Dagur - 04.01.1990, Page 2

Dagur - 04.01.1990, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 4. janúar 1990 Oska eftir starfskrafti við versiunarstörf Vaktavinna. Framtíðarstarf. Uppl. um nafn, aldur og fyrri störf leggist inn á afgr. Dags merkt „Framtíðarstarf". Imiritim íyrir vorönn er hafin. Kennt verður á eftirtöldum tímuni: KI. 13.00-17.00, frá kl. 16.00-19.00 og frá Id. 18.00-21.00. Kennsla hefst um miðjan janúar. ^ Óbreytt verð ^ Tölvufræðslan Akureyri lif. Glerárgötu 34, 4. hæð, sími 27899. Léttisfélagar! Jólatrés- skemmtun verður haldin í Skeifunni, félagsheimili Léttis, laugardaginn 6. janúar kl. 2 eftir hádegi. Mætum öll með börnin! Kvennadeildin. Namskeiö hefjast 8. janúar. DANS - DANS Jazzdans: Fyrir 7 ára og eldri stelpur og stráka. Nú sem endranær verður meiriháttar fjör í dansin- um. Gestakennarinn, Bryndís Einarsdóttir kemur í febrúar með allt það nýjasta í jazzi og funki frá New York. Látið ykkur ekki vanta í fjörið. Jazzleikskóli: Fyrir 4-6 ára börn. Þroskandi tímar sem stuðla m.a. að einbeitingu við samhæfingu huga- og líkama. Dans - söngur - leikir - leikræn tjáning. Innritun og upplysingar í síma 24979 frá kl. 14-20. Skirteinaafhending og greiðsla sunnudaginn jan. frá kl. 14-16. Tryggvabraut 22 Akureyri s,™ 24979. 7. brosum/ í umferðinni ^ - og aUt gengur betur! • ||UMFERÐAR fréttir Sjávaraíli landsmanna 1989: Þorskuríiin dettur en ýsuafli með því besta - útflutningsverðmæti 57,5 milljarðar króna Heildarafli 1969-1989 Þúsundir tonna 2000 - 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 Þorskafli 1968-1989 Þúsundir tonna i' r""n r—r i r . 1 n 1 i—i 1 r i—T v—’ 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 Árin Samkvæmt áætlun Fiskifélags Islands verður heildarafli árs- ins 1989 um 1522 þúsund tonn, eða öllu minni en metárið 1988 þegar sjómenn Islands veiddu 1752 þúsund tonn. Þetta verð- ur þó sjötta árið í röð sem heildaraflinn fer yfir 1500 þús- und tonn eða síðan aflabrögð komust í samt horf eftir hrunið 1982 og 1983 er aðeins veidd- ust 786-835 þúsund tonn. Loðnan hvarf 1982 og þorsk- afli minnkaði mikið árið eftir. Ef við lítum á einstakar teg- undir í þessari spá og berum sam- an við endanlegar tölur frá fyrri árum þá veður þorskaflinn 352 þúsund tonn, eða um 6,4% minni en 1988 þegar hann var 376 þús- und tonn. Arið 1987 veiddust 390 þúsund tonn af þorski. Ýsuaflinn eykst verulega ann- að árið í röð og verður um 13,2% meiri en árið á undan og miðað við árið 1987 er aukningin 53,8% og er ýsuaflinn farinn að nálgast það sem hann var þegar best lét, þ.e. um eða yfir 60 þúsund tonn. Ufsaaflinn eykst um 3 þúsund tonn og verður 77 þús. tonn, en hins vegar minnkar karfaaflinn um 3 þúsund tonn og verður 91 þúsund tonn. Grálúðuaflinn var að jafnaði um 29 þúsund tonn á ári á tímabilinu 1982-1986 en hef- ur tekið góðan kipp síðastliðin þrjú ár og samkvæmt spá Fiski- félagsins verður hann 59 þúsund tonn á árinu 1989. Grálúðan er því orðin mjög mikilvæg útflutn- ingsafurð. Humaraflinn minnkar dálítið, rækjuafli minnkar um 3 þúsund tonn en hörpudiskur veiðist í meira magni. Loðnuaflinn minnkar á hinn bóginn úr 909 þúsund tonnum í 678 þúsund. Ástæðan er sú að haustvertíðin brást og var aflinn þá aðeins 56 þúsund tonn á móti 311 þúsund tonnum árið á undan. Hráefn- isverð loðnunnar hefur minnkað um 39,4% milli ára. Fiskifélagið áætlar að andvirði útflutnings sjávarafurða 1989 verði 57,5 milljarðar króna. Árið 1988 nam andvirði útfluttrar sjáv- arvöru 45,2 milljörðum, en í doll- urum talið er hér um samdrátt að ræða upp á tæp 4%. SS Framsóknarfélögin á Akureyri: Skoðanakönmin vegna bæjarstjóraarkosninga Skoöanakönnun verður haldin á föstudag og laugardag meðal flokksbundinna félaga í Fram- sóknarfélagi Akureyrar og Félagi ungra framsóknar- manna á Akureyri vegna upp- stillingar á framboðsiista til bæjarstjórnarkosninga í vor. í fréttatilkynningu segir að á fundi í fulltrúaráði framsóknar- félaganna á Akureyri 30. nóvember sl. hafi verið samþykkt að fram færi skoðanakönnun meðal flokksbundinna framsókn- armanna á Akureyri, til að fá fram hverja þeir vilji hafa í 6 efstu sætum framboðslista flokks- ins í komandi bæjarstjórnarkosn- ingum í maí í vor. Ákveðið hefur verið að skoð- anakönnun þessi fari fram nk. föstudag 5. janúar og laugardag- inn 6. janúar. Kosið verður á skrifstofu Framsóknarflokksins að Hafnarstræti 90, Akureyri, en þar er sími 21180. Kjörstaður verður opinn á föstudag frá kl. 16.00 - 22.00 og laugardag kl. 10.00 - 16.00. Uppstillingarnefnd hvetur félaga í framsóknarfélögunum á Akureyri eindregið til að taka þátt í könnuninni og hafa með því áhrif á val efstu manna á Innbrot í Apótekið í Ólafsfirði er enn óupplýst. Rannsóknar- lögreglan á Akureyri hefur með höndum rannsókn máls- ins en í gær höfðu engar nýjar vísbendingar komið fram. Ekki er Ijóst hvort þarna var einn eða tveir menn að verki en að sögn rannsóknarlögregl- unnar bendir fleira til að einn maður hafl þarna verið á ferð. Vitað er að þjófurinn eða þjóf- arnir stálu rúmum 30 þúsund krónum úr peningakassa Apó- teksins en fullvíst þykir að lyfjum hafi ekki verið stolið. Brotist var inn í kjallara um framboðslista flokksins í kom andi bæjarstjórnarkosningum. glugga á bakhlið Apóteksins og þaðan lá leiðin upp í verslunina. Apótekari bjó í íbúð í kjallara hússins en var nýlega fluttur þaðan. Þá má geta þess að þjófa- varnarkerfi í Apótekinu hefur verið bilað um hríð. Þjófnum eða þjófunum var ekki nóg að stela úr peninga- kassa, heldur dreifðu þeir smokkum út um alla verslun. Þrátt fyrir hugmyndaflug og góð- an vilja hefur engum tekist að skýra þann gjörning. Þá hefur einnig reynst erfitt að skýra þá athöfn að drukkið var úr tveim flöskum af límonaði, sem voru í ísskáp Apóteksins. óþh EHB Innbrotið í Apótekið í Ólafsfirði óupplýst: Dreifðu smokkum og drukku límonaði

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.