Dagur - 16.01.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 16.01.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 16. janúar 1990 - DAGUR - 5 Gítar er sívinsælt hljóðfæri meðal nemenda í Tónlistar- skólanum á Akureyri, enda skemmtilegt og fjölhæft hljóð- færi og ekki mjög dýrt. Einn nemandinn gerðist þó stórtæk- ur á dögunum og fékk hand- smíðaðan gítar beint frá fram- leiðandanum á Spáni, en slíkur gítar kostar um 100 þúsund krónur án opinberra gjalda, kostar víst 180 þúsund í Bret- landi. Þetta er ofur venjulegur kassa- gítar að sjá, en hljómurinn er mjög þéttur og fallegur. Eigandi gripsins er ung stúlka, Elma Dröfn Jónasdóttir, en hún er á 4. stigi í gítardeild Tónlistarskólans á Akureyri. Kennari hennar er Örn Viðar Erlendsson. Elma var spurð út í gítarkaupin. - Áttir þú gítar áður? „Já, hef átt tvo.“ Elma Dröfn með gítarínn góða sem hún fær í fermingargjöf. Mynd: kl Gítardeild Tónlistarskólans á Akureyri: Nemandi með 100 þúsund króna gítar í höndunum - hlutavelta fyrir ferðasjóð gítardeildar Þessar voru duglegastar að safna fyrir hlutaveltuna, þær Soffía, Jóhanna og Asa Katrín. Mynd: Kl. - En hvernig datt þér í hug að festa kaup á svo veglegu hljóð- færi? „Með því að kaupa góðan gítar þá þarf ég ekki að kaupa annan þegar ég er komin lengra í nám- inu. Þessi gítar á að endast." - Hvernig gastu fjármagnað kaupin? „Ég fæ gítarinn í fermingar- gjöf.“ - Og hvernig er svo að spila á gripinn? „Það er alveg frábært," sagði Elma Dröfn og leyfði okkur að heyra tóndæmi. Safnað í ferðasjóð gítardeildar „Þessi gítar er keyptur sérstak- lega með hennar áferð í huga. Hún er grönn og tónninn í venju- legum gítar verður dálítið glær. Tónninn í þessum er mun massíf- ari því þetta er mjög mjúkur gítar," sagði Örn Viðar gítar- kennari um hljóðfæri Elmu Drafnar. Hann sagðist vonast til þess að tilkoma nýja gítarsins smitaði út frá sér og að fleiri myndu fjár- festa í slíku hljóðfæri, enda mjög uppörvandi fyrir kennarann þeg- ar nemendurnir eru með af- bragðs hljóðfæri í höndunum. Af öðrum tíðindum í Tónlist- arskólanum á Akureyri má nefna að nemendur héldu hlutaveltu til styrktar ferðasjóði gítardeildar- innar. Tvær hlutveltur voru haldnar í göngugötunni og söfnuðust alls 28 þúsund krónur. Duglegastar við söfnunina voru þrjár stelpur, Soffía Guðmunds- dóttir, Jóhanna Sveinsdóttir og Ása Katrín Gunnarsdóttir. Þær koma fram sem fulltrúar nem- endanna, en allir nemendurnir söfnuðu munum á hlutaveltuna fyrir ferðasjóð gítardeildarinnar og vildi Örn Viðar þakka þeim öllum fyrir dugnaðinn. SS Reglur um mengunarmörk - og aðgerðir til að draga úr mengun Um áramót gengu í gildi reglur um mengunarmörk og aðgerð- ir til að draga úr mengun. Þar með ganga í fyrsta sinn í gildi almennar nákvæmar reglur um loft á vinnustöðum í landi. Tilgangur reglnanna er að fyrirbyggja að starfsmenn verði fyrir heilsutjóni vegna mengunar í andrúmslofti á vinnustað. Vinnu á að skipuleggja og fram- kvæma þannig að mengun sé eins lítil og kostur er og má hún ekki fara yfir þau mörk sem sett eru í reglunum. Ef mengun er undir mengunarmörkum á að vera tryggt að starfsmenn verði að jafnaði ekki fyrir heilsutjóni af hennar völdum. Ef mengun er yfir mengunar- mörkum skal þegar gripið til aðgerða til að draga úr mengun. í reglunum og leiðbeiningum með þeim er bent á ýmsar leiðir til þess. Besta lausnin er yfirleitt að fjarlægja mengunina strax við upptök hennar með góðri loft- ræstingu. Ef ekki er hægt að draga nægilega úr menguninni, eða meðan unnið er að úrbótum, getur verið nauðsynlegt að starfs- menn noti öndunargrímur. I reglunum er sérstakur kafli og skrá yfir krabbameinsvaldandi efni. Þeim er skipt upp í flokka, annars vegar efni sem ekki er leyfilegt að nota nema með und- anþágu eða leyfi frá Vinnueftir- litinu, og hins vegar efni sem leyfilegt er að nota ef mengun er undir mengunarmörkum. í reglunum er skrá yfir efni þar sem mengunarmörk fyrir þau koma fram. Þar kemur einnig fram að efnin geta borist inn í lík- amann í gegnum húðina og ef þau eru ofnæmisvaldandi eða geta valdið krabbameini. Nokkrar tilkynningar berast Vinnueftirlitinu árlega um meinta atvinnusjúkdóma vegna efnamengunar. Þær eru mun færri en gerist í nágrannalöndun- um. Varla er þó við því að búast að ástandið á vinnustöðum sé betra hér á landi en þar. Mæling- ar Vinnueftirlitsins benda til að við mörg störf í efnaiðnað og við málun og lökkun, svo dæmi séu nefnd, sé mengun yfir mörkum. Verði starfsmaður veikur eða fái önnur einkenni sem geta verið tengd mengun í vinnuumhverfi er nauðsynlegt að fram fari bæði læknisskoðun á viðkomandi ein- staklingi og mælingar á mengun- inni. Með reglunum fylgja leiðbein- ingar með skýringum og hagnýt- um ábendingum. Vinnueftirlitið annast mælingar og úttekt á mengun á vinnustöðum. Saumakona Óskum eftir að ráða saumakonu í hálfs- dagsstarf e.h. hjá j.M.j. við fatabreytingar. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. ★ Upplýsingar aðeins á skrifstofu okkar. IRÁÐNINGAR Endurskoðun Akureyri hf. - Fell Glerárgötu 24 - Sími 26600 Þorrablót • • Ongulsstaöarhrepps verður haldið laugard. 20. janúar og hefst kl. 21.00. Brottfíuttir hreppsbúar velkomnir. Miða og borðapantanir í síma 24936 til kl. 20 mið- vikudaginn 17. janúar. Á AKUREYRI Kaupvangsstræti 16 Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri 5. febrúar til 16. maí Barna- og unglinganámskeið Teiknun og málun. 1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku. 2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku. 3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku. 4. fl. 10-11 ára. Einu sinni í viku. 5 fl. 12-14 ára. Einu sinni í viku. Málun og litameðferð fyrir unglinga. Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku. Framhaldsnámskeið. Einu sinni í viku. Kvöldnámskeið fyrir fullorðna Teiknun. Bryjendanámskeið. Tvisvar í viku. Módelteiknun. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Málun og litameðferð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Auglýsingagerð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Byggingalist. Byrjendanámskeiö. Tvisvar í viku. Grafík. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Skrift og leturgerð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958. Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00 virka daga. Skólastjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.