Dagur - 04.01.1990, Page 11
íþróttir
Fimmtudagur 4. janúar 1990 - DAGUR - 11
Hver verður vaJiirn
„íþróttamaður
Norðurlands“ 1989?
Nú styttist í það að Dagur
útnefni „íþróttamann Norður-
lands 1989“ og verður það í
fjórða skiptið sem blaðið
stendur fyrir slíkri útncfningu.
í fyrra hlaut Guðrún H. Krist-
jánsdóttir skíðakona frá Akur-
eyri titilinn en einnig hafa þau
Halldór Áskelsson knatt-
spyrnumaður frá Akureyri,
Daníel Hilmarsson skíðamað-
ur frá Dalvík og Kári Elíson
kraftlyftingamaður frá Akur-
eyri hlotið titilinn.
Eins og undanfarin ár gefst les-
endum blaðsins kostur á því að
taka þátt í valinu og hafa þannig
áhrif á það hver hlýtur titilinn að
þessu sinni. Fimm íþróttamönn-
um verður veitt viðurkenning og
auk þess hlýtur „íþróttamaður
Norðurlands 1989“ glæsilegan
farandbikar til varðveiðslu í eitt
ár.
í dag og næstu daga verður
þátttökuseðill í blaðinu og eiga
lesendur að skrifa fimm nöfn á
hann og senda blaðinu fyrir 20.
janúar næstkomandi. Þrír þátt-
tökuseðlar verða dregnir út og
hljóta eigendur þeirra hljóm-
plötuvinning að launum. Það er
því til einhvers að vinna um leið
og höfð eru áhrif á val „íþrótta-
manns Norðurlands 1989“.
Lesendur eru hvattir til að
bregðast skjótt við og senda blað-
inu seðilinn útfylltan fyrir 20.
janúar.
íþróttamaður
Norðurlands 1989
Nafn íþróttamanns: fþróttagrein:
1.
2.
Þorvaldur Örlygsson er annar tveggja Norðlendinga sem er í 10 inanna úr-
slituni í kjörinu um íþróttamann ársins 1989.
KA velur
íþróttamann
ársins 1989
Á sunnudaginn kemur, 7.
janúar verður upplýst hver j
kosinn verður íþróttamaður
KA 1989. íþróttamaður KA
var í fyrsta skipti útnefndur á
síðasta ári, en þá hlaut Guð-
laugur Halldórsson júdómaður
titilinn.
Eins og í fyrra koma margir
íþróttamenn til greina að þessu
sinni og verður vafalaust spenn-
andi að sjá hver nær kjöri.
Það er aðalstjórn KA sem
greiðir atkvæði í kjörinu á
Iþróttamanni KA en á listum eru
íþróttamenn sem tilnefndir eru af
deildum félagsins. Hver deild tii-
nefnir tvo menn úr sínum röðum
og auk þess einn íþróttamann úr
annari deild. Veglegur bikar er
afhcntur þeim íþróttamanni sem
verður fyrir valinu, en sömuleiðis
verða veittar viðurkenningar
þcini íþróttamönnum sem lentu í
2. og 3. sæti í kjörinu. Það var
KA klúbburinn í Reykjavík sem
gaf bikarinn sem íþróttamaður
KA varðveittir í eitt ár. VG
íþróttamaður ársins krýndur í kvöld:
Tveir Norðlendingar í hópnum
- Alfreð Gíslason og Porvaldur Örlygsson
3.
4.
5.
Nafn:
Sími:
Heimilisfang:
Sendið til: íþróttamaður Norðurlands 1989
c/o Dagur, Strandgötu 31, 600 Akureyri.
Skilafrestur til 20. janúar 1988.
í kvöld verður tilkynnt hver
hlýtur titilinn íþróttamaður
ársins 1989 á íslandi. Það eru
samtök íþróttafréttamanna
sem standa að kjörinu. Birtur
hefur verið listi yfir 10 íþrótta-
menn sem hlutu flest atkvæði í
kjörinu en hver hreppir hnoss-
ið kemur í Ijós í kvöld. Vert er
að benda á að að tveir Akur-
eyringar eru á listanum; Alfreð
Gíslason handknattleiksmaður
og Þorvaldur Örlygsson knatt-
spyrnumaður.
Hófið fer fram á Hótel Loft-
leiðum og er búist við fjölda
manns til að fylgjast með kjör-
inu. Því verður lýst beint á
íþróttarásinni á Rás 2 í Ríkisút-
Fjölhæfir íþróttamenn:
Sigruðu í fijálsum, lyftingum,
júdó og kraftlyftingum
varpinu og hefst útsending kl.
20.00.
í fyrra hlaut Einar Vilhjálms-
son spjótkastari titilinn eftir
harða keppni við Hauk Gunnars-
son fatlaðan frjálsíþróttamann.
Einar kemst aftur á listann þetta
árið en Haukur dettur út enda
bar ekki mikið á fötluðum
íþróttamönnum á síðasta ári.
Handknattleiksmenn og knatt-
spyrnumenn eru áberandi á list-
anum þetta árið enda náðu lands-
liðin í báðum íþróttagreinum
góðum árangri á árinu. Islenska
knattspyrnulandsliðið hefur
aldrei verið jafn nálægt því að
komast í úrslit í Heimsmeistara-
keppninni og sigur handknatt-
leikslandsliðsins í B-heimsmeist-
arakeppninni er mönnum enn í
fersku minni.
Bjarni Friðriksson og Ragn-
heiður Runólfsdóttir áttu mjög
gott íþróttaár og það kemur því
ekki á óvart að þau skuli komast
á þennan lista. Sigurður Einars-
son var líklegast sá íþróttamaður
sem kom einna mest á óvart á
síðasta ári og skaut sjálfum Einari
Vilhjálmssyni aftur fyrir í árangri
á árinu.
Það þarf ekki að fjölyrða um
árangur Þorvaldar Örlygssonar
KA-manns á árinu en það vekur
nokkra athygli að bæði Ásgeir
Sigurvinsson og Arnór Guð-
johnsen komust á listann en þeir
áttu við meiðsli að stríða á síð-
asta ári.
Handknattleiksmennirnir
Alfreð Gíslason, Kristján Ara-
son og Þorgils Óttar Mathiesen
stóðu sig vel með íslenska lands-
liðinu á síðasta ári og einnig með
sínum félagsliðum.
En lítum þá á listann yfir þá 10
íþróttamenn sem möguleika eiga
á því að hljóta titilinn:
Alfreð Gíslason handknattleikur
Arnór Guðjohnsen knattspyrna
Ásgeir Sigurvinsson knattspyrna
Bjarni Friðriksson júdó
Einar Vilhjálmsson spjótkastari
Kristján Arason handknattleikur
Ragnheiður Runólfsdóttir sund
Sigurður Einarsson spjótkastari
Þorgils Óttar Mathiesen hand-
knattleikur
Þorvaldur Örlygsson knattspyrna
Þeir Torfi Ólafsson og Flosi
Jónsson stóðu í ströngu á milli
jóla og nýárs. Þeir eru nú
þekktastir fyrir afrek sín í
kraftlyftingum og unnu sína
flokka í bekkpressumóti 31.
desember. En þeir tóku einnig
þátt í frjálsíþróttamótum, lyft-
ingamóti og Torfi bætti um
betur og snaraði andstæðing-
um sínum hátt á loft á júdó-
móti rétt fyrir áramótin.
Torfi byrjaði á að vinna sigur í
kúluvarpi á Jólamóti UFA í frjáls-
um íþróttum á fimmtudaginn.
Þess má geta að á sama móti tók
hann þátt í hástökkskeppninni og
felldi 1,20 naumlega! A föstudag-
inn tók hann þátt í júdómóti KA
og felldi alla andstæðinga sína
nokkuð örugglega. Á laugardag
tók hann þátt í lyftingamóti og
keppti hann þar í +110 kg flokki.
Þar setti hann þrjú Akureyrar-
met, 95,5 kg í snörun, 120 kg í
Torfi Ólafsson með sigurkast sitt í
kúluvarpi á jólamóti UFA.
jafnhendingu og 215 kg í saman-
lögðu. Síðan keppti hann í bekk-
pressu á sunnudag og lyfti 182,5
kg og sigraði í +125 kg flokki.
Flosi Jónsson stóð sig einnig
vel á milli hátíðanna. Hann
keppti á föstudaginn á Jólamóti
UMSE í frjálsum íþróttum og
sigraði þar í tveimur greinum;
kúluvarpi og langstökki án
atrennu. Á laugardag keppti
hann í 110 kg flokki í lyftingum
en það eru nú 20 ár síðan Flosi
hóf keppni í lyftingum. Hann
sigraði auðvitað örugglega í sín-
um flokki og setti þrjú ný Akur-
eyrarmet; 100 kg í snörun, 125 kg
í jafnhendingu og 225 kg í
samanlögðu. Flosi fór síðan auð-
vitað létt með að leggja andstæð-
inga sína í bekkpressunni á
sunnudag.
Það er greinilegt að þessi kraft-
lyftingamenn eru ekki við eina
fjölina felldir og fara létt með að
vippa sér úr einni grein í aðra.
Hörður og Freydís
þjálfa hjá HSÞ
Hjónin Hörður Bcnonýsson
og Freydís Anna Arngríms-
dóttir munu taka að sér þjálf-
un hjá HSÞ næsta sumar.
Hörður þjálfar meistara-
flokkslið HSÞ-b í knatt-
spyrnu en Freydís Anna mun
stjórna sund- og frjálsíþrótta-
æfingum hjá félaginu.
Reyndar er ekki búið aö
skrifa undir samning við þau en
það verður aö öllurn líkindum
gert um næstu helgi.
Hörður er margrcyndur
knattspyrnumaður og mun
styrkja liö HSÞ-b mikið í 4.
deildinni næsta sumar. Hann
lék síðasta sumar með Völsung-
um í 2. deildinni en lék í 1.
deildinni með Leiftursmönnum
á Ólafsfirði.
Knattspyrnudeild HSÞ-b ætl-
ar að ræða við Vopnfirðingana
Viðar Sigurjónsson og Stefán
Guömundsson um þjálfun yngri
flokka félagsins og munu þeir
þá aö sjálfsögðu leika áfram
með liðinu. Það má því búast
við björtu sumri í knattspyrn-
unni í Mývatnssveit næsta
sumar.