Dagur - 19.12.1989, Síða 16

Dagur - 19.12.1989, Síða 16
Akureyri, þriðjudagur 19. desember 1989 Lækkum matarreikninginn! KEA NETTÓ Höfðahlíd / einföld Svarfaðardalur: Fólksbifreið í ána - Qórir piltar sluppu með skrekkinn Um kl. 21 síðastliðið laugar- dagskvöld fór fólksbíll af Lada-gerð í Svarfaðardalsá, við bæinn Hæringsstaði. Bif- Innanlandsflug um helgina: Flug gekk þokka- lega þrátt fyrir vonskuveður Innanlandsflug flugfélaganna gekk þokkalega um helgina þrátt fyrir slæmt veður. Allir komust á leiðarenda á þeim dögum sem þeir áttu pantað ef undan er skilið að Flugfé- lag Norðurlands varð að fella niður allt sitt flug á laugar- daginn. í gærmorgun gekk minni félögunum ágætlega að fljúga en Flugleiðir kom- ust ekki sína fyrstu ferð til Akureyrar fyrr en um kl. 14. Að sögn Sigurðar Kristins- sonar, starfsmanns Flugleiöa á Akureyrarflugvelli, urðu seink anir á flugi milli Reykjavíkur og Akureyrar á laugardag og sunnu- dag en þó tókst að fljúga allar áætlaðar ferðir. Svipaöa sögu er að segja um Húsavík og flug Flugleiða til Sauðárkróks var með eðlilegum hætti, enda lítill sem enginn snjór í Skagafirði. Hjá Flugfélagi Norðurlands, þurfti sem fyrr segir aö fella all- ar ferðir niður á laugardag, fyrst vegna lokunar Akureyrarflug- vallar og síðar vegna ófærðar á áætlunarstöðum félagsins. Frið- rik Adólfsson, starfsmaður félagsins, segir að vel hafi geng- ið að fljúga á sunnudag, utan að ekki tókst að komast í seinni ferðina til Vopnafjarðar. Friðrik reiknaöi ineð aö flug yrði sam- kvæmt áætlun í gær. Samkvæmt upplýsingum blaðsins var flug Arnarflugs samkvæmt áætlun á laugardag og sunnudag. Hins vegar lokað- ist flugvöllurinn á Siglufirði á meðan vélin frá Reykjavík var á leiðinni norður í gærmorgun og var því lent á Sauðárkróki og farþegum ekið til Siglufjarðar. JÓH reiðin fór fram af háum kanti við brú á ánni og lenti á hlið í henni. Fjórir piltar voru í bíln- um og sluppu ómeiddir, ef frá er talið að læknir þurfti að líta á hendi eins þeirra. Að sögn lögreglunnar á Dalvík voru tildrög slyssins þau að öku- maður missti stjórn á bílnum í krappri beygju við brúna. A þeim stað sem bíllinn fór í ána er um 5 metra hár kantur og telja verður mildi að ekki fór verr þar sem mikið vatn og krap var í ánni. Bíllinn fór hálfur í kaf í ána en piltunum tókst að komast út. Að sögn lögreglunnar voru ök- maður og farþegi í framsæti í öryggisbeltum. Mestar skemmdir urðu á bifreiðinni af vatni. Hálka var á veginum þegar slysið átti sér stað og telur lögreglan það ástæðuna fyrir óhappinu. JÓH Mikið var um að vera hjá starfsmönnum á pósthúsum í gær enda síðasti dagur til að skila jólapósti ef hann á að ber- ast á alla staði innanlands í tæka tíð fyrir jól. Þessi mynd var tekin á pósthúsinu í Hafnarstræti á Akureyri í gær og eins og sjá má voru staflarnir af póstpokunum háir. Mynd: kl Síldarsöltun lauk hjá Tanga hf. á Vopnafirði í gærkvöld: Ellefu þúsund tunnur í fyrra en tæp sex þúsund tunnur í ár Síldarsöltun lauk hjá Tanga hf. á Vopnafirði í gær. Saltað var í tæpar sex þúsund tunnur sem er um fimm þúsund tunnum færra en í fyrra. Söltunin gekk vel en Aðalsteinn Sigurðsson, verkstjóri, segir að skort hafí síld til söltunar og „miðjuna“ hafi algjörlega vantað í vertíð- ina. Þrír bátar lögðu upp hjá Tanga hf., Lýtingur, Sæþór og Sjöfn frá Grenivík. Sjöfnin landaði 200 tonnum í gærmorgun og lokið var við að salta þá síld í gærkvöld. an á þessari leið um 19000 lítrar. Fleiri norðlenskir togarar eru á leið heim eftir veiði á Vestfjarða- miðum. Á heimleið eru nú, auk Björgúlfs, m.a. Ólafur Bekkur ÓF og Dalborg EA. JÓH Björgúlfur EA frá Dalvík á heimleið af Vestijarðamiðum: Þarf að sigla 700 niílur tU heimahafnar - „útilokað að fara fyrir Horn,“ segir Björgvin Kjartansson, skipstjóri „Við ætluðum fyrir Horn en það var útilokað, við sáum bara ísbreiðurnar landfastar. Við stoppuðum þarna í um hálftíma og þegar við komum til baka var ís farið að reka nærri landinu vestan við okkur. Við gátum þó krækt fyrir hann,“ sagði Björgvin Kjartansson, skipstjóri á tog- Tilboð í norska ferju: Svars að vænta í dag Eins og blaðið skýrði frá fyrir helgi hefur verið gert tilboð í nýja ferju fyrir Grímseyinga og Hríseyinga. Svars við þessu til- boði er að vænta í dag. í gær barst skeyti frá norska fyrirtækinu sem á ferjuna „Brem- nes“. Þar sagði að stjórn fyrir- tækisins hefði ekki getað komið saman til að fjalla um tilboðið í gær en í dag yrði fundur stjórnar- innar og að honum loknum gefið svar við tilboðinu. JÓH aranum Björgúlfi EA 312 frá Dalvík, sem á laugardags- morguninn lagði af stað af Vestfjarðarmiðum eftir að hafa fiskað þar um 60 tonn af þorski á hálfum öðrum sól- arhring. Björgvin sagði erfitt að eiga við veiðar við ísröndina og víst sé hætta á ferðum verði skip vélar- vana inni í ísnum. „Við getum líkt þessu við að ganga undir stiga. Maður getur alltaf átt von á því að eitthvað detti í höfuðið á manni,“ sagði Björgvin og vildi jafnframt taka fram að skipverjar á togaranum hafi ekki verið hætt komnir eins og skilja hefði mátt af frétt í DV í gær. Björgúlfur var í Reykjavík í gær þar sem togarinn landaði. Aflinn verður seldur á Faxa- markaði í dag. Fyrir höndum er löng sigling því fara verður suður og austur fyrir land. í heildina tekur þessi sigling um tvo sólar- hringa en leiðin af Vestfjarða- miðum til Dalvíkur, sé farið suð- ur fyrir land, er um 700 sjómílur. Þetta er jafn löng sigling eins og frá Austfjörðum til Hull. Miðað við fulla ferð togara er olíueyðsl- Að sögn Aðalsteins hafa um 40 manns unnið við söltunina, allt heimafólk. Þessa viku mun starfsfólk í söltuninni ganga frá tólum og tækjum áður en það fer í kærkomið jólaleyfi. í gær var saltað víðar en á Vopnafirði, í Þorlákshöfn, Grindavík og Akranesi. Söít- unarstöðvar eru allar að ljúka við söltun fyrir áramót, að sögn Kristjáns Jóhannessonar, birgða- og söltunarstjóra, hjá Síldarút- vegsnefnd. Kristján segir að nokkrir bátar eigi eftir að ljúka við kvóta og telja verði líklegt að þeir sæki um til ráðuneytis að fá að halda áfram veiðum eftir áramót. Búið er að veiða upp í samninga við Sovétmenn en ennþá vantar stór- síld upp í samning við Svía og Finna. óþh Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga: Bjóða 800 fin húsnæði fyrir sjávarútvegsbraut HA A fundi stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga í gærmorgun var ákveðið að bjóða Háskólanum á Akureyri tvær hæðir í hús- eigninni Glerárgötu 36 á Akur- eyri fyrir starfsemi sjávar- útvegsbrautar skólans. Um er að ræða samtals um 800 fm. sem skólanum er boðið til afnota endurgjaldslaust í þrjú ár. Jóhannes Sigvaldason, for- maður stjórnar KEA, segir að hugmyndin að þessu 'tilboði sé komin frá Jóhannesi Geir Sigur- geirssyni, þingmanni og stjórnar- manni í KEA. „Þetta er stuðn- ingur við Háskólann á Akureyri. Við höfum frá upphafi litið á hann sem stórt byggðamál og stórmál fyrir Akureyri og auðvit- að er hann stuðningur við byggð- arlagið.“ Við þriðju umræðu um fjálög í Alþingi á morgun er búist við til- lögu frá fjárveitinganefnd um húsnæðismál skólans. í þeim umræðum ætti því að skýrast hverja stefnu húsnæðismál sjá- varútvegsbrautarinnar taka. JÓH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.