Dagur - 16.01.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 16.01.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 16. janúar 1990 i fréttir Jólagátur Dags: Síðustu forvöð að senda inn lausnir Frestur til að skila inn lausnum á jólamyndagátu og jólakross- gátu Dags rennur út í dag, 16. janúar. Heilsufar í desember: Annríki hjá heilsu- gæslulæknum Mikið annríki hefur verið hjá læknum sem starfa á Heilsu- gæslustöðinni á Akureyri að undanförnu en í gangi hafa verið leiðinda pestir sem hrjáð hafa marga. Þeir sem enn eiga eftir að senda lausnir inn, hafa þó ekki misst af lestinni bregðist þeir skjótt við, því póststimpill gildir, þótt lausnirnar berist blaðinu ekki fyrr en á morgun eða fimmtudag. Dregið verður úr innsendum lausnum á föstudag- inn en í boði er vöruúttekt að eig- in vali að verðmæti krónur 12 þúsund fyrir rétta lausn á gátun- um. Það er því til nokkurs að vinna að vera.með. Nöfn vinningshafa og lausnir á gátunum verða birt í Degi að viku liðinni, þriðjudaginn 23. janúar nk. Frá vinstri Pétur Einarsson, flugmálastjóri, Nfls Gíslason (heldur á DNG-Miðun) og Jón Knudsen, formaður Flug- björgunarsveitar Akureyrar. Fyrir framan þá er 4 kw Ijósavél sem Flugmálastjórn færði Flugbjörgunarsveitinni að gjöf. Mynd: KL Flugmálastjórn færði Flugbjörgunarsveit Akureyrar að gjöf nýtt miðunartæki frá DNG til að miða út neyðarsenda: Við fréttum af galdramöimunum frá DNG - sagði Pétur Einarsson, flugmálastjóri Þarna er aðallega um að ræða kvefsýkingu sem veldur flensu- einkennum og magakveisu. í des- ember voru alls 391 einstaklingur skráður með kvef og hálsbólgu á svæði Heilsugæslustöðvarinnar og 129 með iðrakvef. Auk þessa voru 15 með lungna- bólgu, 14 streptókokkahálsbólgu og 2 með eitlafár. Hlaupabólu fengu 3 einstaklingar, 4 kláða- maur og 1 þvagrásarsýkingu. Upplýsingar þessar ber að taka með fyrirvara um að það er mats- atriði hvers læknis hvort og hve- nær skrá eigi sjúkdóma. VG Hjalteyrin EA fékk hæsta meðalverð í íslenskum krónum sem fengist hefur í Englandi, er togarinn seldi ytra í síðustu viku og Vigri RE setti sam- bærilegt met í Þýskalandi dag- inn áður. Hvort tveggja voru jafnframt næst hæstu meðal- verð sem fengist hafa í gjaid- miðli viðkomandi landa. Hjalteyrin EA seldi 120 tonn fyrir 16,5 milljónir króna og var meðalverðið 137.77 kr/kg. Hjalt- eyrin var með 112 tonn af þorski á 136,12 kr/kg og 6 tonn af ýsu á 166,51 kr/kg. Fyrra krónutölumetið í Eng- landi átti Stakfellið ÞH, 134,16 Pétur Einarsson, flugmála- stjóri fyrir hönd Flugmála- stjórnar, færði sl. föstudag Flugbjörgunarsveit Akureyrar að gjöf handhægt miðunartæki kr/kg og sett í lok september í fyrra. Hjalteyrin náði einnig næst hæsta meðalverði sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í Englandi í pundum talið, 1,38 pund/kg en gamla metið átti Hoffell SU, 1,46 pund/kg, sett í janúar fyrir tveim- ur árum. Vigri RE seldi 199 tonn í Þýska- landi og fékk 28,7 milljónir króna fyrir aflann, sem var nær eingöngu karfi. Það er næst hæsta heildar- verð sem fengist hefur í Þýska- landi en meðalverð togarans var 144,32 kr/kg og með þessari sölu sló Vigri krónutölumet Ottós N. Þorlákssonar RE, sem var 139,81 kr/kg og var sett nú á milli jóla og nýárs. -KK til þess að miða út neyðar- senda. Við sama tækifæri af- henti flugmálastjóri sveitinni að gjöf 4 kw Ijósavél og talstöð sérstaklega til þess ætlaöa að ná sambandi við flugvélar. Miðunartækið nefnist DNG- Miðun og er eins og nafnið bend- ir til framleitt hjá DNG á Akur- eyri. Að sögn forráðamanna DNG höfðu starfsmenn Flugmála- stjórnar samband við fyrirtækið sl. sumar og viðruðu hugmyndir um slíkt miðunartæki og það varð úr að hönnunarvinnu var hleypt af stokkunum og er árang- urinn nú að koma í ljós. DNG-Miðun er miðunartæki Á árinu 1989 greindust sex nýir einstaklingar á Islandi með alnæmissmit og á sama tíma fyrir neyðarsenda. Hægt er að miða á þremur bylgjulengdum, neyðarbylgju skipa og flugvéla, neyðarbylgju hers og æfinga- bylgju. Tækið er einfalt í notkun, enda mikil áhersla lögðÁ það við þró- un tækisins að það geti stuðlað að því að leitarmenn komist sem fyrst á slysstað, þ.e. að neyðar- sendinum. Upplagt þykir t.d. að hafa miðunartæki í skipum til að þau komist á slysstað sem fyrst því sjóslys eru nokkuð tíð við ísland. Neyðarsendar fara stundum af stað vegna bilunar og er oft kostnaðarsamt og erfitt að miða þá út. DNG-Miðun var reynt í greindust þrír með alnæmis- sjúkdóminn. Samkvæmt upp- lýsingum frá Landlæknisemb- ættinu höfðu í árslok 1989 greinst samtals 54 einstakling- ar á landinu með smit af völd- um alnæmisveirunnar, af þeim hafa 13 greinst með sjúkdóm- inn og 5 látist af völdum hans. Þegar litið er á dreifingu sýktra milli kynja kemur í ljós að um það bil ein kona smitast á móti hverjum 5-6 karlmönnum. Flestir smitaðra eru hommar eða tvíkyn- hneigðir en þeir eru alls 37 af 54 sýktum. Fíkniefnaneytendur eru 8 þar af 1 kona, einn sjúklingur telst til beggja fyrrgreindu hóp- anna, 4 smitaðir eru gagnkyn- hneigðir, þar af 3 konur og blóð- þegar eru 4 allt konur. Enginn dreyrasjúklingur hefur smitast af alnæmi. Þann 31. desember sl. voru alls 23 smitaðir einstakling- ar einkennalausir og 18 með for- stigseinkenni. Það var í byrjun árs 1983 sem fyrsta alnæmistilfellið greindist á slíku tilfelli á Akureyri milli jóla og nýárs og skilaði híutverki sínu mjög vel. Að sögn Péturs Einarssonar, flugmálastjóra, er hönnun þeirra DNG-manna, eða galdramann- anna í DNG eins og hann kallaði þá, á miðunartækinu einstök og mun sambærilegt tæki hvergi vera framleitt í heiminum. Pétur segir að Flugmálastjórn hafi gott samstarf við björgunarsveitir um allt land í sambandi við flugslys og áhersla sé lögð á að styðja þær eins og kostur er við uppbygg- ingu tækjabúnaðar. Pétur segist búast við að Flugmálstjórn kaupi 20 miðunartæki frá DNG og láti þau í hendur björgunarsveita og lögreglu um allt land. SS/óþh íslandi. Fyrstu tvö árin þar á eftir greindust fá tilfelli en í lok ársins 1985 varð mikil breyting þar á. Æ síðan hafa fleiri einstaklingar greinst með alnæmissmit og sem fyrr segir eru þeir nú samtals 54. Síðastliðin tvö ár hefur sjúkl- ingum með alnæmi staðið til boða lyfjameðferð gegn sjúk- dómnum en sýnt hefur verið fram á að slík meðferð geti dregið úr sjúkdómsþróun þeirra sem veikir eru. Hér er um að ræða svokall- aða Zidovudin meðferð og fengu um 18-20 smitaðir íslendingar slíka meðferð síðari hluta árs 1989. Enn er of snemmt að segja fyrir um langtíma áhrif lyfjameð- ferðarinnar. Eins og búast má við hefur álag á heilbrigðisþjónustu aukist vegna alnæmis undanfarin ár. Legudagar á deild A7 á Borgar- spítalanum í Reykjavík vegna alnæmissjúklinga voru milli 250 og 260 á síðasta ársfjórðungi 1989 og hafði þeim fjölgað verulega frá árinu áður. VG Fjölmennur hluthafa- fimdur í Siglunesi hf. Hluthafafundur haldinn í almenningshlutafélaginu Siglunesi hf. á laugardaginn skoraði á bæjarstjórn, verka- lýðsfélagið Vöku, þingmenn kjördæmisins og fjármála- ráðuneytið að beita sér hið fyrsta fyrir því að félagið geti hafið rækjuvinnslu á ný á staðnum. Guðmundur Arnaldsson, ný- endurkjörinn stjórnarformað- ur, segir að í stuttu máli hafi hluthafafundurinn falið stjórn félagsins að leita annarra leiða til að koma verksmiðjunni sem allra fyrst í gang, verði ekki ein- hver Ijósglæta gefin í fjármála- ráðuneytinu fyrir miðja næstu viku. Osk Sigluness hf. um við- ræður við ráðuneytið um fram- hald rækjuvinnslu á staðnum hefur legið ósvarað í ráðuneyt- inu frá því löngu fyrir áramót. í áskorun til bæjarráðs Siglu- fjarðar, Vöku og þingmanna kjördæmisins eru þessir aðilar hvattir til að taka jákvæða afstöðu til Sigluness hf., og gera það sem í þeirra valdi stendur til að félagið geti sem fyrst hafið vinnslu. Til fjármálaráðuneytisins er beint þeirri áskorun að svara erindi Sigluness á næstunni, því hlutliafafundurinn hafi ákveðið að leita annarra úrræða að öðr- um kosti. EHB Metsala hjá Hjalt- eyriraii í Englandi - einnig metsala hjá Vigra í Þýskalandi Alnæmissýktir íslendingar nú 54 í allt: Sex nýir einstaldingar greindust á síðasta ári - aðeins 1 kona smitast á móti 5-6 karlmönnum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.