Dagur - 06.01.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 6. janúar 1990
tómstundir
Jólakortasafnari á Húsavík:
„Gæti verið við þetta allt árið
frá morgni til kvölds“
- segir Bergsteinn Karlsson
Hvað skyldi verða um öll jólakortin sem okkur eru send? Ég geymi mín kort
óopnuð fram á aðfangadagskvöld og nýt þess að opna þau, þessa stund þegar að
ró færist yfir eftir að allir hafa opnað pakkana sína og yngra fólkið ver til að
skoða innihald þeirra svolítið nánar. Mér finnst ósköp indælt að fá jólakveðju
á korti, þakkir fyrir liðnar samverustundir, eða að vera minntur á eitthvað
skemmtilegt. Kortin'eru frá nánum ættingjum og vinum, kunningjum og fólki
sem ég hef á einhvern hátt tengst á lífsleiðinni. Þau eru send af góðum hug og
bera með sér kveðjur og ljúfar minningar. Alltaf leynist eitthvað bráðskemmti-
legt í kortabunkanum, kannski hefur einhver gleymt að skrifa nafnið sitt undir
kveðjuna sína í öllu jólaannríkinu, og þá er að rýna í póststimpilinn og skriftina
og reyna að geta sér til hvaða persónuleiki er líklegur til að gera svona skemmti-
leg smámistök. Þessi kort, kortin sem við erum ekki alveg viss frá hverjum eru,
heimatilbúin kort og kort sem minna á glaðar stundir eru skemmtileg tilbreyt-
ing. Sumar kveðjurnar eru hlýlegri en aðrar, og það er notalegt um jólin að vera
minntur á góðar stundir og trausta vináttu. Eftir jól tek ég kortabunkann,
pakka honum niður með jólaskrautinu og lít svo á hann fyrir næstu jól þegar
kemur að því að senda jólakveðjurnar.
Líklega fá jólakort margra
svipaöa meðferð og kortin mín
nema hvað talsvert margir eru
svo drífandi og duglegir að henda
kortunum sínum strax eftir jól.
Þó er til fólk sem ekki liendir
kortum heldur safnar þeim, og
það bæði sínum kortum og ann-
arra, nýjum kortum og gömlum
kortum og eldgömlum kortum,
Ijótum kortum og fallegum
kortum, jólakoctum, póstkort-
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR
Þt?eí)tiáiiidágjéðjí
íþrótlafélagsins Þórs
verður haldin laugardaginn 6. janúar kl. 17 á
íþróttasvæði Þórs.
Skemmtiatriði m.a:
Halli og Laddi.
Bjartmar Guðlaugsson.
Jóhann Már Jóhannsson
Álfakóngur og drottning mæta á svæöið álfar,
tröll, púkar og ýmiss konar furðuverur skemmta
börnum og fullorðnum.
sirtemmis;
Aðgangseyrir aðeins kr. 500.—
Frítt fyrir 6, ára og yngri.
Flugeldasala í Hamri frá kl. 13.00
Flugeldar og blys á stórlækkuðu verði.
Brennuball Þórsara verður haldið í Húsi
aldraðra á laugardagskvöldið.
Þar skemmta m.a Halli og Laddi, Bjartmar Guðlaugsson og fleiri.
Húsið opnað kl. 21.00 — Allir Þórsarar velkomnir.
4Í
fþróttafélagið Þór Akureyri.
Bergsteinn sýnir Björgu dóttur sinni kortaalbúm, en Björg er spilasafnari og
á rúmiega 600 gerðir spila.
um, tækifæriskortum og allskon-
ar kortum. Einn þessara korta-
safnara er Bergsteinn Karlsson,
Baughóli 12 á Húsavík. Hann
hefur undanfarnar vikur auglýst í
fjölmiðlum og beðið fólk að
henda ekki kortum, en láta sig
heldur hafa þau. Dagur leit við
hjá Begga rétt fyrir jólin, svona
til að athuga hvort þar væri orðið
fullt hús korta. Svo reyndist nú
ekki vera, en það var kominn
slatti í eitt herbergið."
- Beggi, þú ert ekki einn af
þeim sem hendir kortunum sínum
eftir jólin?
„Ég safna öllum kortum, bæði
jólakortum og póstkortum og hef
gert það síðan 1982. Gömul kort
leynast víða hjá fólki, bæði í
kjöllurum og á háaloftum. Stund-
um er fólk fastheldið á gömlu
korin sín en ég hef keypt mikið af
gömlum kortum á uppboðum og
fornsölum. Þetta getur stundum
verið dýrt tómstundagaman."
- Leggurðu áherslu á að safna
helst einhverri ákveðinni gerð
korta?
„Já, fyrst og fremst kortum úr
Þingeyjarsýslu, en að þeim eru
margir útgefendur og eftir þeim
flokka ég kortin. Öll þessi gömlu
kort, frá aldamótum til 1930, eru
gersemar. Ég safna líka nýjum
kortum, en það er talsvert mikið
gefið út af þeim og erfitt að ná
þeim öllum. Svo er aldrei hægt að
hætta að safna því það koma allt-
af ný og ný kort."
- Hvernig viðbrögð hefur þú
fengið við auglýsingunum eftir
kortum?
„Frekar lítil, fólki finnst þetta
asnalegt. Margirspyrja hvort það
sé ekki nóg að fá myndina fram-
an af kortinu, og vilja ekki láta
sjást hvað skrifað er á þau. Ég vil
fá kortin í heilu lagi, en læt ekki
sjást eða lími yfir það sem skrifað
er á þau, það er ekki það sem ég
er að sækjast eftir heldur kortin
sjálf.
Það eru þó nokkuð margir sem
safna kortum og sumir hverjir
hafa gert það nokkuð lengi en
einnig eru nýir safnarar að byrja.
Það er allt of lítið samband milli
kortasafnara og kortaklúbbur
sem var til í Reykjavík starfar
ekki lengur."
- Er kortasöfnun tímafrek?
„Ég gæti verið við þetta allt
árið, frá morgni til kvölds. Ég
flokka kortin og skrifa upp heim-
ildir um þau; hver útgefandinn er
og hvað er á myndunum. Ég á
rnikið óunnið við safnið mitt og
kvíði ekki ellinni."
J>ó Beggi segist hlakka til að
komast á eftirlaunaaldurinn, þá
er nokkur tími þangað til þar sem
hann er rétt rúmlega þrítugur.
Beggi vill ekki gefa upp neinar
tölur um fjölda kortanna sinna,
en hann á mörg albúm og sýnir
innihald þeirra fúslega, og
útskýrir ýmislegt skemmtilegt og
fróðlegt sem ekki tekst eftir í
fljótu bragði. Það má lesa margt
af gömlum myndum ef athyglis-
gáfan er í lagi. Eitt af uppáhalds-
kortum Begga er með mynd af
Húsavíkurkirkju sem tekin er
fyrir 1910. í bakgrunni sést hluti
af stóru timburhúsi, sem brann
það ár, á götunni framan við
kirkjuna er maður og einnig tvö
börn sem bera á milli sín fötu.
Fljótt á litið er þarna gömul
mynd af kirkjunni, en þegar betur
er að gáð má lesa margsháttar
sögu um horfna tíð af þessari
einu mynd. Auk kortanna safnar
Beggi frímerkjum og afmælis-
og minningargreinum, sem hann
hefur áhuga á vegna upplýsinga
um ættfræði sem hann er svolítið
að grúska í. Einnig gæti Beggi
hugsað sér að safna bókum, en
finnst heldur dýrt að ráðast í
slíka söfnum í stórum stíl.
- Hvað gefur kortasöfnunin
þér?
„Hvíld og ró. Ánægju, það er
alltaf gaman að finna eitthvað
gamalt og á kortunum eru heim-
ildir, þar sjást breytingar, t.d.
eins og á myndum frá Húsavík,
þar sést hvað búið er að byggja.
Einnig hvaða breytingar verða á
landinu, hólum er rutt niður og
nú er t.d. Stórhóllinn farinn. Ég
hef margt í huga þegar ég skoða
hverja mynd, nt.a. hvar ljós-
myndarinn er staðsettur þegar
hann tekur myndina. Korta-
söfnunin er mjög gefandi, ég hef
lært mikið í landafræði og að
þekkja staði á íslandi, en á mörg-
um gömlum kortum er ekki getið
hvaðan myndin er, eða hver
útgefandinn er, en ég safna
aðeins kortum sem eru tengd ís-
landi. Ég hef gaman af ættfræði
og mannamyndir eru á mörgum
kortunum. Eg á kort með mynd-
um af mörgum köllum sem eru
þjóðkunnir, hér ert kort með
mynd af Óla pramma sem Gunn-
ar M. Magnúss skrifaði bók um.
Ég á líka kort með myndum af
Hófí og Lindu, svo ég er hér með
myndir af ljótustu köllunum í
Reykjavík og fallegustu stúlkun-
um í heiminum." IM