Dagur - 22.11.1989, Side 13
Miðvikudagur 22. nóvember 1989 - DAGUR - 13
Gunnar Guðbjartsson:
Lægst verð á íslandi á
kindakjöti og nautakjöti
Hmn 25. október sl. sendi Verð-
lagsstofnun út fréttatilkynningu
um verðsamanburð á matvælum
samkvæmt niðurstöðum könnun-
ar, sem hún gerði í sumar.
í fréttatilkynningunni eru fjög-
ur atriði undirstrikuð með því að
prenta þau með svörtu letri. Þau
eru:
- Verð á landbúnaðarvörum var
almennt hæst í Reykjavík en
lægst í Þórshöfn í Færeyjum.
- Söluverð í Reykjavík, á öðrum
innlendum matvörum og inn-
fluttum matvörum var ekki
óhagstætt í samanburði við
sams konar vörur erlendis.
- Vcrslunarálagning var að jafn-
aði Iægri í Reykjavík en í öðr-
um borgum sem samanburður
var gerður við.
- Söluskattur var hæstur í
Reykjavík.
í fyrstu setningunni er fullyrt
að landbúnaðarvörur séu al-
mennt hæstar í verði í Reykja-
vík. Þá er gengið fram hjá því að
tvær þýðingarmestu kjöttegundir
í neyslu íslendinga, kindakjöt og
nautakjöt eru skv. könnuninni
verulega lægri í verði hér á ís-
landi heldur en er í flestum þeirra
landa, sem samanburðurinn nær
til, sbr. súlurit sem fylgja hér
með.
Þetta er niðurstaðan þrátt fyrir
miklu hærri söluskatt hér heldur
en er í samanburðarlöndunum.
Frásögn Verðlagsstofnunar hvað
þetta varðar getur ekki talist
hlutlaus frásögn og er furða að
ekki skuli hafa verið vakin
athygli á þessum ágalla í fjölmiðl-
um.
Athyglisvert er hve kjötverð er
hátt í London. Framleiðslustyrk-
ir eru miklir í Bretlandi. Auk
þess flytja Bretar inn kjöt frá
Nýja-Sjálandi, en þar er kjöt tal-
ið ódýrast í heiminum.
Niðurgreidslur á
landbúnaðarvörum
I tilkynningunni er tafla, sem
sýnir óniðurgreitt heildsöluverð
tíu landbúnaðarvara í fjórum
borgum. Þá er Osló, Kaup-
mannahöfn og London sleppt úr
samanburðinum. Þá kemur í ljós
að Þórshöfn í Færeyjum er með
hæst verð í þeim tveimur vöru-
flokkum þegar Færeyingar fram-
leiða vörurnar sjálfir, þ.e. mjólk
og jógúrt. Hinar vörurnar kaupa
þeir niðurgreiddar frá öðrum
löndum og eru þá oftast með
lægst verð. Þetta kemur engum á
óvart. Vafasamt er talið að þetta
lága verð í Færeyjum geti haldist.
Vegna erfiðleika í ríkisfjármál-
um Færeyinga eru þar uppi há-
værar kröfur um álagningu vöru-
gjalds og söluskatts á innfluttar
matvörur.
Framleiðslustyrkir
I töflunni er einungis tekið tillit
til niðurgreiðslna á heildsölu- og
smásölustigi. Hins vegar er vitað
að í öllum EB löndum eru niður-
greiðslurnar nær allar á fram-
leiðslustigi. Veittir eru fram-
leiðslustyrkir, sem eru metnir að
meðaltali til 50% af framleiðslu-
kostnaði búvaranna. Það er land-
búnaðarpólitík EB að lækka verð
þessara þýðingarmiklu vara,
landbúnaðarvaranna, með þeim
hætti og um leið heldur EB niðri
kaupgjaldi til að iðnaðarvörur
þess verði betur samkeppnishæf-
ar á svokölluðum heimsmarkaði.
Þessir framleiðslustyrkir eru
með ýmsum hætti. Sumt af þeim
er bundið magni framleiðslu eða
stærð lands eða bús. Annað er
mismunandi eftir byggðarlögum
eða löndum, svokallaðir byggða-
styrkir. Veittir eru styrkir til
vinnslufyrirtækja, birgðir af
umframframleiðslu eru keyptar
af sjóðum EB og greiddar út-
flutningsbætur.
Sams konar styrkir eru í Nor-
egi og eitthvað er um þá bæði í
Svíþjóð og Finnlandi. Byggða-
styrkir eru miklir í Noregi. Verð-
lagsstofnun nefnir ekki í sinni
verðkönnun þessa styrki eða nið-
urgreiðslur á framleiðslustigi.
Vinnunni við verðkönnunina er
því mjög áfátt. Niðurgreiðslur
framleiðslukostnaðar eru í nær
öllum Evrópulöndum, megin-
hluti niðurgreiðslanna. Pví er sú
ályktun röng hjá Verðlagsstofn-
un að niðurgreiðslur séu miklu
meiri á íslandi en í samanburðar-
löndunum. Væru þessir fram-
leiðslustyrkir ekki fyrir hendi
myndi búvöruverð þessara landa
vera miklu hærra en nú er og í
flestum tilfellum miklu hærra en
á íslandi.
Söluskattur og
virðisaukaskattur
Söluskattur er mjög hár á íslandi.
í öllum samanburðarlöndunum
er virðisaukaskattur sem er lægra
hlutfall en söluskatturinn á sölu-
stigi er hér. Enginn söluskattur er
í Þórshöfn og enginn virðisauka-
skattur er í London.
Söluskatturinn er svo hár á ís-
landi að hann ásamt aðfanga-
skatti étur upp allar niðurgreiðsl-
urnar sem eru á landbúnaðarvör-
um sbr. meðfylgjandi súlurit og
meira til.
Það er einnig rangt sem haft
var eftir Sighvati Björgvinssyni í
Morgunblaðinu í síðustu viku að
bændur á íslandi fengju 1,5 millj-
ón króna hver í rekstrarstyrki frá
ríkinu.
Niðurgreiðslurnar hér á landi
eru allar greiddar til lækkunar á
verði til neytenda. Söluskattur-
inn er næstum jafnmikill og allar
niðurgreiðslurnar og gerir allan
samanburð í þessu efni rangan.
Söluskatturinn hefur spillt og
spillir samkeppnisstöðu íslenskr-
ar búvöru, ekki síst í verðsam-
anburði við niðurgreiddar er-
lendar vörur.
En spyrja má hvort svona
verðsamanburður sé marktækur,
þegar niðurgreiðslur og fram-
leiðslustyrkir eru með mismun-
andi hætti, skattlagning er afar
mismunandi og gengi gjaldmiðla
er rangt skráð.
Hitt er fagnaðarefni hversu
hagstætt verð er á íslensku kjöti í
samanburði við flest Evrópulönd
skv. þessari könnun Verðlags-
stofnunar.
Kjöt
smásöluverð og söluskattur
Söluskattur
Smásöluverð
án söluskatts
Fundarboð!
Almennir stjórnmálafundir verða
haldnir á eftirtöldum stöðum:
Blómaskálanum Vín Eyjafirði miðvikud. 22. nóv.
kl. 21.00.
Frummælendur:
Guðmundur Ágústsson, alþingismaður.
Sveinbjörn Jónsson, oddviti Suðureyri.
Stefán Valgeirsson, alþingismaður.
Þórshöfn fimmtud. 23. nóv. kl. 21.00.
Raufarhöfn föstud. 24. nóv. kl. 21.00.
Lundi í Öxarfirði laugard. 25. nóv. kl. 2 e.h.
ídölum, Aðaldal sunnudaginn 26. nóvember kl. 2 e.h.
Frummælendur á fundinum í Norður-Þingeyjarsýslu verða
Guðmundur Ágústsson alþingismaður og Stefán Valgeirs-
son alþingismaður.
Rætt verður um stjórnmálaviðhorfið,
efnahagsástandið og fjölmiðlafárið.
Munið fundinn í Blómaskálanum
Vln í kvöld 22. nóvember kl. 21.00.
Samtök jafnréttis og félagshyggju - Borgaraflokkurinn
Atvinnurekendur
Akureyri
Karlmaður um þrítugt óskar eftir starfi á sviði
bókhalds og/eða fjármálastjórnunar.
12 ára starfsreynsla í bæði, en engin menntun.
Mjög góð meðmæli.
Áhugasamir aðilar komi nafni og símanúmeri til
afgreiðslu Dags merkt „Akureyri ’89“.
Starfsmaður óskast
í vöruafgreiðslu okkar.
Skriflegar umsóknir skulu berast í pósthólf 225 fyrir
24.11/89.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Umferðarmiðstöðin
Hafnarstræti 82.
Nautahakk
Verð án söluskatts
Hlutfallstölur
Lambalæri Kótelettur Nautahakk
Kaupmannahöfn 49 58 57
Þórshöfn 53 66 47
Stokkhólmur 77 82 83
London 78 114 64
Reykjavík 80 80 80
Osló 83 122 138
Helsinki 126 124 105
Elskuleg eiginkona mín,
AÐALHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
frá Arnarnesi,
er látin.
Fyrir hönd barna okkar og annarra aðstandenda,
Guðmundur Árnason.