Dagur - 09.01.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 09.01.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 9. desember 1990 - DAGUR - 3 fréttir Leikfélag Akureyrar ákallar „Skattmann“ og Svavar: Starfsemin mun stórlega dragast saman hækki ríkið ekki framlagið - þríhliða samningur ríkisins, LA og Akureyrarbæjar útrunninn Um síðustu áramót rann út þríhliða samningur Leikfélags Akureyrar, ríkisins og Akur- eyrarbæjar og hefur nýr samn- ingur ekki verið gerður. Á fjárhagsáætlun ríkisstjórnar- innar er þó tekið mið af þess- um samningi og framlag ríkis- ins óbreytt, eða rúmar 12 millj- ónir króna. Sigurður Hróars- son, leikhússtjóri, býst fastlega við því að Akureyrarbær taki einnig mið af gamla samningn- um og veiti Leikfélaginu sam- svarandi styrk og ríkið. Samkvæmt samningnum sem rann út um áramótin var Akur- eyrarbæ gert að greiða Leikfélagi Akureyrar a.m.k. jafnháa upp- hæð og ríkið. Sigurður segir framlag bæjarins rausnarlegt og ekki sé hægt að fara fram á hærri styrk frá sveitarfélaginu en hann er á hinn bóginn óánægður með að ríkið skuli ekki hækka framlag sitt milli ára þegar allur kostnað- ur hefur hækkað. „Það verður að gera algjörlega nýjan samning með nýjum for- sendum. Menntamálaráðherra og fjármálaráðherra hafa verið mjög uppteknir og okkur tókst ekki að fá þá á fund í desember en þaö er rnjög brýnt að fundi verði komið á sem fyrst," sagði Sigurður. En hvað þýðir það fyrir Leikfélag Akureyrar ef ríkið hækkar ekki framlag sitt? „Pað liggur fyrir að miðað við óbreytt fjárlög verður ekki hægt að reka leikhús hér nteð 4-5 ieik- sýningum á ári. Þetta er útilokað og það skilja fjármálayfirvöld. Annað hvort verður að draga starfsemina stórlega saman eða gera nýjan samning sem hefur í för með sér hærra framlag frá rík- inu,“ sagði Sigurður. Hann sagðist telja eðlilegt að framlag ríkisins væri mun hærra en framlag bæjarins. Leikfélag Akureyrar væri þjóðleikhús Norðlendinga og jafnframt þjón- ustumiðstöð fyrir áhugaleikfélög í þessunt landshluta. Af þeim sökum telur Sigurður að ríkið eigi meiri skyldum að gegna við Leikfélag Akureyrar en t.d. Leikfélag Reykjavíkur. Sigurður sagði að það væri slæmt fyrir Leikfélagið að búa við þessa óvissu og forgangsverkefni að koma fjármálunum á hreint. A hinn bóginn mun félagið halda sínu striki á þessu leikári sama á hverju dynur. SS Námskeið eru að hefjast! Enn er hægt að láta skrá sig 1- Dans. 4. Þrekhringur. 2. Leikfimi. 5. Erobikk. 3. Magi, rass og iæri. Tryggvabraut 22 Akureyri s™/ 24979. EUnOCARO Skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna af Húsnæðisstofnun: Kaupa fyrir allt að 25 mUlj- arða á næstu tveimur árum Fyrir skömmu var undirritaður samningur milli fjármálaráðu- neytisins, félagsmálaráðuneyt- isins og Húsnæðisstofnunar ríkisins annars vegar og sam- taka lífeyrissjóðanna hins veg- ar um kjör á skuldabréfakaup- um lífeyrissjóðanna af Hús- næðisstofnun ríkisins. Sam- komulagið nær til skuldabréfa- kaupa sem gætu numið 20-25 milljörðum króna á næstu tveimur árum og er hér jafn- framt á ferðinni stærsti láns- samningur á innlendum láns- fjármarkaði. í lánsfjáráætlun fyrir nýhafið ár er áætlað að sjóðirnir kaupi skuldabréf beint af Húsnæðis- stofnun fyrir um 11 milljarða króna auk þess sem áætlað er að sjóðirnir kaupi húsbréf fyrir 2,5 milljarða króna. Lífeyrissjóðirnir munu lána Húsnæðisstofnun annars vegar gegn skuldabréfum með inn- lendri verðtryggingu og hins veg- ar gegn skuldabréfum sem eru tryggð með evrópsku myntein- ingunni ECU. Vextir á bréfunt með innlendri verðtryggingu ráð- ast af vöxtum spariskírteina ríkis- sjóðs. Að mati fjármálaráðuneytisins á samningurinn ekki að mynda hindrun í vegi vaxtalækkana í landinu og því óþarfi að semja sérstaklega við lífeyrissjóðina til að koma slíkum lækkunum í framkvæmd. Sjóðirnir geta keypt ECU-bréf fyrir 35% af skuldabréfakaupum af Húsnæðisstofnun og miðað við verðbólgu í Evrópubandalags- löndunum í ár, óbreytt raungengi krónunnar og stöðu ECU gagn- vart öðrum gjaldmiðlum svara Virðisaukaskatturinn: Verðtryggð endurgreiðsla til húsbyggjenda Meö gildistöku laga um viröis- aukaskatt lagöist skattur á vinnu manna við byggingu íbúðarhúsnæðis en þessi vinna bar ekki söluskatt áður. Virðisaukaskattur af þessari vinnu veröur endurgreiddur en án endurgreiðslunnar hefði upptaka virðisaukaskattsins haft í för með sér um 9% hækkun á byggingarkostnaði. Með endurgreiðslunni eyðast hins vegar þessi áhrif. Samkvæmt reglugerð fjármála- ráðuneytisins verður virðisauka- skatturinn endurgreiddur á tveggja mánaða fresti á grund- velli framlagðra reikninga. Endurgreiðslufjárhæðin verður verðtryggð með lánskjaravísi- tölu. Einnig er gert ráð fyrir endurgreiðslu vegna nteiri háttar endurbóta á íbúðarhúsnæði og er þá miðað vió að kostnaður við endurbæturnar sé um 7% eða meira af fasteignamati íbúðar. Þessi hluti er líka verðtryggður og getur náð yfir lengra tímabil en eitt ár. Að mati fjármálaráðuneytisins ætti upptaka virðisaukaskattsins ein og sér ekki að leiða til nema um það bil 1% hækkunar á bygg- ingarvísitölu á fyrstu mánuðum þessa árs. JÓH vextir bréfanna til uin 5% raun- vaxta. Til að sjóðfélagar fái fullan lánsrétt hjá Húsnæðisstofnun skulu sjóðir kaupa skuldabréf af Húsnæðisstofnun fyrir 55% af ráðstöfunarfé sínu eins og það er skilgreint hverju sinni. Sjóðunum verður þó hcimilt að uppfylla samningsbundin skuldabréfa- kaup sín að hluta með kaupum á húsbréfum fyrir allt að 10% af ráðstöfunarfé sínu. JÓH ------"Il—' Starfsmenntunarnámlð Skrítstoiulækni Kenndar eru töhai- og viðskiptagreinar. Pú stendur betur að vígi nieð skrifstofutækninániið í farteskinu. Hringdu og leitaðu frekari upplýsinga í síma 27899. Tölvufræðslan Akureyri lif. Glerárgötu 34, 4. liæð, sími 27899. : Endurskoðun Akureyri hf. AÐSETUR Félagið hefur flutt alla starfsemi sína að Glerárgötu 24, III. og IV. hæð og jafnframt hætt starfsemi að Tryggvabraut 22, þar sem Fell hf. hafði áður aðsetur. FJÖLBREYTT ÞJÓNUSTA Við kappkostum að veita trausta og góða þjónustu og önnumst eftir sem áður: ★ Endurskoðun og reikningsskil. ★ Bókhald og reikningsskipulagningu. ★ Launabókhald og hvers konar tölvuvinnslu. ★ Ráðgjöf í skattamálum og gerð skattframtala. ★ Stofnun og sameiningu félaga. ★ Rekstrarráðgjöf og áætlanagerð. TENGSL Félagið er í tengslum við Endurskoðun hf. og Endurskoðun Sig. Stefánsson hf. sem hafa starfsemi víðs vegar um land. Þá er félagið aðili að alþjóða endurskoðunarfyrirtækinu KPMG. Endurskoðun Akureyri hf. Þorsteinn Kjartansson, Arnar Árnason, Björgólfur Jóhannsson, löggiltir endurskoðendur Glerárgötu 24, Akureyri. Sími 96-26600 • Símfax 96-26601.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.