Dagur - 09.01.1990, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 9. desember 1990 - DAGUR - 13
Ný reglugerð um
skráningu vinnuslysa
Vinnueftiriit ríkisins:
TILKYNNUM
TIL ÞESS AÐ FÆKKA ÞEIM
Alvarleg vinnuslys skal tilkynna strax til Vinnueftiiiits
ríkisins og lögreglustjóra. Sú skylda hvílir lögum
samkvæmt á atvinnurekanda eöa fulltrúa hans.
Önnur vinnuslys skal tilkynna til Vinnueftirlitsins á þar
til geröum eyðublöðum. (Slys sem veldur fjarvist
a.m.k. einn dag auk dagsins sem þaö varð).
Upplýsingar auövelda vamaðaraðgerðir. Gerðu þitt
til þess að þær séu gefnar!
Sjúkrabíll, sími Lögregla, sími
Vinnueftirlit
M ríkisins, sími
Veggspjald það sem Vinnueftirlitið hefur gefið út af tilefni nýju reglugerð-
arinnar.
Um áramót gekk í gildi ný reglu-
gerð um tilkynningu vinnuslysa.
Tilgangur með setningu hennar
er einkum sá að auka og bæta
skráningu á vinnuslysum og
athuganir á þeim þannig að það
verði að sem bestu gagni við að
koma í veg fyrir vinnuslys.
Samkvæmt reglugerðinni skal
atvinnurekandi eða fulltrúi hans
tilkynna slys eða eitrun á vinnu-
stað til lögreglu og Vinnueftirlits
ríkisins símleiðis eða með öðrum
hætti svo fljótt sem verða má og
ekki síðar en innan sólarhrings.
Þessi tilkynningarskylda nær til
þeirra slysa sem ætla má að geti
valdið langvinnu eða varanlegu
heilsutjóni. Sem dæmi eru nefnd
missir á útlim eða hluta af útlim,
beinbrot, meiri háttar sár, alvar-
legt augnslys, innvortis meiðsli
eða eitrun. Óheimilt er að breyta
aðstæðum á slysstað, nema vegna
björgunaraðgerða, fyrr en vett-
vangskönnun hefur farið fram.
Um þau slys sem ekki falla í
flokk hinna alvarlegustu gilda
önnur ákvæði. Valdi slíkt slys
fjarveru frá vinnu í einn eða fleiri
daga, auk þess dags sem slysið
varð, skal það tilkynnt Vinnueft-
irliti ríkisins á þar til gerðum til-
kynningarblöðum sem fyrst og
ekki síðar en innan 14 daga.
Reglugerð um tilkynningu
vinnuslysa er sett samkvæmt lög-
um um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum og felur
í sér nánari útfærslu á 81. grein
þeirra.
Mikil þörf er á því að lögboð-
inni tilkynningaskyldu vegna
vinnuslysa í landi sé betur sinnt
en verið hefur. Undanfarin ár
hafa Vinnueftirlitinu einungis
verið tilkynnt um 400 slys árlega.
Miðað við skráningu, sem fer
fram á slysadeild Borgarspítalans
og á heilsugæslustöðum, má hins
vegar ætla að allt að 12000 manns
Vinna er hafin við algjöra endur-
nýjun 110 gistiherbergja á Hótel
Loftleiðum. Gert er ráð fyrir að
breytingunum verði lokið um
miðjan mars og þær inunu kosta
um 170 milljónir króna. Þar af er
um 150 milljónum varið til hús-
búnaðarkaupa og vinnulauna hér
innanlands en afgangnum til hús-
gagnakaupa í Þýskalandi og
Svíþjóð. Við val á innréttingum
var tekið mikð af útliti, rnati á
gæðum og verði.
I.O.O.F. Rb. nr. 2 = 1391108 = 1
I.O.O.F 15= 1719181/2 = 9. I.
Brúðhjón:
Hinn 28. des. sl. voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju brúð-
hjónin Halla Angantýsdóttir og
Ásgeir Þórhallsson heimili þeirra er
að Kringlumýri 23, Akureyri.
Hinn 17.11 1989 voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju brúð-
hjónin Erna María Eyland og Tóm-
as Ingi Þorgrímsson heimili þeirra
er að Eyrarvegi 15, Akureyri.
leiti til læknis eftir slys á vinnu-
stað ár hvert. Enda þótt mörg
þeirra séu ekki tilkynningaskyld
er Ijóst að mikið skortir á full-
nægjandi skráningu og þar með
rannsóknir vinnuslysa hjá Vinnu-
eftirliti ríkisins.
Sömu verktakar voru ráðnir til
verksins og sáu um endurnýjun
allra herbergja Hótel Esju í
fyrra. Yfirumsjón er í höndum
Ingimars Hauks Ingimarssonar,
arkitekts. Endurnýjun hótelana
er þáttur í heildarendurnýjun
tækja og þjónustuþátta Flugleiða
sem verður lokið á 3 árum. Flug-
leiðir telja þá endurnýjun nauð-
synlega til að tryggja áframhald-
andi vöxt ferðamannaþjónust-
unnar sem skilar þjóðarbúinu nú
jafnvirði um 10 milljarða króna í
gjaldeyristekjur á ári hverju.
Brot gegn ákvæðum reglugerð-
arinnar varða sektum. Dómar
hafa fallið í skaðabótamálum
vegna vinnuslysa sem bera þess
vitni að það getur bitnað á
atvinnurekendum að vanrækja
tilkynningaskyldu sína.
Allir þurfa að nota
ENDURSKINSMERKI!
Hluthafafundur
verður haldinn í Dagsprenti hf. laugardaginn 13.
janúar 1990 kl. 10.30 að Strandgötu 31, Akureyri.
Dagskrá:
1. Aukning hlutafjár og breyting á 4. grein sam-
þykktanna.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Endurnýjun gistiherbergja á
Hótel Loftleiðum:
170 milljónuni króna
varið til verksins
Til sölu er
fasteignin Bjarkarbraut 3, Dalvík.
Réttur er áskilinn að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Tilboðum skal skila til undirritaðs fyrir 20. janúar
1990.
Sparisjóður Svarfdæla, Dalvík.
Sparisjóðsstjóri.
TIL SÖLU:
MMC Galant GTi 16v, árg. 1989, ekin 6500 km.
3 ára verksmiðjuábyrgð í fullu gildi.
EINN MEÐ ÖLLU.
MMC Galant Super Saloon 2000 GLi/AT árg.
1989, ekinn 7500 km. 3 ára verksmiðjuábyrgð í
fullu gildi.
BÍLLINN SEM ALLIR VILJA EIGA.
Bifreiðarnar verða tii sýnis hjá bílasölu Höldurs
við Hvannavelli, sími 24119.
UTSALA
Útsala á fatnaói
‘anúar
Vaggan Minnurmo sími 27586.
Opið kl. 9-18, laugardaga kl. 10-12.
f 'ÁA /l í/ r- f ->■> A .
Sonur okkar og bróðir,
JÓSEP ÓLAFSSON,
Rimasíðu 11, Akureyri,
lést laugardaginn 6. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Inga Lára Bachmann, Óiafur Haraidsson
og systur hins iátna.
ÞÓRUNN GUTTORMSDÓTTIR,
andaðist í Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 26. desember.
Jarðarförin hefur farið fram.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hlíð fyrir góða umönnun.
Vandamenn.
Sonur okkar,
RAGNAR ÞORVARÐARSON,
Ægisgötu 21,
er látinn.
Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum innilega auðsýnda samúð.
Gréta Ólafsdóttir, Sigurgeir Vagnsson.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við and-
lát og útför föður míns, tengdaföður og afa okkar,
ÞÓRARINS ÁGÚSTS GUÐMUNDSSONAR,
Þórunnarstræti 124.
Sérstakar þakkir til heimilisfólks og starfsfólks á Dvalarheimil-
inu Hlíð og allra annarra er sýndu honum vináttu og hlýhug í
ellinni.
Guö blessi ykkur öll.
Hulda Þórarinsdóttir, Halldór Arason,
Gyða Þ. Halldórsdóttir, Ari Halldórsson.