Dagur - 06.01.1990, Síða 3
Laugardagur 6. janúar 1990 - DAGUR - 3
HeimiríKA
- næst-markahæsti
KR-ingur síðasta sumars
Knattspyrnumaðurinn Heimir
Guðjónsson úr KR hefur
ákveðið að ganga í raðir KA-
manna næsta sumar. Heimir,
sem er 20 ára gamall, kom
mjög á óvart í deildinni síðasta
sumar, skoraði 6 mörk og var
næst-markahæsti leikmaður
liðsins á eftir Pétri Péturssyni.
Hann spilar nú í V-Þýskalandi
ásamt Jóni Grétari Jónssyni
hjá þarlendu 2. deildarliði en
þeir félagar eru væntanlegir til
Akureyrar í byrjun maí.
Heimir kom inn í KR-liðið sem
varamaður fyrir Pétur Pétursson
í sumar og og lék í allt 13 leiki
fyrir liðið. Heimir hefur átt við
slæm meiðsli að stríða undanfar-
in ár og hafa þau komið í veg fyr-
ir að hann tryggði sér fast sæti í
Vesturbæjarliðinu. Hann hefur
þó leikið 22 leiki fyrir KR og
skoraði 7 mörk.
Hafralækjarskóli:
Mynd Ama
Péturs valin
til þátttöku
- í teiknimynda-
samkeppni Lions
Alþjóðleg teiknimyndasam-
keppni Lionshreyfíngarinnar
um friðarveggspjald undir
kjörorðinu: Sjáðu fyrir þér
friðsælan heim, fór fram á
liðnu hausti. Þátttaka miðaðist
við nemendur 5., 6. og 7.
bekkjar grunnskóla.
Sá þátttakandi sem vinnur í
alþjóðakeppninni fær í verðlaun
ferð, ásamt tveimur úr fjölskyld-
unni, til skrifstofu Sameinuðu
þjóðanna, þar sem vinningshaf-
anum verða afhent 1500 dollara
verðlaun auk áritaðs veggspjalds,
á degi Lionshreyfingarinnar hjá
Sameinuðu þjóðunum þann 13.
mars.
Sem framlag Hafralækjar-
skóla, var valið til þátttöku í
keppninni, veggspjald eftir Árna
Pétur Hilmarsson, Árnesi í
Aðaldal. Lionsklúbburinn Nátt-
fari þakkar Árna fyrir þátttöku í
keppninni og óskar honum góðs
gengis. Myndin hans Árna er af
konu sem heldur á friðardúfu.
Að sögn Jóhanns Haukssonar,
gjaldkera Lionsklúbbsins Nátt-
fara vinna klúbbfélagar að hefð-
bundnum störfum um þessar
mundir. Eru þeir þakklátir vel-
unnurum sínum fyrir veittan
stuðning á liðnu ári og óska þeim
gleðilegs árs. JH/IM
Gódar veislur
enda vel!
Eftir einn -e/ aki neinn
SLEPPTU EKKI
HENDINNI
AF HEPPNINNI!
Hvergi í heiminum er jafnhátt vinningshlutfall og hjá Happdrætti Háskólans,
því 70% af veltunni renna beint til vinningshafa! Þar með er vinningsvonin hvergi jafnmikil
og hjá Happdrættinu. í ár eru yfir 2000 milljónir króna í pottinum. í raun gæti annar hver íslendingur
hlotið vinning því að vinningarnir eru 135.000 talsins. Mest getur þú unnið 45 milljónir á eitt
númer - allt skattfrjálst. Með trompmiða er hægt að vinna 10 milljónir króna í hverjum
mánuði og 25 milljónir í desember.
Tryggðu þér happamiða strax - þú mátt bara til!
HAPPDRÆTTI
HÁSKÖLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
ARGUS/SlA