Dagur - 22.11.1989, Page 14
v niiAim nom- on
14 - DAGUR - Miðvikudagur 22. nóvember 1989
Minning:
T Guðbjörg Pálsdóttir
Einarsstöðum í Reykjahverfi
Fædd 5. nóvember 1911 - Dáin 23. október 1989
Sú kynslóð, sem kennd er við
aldamótin síðustu, er nú nær
horfin af sjónarsviðinu. Þessi
fórnfúsa kynslóð, sem gerði
kröfurnar til sjálfs sín, en ekki
annarra á nú aðeins fáa fulltrúa á
meðal okkar samferðamanna
nútímans. Einn þessara fulltrúa
Guðbjörg Pálsdóttir á Einars-
stöðum í Reykjahverfi kvaddi
þennan heim hinn 23. okt. sl.
Dagsverkið var orðið langt og
strangt í meira lagi og þótt aldur
og heilsa væru farin að segja til
sín, þá stóð hún í miklu starfi til
hinstu stundar. í dagsins önn þá
kallið kom brást hún vel við og
æðrulaust. Guðbjörg var kona
þingeyskra ætta og af góðu bergi
brotin í ættir fram. Foreldrar
hennar voru Páll Sigurðsson
bóndi og hagyrðingur í Skógum í
Reykjahverfi og kona hans
Hólmfríður Jónsdóttir systir
Sigurðar Jónssonar ráðherra að
Felli í Köldukinn.
Guðbjörg var fædd að Skógum
þann 5. nóv. 1911 og var yngst af
sjö börnum foreldra sinna og eigi
borin til veraldarauðs.
í lítilli torfbaðstofu þar sem
bekkurinn var þétt setinn svo ekki
sé meira sagt, hóf hún lífsgöngu
sína. Þar til hún var nokkuð á
þriðja ári hlaut hún að halda til við
sjúkrabeð veikrar móður sinnar
og því ekki klædd til ferilsvistar.
Heiminn varð hún bara að sjá út
um gluggann, hver heimsmyndin
var er enginn til frásagnar um.
En svo skeði stór atburður í lífi
hennar, þegar faðir hennar einn
góðan veðurdag sveipaði hana
reifum og flutti til nágrannakonu,
sem tekið hafði að sér að annast
hana yfir hásláttartímann. Hjá
þessari góðu grannkonu eignaðist
Guðbjörg ígangsklæði og heim-
urinn stækkaði að mun. Og heim-
urinn hélt áfram að stækka, en
hann varð líka alvarlegri, því sjö
ára gömul missti hún móður sína
og lífsbaráttan hófst eftir því sem
kraftar leyfðu. Á ungdómsárum
lét Guðbjörg sig dreyma um nám
og för út í hinn stóra heim, en því
varð ekki við komið eins og svo
mörgu öðru. Hlutskipti hennar
var löngum það, að geta aðeins
látið sig dreyma um hlutina í stað
þess að fá þá, en svo óbugandi
var hún, að ætíð mun hún hafa
átt sér einhvern draum. Vega-
nesti hennar út á lífsins leið var
fyrst og fremst vafalaus trú á for-
sjónina, skyldurækni, dugnaður
og verkkunnátta, sem að haldi
kom, þá á reyndi.
Guðbjörg var kona lítil vexti,
kvik í hreyfingum og fylgin sér að
hverju, sem hún gekk. Hún var
fríð sýnum, örgeðja og glaðlynd
að elisfari, en þeirrar gerðar að
flíka gleði og fela sorg. Hún hafði
næmt eyra fyrir ljóðum, var
minnug og opin fyrir öllu, sem
fram fór í umhverfinu og því
sagnfróð um liðna tíð.
Rétt fyrir tvítugsaldur réðst
Guðbjörg til frænda síns Jóns
Sigurðssonar bónda og rithöf-
undar að Ystafelli í Köldukinn og
konu hans Helgu Friðgeirsdótt-
ur. Hjá þeim hjónum dvaldi hún
um það bil 3 ár og bast heimili
þeirra órofaböndum, en frekar
var heimdraganum ekki hleypt.
Þann 24. júní 1933, þá 22 ára,
gekk Guðbjörg að eiga bóndason-
inn á næsta bæ Jón Þór Friðriks-
son Buch. Þau hjónin hófu
búskap á Einarsstöðum sama ár í
mótbýli við tengdaforeldra Guð-
bjargar og að sjálfsögðu við lítil
efni eins og þá var títt. Ekki lá
byrinn strax í seglin hjá þeim
ungu hjónunum, því landbúnað-
arkreppan var ekki afstaðin og þá
henni sleppti tók mæðiveikin að
herja á fjárstofninn. Hins vegar
var það afdrifaríkast, að á fjórða
búskaparári þeirra varð Jón fyrir
slysi í fjárleitum og hlaut af mikla
örorku. Þá örorku bar Guðbjörg
drengilega með manni sínum og
færði starfsvettvang sinn meira út
úr bænum. Úti og inni var hún
vakin og sofin og lét sig allt varða
bæði smátt og stórt. Oft þurfti að
herða á ólinni en ekki látið undan
síga, því sjálfsbjargarhvötin var
öllu sterkari. Önn dags og nætur
var þung og helstu gleðistundir,
þá gest bar að garði, enda þau
hjónin mjög samtaka um gest-
risni.
En árin liðu og nýi tíminn gekk
í garð, búið stækkaði, byggingar
risu og vélarnar leystu manns-
höndina af hólmi. Það allt var
mikið gleðiefni.
Þeim Guðbjörgu og Jóni varð
10 barna auðið, en skarð var í
hópinn hoggið. Þau urðu fyrir
þeirri þungbæru lífsreynslu að
missa tvo syni sína, Hörð 3ja ára
og annan í frumbernsku. Þá létu
þau tvo syni sína í fóstur, þá
Björn Ófeig og Ingólf Árna.
Einnig það var sár lífsreynsla,
þótt þeir bræður færu í góðra
hendur. Börn þeirra, sem upp
komust, eru sem hér segir:
Guðný búandi að Einarsstöðum
og á einn son, Friðrik starfsmað-
ur í Straumsvík kvæntur Kristínu
G. Sigurðardóttur og eiga þau
tvo syni og eru búsett í Reykja-
vík; Páll Helgi bóndi á Einarsstöð-
um kvæntur Guðrúnu Benedikts-
dóttur og eiga þau einn son,
Björn Ófeigur bóndi í Skógahlíð
í Reykjahverfi kvæntur Þórunni
Alice Gestsdóttur, Hólmfríður
búsett í Reykjavík gift Stefáni
Baldvinssyni sjómanni og eiga
þau þrjú börn, Kristbjörg búsett í
Reykjavík, Sigurveig Guðrún
búandi á Einarsstöðum og á einn
son og Ingólfur Árni farmaður
búsettur í Reykjavík og á eina
dóttur barna.
Sjálfsagt hafa margar konur á
íslandi átt svipað lífshlaup og
Guðbjörg á Einarsstöðum. Hitt
finnst mér sérstæðara, að hún
Breytingar
Stjórn Fjárfestingarfélags íslands
hf. hefur gengið frá breytingum á
yfirstjórn fyrirtækisins í kjölfar
þess að Gunnar Helgi Hálfdanar-
son sagði forstjórastarfi sínu
lausu. Tveir menn, Friðrik
Jóhannsson og Gunnar Óskars-
son, sem verið hafa í lykilhlut-
verkum hjá félaginu um árabil,
munu skipta með sér verkum og
taka við allri daglegri stjórnun
Fjárfestingarfélags íslands.
Friðrik Jóhannsson, viðskipta-
fræðingur og lögg. endurskoð-
andi, sem gegnt hefur starfi fjár-
málastjóra félagsins, verður for-
stjóri þess. Sem fyrr munu fjár-
Sony fyrirtækið hefur veitt Flug-
leiðum sérstaka viðurkenningu
fyrir þjónustu um borð í flugvél-
um félagsins á sérstakri sýningu
sem ætluð er fyrirtækjum í frí-
hafnarþjónustu í Cannes í Frakk-
landi. Þessi viðurkenning, sem
Sony ætlar að veita árlega, hlýtur
fyrirtækið fyrir sérstaklega vel
heppnaða notkun á Sony GV 8
myndbandstækjum um borð í
Flugleiðavélum á Norður-Atl-
antshafsleiðum. Þetta er í fyrsta
sinn sem þessi viðurkenning er
veitt.
Flugleiðir voru eitt þriggja
flugfélaga sem fyrst tóku í notk-
un þessi myndbandstæki á Saga
Class. Hver farþegi fær sitt tæki
skyldi geta miðlað öðrum af lífs-
gleði sinni allt til hinsta dags.
mál og rekstur, ásamt sjóða-
stjórnun, vera á verksviði hans.
Friðrik er fæddur 25. október
1957. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við Sund
árið 1978 og kandidatsprófi í við-
skiptafræði frá Háskóla íslands
árið 1982. Með námi starfaði
Friðrik um skeið á endurskoðun-
arskrifstofu Björns E. Árnasonar
en hóf síðan störf hjá Löggiltum
endurskoðendum hf. Á vegum
þeirra fór hann til starfa í eitt ár í
Bandaríkjunum hjá endurskoð-
unarskrifstofunni Laventhol and
Horwath í Los Angeles og tók
síðan Iöggildingarpróf árið 1986.
og getur valið úr safni kvik-
mynda, tónlistarmyndbanda og
annars efnis. Það skiptir ekki
minnstu máli í þessu sambandi að
Sony hefur nýlega fest kaup á
Colombia Pictures kvikmynda-
fyrirtækinu fyrir 3,5 milljarða
bandaríkjadollara. Því er gert
ráð fyrir að handhafar GV 8
tækjanna eigi í framtíðinni völ á
miklu úrvali myndefnis.
Vegna þessarar viðurkenning-
ar frá Sony hafa Flugleiðir látið
gera póstkort með mynd af Lindu
Pétursdóttur, alheimsfegurðar-
drottningu, með Sony mynd-
bandstækið. í baksýn er Boeing
757-200 flugvél sem Flugleiðir
taka í notkun á Norður-Atlants-
hafsleiðum sínum næsta vor.
Guðbjörg þráði langferð í
lifanda lífi, sem aldrei varð af, en
nú er hún komin í þá för, er allir
eiga vísa, og þegar ég lít yfir lífs-
slóð hennar, þá finnst mér hún
hafa farið sem sannur sigurveg-
ari.
Ætti ég að ráða grafskrift
hennar, þá mundi hún hefjast á
þessa leið: „Hér hvílir ein af hetj-
um hversdagslífsins . . .“
Sé það rétt að aleiga mannsins
sé það, sem hann gefur, þá hefur
Guðbjörg safnað miklum auði,
því hún gaf sjálfa sig öðrum í lífi
og starfi. Ég vil að lokum þakka
henni langa og minnisverða sam-
fylgd og óska henni yndis á
ókunnri strönd.
Eftirlifandi manni hennar,
börnum og öðrum aðstandendum
sendi ég samúðarkveðjur.
Frá þeim tíma hefur Friðrik starf-
að sem fjármálastjóri hjá Fjár-
festingarfélagi íslands hf. Friðrik
er kvæntur Hildi Guðnadóttur og
eiga þau þrjú börn.
Gunnar Óskarsson, rekstrar-
hagfræðingur, verður fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélags
íslands. Hann mun annast verð-
bréfasvið félagsins og að auki
sinna erlendum verðbréfum og
markaðsmálum Fjárfestingar-
félags íslands.
Gunnar er fæddur 14. ágúst
1954. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Hamra-
hlíð árið 1976 og kandidatsprófi í
viðskiptafræði frá Háskóla
íslands árið 1981. Að loknu námi
starfaði hann við fjármála-
umsýslu hjá Landsvirkjun og síð-
an sem rekstrarráðgjafi hjá Hag-
vangi. Gunnar lauk framhalds-
námi í rekstrarhagfræði frá
Imedeháskólanum í Lousanne í
Sviss árið 1985 og hefur starfað
hjá Fjárfestingarfélagi íslands frá
þeim tíma, fyrst við sjóðastjórn-
un og síðar sem aðstoðarfram-
kvæmdastjóri. Gunnar er giftur
Dagnýju Brynjólfsdóttur og eiga
þau tvö börn.
Háskóli íslands:
Almanak
ársins 1990
komið út
Út er komið Almanak fyrir
ísland 1990, sem Háskóli íslands
gefur út. Þetta er 154. árgangur
ritsins, sem komið hefur út sam-
fellt síðan 1837.
Dr. Þorsteinn Sæmundsson
stjarnfræðingur hjá Raunvísinda-
stofnun Háskólans hefur reiknað
almanakið og búið það til prent-
unar. Ritið er 96 bls. að stærð.
Auk dagatals með upplýsing-
um um flóð og gang himintungla
flytur almanakið margvíslegan
fróðleik s.s. yfirlit um hnetti him-
ingeimsins, mælieiningar, skrá
um veðurmet og töflu sem sýnir
sólarátt og sólarhæð á mismun-
andi tímum. Þá er þar að finna
stjörnukort, kort sem sýnir átta-
vitastefnur á íslandi og kort sem
sýnir hvað klukkan er hvar sem
er á jörðinni, ásamt yfirliti sem
lýsir þeim fjölbreyttu reglum sem
gilda um sumartíma.
Háskólinn annast sölu
almanaksins og dreifingu þess til
bóksala. Almanakið kemur út í
7500 eintökum, en auk þess eru
prentuð 2500 eintök, sem Þjóð-
vinafélagið gefur út sem hluta af
sínu almanaki með leyfi Háskól-
ans.
Sjóðfélagar í
Lífeyrissjóði KEA
Almennur sjóðfélagafundur verður haldinn í
Starfsmannasal KEA, Sunnuhlíð 12 (gengið,inn
að sunnan), í kvöld 22.11. 1989 kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Reglugerðarbreytingar.
a) Hækkun stigahámarks.
b) Framlenging á verðtiyggingu lífeyris.
c) Fjölgun fulltrúa sjóðfélaga í stjórn.
2. Kosning viðbótarfulltrúa starfsmanna í stjórn sjóðsins og vara-
manns.
3. Umræður um framtíðarstöðu Lifeyrissjóðs KEA og lífeyrismál
almennt.
Kaffiveitingar.
Starfsmenn og lífeyrisþegar hvattir til að fjölmenna.
Þessi mál snerta okkur öll.
Stjórn SKE.
Vigfús B. Jónsson Laxamýri.
Fjárfestingarfélag íslands hf.:
á yfirstjóm fyrirtækisins
Linda Pétursdóttir með Sony myndbandstækið. í baksýn er líkan af Boeing
757-200 sem Flugleiðir taka í notkun næsta vor.
Flugleiðir fá viður-
kenningu frá Sony