Dagur - 06.01.1990, Page 1

Dagur - 06.01.1990, Page 1
73. árgangur Akureyri, laugardagur 6. janúar 1990 4. tölublað Filman þm á skihö þaö besta1 Nýja Filmuhúsið Hafnarstræti 106 - Sími 27422 ’ Pósthólf 196 H-Lúx gæðaframköllun Hrað- framköllun Opið á laugardögum frá kl. 9-12. Greiðslustöðvun Dags og Dagsprents lýkur á morgun: Það kemur þennan IM® - Útgáfa blaðsins með óbreyttum hætti áfram - Vandi fyrirtækjanna leystur með hlutaíjáraukningu Engin breyting verður á útgáfu Dags þegar greiðslustöðvunar- tímabili blaðsins Iýkur á morgun, sunnudag. Rekstur Dagsprents hf. mun einnig verða með svipuðu sniði áfram. Gert er ráð fyrir að hlutafé í Dagsprenti hf. verði aukið mjög verulega og gerður verði samningur um að Dags- prent hf. yfírtaki rekstur Dags. Hluthafafundur í Dagsprenti hf. mun taka afstöðu til hluta- fjáraukningarinnar í næstu viku og eru allar líkur taldar á að af henni verði. Stærsti hlut- hafínn í Dagsprenti hf. er Kaupfélag Eyfirðinga og liggur þegar fyrir samþykkt stjórnar KEA um að leggja fram veru- legt viðbótarhlutafé. Hluthafar í Dagsprenti hf. eru alls á ann- að hundrað talsins og verður þeim gefínn kostur á að auka hlutafé sitt og loks verður nokkur hluti boðinn til sölu á almennum markaði. I drögum að samningi milli Dags og Dagsprents er gert ráð fyrir að núverandi eigendur Dags, Framsóknarféiag Akureyrar og Framsóknarfélag Eyjafjarð- ar, fá hlut sinn í blaðinu greiddan með hlutabréfum í Dagsprenti hf. en endanleg ákvörðun um þau mál er háð samþykki félaganna. Eins og kunnugt er fengu Dag- ur og Dagsprent hf. þriggja mán- aða greiðslustöðvun í byrjun ágúst sl. til að ráðrúm gæfist til að leysa bráðan rekstrarvanda fyrir- tækjanna. Sá vandi fólst fyrst og fremst í erfiðri lausafjárstöðu vegna mikilla fjárhagsskuldbind- inga. Greiðslustöðvunin var síð- an framlengd um tvo mánuði í byrjun nóvember og lýkur sem fyrr segir á morgun. A þessum tíma hefur allra leiða verið leitað til að tryggja áframhaldandi rekstur Dags og Dagsprents hf. M.a. voru gerðar ítrekaðar til- raunir til að selja húseignir fyrir- tækjanna við Strandgötu, að hluta til eða í heild, en án árang- urs. Byggðastofnun hafði um tíma áhuga á að kaupa húseign- irnar, með þeim skilyrðum að Akureyrarbær keypti síðan eða leigði af stofnuninni svo og að Dagsprent hf. og Prentverk Odds Björnssonar sameinuðust í fram- haldi af því. Forráðamenn Akur- eyrarbæjar höfðu þegar til kom ekki áhuga á þeirri lausn. Það vekur vissulega athygli að At- vinnumálanefnd Akureyrar sýndi þessu máli engan áhuga, þótt um væri að ræða atvinnu nokkurra tuga manna og útgáfu eina dag- blaðsins sem gefið er út utan höfuðborgarsvæðisins. „Með þessum breytingum telja stjórnir fyrirtækjanna sig treysta rekstur þeirra mjög verulega. Samkvæmt 9 mánaða uppgjöri beggja fyrirtækja hefur afkoman batnað mjög verulega frá fyrra ári og rekstrarbatinn er augljós. Þær ráðstafanir sem gripið var til í lok árs 1988 og á síðasta ári eru farnar að skila árangri og við horfum á það með vissri bjartsýni að hægt verði að hafa styrkan og kraftmikinn rekstur á blaði og prentsmiðju í framtíðinni," sagði Sigurður Jóhannesson formaður stjórna Dags og Dagsprents hf. í samtali við Dag. Hann sagði jafn- framt að þrátt fyrir væntanlega hlutafjáraukningu í Dagsprenti yrði áfram reynt að selja hluta af húseignum fyrirtækjanna við Strandgötu. Sigurður lagði áherslu á að þrátt fyrir þessar ráðstafanir þyrfti að hafa fulla aðgæslu á rekstrinum, því skuldir væru ennþá mjög miklar. „Efna- hagsástandið í landinu býður ekki upp á mikla bjartsýni í rekstri og við þurfum því að feta okkur varlega áfram í rekstrinum á næstunni. í mínum huga er þó mest um vert að með endurskipulagningu á rekstri og hlutafjáraukningu í Dagsprenti er búið að tryggja fjárhagslega stöðu Dags og þar með áframhaldandi útgáfu blaðsins. Ég vil nota tækifærið og þakka Norðlendingum þann dygga stuðning sem þeir hafa sýnt blaðinu í erfiðleikum þess. Ég tel það gott dæmi um hug Norðlendinga til blaðsins að áskrifendum þess hefur fjölgað eftir að greiðslustöðvunartíma- bilið hófst. Á þann hátt hafa menn sýnt samstöðuna í verki og viljann til þess að hér á Norður- landi verði áfram gefið út mynd- arlegt dagblað. Fyrir það er ég afar þakklátur,“ sagði Sigurður Jóhannesson að lokum. BB. Eldsupptök í Krossanesi: Ketillirm er sökudólgurinn Eldsvoði í Krossanesverk- smiðjunni aðfaranótt gamlárs- dags er rakinn til ketils í kyndi- klefa. Þetta er niðurstaða rannsóknarlögreglunnar á Akureyri á eldsupptökum. Fljótt beindust augu að kyndi- klefanum og þykir nú víst að sá grunur var á rökum reistur. Umræddur kyndiklefi er í miðju Krossaneshúsinu. Líklegt er talið að ketillinn hafi stíflast af sóti vegna lélegrar brennslu. Pá er hugsanlegt að orðið hafi ketilsprengingar vegna sótlaga og þannig komið upp eldur í kyndi- klefanum og hann síðan breiðst út um verksmiðjuna. óþh Hjá sýslumanni Húnavatns- sýslu voru þingfest uppboðs- mál nær 30 talsins á síðasta ári. Þetta er fækkun frá árinu 1988. Átta af þessum málum leiddu til endanlegra sölu á eignum þar af þrjú vegna gjaldþrots fyrir- tækja. Þá voru innsendar beiðnir Bros á dag kemur skapinu í lag. Sýslumaður Húnavatnssýslu: Átta uppboð á síðasta ári - uppboðsbeiðnir 108 um nauðungaruppboð 108 á síð- asta ári á móti 148 árið á undan. Jón ísberg sýslumaður sagði að af þessum átta væri um að ræða endursölu á einni jörð vegna þess að ekki var staðið við tilboð og önnur var boðin upp aftur vegna lágs tilboðs. Hann sagði að yfir- leitt kæmi fólk strax og greiddi sínar skuldir þegar beiðni hefði borist um nauðungaruppboð á eignum þess. kj Helgarveðrið Breytileg átt ogvægtfrost Spáð er breytilegu veðri um helgina á Norðurlandi, ekki er útlit fyrir mikið frost. Vindur verður hægur og suðlægar áttir ríkjandi á sunnudag. 1 dag verður breytileg átt norðanlands, gola eða kaldi og víða slydduél frameftir degi. Þurrt verður seinni hluta dags. Á sunnudag verður hæg sunn- an- eða suðvestanátt ríkjandi á Norðurlandi, einhverri úrkomu er spáð fyrri hluta sunnudags. Hitastig sunnudags verður 0-4 gráður. Hætt er við hálku á vegum, næturfrosti er spáð á sunnudagskvöld og aðfaranótt mánudags. Veðurfræðingar sögðu veður- horfur á mánudag og þriðjudag það óvissar að þeir vildu ekki spá um þær að sinni. EHB Mynd: KL

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.