, Fram,
hlutu gullúr fyrir 25 landsleiki og
Sævar Jónsson, Val, gullhring frá
KSI fyrir 50 landsleiki. Þá fengu
leikmenn F.H. afhent silfurverð-
launin fyrir 2. sætiö í íslandsmót-
inu. Þjálfararnir Ásgeir Elíasson
og Jóhannes Atlason, fengu einn-
ig afhenta viðurkenningu frá KSÍ
fyrir áralöng störf að knatt-
spyrnumálum.
Ragnar Sigtryggsson, KA, var
lieiðursgestur kvöldsins og flutti
hann ágæta ræðu. Þá komu KA-
menn aftur upp og sungu nokkur
lög við gítarundirleik.
Hápunktur kvöldsins var er
Jóhann T. Jónsson frá Flugleið-
um tilkynnti úrslitin í kjöri bestu
og efnilegustu leikmann íslands-
mótsins 1989. Efnilegustu leik-
menn íslandsmótsins voru kjörn-
ir Ólafur Gottskálksson, ÍA, í
karjaflokki og Arndís Ólafsdótt-
ir, KA, í kvennaflokki. Bestu
leikmenn íslandsmótsins voru
kjörnir Þorvaldur Örlygsson,
KA, í karlaflokki og Arna Stein-
sen, KR, í kvennaflokki.
Að þessu loknu var dansinn
stiginn fram eftir nóttu. Sannar-
lega glæsileg og vel heppnuð upp-
skeruhátíð og þeim sem að stóöu
til mesta sóma. HB.
Mikil gleði braust út hjá KA-fólkinu þegar Ijóst var að Þorvaldur Örlygsson hafði verið valinn besti maður íslands-
mótsins árið 1989.
Þrátt fyrir að liðið hans hafi ckki orðið Islandsmeistari gat Lolli í Val ckki
annað en verið stoltur af þeim Antony Karli Gregory og Jóni Grétari Jóns-
syni.
Auðvitað fór KA-liöið upp á svið og kyriaöi KA-sönginn undir öruggri
stjórn Karls Örvarssonar.
Birgir Hermannsson og Elva Ólafsdóttir, foreldrar Steingríms Birgissonar
varnarmannsins knáa úr KA-liöinu, ásamt Jóni Péturssyni.