Dagur - 09.01.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 9. desember 1990
Karfa:
Jólasteikin sat í mönnum
- Tindastóll tapaði 56:51 fyrir KR
Tindastóll tapaði fyrir KR
56:51 í frekar slökum leik fyrir
sunnan í Úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. KR hafði yfir
35:23 í leikhléi og var sigur
Vesturbæjarliðsins sanngjarn
þrátt fyrir að Sauðkrækingarn-
ir næðu að komast yfir
skömmu fyrir leikslok.
Tindastóll skoraði fyrstu körf-
una í leiknum en heimamenn
voru fljótir að svara fyrir sig.
Smám saman jókst munurinn og
náðu KR-ingar fljótlega 12 stiga
forskoti. Þann mun tókst gestun-
um ekki að minnka fyrir leikhlé
og þegar gengið var til búnings-
herbergja var staðan 35:23.
Spilið skánaði heldur hjá Sauð-
krækingum í síðari hálfleik og
náðu þeir smátt og smátt að saxa
á forskot þeir röndóttu. Þessi
leikkafli var raunverulega sá eini
í leiknum sem gaman var að
horfa á. Leikmenn tóku vel á og
áhorfendur hvöttu sína menn til
dáða.
Um sex mínútum fyrir leikslok
komust Tindastólsmenn í fyrsta
skipti yfir, 46:45, og kættust nú
áhangendur norðanliðsins. Þetta
reyndust falsvonir því KR-liðið
skipti um gír og komst yfir á nýj-
an leik og vann öruggan og sann-
gjarnan sigur 56:51.
Skorið í leiknum gefur til
kynna að leikmenn beggja liða
fundu engan veginn fjölina í
leiknum. Engu líkara var en jóla-
steikin sæti nokkuð duglega í
1 mönnum og þá sérstaklega norð-
anmönnum. Lykilmenn Tinda-
stólsliðsins, Valur Ingimundar-
son og Bo Heyden, voru mjög'
slakir og munar um minna. Það
Sund:
Góð ferð til Kiel
- Rætt við Hörpu Groiss og Hlyn Túliníus
um keppnisferð til Kiel
Eins og sagt var frá í Degi
nýlega fór hópur frá sundfélag-
inu Oðni í æfinga- og keppnis-
ferð til Kiel í V-Þýskalandi í
lok síðasta árs. Til að forvitn-
ast nánar um þessa ferð var
rætt við þau Hörpu Groiss 13
ára og Hlyn Túliníus 14 ára
sem æfa sund með Óðni og
fóru í þessa ferð.
Það var fimmtán manna
keppnishópur sem fór frá Óðni í
þessa ferð og svo fóru þrír full-
orðnir með sem fararstjórar. Þau
Harpa og Hlynur voru sammála
um að ferðin hefði heppnast
mjög vel og að þau hefðu lært
mikið af henni. Þetta var reyndar
í annað skiptið sem Hlynur fer til
Kiel þvf Sundfélagið Óðinn fór
líka í fyrra í svipaða keppnisferð
til borgarinnar. En Harpa hafði
ekki komið þar áður og var að
sjálfsögðu ánægð með allan að-
búnað.
Óðinskrakkarnir kepptu í Kiel
á stóru alþjóðlegu móti og stóðu
sig þar vel. Reyndar var mótið
ekki mjög sterkt en Akureyring-
arnir bættu sig allir töluvert og þá
var nú takmarkinu náð. Keppt
var í sundhöll háskólans í borg-
inni en þar er stór keppnislaug.
Keppnisfólkið frá íslandi bjó í
heimhúsum hjá foreldrum eða
forráðamönnum þýska sundfé-
lagsins en það var Wolfgang
Shar, hinn þýðverski þjálfari
Óðins, sem bar hitann og þung-
ann af þessari ferð til V-Þýska-
lands.
Dvalist var nokkra daga í Kiel
og fengu krakkarnir tækifæri til að
skoða borgina eftir mótið. Flogið
var til Hamborgar þannig að hóp-
urinn fékk einnig tækifæri til að
berja þá frægu hafnarborg aug-
um. Reyndar var það stutt stopp
en þau geta þó sagt að þau hafi
komið til Hamborgar.
Hlynur er einn af eldri félögun-
um í Óðni þrátt fyrir ungan
aldur. Hann hóf að æfa sund 8
ára gamall og þá aðallega vegna
þess að eldri bróðir hans æfði
með félaginu. Hann hefur því æft
sund í 6 ár og það er engan bil-
bug á honum að finna.
Harpa hefur hins vegar einung-
is æft í eitt ár en hefur sýnt miklar
framfarir á því ári. Næsta stóra
verkefnið hjá krökkunum er Ald-
ursflokkamótið í sundi sem hald-
ið verður í Keflavík næsta sumar.
Sundfólkið knáa úr Óðni Hlynur Túliníus og Harpa Groiss.
var helst Sturla Örlygsson sem
stóð sig vel og svo var Ólafur
Adolfsson sterkur í vörninni.
Einnig átti Stefán Pétursson
ágæta spretti. Sverri Sverrisson
var veikur og lék ekki með liðinu
að þessu sinni og veikti það
Tindastól nokkuð.
Hjá KR bar einna mest á
Guðna Guðnasyni og Rússanum
Kouvton. En KR-liðið verður að
standa sig betur en í þessum leik
ef þeir ætla að gera einhverja
góða hluti í úrslitakeppninni.
Dómarar voru þeir Leifur
Garðarsson og Sigurður Val-
geirsson og stóðu þeir sig ágæt-
lega.
í öðrum leikjum í deildinni
vakti það athygli að Reynir vann
sinn fyrsta sigur er þeir lögðu
Valsmenn að velli 96:83. ÍBK
burstaði síðan ÍR 127:86.
Stig Tindastóls: Sturla Örlygsson 15, Bo Hey-
den 13, Valur Ingimundarson 12, Stefán Péturs-
son 7, Ólafur Adolfsson 4.
Stig KR: Kouvton 16, Guöni Guönason 14,
Axel Nikulásson 13, Birgir Mikaelsson 4, Matt-
hías Einarsson 4, Höröur Gauti Gunnarsson 3,
Böðvar Guðjónsson 2.
bjb/AP
Hafsteinn Jakobsson átti góðan leik
gegn HK. Hér sést hann smassa
boltann og andartaki síðar lá hann í
gólfinu hjá Kópavogsbúunum.
Mynd: KL
Bikarkeppni KKÍ:
Þór og Tinda-
stóll mætast
Tindastóll og Þór drógust sam-
an í 16 liða úrslitum Bikar-
keppni KKÍ þegar dregið var í
gær. í forleik fyrir 8 liða úrslit
kvenna mætast Iið Tindastóls
og b-lið ÍS og sigurvegari úr
leiknum mætir Njarðvík í leik
um sæti í 8-Iiða úrslitum.
Aðrir leikirnir í 16 liða úrslitum
karla eru: ÍBK A-Reynir, Grinda-
vík-ÍBK B, UBK-UMFN B,
Valur-Haukar, ÍR-Víkverji/
ÚÍA, Njarðvík A-ÍS A eða B og
Laugdælir/ÍA-KR. Leikin verður
tvöföld umferð en leiktímar eru
ekki ákveðnir enn. JÓH/kj
Sturla Örlygsson stóð sig einna best Tindasólsmanna í leiknum gegn KR. Mvnc
Blak:
KA lagði íslandsmt
- létt á móti HK
Þetta var góð helgi hjá blakliðum
KA, sérstaklega þó hjá kvennaliði
KA. Stelpurnar gerðu sér nefnilega
lítið fyrir og sigruðu Víkingsstúlk-
urnar 3:2 á föstudagskvöldið og síð-
an HK 3:0 á laugardaginn. Þess má
geta að þetta var fyrsta tap ísiands-
meistara Víkings í blakinu á þessu
keppnistímabili. KA-strákarnir
unnu einnig góðan sigur á HK 3:0 á
laugardaginn.
KA-stúlkurnar hófu þessa góðu
helgi með því að leggja Víking að velli
3:2 í íþróttahúsi Glerárskóla á föstu-
dagskvöldið. KA-liðið kom mjög
ákveðið til leiks í fyrstu hrinunni og
eftir mikla baráttu tókst því að merja
sigur 16:14.
Engu líkara var en heimastúlkurn-
ar tryðu ekki að þær gætu unnið ís-
landsmeistarana svo að í annarri hrin-
unni gekk lítið upp. Víkingarnir gengu
á lagið og sigruðu 15:6.
KA vaknaði vel í þriðju hrinunni og
vann nokkuð öruggan sigur 15:13,
þrátt fyrir að einungis munaði tveimur
stigum undir lok leiksins.
I fjórðu hrinunni fór aftur að bera á
óöryggi hjá KA og Víkingsstúlkurnar
unnu verðskuldaðan sigur 15:10. En í
fimmtu hrinunni komu þær gulklæddu
mjög ákveðnar til leiks og drifnar
áfram af stórleik Höllu Halldórsdóttur
unnu þær hrinuna 15:8 og þar með
leikinn 3:2.
Létt á móti HK
Dagskráin var frekar létt hjá bæði
strákunum og stelpunum gegn HK. í
stúlknaleiknum veittu HK-stúlkurnar
nokkurt viðnám í fyrstu og annarri
hrinunni. Það var einkum ágæt vörn og
ágætar uppgjafir Kópavogsliðsins sem
fleyttu því eitthvað áleiðis gegn KA-
stúlkunum.
HK-liðið er hins vegar alveg smass-
aralaust og hávörnin er slök enda
stúlkurnar flestar smávaxnar. KA vann
því nokkuð öruggan sigur í öllum hrin-
unum þremur, 15:6, 15:12 og 15:3:
Þessir tveir sigrar gera það að verk-
um að KA-Iiðið er næsta öruggt í úr-
slitakeppnina en þangað komast fjögur
efstu liðin í deildinni. Víkingur og
Breiðablik eru örugg með sæti og svo
er líklegt að ÍS verði fjórða liðið í úr-
slitunum, en þau hefjast í byrjun mars.
Þess má svo geta að stúlkurnar í KA
léku gegn UBK skömmu fyriri jól og
töpuðu mjög naumlega 3:2. Akuréyr-
arliðið var komið með mjög vænlega
stöðp í fimmtu hrinunni, 14:8, en
Kópavogsdömurnar áttu góðan loka-
sprett og sigruðu 16:14. Breiðablik og
Víkingur hafa borið ægishjálm yfir
Birgitta Guðjónsdóttir og stöllur hennar í K
unnu Víkinga og HK og eru nú næsta örug