Dagur - 09.01.1990, Page 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 9. desember 1990
Vinningstölur laugardaginn
6. jan ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 2.351.342.-
2. aTs^ 1 408.866.-
3. 4af 5 85 8.297.-
4. 3af 5 3.452 476.-
Heildarvinningsupphæö þessa viku:
5.108.605.-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Auglýsing frá ríkisskattstjóra
VfSITALA
JÖFNUNAR-
HLUTABRÉFA
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr.
9. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt hefur
ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar
verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa
á árinu 1990 og er þá miðað við að vísitala
1.janúar1979sé100.
1.janúarl980 vísitala 156
l.janúar!981 vísitala 247
l.janúar 1982 vísitala 351
l.janúar 1983 vísitala 557
l.janúarl984vísitala 953
l.janúar 1985 vísitala 1.109
l.janúarl986 vísitala 1.527
l.janúarl987 vísitala 1.761
l.janúarl988vísitala 2.192
l.janúarl989 vísitala 2.629
1. janúar 1990 vísitala 3.277
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við
vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir
stofnun hlutafélags eða innborgun hlutafjár eftir þann
tíma, en hins vegar við vísitölu 1. janúar þess árs sem
útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin.
Reykjavík2. janúar 1990
RSK
RÍKISSKA7TSTJÓRI
BR0SUM /
í umferðinni ^
- og allt gengur betur! •
|| UMFERÐAR
-I
kvikmyndarýni
SjUmsjón: Jón Hjaltason
Robert Downey og Cybill Shepherd; hjón og þó ekki gift, elskendur en hafa þó aldrei samræðst, jafnaldrar en þo
20 ára aldursmunur.
Gamanmynd en í senn
hugljúf ástarsaga
Borgarbíó sýnir: Ef? (Chances Are).
Leikstjóri: Emile Ardolino.
Helstu leikarar: Cybill Shepherd, Robert
Downey, Ryan O’Neal og Mary Stuart
Masterson.
Tri-Star 1989.
Ég skal fúslega viðurkenna að ég
var á báðum áttum um það hvaða
mynd ég ætti að sjá nú um helg-
ina. Að lokum afréð ég að skella
mér á þá í A-sal, nánast eingöngu
vegna þess að þar er rýmra á milli
veggja og hærra til lofts. En það
fór svo að lokum, eftir ákaflega
sannfærandi fortölur Jóhanns
bíómiða-afrífara, að ég hafnaði í
B-sal. Jóhann var nefnilega ekk-
ert að klípa utan af því að Ef?
væri alveg stórgóð mynd, spreng-
hlægileg og leikararnir frábærir.
Og það er skemmst frá því að
segja að ég varð ekki fyir von-
brigðum; einstaka sinnum getur
borgað sig að vera svolítið tal-
hlýðinn þó vingulsháttur sé að
öllu jöfnu ljóður á ráði manna.
Ef? fjallar um hinn eilífa þrí-
hyrning; tveir karlmenn, kunn-
ingjar, falla fyrir sömu konunni.
Annar þeirra giftist henni en deyr
ári síðar, einmitt þegar þau eiga
von á sínu fyrsta barni. í liðlega
tvo áratugi syrgir ekkjan mann
sinn á meðan kunninginn (Ryan
O’Neal) sveimar í kringunt hana
eins og köttur í kringum heitan
graut. Hann elskar hana en þorir
þó ekki að gerast áleitinn. Það er
hins vegar af hinum sálaða eigin-
manni að segja að hinum megin
grafar fær sál hans að velja á milli
þess að endurfæðast sem stúlka
eða sveinn. Hann velur en er á
mikilli hraðferð til jarðarinnar
aftur og fyrir vikið ná forráða-
menn sálnastöðvarinnar ekki til
að sprauta í hann óminnislyfinu.
Þegar hann síðar, í líkama tví-
tugs unglings, (Roberts Downey)
kynnist konu sinni, æskuvini og
dóttur (Mary Stuart Masterson)
rifjast fyrra tilverustigið upp fyrir
honum og spaugilegir atburðir
gerast.
Ég er nú kannski ekki alveg
sammála Jóhanni afrífara um að
Ef? sé afspyrnu gamansöm og
hlægileg; hún er þó öll á léttari
nótunum og vissulega bregður
fyrir kímni í henni. Um hitt er ég
alveg sammála honum að leikar-
arnir standa sig frábærlega og þá
ekki hvað síst Cybill Shepherd er
leikur móðurina. Það er fyrst og
fremst fyrir Ieik hennar að Ef? er
ekki aðeins gamanmynd heldur
einnig, og ekkert síður, falleg og
hugljúf ástarmynd.
Póst- og símamálastofnun:
Æskflegt a einn aðfli
semji um laun starfsmanna
innan sömu starfsgreinar
Vegna uppsagna símsmiða sem
tóku gildi um síðastliðin áramót
hafa komið fram ýmsar rangar
upplýsingar í fjölmiðlum varð-
andi þetta mál.
Nauðsynlegt er að leiðrétta
nokkur atriði:
1. Því hefur verið haldið fram að
stofnunin hafi ráðlagt viðkom-
andi aðilum að segja upp
störfum sínum. Þetta er ekki
rétt og hefur það verið marg
leiðrétt í viðtölum við tals-
menn símsmiða.
2. Fullyrt hefur verið að laun
samkvæmt kjarasamningum á
almennum markaði séu 30%
hærri en þau sem símsmiðir fá
hjá Pósti og síma. Slíkur
samanburður er ekki til, en
samanburður hefur verið
gerður á dagvinnulaunum raf-
eindavirkja samkvæmt taxta
Rafiðnaðarsambandsins og
launatöflu Fél. ísl. símam. í
des. 1989 og eru þau hærri
sem nemur frá 6,4% upp í
26,8%. Er þá ekki tekið tillit
til sérréttinda opinberra
starfsmanna t.d. lífeyrisrétt-
indi og atvinnuöryggis fram
yfir aðrar stéttir.
3. Póst- og símamálastofnunin er
ekki samningsaðili um launa-
og kjaramál heldur fjármála-
ráðuneytið. Félag íslenskra
símamanna semur um kaup
og kjör símsmiða. Stofnunin
telur æskilegt að einn aðili
semji um laun starfsmanna
innan sömu starfsgreinar og
helst eitt félag eða samband
stéttarfélaga fyrir alla starfs-
menn stofnunarinnar.
Stofnunin mun kappkosta að
leysa þarfir viðskiptavina eftir
föngum, en biður þá að hafa bið-
lund á meðan þetta ástand varir.