Dagur - 04.01.1990, Page 7

Dagur - 04.01.1990, Page 7
Fimmtudagur 4. janúar 1990 - DAGUR - 7 íþróttamaður Húsavíkur 1989, Ásmundur Arnarsson tekur við bikarnum sem nafnbótinni fylgir af Ingólfi Freyssyni, formanni Yölsungs. Iþróttamaður Húsavíkur - Ásmundur Arnarsson: „Finnst þetta heldur snemmt“ Ásmundur Arnarsson, íþrótta- maður Húsavíkur 1989 er 17 ára og stundar bæði handbolta og fótbolta. Fyrir ári síðan var hann í keppninsferð um jólin í Israel með íslenska unglinga- landsliðinu. Hann lék hand- bolta með Þór í fyrravetur og var liðið í þriðja sæti á íslands- mótinu. Ásmundur leikur með Völsungi í vetur. Þess má geta að hann skoraði 16 mörk af 33 sem liðið gerði í leik á móti Þrótti-b. í sumar lék hann fót- bolta með liði Völsungs í ann- arri deild íslandsmótsins. Dagur óskaði Ásmundi til hamingju með titilinn að aflok- inni verðlaunaafhendingunni og spurði hvort hann hefði átt von á að hljóta þennan heiður. „Nei, ég get ekki sagt það.“ - Finnst þér þú ekki eiga þetta skilið? „Ég veit það ekki alveg. Mér finnst heldur snemmt að fá þetta.“ - Hvernig var tilfinningin að hljóta bikarinn? „Það var mjög góð tilfinning, þetta er náttúrlega mikill heið- ur.“ - Að hverju stefnir þú núna? „Að halda ótrauður áfram.“ - Hverju þakkar þú árangur- inn? „Miklum æfingum, númer eitt, tvö og þrjú. Einnig stuðningi heimafyrir.“ Foreldrar Ásmundar og móð- urforeldrar voru á hátíðinni og samfögnuðu honum. Stuðningur- inn heimafyrir er án efa kominn til af þekkingu og reynslu á þessu sviði. Faðirinn, Arnar Guðlaugs- son er þjálfari hjá Völsungi, og er kunnur handbolta- og fótbolta- maður. Móðirin, Bergljót Ás- mundsdóttir var vel liðtæk á handboltavellinum og tók einnig þátt í frjálsum íþróttum. Amman, Kristrún Karlsdóttir hefur verið sunddrottning á Suðurnesjum, og afinn, Ásmund- ur Bjarnason var spretthlaupari, setti fjölda íslandsmeta, keppti á Evrópumótum unglinga og tvisv- ar á Olympíuleikum. IM Ásmundur Arnarsson, ásamt afa sínum Ásmundi Bjarnasyni, sem fyrr á árum átti fjölda Islandsmeta í spretthlaupum og keppti m.a. tvisvar á Ólympíuleikum, og fööur sínum, Arnari Guölaugssyni, þjálfara og kunnum hand- og fótboltamanni. Mamma, systir og amma íþróttamanns Húsavíkur, Bergljót Bjarnadóttir, þekkt handbolta- og frjálsíþróttakona, litla systir er ekki búin að velja sína íþróttagrein en amma, Kristrún Karlsdóttir var sunddrottning á Suðurnesj- um. Regína Sigurgeirsdóttir, Yölsungur ársins með bikarinn. Ingólfur Freysson, formaður íþróttafélagins Yölsungs, afhendir Regínu Sigurgeirsdóttur bikar eftir að lýst hafði ver- ið yfir að stjórn hefði valið Regínu Yölsung ársins. Bikar þessi er gjöf frá ISI til félagsins til minningar um Hallmar Frey Bjarnason, fyrrverandi formann þess og föður Ingólfs. Völsungur ársins - Regína Sigurgeirsdóttir: „Finnst vel að okkur búið“ Regína Sigurgeirsdóttir sem valin var Völsungur ársins er 16 ára. Regína stundar blak núna en hefur einnig verið í fótbolta og handbolta. Fót- bolta stundaði hún í fyrravetur en hætti eftir síðasta leikinn í júlí. Hún var í handbolta eftir áramótin í fyrra og reiknar með að svo verði einnig í vetur, en þá á að æfa fyrir landsmót. Regína segist stunda íþróttir ánægjunnar vegna. Dagur óskaði henni til ham- ingju með titilinn og spurði hvort hún hefði einnig verið dugleg við félagsmálin. „Ég reyni allavega aö taka þátt í þeim. Ég veit ekki til að ég hafi gert neitt sérstakt en tek þátt þegar unnið er við að bera út og ýmislegt þannig.“ - Hverju þakkarðu árangur- inn sem þu hefur náð? „Félaginu. Mér finnst vel að okkur búið og vilji til að bæta allt og allir í félaginu vera jákvæðir.“ - Færðu góðan stuðning heima fyrir? „Já. Mamma er í blaki og pabbi er í stjórn Völsungs, en hann var mikið á skíðum fyrr á árum.“ - Áttir þú von á þessari viður- kenningu? „Nei, ég átti ekki von á þessu en er þakklát öllum félagsmönn- um.“ „Foreldrar Regínu eru Mar- grét Sveinbjörnsdöttir, deildar- stjóri og Sigurgeir Aðalgeirsson, framkvæmdastjóri. IM

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.