Dagur - 04.01.1990, Síða 1

Dagur - 04.01.1990, Síða 1
73. árgangur Akureyri, fímmtudagur 4. janúar 1990 2. tölublað kaffld hressir Fulltrúar hollensku og sænsku álíyrirtækjanna: Koma til viðræðna á Akureyri í dag - munu kynna sér aðstæður í Eyjafirði Fulltrúar sænsku og hollcnsku álfyrirtækjanna úr Atlantal- hópnum, koma til Akureyrar í dag, til viðræðna við fulltrúa viðræðunefndar um stóriðju í Eyjafirði. Að sögn Sigurðar P. Sig- mundssonar framkvæmdastjóra Iðnþróunarfélags Eyfjarðar hf., sem einnig tekur þátt í viðræðun- Sjávarútvegsbraut HA: Hátíðleg opnun í dag um, verður fulltrúum álfyrirtækj- anna m.a. sýnd þau svæði sem til greina þykja koma undir álver í Eyjafirði. Auk þess munu þeir kynna sér hvaða þjónusta er í boði á svæðinu, hvernig sam- göngum er háttað og ýmislegt fleira. „Heimsókn erlendu fulltrú- anna er tilkomin vegna viðræðna Jóns Sigurðssonar iðnaðarráð- herra við forstjóra þessara fyrir- tækja í síðasta mánuði. En þó svo að þessir menn komi hingað og líti á aðstæður er ekki rétt að gera sér of miklar vonir en þetta er vissulega jákvætt spor,“ sagði Sigurður ennfremur. -KK Loðnuskipin halda nú á miðin eitt af öðru. Þórður Jónasson EA hélt til veiða í gær og þá tók KL þessa mynd, Sjávarútvegsbraut Háskólans á Akureyri verður ýtt úr vör með formlegum hætti við há- tíölega athöfn að Glerárgötu 36 á Akureyri í dag kl. 13.15. Tignir gestir verða viðstaddir. Háskólarektor, Haraldur Bessason, mun flytja ávarp og þá munu þeir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, og Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, ávarpa gesti. Forráðamenn Akureyrarbæjar verða viðstaddir og meðal ann- arra gesta má nefna Grím Valdi- marsson, forstöðumann Rann- sóknarstofnunar fiskiðnaðarins, Jakob Jakobsson, forstjóra Haf- rannsóknastofnunar, Árna Kol- beinsson, ráðuneytisstjóra í Sjáv- arútvegsráðuneytinu og Stefán Stefánsson, skrifstofustjóra há- skólaskrifstofu Menntamálaráðu- neytisins. óþh Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga á Akureyri kominn á skrið: Þegar ljóst að þrír núverandi bæjarfulltrúar munu hætta Þrír núverandi bæjarfulltrúar á Akureyri hafa þegar ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa í bæjar- stjórn. Fyrir skömmu skýrði Dagur frá ákvörðun Sigurðar Jóhannessonar, fulltrúa Fram- sóknarflokksins, í þessa veru og í úttekt blaðsins í dag á framboðsmálum til bæjar- stjórnarkosninga næsta vor segjast þau Freyr Ófeigsson og Áslaug Einarsdóttir, fulltrúar Alþýðuflokks, ákveðin í að gefa ekki kost á sér til áfram- haldandi setu í bæjarstjórn. lista til bæjarstjórnarkosninga vor. Þeir fjórir flokkar sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn eru þegar farn- ir að undirbúa lista sína. Fram- sóknarmenn munu ríða á vaðið um helgina með skoðanakönnun og síðar í mánuðinum ætla sjálf- stæðismenn að efna til forvals. Samkvæmt upplýsingum blaðsins liggur ekki fyrir ákvörðun um til- högun framboðs Alþýðubanda- lagsins og í gær var ekki ákveðið hvenær efnt yrði til prófkjörs hjá Alþýðuflokknum. Nánar er fjallað um undirbún- ing bæjarstjórnarkosninganna á Akureyri í fréttaskýringu á bls. 3 í Degi í dag. Kosið verður til bæjar- og sveitarstjórna laugar- daginn 26. maí nk. JÓH Krossanesverksmiðjan: Burðargrind hússins er óskenund - tjónið í verksmiðjunni talið minna en áætlað var Hjalteyrin II verður Frostí ÞH í byrjun næstu viku verður Hjalteyrin II afhent nýjum eig- endum á Grenivík, Frosta hf. Aðaleigandi Frosta er Jakob Þorsteinsson, skipstjóri. Samherji hf. seldi skipið til Grenivíkur, eins og áður hefur komið fram. Togarinn hét áður Álftafell og var gerður út frá Stöðvarfirði. Þorsteinn Pétursson, fram- kvæmdastjóri Kaldbaks hf. á Grenivík, segir að með kaupum þessum aukist kvóti byggðarlags- ins verulega, og séu menn því bjartsýnni nú en fyrir ári vegna fiskvinnslunnar á staðnum. Unnið var í frystihúsi Kald- baks hf. alveg til jóla, en síðan hefur vinna legið niðri þar sem ekkert hráefni berst fyrr en um miðjan janúar. Þá landar línubát- urinn Sjöfn. Eftir það verður þess skammt að bíða að landað verði úr hinum nýkeypta togara, sem mun samkvæmt heimildum blaðsins verða gefið nafnið Frosti ÞH. EHB í Dagsljósinu á bls. 3 í dag kemur fram að auk þeirra flokka sem buðu fram í síðustu kosning- um ræða fleiri framboðsmál þessa dagana. Það staðfesta jafnt fulltrúar Borgaraflokks, Samtaka jafnréttis og félagshyggju, Þjóð- arflokks og Kvennalista. Þá hefur blaðið fyrir því heimildir að hóp- ur manna á Akureyri hafi á undanförnum vikum rætt um sér- Enn sem komið er liggur ekki fyrir mat á tjóni af völdum bruna í Krossanesverksmiðj- unni aðfaranótt gamlársdags. Matsmenn frá tryggingarfé- lögunum þremur, Vátrygg- ingafélagi Islands hf., Sjóvá- Almennum og Tryggingamið- stöðinni voru að störfum í verksmiðjunni í gær og eiga enn nokkuð langt í land að meta tjónið að fullu. Við fyrstu Ellefu lagahöfundar vilja til Júgóslavíu: Taimsmiðurinn á tvö lög Hörður G. Ólafsson, tann- Jóhannsson, Gunnar Þórðarson/ smiður á Sauðárkróki, á tvö lög í 12 laga forkeppni um lag í Júróvisjón-kcppninni í ár. Texti við annað lagið er eftir Hörð en hinn á Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Hörður er fyrrverandi bassaleikari í hljómsveit Geirmundar Val- týssonar, en sá vinsæli sveiflu- kóngur sendi ekki lag í keppn- ina í ár. Aðrir höfundar laga í keppn- inni eru: Magnús Þór Sigmunds- son, Björn Björnsson, Jóhann G. Aðalsteinn Á. Sigurðsson, Eyj- ólfur Kristjánsson/Aðalsteinn A. Sigurðsson, Gísli Helgason/ Ásgeir Ingvarsson, Ingi Gunnar Jóhannsson, Friðrik K^rlsson/ Eiríkur Hauksson, Birgir Braga- son, Friðrik Karlsson, Birgir Jó- hann Birgisson/Davíð Þór Jóns- son og Bergþóra Árnadóttir. Júgóslavar fóru með sigur af hólmi í keppninni í fyrra og því fer úrslitakeppnin í ár fram þar í landi. Framundan er hins vegar spennandi keppni hér heima um framlag íslands. óþh skoöun virðist Ijóst að tæki og vélar hafí ekki skemmst eins mikið og óttast var en húsa- kynni eru hins vegar nokkuð illa leikin, en þó er Ijóst að burðargrind hússins er óskemmd. Sigurður Harðarson hjá umboði VÍS á Akureyri segir að í gær hafi komið í ljós að burðar- grind hússins sé óskemmd. Til stóð að gera á henni þolprófanir en nú er ljóst að þær reynast ekki nauðsynlegar. „í Ijósi þessa virð- ist sem tjónið sé mun minna en álitið var í fyrstu. Það tjón sem um ræðir er þá fyrst og fremst klæðning hússins og stífingar milli burðarbita.“ Hjá Tryggingamiðstöðinni er mjölkerfi verksmiðjunnar tryggt. Um er að ræða síló, sigti og skilj- ara. Ingimar Sigurðsson, hjá vátryggingadeild Tryggingamið- stöðvarinnar, segir of snemmt að segja til um skemmdir á mjöl- kerfinu. „Okkar maður á staðn- um telur að tjónið sé mun minna en í fyrstu var talið.“ Að sögn Ingimars er trygging- arfjárhæð á hlut Tryggingamið- stöðvarinnar á bilinu 120 til 130 milljónir króna. Hann segir að mjölkerfið hafi verið keypt á kaupleigu og sé af þeim sökum tryggt hjá Tryggingamiðstöð- inni. Birgir Styrmisson, hjá Sjóvá- Almennum á Akureyri, segir að reynt verði að flýta sem mest mati á tjóni véla og tækja Krossa- nesverksmiðjunnar. „Ég hygg að við höfum sloppið tiltölulega vel því við fyrstu athugun virðist tjónið vera minna en á horfðist." Að sögn Birgis eru tæki og vélar, hlutur Sjóvá-Almennra, metin á rúmar 400 milljónir króna. Krossanesverksmiðjan hefur einnig rekstrarstöðvunartrygg- ingu hjá Sjóvá-Almennum. Þær upplýsingar fengust í höfuðstöðv- um fyrirtækisins í Reykjavík í gær að rekstrarstöðvunartrygging gilti í allt að 12 mánuði og tæki mið af ársreikningi fyrra árs. Tryggingin nær til þess tíma sem verksmiðjan er ekki starfhæf. Ekki er um að ræða neina ákveðna lágmarks vátryggingar- upphæð í rekstrarstöðvunar- tryggingu. Hún ræðst af ársreikn- ingi viðkomandi fyrirtækis. Öll tryggingarfyrirtækin þrjú hafa endurtryggingu erlendis gagn- vart tjóninu í Krossanesverk- smiðjunni. óþh

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.